Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 34

Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR N^jar bækur • ADDA ímermtaskóla, eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson er komin út í þriðju útgáfu. Hún kom fyrst út árið 1961. Öddubækurnar segja heillandi sögu ungrar stúlku en um leið er brugðið upp forvitnilegri mynd af íslensku samfélagi um miðbik þessarar aldar, segir í fréttatilkynn- ingu. Ennfremur segir: „Nú er Adda komin til Reykjavíkur og orðin nemandi í Menntaskólan- um. í Reykjavík opnast henni nýr heimur, hún eign- astnýjaviniog mörg skemmtileg atvik koma fyrir í skólanum. Adda hefur þroskast og lítur björtum augum á lífið. Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 85 bls., prentuð í Singapore. Halldór Pétursson teiknaði myndir. Verð 1.980 kr. • LÍFSHÆTTIR fugla eftir David Attenborough, er þýðingu Atla Magnússonar og Ornólfs Thor- lacius. Attenborough kannar sérhvern þátt í ævi fugl- anna og þau vandamál sem þeir verða að fást við: læra að fljúga; leita sér fæðu; tjá sig, maka sig og ann- ast hreiður sín, egg og unga; ferðalög heims- álfa á milli; hvem- ig þeir bregðast við hættum og bjarga sér við erfiðar aðstæður. I fréttatilkynningu segir: „David Attenborough á engan sinn líka þeg- ar að því kemur að hjálpa öðrum að læra og gera fræðsluna spennandi. Forvitni hans og hrifnæmi eru smit- andi. Hann bendir á hvernig fuglam- ir geta aukið á gleðina í lífi okkar og hve mikils við fömm á mis ef við veit- umþeim ekki athygli." Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er 320 bls.Verð 5.980 kr. David Attenborough Afmælisveisla Á ÞESSU ári á rithöfun- durinn og heimspeking- urinn Gunnar Dal fimm- tíu ára rithöfundaafmæli. Af því tilefni kemur út bókin Stefnumót við Gunnar Dal, en þar ræðir Baldur Óskarsson við skáldið. Gunnar er af- kastamikill höfundur og þýðandi, en Baldri telst til að Stefnumót við Gunnar Dal sé fímmtugasta verk hans. Eftir Gunnar liggja ljóðabækur, skáldsögur, heimspekirit og þýðingar. Á síðustu árum, sem fyrr, hafa verið að koma út eft- ir hann nýfrumsamin verk sem vakið hafa mikla athygli og notið vinsælda. Eins og sam- talsrit Hans Kristjáns Ámasonar við skáldið, Að elska er að lifa, sem kom út 1994 og skáldsagan f dag varð ég kona, frá 1997. Nafn hinnar sí- ðastnefndu sperrtu eyru margra sem ekki áttu von á svona titli frá rúmlega sjötugum manni. Þar að auki sem sagan var dagbók fjórtán ára stelpu. Til hamingju með afmæiið Gunnar. Fyrsta bók þín var ljóðabókin Vera. Og síðan hefurðu gefið út meira en fimmtán frumsamdar ljóðabækur og þú hefur líka þýtt útlensk Ijóð. Segðu mér frá ljóð- unum þinum eða þér sem ljóðskáldi. „Það er nú þannig með öll íslensk skáld, fyrir utan hagyrðingana, að þau eru ekki íslensk. Hvað sem menn segja við því,“ segir Gunnar og setn- ingarnar koma eins og skipulagðar ljóðlínur frá honum: „Steinn Steinarr var af amerískum skáldaskóla. Davíð Stefánsson af sænskum. Tó- mas Guðmundsson af írskum, Jónas Hallgrímsson af þýskum. Svo nokkrir séu nefndir. Eg er fyrst og fremst af engilsaxneskum skáldaskóla. Ég leita yfirleitt í smiðjur breskra og írska ljóðskálda og skáldskapur minn hefur mót- ast af þeim. Þess vegna hef ég ekki á síðari túnum verið samstiga ljóðatfsku sem byggist á módern- isma, póstmódernisma og öðrum hliðstæðum stefnum og straumum. Ég hef hinsvegar jákvæða afstöðu til allra tilrauna mannsins í ljóðagerð og menn hafa þar eins og í öðru mestan ávinning af að hlusta á skoðanir annarra og skilja forsendur þeirra. Þó ég hafi kosið að fara aðrar Ieiðir þá hef ég alltaf borið virðingu fyrir baráttu annarra skálda. Næstum öll skáld á Islandi hafa fylgt annarri stefnu