Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 41

Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 41 Markleysa - Glapræði TILLOGUFLUTN- INGUR ríkisstjórnar í Alþingi um meðmæli þjóðþingsins nú með virkjunarframkvæmd- um í Fljótsdal eystra er tillögugerð ráðvilltra manna. Hún er ómar- ktæk, óþingleg og að engu hafandi. Eftir lagasetningu Alþingis 1993 um lög- formlegt umhverfismat virkjana er þingmönn- um með öllu óheimilt fimm árum síðar að mæla með slíkum framkvæmdum án þess að fyrrgreindum lögum sé áður fullnægt. Annað væri ótví- rætt lagabrot og þingsafglöp meiri en menn viti dæmi. Þessi staðreynd breytir að sjálf- sögðu engu um gildi eldri laga um Fljótsdalsvirkjun. Framkvæmda- valdinu er frjálst að beita þeim lög- um. Það er fullkomlega löglegt, en vitanlega með öllu siðlaust, eftir að sett hafa verið lög um lögformlegt umhvei’fismat. Ríkisstjórnin á að- eins um eitt að velja til að bjai-ga sér úr algerum ógöngum: Að beita sér nú þegar í stað fyrir að umhverfis- mat fari fram lögum samkvæmt. Sverrir Hermannsson Undirrituðum varð hugsað til Bjama Benediktssonar, þegar hann hlýddi á forsætis- ráðherra á Alþingi lýsa því yfir með steigurlæti að hann væri í hópi þeirra, sem ekkert vit hefðu á umhverfismati og kvaðst hann una sér vel í þeim hópi. Og þetta segir formaður framkvæmdastj órnar Islands, ríkisstjórnar- innar, sem löggjafar- valdið hefir fengið í hendur að sjá um fram- kvæmd margum- ræddra laga um form- legt umhverfismat! Skrifaranum rann þessi yfirlýsing forsætisráð- herra þeim mun meira til rifja sem hann hefir meira dálæti á honum en öðrum stjórnmálamönnum flestum. Hvað myndi Bjarni hafa sagt um slíkt ábyrgðarleysi, sem virti lög og lagafyrirmæli til hins ítrasta og um- fram allt annað? Ófyrirleitið framkvæmdavald, með meirihluta þingmanna eins og truntur í tjóðri, er hættulegt þing- ræði og lýðræði. En ekki er hinn endinn á málinu álitlegri eins og sakir standa. Fljótsdalsvirkjun Þröngvi ríkisstjórnin fram vilja sínum um virkjun eystra, segir Sverrir Hermannsson, og leggi þar við líf sitt eins og við blasir, verður samningsstaða Islands gagnvart Norðmönnum með öllu óþolandi. Upplýsingar um að íslendingar ætli að hætta mestu til um byggingu og rekstur álverksmiðju á Reyðar- firði eru nýjar af nálinni. Þess var auðvitað gætt vandlega að þær lægju ekki frammi fyrir alþingiskosningar sl. vor. Þegar einhverju þarf að leyna, eða ljúga til um stöðu mála, er núverandi iðnaðarráðheira kjörinn fyrirsvarsmaður. Sú var tíð, og héldu menn raunar að hún væri ekki af, að Islendingar töldu glapræði að hætta fé sínu í slík fyrirtæki. Og ástæður þess eru aug- Svar til Gunnars Jó- hannssonar og Sigurðar Sigurgeirssonar I MORGUNBLAÐ- INU sl. föstudag (26/ 11) vandar Sigurður Sigurgeirsson mér og félögum mínum í Sjó- mannafélagi Reykja- víkur ekki kveðjurnar. Einkum virðist það fara illa í hann að eftir- lit ITF með hentifánum skuli virka með jafn skilvirkum hætti hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum og að íslensk kaupskip sigli í áætlunarsiglingum til og frá landinu undh- hentifánum með ís- lenskum áhöfnum og íslenskum kjarasamningum um borð. Hann heldur því fram að um sé að ræða leynisamninga milli SR og íslenskra útgerðarfélaga og að við séum með tvískinnung í garð fá- tækra erlendra farmanna. Hér rekst hvert atriðið á annars horn í grein þessa vh'ðulega skipar- ekstrai-fræðings og flest af því sem hann tínir til vart svaravert. Ef vera mætti að það væri til upplýsingar fyrir lesendur þessa blaðs - við erum búnir að gefa upp alla von með að greinarhöfundur sjálfur nái þessu - þá viljum við taka fram örfá atriði. 