Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 35
LISTIR
Á myndinni má sjá Hauk Snorrason og Snorra Shorrason útgef-
anda afhenda forseta íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, eintak
af bókinni á Bessastöðum.
Land birtunnar
Nýjar bækur
• HEIMUR kvikmyndnnna. er í rit-
stjóm Guðna Elíssonar. Bókin inni-
heldur hartnær 90 ritgerðir eftir 70
höfunda um kvikmyndasögu og
kvikmyndalist,
prýddarum 1.200
ljósmyndum.
Fyrst er fjallað
um kvikmyndir
ólíkra þjóðlanda
og rakin saga
kvikmyndarinnar
á 20. öld. Þá er
rætt um ýmsar
kvikmyndagrein-
ar og í þriðja
hluta er fjallað um sambandið milli
kvikmynda og samfélags. Þá er rætt
um tengsl stjórnmála og kvikmynda,
kynjafræði tengd kvikmyndum og
stjömur og leiklistarfræði skoðuð
nánar. Loks er fjallað um íslenskar
kvikmyndir í alþjóðlegu samhengi.
Guðni er lektor í almennri bók-
menntafræði við HÍ og hefur starfað
sem kvikmyndagagnrýnandi á Stöð
2 og DV.
Utgefandi er Forlagið í samvinnu
við art.is. Kápuhönnun: Fíton. Bókin
er 1.024 bls., prentuð íSteinholti.
Verð: 6.980 kr.
• SAGAN afbláa hnettinum er eft-
ir Andra Snæ Magnason.
Á bláum hnetti lengst úti í geimn-
um búa ótal börn sem fullorðnast
ekki. Enginn
skipar þeim fyrir
verkum, börnin
sofna þar sem
þauverðaþreytt,
borða þegar þau
em svöng og
leika sér þar sem
þeim dettur í hug.
Eitt kvöldið þeg-
ar Brimir og
Magnason Hulda era stödd í
Svörtufjöra birt-
ist stjarna á himni sem stefnir beint
á þau! Þá hefst hættulegt ævintýri
sem leiðir börnin um myrka skóga,
djúpa dali og loftin blá. Reynir þá
sem aldrei fyrr á vináttu og þraut-
seigju barnanna á bláa hnettinum.
Andri Snær hefur áður sent frá
sér leikrit, ljóð og smásögur. Hann
hlaut viðurkenningu Þjóðleikhússins
fyrir leikgerð Sögunnar af bláa
hnettinum og er hún væntanleg á
fjalirnar á næsta ári.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 96 bls., prentuð íDan-
mörku. Aslaug Jónsdóttir hannaði
bókina og myndskreytti hana. Verð:
1.990 krónur.
• NJÁL USLÓÐIR - Örnefni og
staðfræði Njáls sögu er eftir Bjarka
Bjarnason.
I bókinni era dregin fram öll þau
staðarheiti sem fyrirfinnast í Njálu,
en þau eru á
fjórða hundrað,
og gerð er grein
fyrir þeim.
Verkinu er
skipt í kafla eftir
sýslum og er örn-
efnum þar raðað í
stafrófsröð. Aft-
ast í bókinni eru
örnefni þau á er-
lendri grand sem
við sögu koma. I
bókinni er á annað hundrað ljós-
mynda, teikninga og korta. Stór
hluti ljósmyndanna kemur nú fyrir
almenningssjónir í fyrsta sinn, segir
í fréttatilkynningu.
Útgefandi erMál ogmynd. Bókin
er254 bls. og fylgir sérprentað Is-
landskort ílit með öllum örnefnum
Njálu. Umbrot: Mál ogmynd. Kápu-
gerð: Guðjón Ketilsson. Prentun:
Steindórsprent-Gutenberg. Bók-
band: Félagsbókbandið-Bókfell.
Verð: 3.990 kr.
• FRUMSPEKINI eftir Aristóteles
er í þýðingu Svavars Hrafns Svav-
arssonar, sem einnig ritar inngang.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Frumspekin I er eitt áhrifamesta
rit í sögu heimspekinnar. Hér ræðir
Aristóteles og metur viðhorf Platons
og fyrirrennara sinna til spurninga
um eðli og gerð veraleikans og mót-
FORRÁÐAMENN Snerruútgáf-
unnar afhentu forseta Islands,
Ólafi Ragnari Grímssyni, eintak
af ljósmyndabókinni, Land birt-
unnar, eftir Hauk Snorrason ljós-
myndara og Magnús Tuma Guð-
mundsson jarðeðlisfræðing, en
forseti íslands skrifar ávarp í
ar sína eigin kenningu. Með henni er
lagður grannur að umræðu sem sett
hefur mark sitt á gervalla vestræna
heimspeki allt fram á þennan dag.
Útgefandi er Hið íslenska bók-
menntafélag. Ritið, sem er 112 bls.,
er39. Lærdómsrit félagsins. Verð:
1.990 kr.
• STJÓRNMÁLAHEIMSPEKI er
eftir Hannes Hólmstein Gissurar-
son.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Stjórnmálaheimspeki er greining
oggagnrýniá
fimm framhug-
tökum stjórnmál-
anna, frelsi, lög-
um, ríkisvaldi,
réttlæti og lýð-
ræði.
Sagt er frá
ýmsum svörum
við því, hvers
vegna menn eigi
að hlýða lögum,
og rætt um lág-
marksríki, þjóðríki, sambandsríki og
ríkjasambönd. Einnig er lýst helstu
kenningum um réttlæti og þær
greindar og gagnrýndar.
Loks era ýmsar lýðræðiskenning-
ar bornar saman og kynntar hug-
myndir um stjórnarskrárbundið lýð-
ræði.
