Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 42
í42 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Háskóli Islands
er uppspretta
nýsköpunar
HÁSKÓLI íslands
er uppspretta nýsköp-
unar sem er mjög mik-
ilvæg fyrir íslenskt
efnahags- og þjóðlíf.
Þar er að finna mikinn
auð hugmynda á öllum
'' fræðasviðum sem finna
hagnýtan farveg í æ
ríkara mæli. Þetta er
ein ástæða þess að ís-
lendingar bera mikið
traust til Háskóla ís-
lands. Kannanir hafa
sýnt með ótvíræðum
hætti að engar stofnan-
ir samfélagsins njóta
viðlíka trausts og Há-
skóli Islands. En á sama tíma er sú
ímynd enn á kreiki að skólinn sé ein-
angi'aður frá þjóðlífínu. Fátt er þó
fjær sanni og hugsanlega er starf-
semi Háskóla Islands samofnari
þjóðlífinu en nokkursstaðar má
finna með öðrum þjóðum. Háskóli
;5íslands hefur ávallt verið einskonar
þjóðskóli eins og núverandi rektor
hefur ítrekað bent á.
„Upp úr skúffunum“
Síðan árið 1986 hefur Háskóli ís-
lands rekið Rannsóknaþjónustu Há-
skólans sem hefur það markmið að
efla tengsl skólans við atvinnulífið. Á
síðasta ári ákvað Rannsóknaþjón-
ustan að ráðast í þriggja ára áta-
ksverkefni sem hefði það að mark-
miði að koma
. i rannsóknaniðurstöðum á framfæri
og hvetja háskólamenn til að huga
að hagnýtingu þeirra.
Fyrsti áfanginn í þessu verkefni
var að halda samkeppnina „Upp úr
skúffunum". Er hún unnin í sam-
vinnu við Nýsköpunarsjóð atvinnu-
lífsins sem lagt hefur til verðlaunafé
og greitt annan útlagðan kostnað.
Áj-angurinn var góður og í fyrra bár-
ust 16 hugmyndir í samkeppnina.
Dómnefnd valdi þrjár hugmyndir
sem verðlaunaðar voru, eins og
greint var frá á sínum tíma. Þessi
góði árangur bendir ótvírætt til þess
að Háskóli Islands sé mikilvæg upp-
spretta góðra og hagnýtra hug-
mynda. Jafnframt var þessi árangur
kveikjan að sambæri-
legri samkeppni á
landsvísu þar sem
Nýsköpunarsjóður tók
höndum saman við
Morgunblaðið og
KPMG Endurskoðun
með glæsilegri út-
komu.
Sálfræði og tölvu-
tækni
Sú hugmynd sem
fékk fyrstu verðlaun er
merkileg m.a. fyrir það
hversu mörg svið hún
spannar: Grunnhug-
myndin byggir á atferl-
isrannsóknum sem stundaðar hafa
verið við Rannsóknastofu um mann-
legt atferli við Háskóla íslands. Þar
Háskóli íslands, segir
Ágúst H. Ingþórsson,
hefur verið virkur þátt-
takandi í umbyltingu ís-
lensks þjóðfélags
og efnahagslífs.
hefur verið þróuð aðferð til að koma
auga á mynstur í atferli með notkun
algóritma og nýjustu tölvutækni.
Þessi nálgun er síðan notuð til að
skilja betur það ferli sem er í gangi í
íþróttum, s.s. knattspyrnu, körfu-
bolta og hnefaleikum! Eigandi hug-
búnaðarins sem er viðurkenndur
vísindamaður og doktorsnemi sem
vinnur að íþóttarannsóknum með
aðferðum hans stofnuðu ásamt
Tækniþróun hf., sem er fjármögn-
unaraðili, undirbúningsfélag til að
vinna að frekari þróun hugmyndar-
innar. Nú liggja fyrir áætlanir um
stofnun fyi-irtækis og búið er að þróa
frumgerð af afurð sem fyrirtækið
gæti komið á markað. Eru miklar
vonir bundnar við að hægt verði að
stofna öflugt fyrirtæki enda er ljóst
Ágúst H. Ingþórsson
~V
Beinþynning -
hryggsúlubrot
Á hveijum degi ber-
ast óteljandi ábending-
ar og skilaboð til sam-
félagsins frá
fjölmiðlum og í gegnum
fjölmiðla. Vandinn er
sá að fanga og vinsa úr
það veigamesta og taka
þátt í, eftir því sem
• mögulegt er, að forgan-
gsraða eftir aðstæðum.