1. Barátta Sjómannafélagsins fyr- ir lágmarkskjörum ITF um borð í stóifiutningaskipum og skipum í ein- stökum leiguflutningum miða að því að verja mannréttindi þeirra sem við þá flutninga vinna. Sú barátta mið- ast líka við að verja þau kjör sem okkar félagsmenn búa við. Þannig sjá félagar okkar á Norðurlöndum til þess að kjör um borð í öðrum skipum umhverfís Eystrasalt (frá Rússlandi, Eystrasaltsríkjunum, Póllandi) standist ITF kröfur. Þetta hefur ekki verið átakalaust. Rökin hans Sigurðar hafa heyrst þar líka. Af hverju getur Rússland ekki fengið að taka þátt í alþjóðlegum skipaflutn- ingum undir rússneskum fána með Rússa um borð á rússneskum laun- um? Og svar norrænu sjómannasam- takanna eru þau að það mundi vera stórkostleg ógnun við mannréttindi, lífsafkomu og lýðræðisþjóðfélög Jónas Garðarsson Norðm-landa í heild sinni. Þessi háu laun ITF þegar miðað er við rússneskar aðstæður, yrðu banabiti norræn- an siglinga. Eru það einhver rök að vinir Sigurðar í alþjóðasigl- ingum eigi að geta ráð- ið til sín Rússa á rúss- neskum launum til að flytja til og frá íslandi, bara til að gera þessa útgerðir enn ríkari og okkur hin öll enn fá- tækari? Barátta aðild- arsamtaka ITF undan- farin 50 ár hafa skilað miklum árangri. M.a. hafa náðst fram stórkostlegar um- bætur í öryggismálum sjómanna, sem innan tíðar munu ganga í gildi, Kjarasamningar Hér rekst hvert atriðið á annars horn í grein þessa virðulega skipar- ekstrarfræðings, segir Jónas Garðarsson, og flest af því sem hann tínir til vart svaravert. einnig hér á landi. Það er ánægjulegt að íslensk stjórnvöld skyldu fullgilda sáttmála um hafnareftirlit s.l. vor. Þar með styrkist eftirlit ITF að verulegu leyti um borð í öllum skip- um, ekki bara hentifánaskipum. 2. Barátta ITF hefur á síðustu ár- um skilað svo miklum árangri að kjör manna um borð í hentifánaskip- um eru orðin betri en kjör margra farmanna undir hefðbundnum þjóð- fánum. Þetta er einungis baráttu og samstöðu sjómanna og hafnarverka- manna að þakka. Þetta vitum við að Sigurður fattar ekki. 3. Ef stéttarfélögin á Islandi hættu að standa vörð um lágmark- ski'öfur ITF um borð í þeim skipum ljósar: Fjárfestingin er talin afar áhættusöm. íslendingar þurfa að kaupa tækniþekkingu dýrum dóm- um og öll aðföng í annarra höndum. Þeir eru algeriega háðir öðrum um sölu afurða. Það var á sínum tíma talið meiri- háttar slys, þegar við neyddumst til að eiga meirihluta í Járnblendi- verksmiðjunni á Grundartanga. Or- sakir þess voru þær að við höfðum hafið virkjun við Sigöldu án þess að hafa kaupendur að orkunni. Þetta notfærðu Elkem-menn í Noregi sér og hafa makað krók sinn ótæpilega á öllu málinu frá upphafi á kostnað ís- lendinga. Þröngvi ríkisstjórnin fram vilja sínum um virkjun eystra, og leggi