í ljóðagerð en ég. Það þýðir ekki að það rýri gildi hvorki þeirra né mitt. Það er gamla sag- an að fallegasti garðurinn er sá þar sem þúsund mismunandi blóm vaxa. Eins og Maó formaður sagði. Ég get ekki lýst ljóðunum mínum vegna þess að ljóðið verður til í huga góðs lesanda. Þar er hin endanlega gerð og gildi Ijóðsins. Þess vegna má segja að skáld séu misjafn- lega heppin með lesendur ogþað skiptir sköpum." I heimspekinámi þinu sem ungur maður fórstu í nám til Indlands. Þangað hefur varla þótt stutt árið 1951. „Þegar ég sat yfir kúnum norður í Svarfaðardal á tólfta ári hugsaði ég mikið um heimspeki. Þó að það væri bannhelgi á heimspeki í íslenskum sveitum. Þá sóttu sterkt á mig hugsanir sem ég vissi síðar að voru úr þekktum heimspekikerf- um. Ég hafði vit á því að ræða þetta ekki við nokk- urn mann nema hundinn á bænum, sem skildi þetta að mér fannst. Einhvers staðar iþessum hugleiðingum tók ég þá barnslegu ákvörðun að skrifa sögu heimspek- innar. Og ég gerði það. Ég skrif- aði sögu heimspekinnar í þremur bindum. Heim- speki austurlanda í einu bindi, gríska heimspeki í öðru og heimspekisögu Vesturlanda í því þriðja. Ég ákvað að afla mér heimilda í bindin fyrst og fremst hjá heimamönnum og þess vegna fór ég til Indlands og innritaðist í Háskólann i Kalkútta. Ekki til að taka próf á einhverju þröngu sviði eins og doktora er siður heldur til að afla mér þekk- ingar hjá heimamönnum. Ég fór í háskólana í Edenborg, Aþenu í Grikklandi og Wisconsin í Bandarfkjunum í sömu erindagjörðum og við- hafði sömu vinnubrögð, að nota háskólana ein- göngu til að afla mér gagna í heimspekisögu mína. Ég var aldrei í skóla til að taka próf. Skólagangan miðaðist öll við að afla gagna í heimspekisöguna. Ég hef orðið að gjalda þess að vera próflaus maður og því kallaður alþýðlegur fræðimaður. Þó að yfírferð múi hafi verið mun meiri en venjulegs doktors í heimspeki. Allar heimildir sem ég notaði voru akademískar heim- ildir, fengnar í háskólum, frá leiðandi háskólapró- fessorum f heimspeki." Þú hefur verið seinþreyttur til skrifta því þú hefur að sjálfsögðu skrifað skáldsögur? „Já, sú fyrsta heitir Orðstír og auður. Hún fjall- ar um tvo menningarheima, gamlan og nýjan. Leiðarstjarna hins fyrmefnda er orðstír. En auður er leiðarstjarna hinnar nýju kynslóð- ar. Næst skrifaði ég samtímasögu sem fjallaði um 68-byltinguna og 68-kynslóðina og var skrifuð á því herrans ári 68 þó hún kæmi ekki út fyrr en tveimur árum síðar. Titillinn minn varð aldrei nema undirtitill: Æska í stríði, því forleggjarinn taldi að titillinn Á heitu sumri yrði söluvænlegri og ég af litilmennsku lét það standa. Enda ekki í Gunnar Dal önnur hús að venda. Skáldsagan Kamala varð til þannig að þegar ég var í Háskólanum í Kalkútta fór ég oft um helgar með vini múium í lítið þorp fyrir utan borgina. Þorpið var svo lítið að á stuttum túna kynntist ég öllum persónunum sem notaðar eru í bókinni. Fyrirmyndirnar eru því lifandi. Bókin hét frá minn hendi Græn bylting, því hún fjallaði um til- raunir indverskra þorpa og bænda til að verða frjálsir. Mánuði áður en bókin kom út hóf Reykja- víkurborg mikla herferð sem hét Græna byltingin og við breyttum titlinum í höfuðið á aðal- kvenpersónunni. Gúrú Górinda er furðusaga sem byijar á því að maður deyr og endar á því að hann fæðist en Hað- ur heimur er hins vegar hliðstæð skáldsaga við Græna byltingu því hún fjallar um stórveldafúnd- inn í Höfða. Ég byijaði að skrifa hana áður en fundurinn var haldinn og var að skrifa hana á meðan á honum stóð. Strax þá var þetta í mfnum huga annað af stærstu augnablikum Islandssög- unnar, þegar íslandssagan verður heimssaga. Fundurinn í Höfða lauk skuggalegu tímabili