Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 31

Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 31 LISTIR 1 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2 6 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell 3 2-3 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 4 2-3 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn 5 - Sviptingar á sjávarslóð/ Höskuldur Skarphéðinsson/ Mál og menning 6 - Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 7 - Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan 8 - Árásin/ Richard Bachman (Stephen King)/ Fróði 9-10 - Depill kann að telja/Eric Hill/Skjaldborg 9-10 - Dísa Ijósálfur/ G. Th. Rotman/ Forlagið Einstakir flokkar: ISLENSK OG ÞYDD SKALDVERK 1 2 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell 2 - Árásin/ Richard Bachman (Stephen King)/ Fróði 3-4 1 Kular af degi/ Kristín Marja Baldursdóttir/ Mál og menning 3-4 - Leyndardómar Shambala/ James Redfield/ Leiðarljós 5 - Sumarást/ Bodil Forsberg/ Hörpuútgáfan 6 i Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning 7 - Lfnur - Smásögur/Páll Hersteinsson/Ritverk 8 7-8 Stúlka með fingur/ Þórunn Valdimarsdóttir/ Forlagið 9 7-6 Lífsins tré/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning 10 - Spegilmynd/Danielle Steel/Setberg ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 1 Hugástir/ Steinunn Sigurðardóttir/ Mál og menning 2-3 - Ljóðtímaskyn/ Sigurður Pálsson/ Forlagið 2-3 - Skagfirsk skemmtiljóð - III/ Bjarni S. Konráðsson safnaði efni/ Hólar 4 » Gullregn/ Þórarinn Eldjárn/ Forlagið 5 2 Sálmabók íslensku kirkjunnar/ Lögin valdi Róbert A. Ottósson/ Skálholt ISLENSKAR OG ÞYDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2 - Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg 3-4 » Depill kann að telja/ Eric Hill/ Skjaldborg 3-4 9*10 Dísa Ijósálfur/ G. Th. Rotman/ Forlagið 5-6 S Ástarsaga úr fjöllunum/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 5-6 - Bestu barnabrandararnir: Svaka stuð/ Börn tóku saman efni/ Hólar 7 - Dýrin stórog smá//Setberg 8-9 » Góða nótt, góðu vinir/ Stefán Júlíusson íslenskaði/ Setberg 8-9 - Pétur Pan/ J. M. Barrie. Edith Lowe endursagði/ Setberg 10 - Jólin koma/ Jóhannes úr Kötlum/ Mál og menning ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 - Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan 2 3 Almanak Háskólans - Árið 2000/ / Háskóli islands 3 9 Almanak Þjóðvinafélagsins - Árið 2000/ / Hið íslenska þjóðvinafélag 4 Refirnir á Hornströndum/ Páll Hersteinsson/ Ritverk 5 - List skáldsögunnar/ Milan Kundera/ Mál og menning 6-7 - íslensk matarhefð/ Hallgerður Gísladóttir/ Mál og menning 6-7 - Sjálfstyrking kvenna/ Louise L. Hay/ Leiðarljós 8 8 Land birtunnar-Ýmis tungumál/ Haukur Snorrason og Magnús Tumi Guðmundsson/ Snerruútgáfan 9-10 8-7 Hvað gengur fólki til?