Barátta
Fonnaður, Bein-
verndar, Ólafur Ólafs-
son fyrrverandi land-
læknir, hefur verið
ötull baráttumaður fyr-
ir fræðslu um málefnið beinþynning,
sem er sjúkdómur sem legst harðast
á konur, sem í flestum tilvikum verða
fyrir sjúkdómnum eftir eða um miðj-
an aldur. Minna er um sjúkdómstil-
■* vik karia en þau eru þó þekkt.
* Um 1.000 íslendingar verða fyrir
beinbrotum á ári hverju af völdum
beinþynningar. Slysin verða við til-
tölulega lítið álag sem venjuleg bein
ættu að þola. Þannig verða u.þ.b. 2-
300 mjaðmabrot, flest innan dyra.
Hvert slys leiðir til innlagnar á
sjúkrahús með tilheyrandi kostnaði,
Jiem nemur 1-2 milljónum í hverju
tilviki.
Samkvæmt upplýs-
ingum, sem undirritað-
ur hefur undir höndum
og eru mjög alvarlegs
eðlis, má ætla að 20-
25% eldri kvenna sem
verða fyrir broti deyi á
fyrsta ári eftir brot/
slys. Ólafur Ólafsson
hefur vakið athygli á
málinu við litlar undir-
tektir yfirvalda. Þó hef-
ur aðeins verið leitað
eftir stuðningi til að
kynna sjúkdóminn og
fyrirbyggjandi aðgerð-
ir.
Forvarnir
Til mikils er að vinna ef unnt er að
koma að verulegu leyti í veg fyrir
beinbrotin og ef mögulegt væri að
koma í veg fyrir bognun vegna
kvömunar úr hryggsúlu.
Helsta vörnin er rétt mataræði,
heilbrigðir lífshættir, góð hreyfing
og þekking á vandanum. Þess vegna
er nauðsyn að veita málefninu stuðn-
ing til að koma í veg fyrir kvalafullar
aðstæður fyrir einstaklinga sem
hljóta oft hryggsúlubrot við minni
háttar áverka. Mjög mikilvægt er að
fólk temji sér að beita líkamanum
rétt við vinnu, t.d. þegar verið er að
Gísli S. Einarsson
Hvernig er líðan
HIY-jákvæðra
háttað eftir tilkomu
nýju lyfjanna?
að markaðurinn fyrir hugbúnað af
þessu tagi er gríðarlegur: störf
þjálfara og annarra sem koma að
þjálfun íþróttamanna verða auðveld-
ari og almenningur getur haft fróð-
leik og skemmtan af. Utrás íslensks
hugvits á sviði íþrótta er því e.t.v.
rétt að hefjast með nýlegum kaup-
um íslenskra aðila á ensku knatt-
spyrnuliði.
Frá hugmynd til hagnaðar
Að draga hugmynd upp úr skúffu
og fram í dagsljóð er þó bara byrjun-
in. Henni þarf að fylgja eftir með
viðskiptaáætlun, vernda með einka-
leyfi sé þess þörf og finna leiðir til
hagnýtingar og vonandi hagnaðar.
Þegar í nóvember á síðasta ári var
stofnað fyrirtækið Líf-hlaup ehf. um
eina af þeim hugmyndum sem send-
ar voru í samkeppnina. Þar er
reyndar á ferð samstarf sem vert er
að vekja athygli á; hluthafar eru
tveir prófessorar við Háskóla ís-
lands - annar úr lyfjafræði og hinn
úr tannlæknadeild - og nýútskrifað-
ur lyfjafræðingur. Nú, ári síðar er
það fyrirtæki búið að sækja um
einkaleyfi á hugmyndinni og fyrir
dyrum stendur að afla fjár til þess að
ráðast í markaðssetningu erlendis.