í heimssögunni og var upphaf nýrra og vonandi betri túna. Fyrra augnablikið tel ég vera þegar Leifur Eiríksson fann Ameríku." En gleymirðu nú ekki skáldsögunni í dag varð ég kona? „Það mætti halda að ég skammaðist mín fyrir hana,“ svarar Gunnar brosandi en útskýrir svo að sú saga hafi sprottið upp af undarlegri hugmynd. „Ég var búinn að kynna mér nokkuð ítarlega þessa fjóra menn sem hafa lifað á jörðunni síðast- liðin tvær og hálf milljónir ára. Það eru þeir homo habilis, homo erectus, homo sapiens og homo sap- iens sapiens, sem erum við. Mín hugmynd var þessi: Hvemig verður homo quintus? Og ég hugsaði með mér að hvemig væri að sefj- ast upp á vegginn eða upp á þennan helga stein sem gamalmönnum er ætlaður, dingla löppunum og skrifa sögu fyrsta homo quintus í veröldinni. Fyrsta eintak homo quintus ákvað ég að yrði stelpan Guðrún sem fæðist í vesturbænum. Guð- rún veit ekki hver hún eiginlega er, fjölskylda hennar veitþað ekki heldur ogþaðan af síður lesandinn. Eg var gagnrýndur fyrir það að engin fjóitán ára stelpa hugsaði eins og Guðrún. Sumir kröfðust „eðlilegrar" sögu „eðlilegrar" fjórtán ára stelpu en þá bók held ég að búið sé að skrifa að minnsta kosti tíu þúsund sinnum og ég hafði enga löngun til að verða númer tíu þúsund og eitt íþví umfangsefni. Bókin fjallar þó aðallega um goðsögur og skiln- ing á goðsögum. Menn hafa gert mér uppi skoð- anir og fjandsamlega afstöðu til konunnar vegna hugleiðinga Guðrúnar en Guðrún er skáldsagnap- ersóna sem skiptir um skoðun á hverri blaðsfðu. Fjandsamleg afstaða hennar til karlmanna til dæmis er miklu fremur ótti, forvitni eða skilning- ur, ekki afstaða mín. Ef menn vilja kynnast af- stöðu minni til konunnar og stöðu hennar i' fortíð, núti'ð og framtí'ð, finna þeir hana í samræðubók okkar Baldurs Óskarssonar, Stefnumót við Gunn- ar Dal. Þar ræðum við þessa hluti í löngu máli. Það hefur aldrei hvarflað að mér að segja kon- um hvemig þær eigi að vera og hvemig þær eigi ekki að vera. Hins vegar hef ég búið við það alla ævi eða alveg frá því ég þornaði bakvið eymn að konur væm að segja mér hvemig ég ætti að vera og hvemig ekki og það hefur verið mér til góðs.“ • ÓMÖG ULEGIR foreldrar eftir Brian Patten í þýðingu Árna Árna- sonar, er ætluð ungum lesendum. Foreldradagurinn nálgast í skól- anum en Benni og María fyllast kvíða og skelfingu. Þeim finnst pabbi og mamma ægilega hall- ærisleg og óttast að þau verði til at- hlægis í skólanum. Utgefandi erÆskan ehf. Teikn- ingar í bókinni eru eftir Arth urRob- ins. Bókin er 60 bls., prentuðí Viðey ehf.Verð: 1.290 kr. • ÍSLENSK heiðursmerki eftir Birgi Thorlacius er leitast við að rekja sögu fálkaorðunnar og annarra íslenskra heiðursmerkja, svo og þeirra heiðurs- merkja sem efnt var til á dögum konungdæmisins og sérstaklega voru ætluð Is- lendingum. Einn- ig er nokkuð um dannebrogsorð- una og heiðurs- pening sem ætl- aður var þeim sem þátt tóku í Slésvíkurófriðnum 1848-1850 og 1864, en í þeim hópi voru nokkrir ís- lenskir sjálfboðaliðar. Höfundur þessa rits er fyrrver- andi formaður orðunefndar. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bókin er 131 bls., kilj. Háskólaútgáf- an sér um dreifingu.Verð2.500 kr. BÆKUR Skáldsaga SÆGREIFI DEYR eftir Áma Bergmann. Mál og menning, 1999 - 200 bls. SKÁLDSAGA Áma Bergmann, Sægreifi deyr, er að mörgu leyti læsilegt verk. Stíllinn er lipur, per- sónurnar vakna til lífsins á síðunum og umfram allt er hún vettvangur skoðanaskipta. En hún er þó ekki gallalaust verk. Á vissan hátt hefur skáldsagan á sér raunsæisyfirbragð. Þannig er hún vettvangur samfé- lagslegrar umræðu, ekki síst um kvótakerfið og hversu hæpið það er að leggja þvílíkt fjöregg í hendur