/ Sæunn Kjartansdóttir/ Mál og menning 9-10 1 í róti hugans/Kay Redfield Jamison/Mál og menning ÆVISOGUR OG ENDURMINNINGAR 1 1-2 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning 2 1-2 Einar Benediktsson-ll/Guðjón Friðriksson/Iðunn 3 4 Sviptingar á sjávarslóð/ Höskuldur Skarphéðinsson/ Mál og menning 4 » Steingrímur Hermannsson-ll/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell 5 » Jón Leifs-Tónskáld í mótbyr/ Carl Gunnar Áhlen/ Mál og menning Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bókabúðin Hlemmi Bókabúðin Mjódd Bóksala stúdebta, Hringbraut Bónus, Holtagörðum Eymundsson, Kringlunni Penninn-Eymundsson, Austurstræti Penninn, Kringlunni Bókabúðin Hamraborg Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavikur, Keflavík Bókval, Akureyri, KÁ, Selfossi Kaupfélag Hérðasbúa, Egilsstöðum A“\ ps - Samantekt Félagsvlsindastofnunar á sölu bóka 22.-28. nóv. 1999 Unnið fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímaþili, né kennsiubækur. Sturlun maníunnar skelfíngin í kjölfarið BÆKUR Keynslusaga í RÓTIHUGANS Saga af æði og örvæntingu eftir Kay Redfield Jamison. Guðrún Finnbogadóttir þýddi. Mál og menning 1999. KAY Redfíeld Jamison er bandarískur sálfræðingur sem hefur um árabil verið einn af þekktari fræðimönnum vestan- hafs á sviði geðhvarfasýki eða maniodepression. I ævisögu sinni, I róti hugans, lýsir hún á opinská- an og eftirminnilegan hátt sinni eigin baráttu við geðhvarfasýkina. Það er í sjálfu sér þrekvirki að viðurkenna opinberlega að vera haldinn alvarlegum geðsjúkdómi; Jamison gerði sér grein fyrir því ,að með því að birta bókina gæti hún hugsanlega stofnað stöðu sinni og starfsferli í hættu. Bókin, sem kom fyrst út í Bandaríkjun- um 1995, hefur hins vegar fengið fádæma góðar viðtökur og kemur nú út hér á landi í ágætri þýðingu Guðrúnar Finnbogadóttur. Þetta er á vissan hátt sorgarsaga, lífs- reynslusaga, en ekki síður saga um þrotlausa baráttu og sigur á erfiðum veikindum í lokin; sigur sem er þó ekki án sinna fórna. Bókin er jafnframt skemmtileg og líflega skrifuð; hún grípur lesa- ndann frá upphafi til enda, spenn- andi, svolítið tilfmningahlaðin, fyndin, einlæg og ekki síst full af ómetanlegum fróðleik um geðhv- arfasýki, sem ætti að geta nýst öllum þeim einstaklingum sem eru að berjast við þann sjúkdóm, ættingjum þeirra, vinum, starfsfé- lögum og ekki síst fagfólki í geð- lækningum. Bókin hefst á formála þar sem höfundur segir frá skondnu atviki sem lýsir geðhæð eða maníu eins og „utanfrá séð“ þar sem hún sjálf í örlyndislátum kemst í kast við lögregluna. Eftir það er bókin að hluta til „ferð inn á við“ þar sem hún lýsir sínu eigin lífi og hvemig hún sjálf skynjar veik- indaköstin, sem hefj- ast á unglingsárum, hvaða áhrif veikindin hafa á líf hennar, störf og samskipti við aðra. Undirrituð hefur hvergi lesið jafngóðar lýsingar á því hvernig það er að sturlast af maníu; hvernig þessi ótrúlega, tælandi vel- líðan og orka sem oft fylgir maníunni nær yfirhöndinni, hvernig ímyndunaraflið verður ofvirkt, hugsanirnar æða áfram, rökhugs- un, dómgreind, tilfinningastjórn og innsæi fer veg allrar veraldar og síðan skelfmgin sem í kjölfarið kemur samfara misskynjunum og ranghugmyndum. A eftir kemur síðan geðlægðin, þar sem hugsan- irnar verða hægfara og tregar, þreytan yfirþyrmandi, depurð og kviði nær óbærilegum tökum á einstaklingnum og lífsviljinn fer þverrandi. Inn í frásögn Jamison blandast síðan sjónarmið fagmannsins, sálfræðingsins sem hefur sérhæft sig í rannsóknum, greiningu og meðferð á geðhvarfasýki. I því hlutverki heldur hún nægilegri fjarlægð frá veikindunum til að geta útskýrt