Það er Hið íslenska bókmenntafé-
lagsem gefur út. Bókin er284 bis.
Verð: 2.790 kr.
• ÚTKALL á jólanótt er í sam-
talsbók Óttars Sveinssonar við fimm
skipsbrotsmenn af ms. Suðurlandi
þar sem þeir lýsa ógnvænlegri vist í
hálfbotnlausum
gúmbáti eftir að
skip þeirra sökk
norðan heimska-
utsbaug á jólan-
ótt 1986. Þeir
stóðu í spariföt-
unum í sjó upp í
hné í 13 klukku-
stundir - sumir
berfættir. Islend-
ingar, Danir og
Bretar eru í aðal-
hlutverkum í þessari frásögn sem
gerist á hafi úti, erlendis og hér
heima - ekki síst fimm Danir af eft-
irlitsskipinu Vædderen og þyrlu
skipsins en þeir sýndu ótrúlegt ár-
æði við björgun Islendinganna, segir
í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir að meðan á gerð
bókarinnar stóð hafi fengist staðfest
hjá yfirmanni í breska varnarmálar-
áðuneytinu í London að sökkvandi
íslenskt skip hefði orðið til þess árið
1986 að kafbátur breska sjóhersins
missti hlustunarkapal sinn.
Útgefandi er íslenska bókaútgáf-
an. Bókin er 208 bls., með 60 Ijós-
myndum. Verð: 3.980 kr.
bókina. I Landi birtunnar eru 90
ljósmyndir úr náttúru íslands
auk mynda frá Reykjavík. Magn-
ús skrifar landlýsingu og mynda-
texta í bókina. Auk íslensku,
kemur Land birtunnar út á
ensku, þýsku, frönsku og
spænsku.
• HÁSPENNA lífshætta - Sigur-
fínnur Jónsson skotveiðimaður er
lífsreynslusaga skrásett af Árna
Gunnarssyni.
í fréttatil-
kynningu segir
að Saga Sigur-
finns Jónssonar
sé hrífandi og
spennuþrungin
lífsreynslusaga
manns sem
margsinnis hefur
vegið salt á ystu
brún hengiflugs,
á milli lífs og
dauða. Með ótrú-
legum sjálfsaga hafi honum tekist
að þjálfa sig upp eftir líkamleg
örkuml af völdum 11.000 volta há-
spennustraums sem fæstir hefðu
lifað af.
Útgefandi er Mál og mynd. Bók-
in er 222 bls. prentuð í Steindórs-
prenti-Gutenberg. Umbrot: Mái og
mynd. Bókband: Félagsbókbandið-
Bókfell. Kápugerð: Guðjón Ketils-
son. Verð: kr. 3.990.
• TOGARASAGA með tilbrigðum
eftir Hafliða Magnússon er endur-
útgefin.
I fréttatilkynningu segir m.a.:
„Síðutogararnir eru að syngja sitt
síðasta. Á heimamiðum er aflaleysi
og þá er kúrsinn tekinn á Græn-
landsmið og túrinn tekur marga
mánuði. Til að manna skipin verða
yfirmenn að kemba búllur bæjar-
ins og menn eru „sjanghæjaðir“
um borð, en margt gerist á sæ og
þegar komið er til hafna vill margt
til standa.“
I bókinni er raunsönn lýsing á
lífinu um borð í togara á árum áð-
ur, krydduð kímni og gamansemi.
Bókin kom fyrst út árið 1981.
Útgefandi er Hiidur og Muninn
bókaútgáfa. Myndir í bókinni eru
eftir Magnús Oskarsson en Hiidur
Gunnarsdóttir gerði káputeikn-
ingu. Bókin er 136 bis. unnin í
Singapúr. Verð: 2.480 kr.
• HVALIR er eftir Robin Kerrod, í
þýðingu Örnólfs Thorlacius.
I fréttatilkynningu segir: „Hval-
irnir eru nánustu ættingjar okkar í
undirdjúpum hafanna.
Þessi bók opnar ungum lesend-
um sýn inn í furðuheim þeirra. Hér
kynnumst við tannhvölum og skíð-
ishvölum, hverju munar í líka-
msgerð þeirra og fæðuvali. Við fá-
um að vita hvers vegna sumir
hvalir en ekki aðrir hjálpast að við
fæðuöflun og hvernig margir
stærstu hvalirnir sía fæðu sína úr
vatninu."
Útgefandi er Skjaldborg. Bókina
prýða um 180 litijósmyndir. Bókin
er 64 bls., í stóru broti, prentuð í
Singapúr. Verð 1.980 kr.
Bjarki
Bjarnason
Sigurfínnur
Jónsson
V
Frábærar vörur á frábæru ver&i
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyöingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyöingarkrem,
„roll-on“ eða borið á með
spaða frá
byly
». Laboratorios byly S.A.
Utsolustaoir:
Snyrtivöruverslunin Nana, Rvik, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek, Grafarvogs
Apótek, Lyf & heilsa, Álfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1, Ffna Mosfellsbæ,
Sauöárkróks Apótek, Fínar Línur, Vestmannaeyjum.
Oreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317
GLORIA
Slökkvitæki
HÚSASMIÐJAN
• Duftslökkvitæki
• 6kg.
• Veggfesting
• Þrýstingsmælir
með prufustút
• Auðvelt í notkun
7^32.
,|ól;it illroð
5.995 kr.
Sími 525 3000 • www.husa.is
ART CALLERY
Rauðarárstíg 14 sími 551 0400
Kringlunni sími 568 0400
foId@artgalleryfold.com