fárra einstaklinga. Persónurnar lifa einnig og hrærast í umhverfi sem er kunnuglegt. En höfundur finnur skáldsögu sinni stað í staðleysu, borg sem ekki er til, einhvers staðar á norðvestanverðu landinu, borg sem hefur mörg einkenni sjávar- þorpa. Borgina nefnir Árni Álfheima. Hún hefur því öðrum þræðinum táknlegu hlutverki að gegna. Um- hverfið einkennist af kynferðisleg- um táknmyndum og hran úr borgar- hamrinum er táknrænt fyrir það samfélag sem þar er. Það er að hruni komið. Sama gildir um efna- hagslegan grundvöll borgarinnar. Hann er að bresta. Sagan er því dálítið heimsósóma- kvæði á táknsviðinu og augljóslega spegil- mynd Islands. Sægr- eifinn í bókinni, Ólafur Björnsson, heldur á fjöreggi borgarinnar. Fyrirtæki hans eru undirstaða hennar. Sagan snýst um sein- ustu daga þessa manns, varpar ljósi á h'f hans, afkomendur og nánustu samstarfsmenn. Ólafur Bjömsson er hörkutól sem skorið hefur á öll tilfinningabönd. Böm hans hafa mótast af því og era eins konar reköld. Björn, sonur hans, er misheppnaður ferðamála- spekúlant, Sigrún dóttir hans er í senn óvirkur alkóhólisti og róttækl- ingur og feministi með vonbrigðin í farteskinu. Gunnar, sonur hans er misheppnað skáld sem aldrei kemur neinu á blað, er líkastur barni og lætur aðra sjá fyrir sér. Innviðir fjöl- skyldunnar era fúnir og raunar ekk- ert eftir nema óvild Ólafs í garð bama sinna. Hann treystir þeim ekki og síðustu ráðstafanir hans í lífinu mótast af þeirri tortryggni. Framkvæmdastjóri hans, Ársæll, situr svo á svikráðum við fjöl- skylduna og ráðskona Ólafs sem hann hafði þó einna helst metið nokk- urs, heldur við Gunnar son hans, giftan mann- inn. Það er því fátt sem heldur byggingunni saman og skáldsögunni er því valinn sögutími rétt fyrir hranið. Sagan er þó umfram allt annað umræðuvettvangur, ekki bara um sægreifa og kvótamál heldur ýmis- önnur mál, svo sem upplausn vinstri hugsjóna og feminisma. Það er vandasamt verk að koma þjóðfélags- legri umræðu fyrir í skáldsögu svo að vel sé. Mér finnst Árni sleppa fyr- ir horn þannig að umræðan kæfir aldrei söguna sjálfa þó að sums stað- ar teygi hann hana fulllangt í þjón- ustu málefnanna. Einn helsti galli sögunnar að mínu mati er að erfitt er að öðlast samúð með nokkurri persónu hennar. Það er eins og andúð höfundar á per- sónunum og duglausum borgar- askap þeirra og smáborgaraskap skíni fullmikið í gegnum textann og geri söguna ótrúverðugri fyrir bragðið. Það er fátt jákvætt hægt að segja um nokkra persónu sögunnar. Helst er það þó Rakel, ráðskona Ól- afs, sem gæti talist sú andstæða sem skerpt gæti mynd hinnar voluðu sægreifafjölskyldu. En í lokin er engu líkara en mynd hennar gufi upp, hún verði sama marki brennd og hinir - kannski af því að liggja of lengi í sama saltpækli. Lengst af finnst mér sagan sjálf lofa góðu en hún rennur dálítið út í sandinn í lokin. Það er eins og vanti eitthvert mótvægi, einhverjar and- stæður eða óvæntar uppákomur í hina löngu fyrirséðu sögulausn. Að mörgu leyti er Sægreifi deyr gott verk. Persónur era kunnáttusam- lega dregnar upp og byggingin er markviss. Sagan er umræðuvettvangur um mál sem era á döfinni og þau rædd af lipurleika. En hún er fullfyrirsjáanleg og sögu- samúðin fer fyrir ofan garð og neð- an. Leiðrétting: Mér urðu á þau leiðu mistök í ritdómi um ljóðabók eftir Elías Mar að beygja ekki síðara nafn hans í eignarfalli. Þetta er þeim mun vandræðalegri uppákoma þar sem bók Elíasar Marar heitir Mararbár- ur. Sömuleiðis féllu niður línubil milli erinda í kvæðum hans. Bið ég Elías afsökunar á þessum mistökum. Skafti Þ. Halldórsson Voluð sægreifafj ölskylda Árni Bergmann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.