eðli þeiiTa á auð- skilinn, afdráttarlausan hátt og jafnframt lýsir hún meðferðinni og þeim ýmsu vandkvæðum sem þar koma gjarnan upp. Þótt hún líti á veikindin sem líffræðilegan, arfgengan sjúkdóm, bendir hún ítrekað á mikilvægi þess að sjúkl- ingurinn fái einnig sállækningu samhliða lyfjameðferðinni og seg- ir meðal annars: „Engin pilla get- ur hjálpað mér til þess að fást við vandann sem felst í því að vilja ekki taka pillu. Sömuleiðis getur engin sállækning, hversu góð sem hún er, komið ein og sér í veg fyr- ir geðhæða- og þunglyndisköst. Pillur geta ekki komið manni inn í raunveruleikann aft- ur, þær kasta manni þangað, slagandi, í hendingskasti, svo hratt að það er stundum óbærilegt. Sállækning er griða- staður og orustuvöll- ur. Eg hef verið geð- veik, taugaveikluð, upphafin, rugluð og ólýsanlega örvænt- ingaríúll. En sál- lækningin hefur allt- af komið mér til að trúa því, að einn góð- an veðurdag verði ég fær um að takast á við það sem að hönd- ufn ber.“ Fordómar gegn geðsjúkdómum eru enn lífseigir hér á landi. Það er dapurlegt til þess að vita að of- an á þær raunir sem oftast fylgja því að lifa með geðsjúkdómi þurfi að bætast andstaða, fáfræði, for- dómar og niðurlæging annarra; þrekvirki Jamison er ef til vill mest fólgið í því að takast á við fordómana með því að lýsa af hugrekki og einurð eigin veikind- um. Því miður, eins og Jamison bendir réttilega á, ná fordómarnir æði oft til heilbrigðisstéttanna og jafnvel inn í raðir þeirra sem fást við lækningu geðsjúkdóma. I bók- inni sýnir hún okkur fram á að geðsjúkdómur er ekki merki um „gallaðan einstakling", að fjölmar- gir einstaklingar með geðsjúk- dóma geta lifað góðu lífi, haft mikla starfsorku og skapandi gáf- ur og lagt sinn skerf af mörkum til samfélagsins og sinna nánustu. Að lokum er vert að undirstrika það sjónarmið Jamison að lengi er von um bata ef einstakling- urinn nýtur skilnings og velvilja frá þeim sem í kringum hann eru, sættir sig við veikindin að fullu og þiggur rétta meðferð. Halldóra Olafsdóttir Höfundur er fo,rmaður Geðlæknafélags fslands. Kay Redfield Jamison N or ðurlandaráð Bækur Guðbergs og Kristínar SKÁLDÆVISÖGUR Guðbergs Bergssonar, Faðir og móðir og dul- magn bernskunnar og Eins og steinn sem hafið fágar, og skáldsaga Krist- ínar Ómarsdóttur Elskan mín ég dey, eru tilnefndar til Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs árið 2000. Hver hlýtur verðlaunin, 350.000 danskar krónur, verður tilkynnt á fundi í Helsingfors í næsta mánuði. Þeir sem sitja í dómnefnd Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir íslands hönd eru Jóhann Hjálmarsson skáld, Dagný Kri- stjánsdóttir bókmenntafræðingur og varamaður er Sveinbjörn I. Bald- vinsson skáld. Guðbergur , Kristíu Bergsson Ómarsdóttir ÚTSALA 70% afsláttur Verslunin hættir, allt á aö seljast. Geriö ein bestu kaup aldarinnar. DAGANA 1. des. til 03 meö 4. des. veröa vörur verslunarinnar seldar á útsölu meö allt aö 70% afslætti. DAGANA 6. des. til og meö 10. des. veröa hillur, standar, borö og önnur tæki verslunarinnar seld. Kjöriö tækifæri fyrir þá sem vantar t.d. hiliur í skúrinn eöa geymsluna. I—Lækjarkot Lækjargötu 32, Hafnarfiröi, sími 555 0449

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.