Viðvarandinýsköpun
Árangurinn af samstarfi Rann-
sóknaþjónustu Háskólans og Ný-
sköpunarsjóðs atvinnulífsins í fyrra
sýndi ótvírætt að Háskólinn er mik-
ilvæg uppspretta nýsköpunar. Því
var í haust aftur blásið til samkeppni
meðal háskólaborgara undir yfir-
skriftinni „Upp úr skúffunum".
Starfsmenn Háskóla íslands voru
hvattir til að fara ofan í skúffur sínar
og draga fram hagnýtar hugmyndir
sem koma má á framfæri við íslenskt
atvinnulíf. Svo skemmtilega vill til
að aftur skiluðu sér 15 hugmyndir.
Það vekur athygli hversu mikil fjöl-
breytnin er: sagnfræði og heim-
speki, hugvísindi, steinsteypurann-
sóknir, líffræði og efnafræði,
sjúkraþjálfun og netútgáfa! Það er
því ljóst að hugmyndasmiðir meðal
háskólamanna hafa margt fram að
færa.
Háskóli Islands hefur verið virkur
þátttakandi í þeirri umbyltingu á ís-
lensku þjóðfélagi og efnahagslífi
sem orðið hefur síðustu áratugi. Við-
tökurnar í fyrrgreindum samkeppn-
um sýna, svp ekki verður um villst,
að Háskóli Islands sinnir kalli tím-
ans og stuðlar að nýsköpun í ís-
lensku samfélagi.
Höfundur er forstöðumaður Rann-
sóknaþjónustu Háskólans.
Beinþynning
Um 1.000 íslendingar,
segir Gfsli S. Einarsson,
verða fyrir beinbrotum
á ári hverju af völdum
beinþynningar.
lyfta þungum hlutum. Rétt er að
muna að betra er að beita hugviti en
striti.
Félagið Beinþynning hefur þegar
gefið út bæklinga um þetta heil-
brigðisvandamál. Mikil nauðsyn er
að þessir bæklingar séu kynntir fyrir
ákveðnum markhópum.
Markmið heilbrigðisráðherra er
að þeir sem þurfa að leita til kerfisins
verði fullkomlega ánægðir með sam-
skiptin við það. Á þessu sviði svo og
öðrum eru hópar fólks mjög óánægð-
ir með samskiptin, svo sem fram hef-
ur komið, m.a. sjúklingar sem kvelj-
ast í bið eftir aðgerðum, jafnvel í
marga mánuði. Til að vinna að
markmiðum með heilbrigðisráð-
herra er þessi grein rituð til ábend-
ingar varðandi fjárskort til lágmarks
kynningarstarfs á vegum Bein-
vemdar. I mörgum tilvikum er unnt
að gera mikið fyrir litla fjármuni.
Það á við í þessu tilviki. Því hvet ég
til aðgerða af hálfu heilbrigðisráðun-
eytis vegna þessa málefnis.
Hötkynning: Höfundur er þing-
nmður Samfylkingar.
ÁRIÐ 1996 komu á markaðinn ný
lyf fyrir HlV-smitaða einstaklinga.
Þótt lítil reynsla væri af lyfjunum
þegar þau komu á markaðinn og lyf-
in alls engin lækning á sjúkdómnum,
þá var tilkomu þeirra
vel fagnað af öllum.
Skammtímaáhrif þeirra
voru góð, það dró strax
úr sjúkrahúsvistunum
og tala þeirra sem
greindust með lokastig
sjúkdómsins -' alnæmi
fækkaði. Með tilkomu
nýju lyfjanna gátu HIV-
jákvæðir farið að horfa
meir til framtíðar.
Hvernig gengur þeim
við það? Hver hafa áhrif
nýju lyfjanna verið á
andlega, líkamlega og
félagslega velferð
þeirra?
Mig langar til þess að
greina örstutt frá helstu
niðurstöðum sænskrar rannsóknar
sem fjallar um þetta, því ég tel þær
niðurstöður ekki vera ósvipaðar
þeim veruleika sem HlV-smitaðir
búa við hér á landi.