þar við líf sitt eins og við blasir, verð- ur samningsstaða Islands gagnvart Noi-ðmönnum með öllu óþolandi. Norsk Hydro mun ganga á lagið og bjóða íslendingum afarkosti. Ef ein- hverjum dettur annað í hug er sá hinn sami að blekkja vísvitandi eða hann þekkir ekki Norðmenn. Reynd- ar myndu allir stjóriðjuhöldar heims notfæra sér hina fráleitu stöðu, sem ríkisstjórn Islands hefir komið okk- ur í. Ef einhverju ætti að bjarga úr því sem komið er, væri nauðsynlegt að gera viðsemjendum um iðjuverið þegar í stað vitanlegt, að engar ákvarðanir verði teknar um virkjun fyrr en viðhlítandi samningar hafa náðst um orkuverð og annað sem að rekstri verksmiðjunnar lýtur, tækni- mál, hráefniskaup, sölumál afurða o.s.frv. Því verður ekki að heilsa eins og hrapað er að málum, nema almenn- ingi takist að koma vitinu fyrir vald- hrokamennina, sem glapræðinu stjóma. Svo er innlend fjánnögnun slíks áhættufyrirtækis efni í aðra grein, en nú anda augnaþjónar stjórnar- herranna því frá sér að slíkt séu smá- munir einir. Höfundur er a lþingismaður og for- nrnður Frjálslynda flokksins. sem hingað koma eða íslenska kjara- samninga í landi, þá mundi lífskjör- unum fyrst fara að hraka fyrir alvöru í þessu landi. Sigurður hefur senni- lega ekki miklar áhyggjur af því, þar sem hann andar að sér peningalykt- inni í sölum erlendra skipafélaga í London. í Mbl. þennan sama föstudag era birt harðorð ummæli Gunnars A. Jó- hannssonar, forstjóra Fóðurblönd- unnar. Hann lýsir því að hann sé orð- inn bótaskyldur með allt að 360.000 kr. á dag til útgerðarmannsins, sem þannig mundi ná til sín yfir 2 milljón- um kr. aukreitis, til viðbótar við lág- an launakostnað áhafnarinnar um borð. Hann lýsir því líka hvílíkur skussi hann er í samningagerð, sem lætur fara svona með sig. Utgerðar- maður skipsins, Klaus Oldindorff, missti nýverið af flutningum fyrh' Statoil, þar sem hann neitaði að gera ITF samninga um borð. Það er krafa Statoil að slíkir samningar séu í gildi um borð. Það er ekki nóg að vera með þá óundirritaða um borð, eins og hann reyndi að halda fram um Nordheim. ITF-samningar era ávallt undirritaðir af viðkomandi út- gerð fyrir hvert skip til að vera gild- ir. Þetta veit Eimskip, sem ekki er með neinn slíkan ITF-samning i gildi. Það er vegna þess að Sjó- mannafélag Reykjavíkur hefur neit- að þeim um hann. Enda þorir Eimskip ekki að koma með Lyru inn í neina af þeim höfnum sem einhver af rúmurn 100 eftirlitsfulltrúum ITF getur gripið til aðgerða í. Oldindorff missti af flutningum fyrir 3 olíuflutn- ingaskip sín af þessum sökum. Það ætti að vera íhugunarefni fyrir Gunnar blessaðan að sjá til þess að allir ílutningar Fóðurblöndunnar verði í framtíðinni með lágmarkskjör ITF um borð, undirritaða af viðkom- andi skipaútgerð og ITF, sem lágm- arkskjör. Klaus Oldindorff mun hafa boðist til að fara yfir málin með ITF nú, eftir aðgerðirnar í Reykjavík. Hann hefur nefnilega engar tekjur af olíuskipunum sem Statoil hafnaði. Höfundur er formaður Sjómanna- félags Reykjavíkur. 10-30% afsl Aöeins í Skútuvogsverslun Jólabækximar fást hj á okkur HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Valdir titlar 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.