Tekin voru viðtöl við 47 einstakl-
Alnæmisdagurinn
Hver hafa áhrif nýju
lyfjanna verið á HIV-
smitaða? Sigurlaug
Hauksddttir fjallar um
helstu niðurstöður
sænskrar rannsóknar
um málið.
inga, 38 HlV-jákvæða og 9 aðstan-
dendur. Meðalaldur hinna HIV-
smituðu í rannsókninni var 37 ár og
höfðu þau verið smituð í 2 - 15 ár.
Tæplega helmingur þeirra hafði
þróað alnæmi, sem er lokastig sjúk-
dómsins.
Líkamlega hress
Öllum í rannsókninni finnst nýju
lyfin hafa breytt lífi sínu á ólíka
vegu. Líkamlega Iíður nánast öllum
miklu betur. Þeim finnast breyting-
arnar byltingarkenndar og er oft
lýst með orðunum, „ótrúlegar", „frá-
bærar“ og „algjört kraftaverk". En
einungis 8 af 38 finnst lyfin eingöngu
hafa haft jákvæðar breytingar í för
með sér. Þetta kemur eflaust svolítið
á óvart.
Milli vonar og ótta
Að vera milli vonar og ótta lýsir
best þeim tilfinningum sem hinir
HlV-jákvæðu upplifa. Flestir hafa
fengið von um lengra líf. En óöryggi
gagnvart aukaverkunum og ónæmi
fyrir lyfjunum vekur hjá þeim ótta
og gerir þeim erfiðara að skipu-
leggja fram í tímann. Þess má geta
að haustið 1997 höfðu tveir í rann-
sókninni hætt á lyfjunum vegna mik-
illa, viðvarandi aukaverkana. Um
helmingur finnur ennþá fyrir auka-
verkunum og sex eru alveg að gefast
upp á lyfjunum vegna þeirra. Lyfin
voru hætt að virka á einn og virkuðu
ekki nógu vel á tvo í viðbót. Þeim
hafði farið fram, en voru ennþá það
veik að þau gátu ekki búið ein.
Sálrænir og félagslegir erfið-
leikar
Erfiðleikar HlV-jákvæðra eru
umfram allt sálrænir og félagslegir
og þeir koma ekki strax fram. Þeir
koma fyrst fram þegar þeir átta sig
betur á lyfjunum og reyna að horfa
fram í tímann.
Það geta verið miklir erfiðleikar
fólgnir í því að eiga allt í einu að
horfa fram á líf í stað dauða. Það er
áfall og mikið álag að eiga von á að
deyja á unga aldri, en það eru ekki
síður mikil viðbrigði að horfa aftur
til lífsins.
Þegar lífið blasir
aftur við eru hin smit-
uðu búin að tapa mikl-
um tíma á meðan þau
voru veik. Öllum
framtíðaráformum
hefur lengi verið ýtt
til hliðar.
Þau sakna mjög
þess sem þau^ meta
mikils í lífinu. Á með-
an þau voru veik hafa
þau gjarnan misst
maka sinn, vini, tengsl
við fjölskylduna, vinn-
una, fjárhagslega
stöðu sína og mögu-
leikana á félagslegum
þroska. Mörg eru
mjögeinmana.
Flest eiga einnig erfiðar minning-
ar vegna sjúkdómsins, minningar
sem ennþá valda miklum sársauka
og hræðslu. Þessar minningar
hverfa ekki þótt þeim líði betur
líkamlega.
Mörg hafa innbyrgða mikla,
óunna sorg vegna áfalla sem þau
hafa orðið fyrir sem HlV-smituð.
Þau hafa t.d. misst marga vini sína í
blóma lífsins úr sama sjúkdómi og
óttast mjög um eigið líf. Þau hafa
upplifað óvenju mörg áföll á stuttum
tíma.
Aðstandendur
Aðstandendur hafa mikla þörf fyr-
ir að safna aftur kröftum og hvílast.
Þeir hafa gjarna lagt svo mikið á sig
vegna hins sjúka, að kraftarnir eru
uppurnir.
Á sama tíma og þeir gleðjast yfir
nýju lyfjunum, þá upplifa þeir enda-
lausa þreytu og óöryggi gagnvart
þeim. Koma lyfin til með að virka
jafn vel í framtíðinni?
Nýjar þarfír
Þörf fyrir sálrænan og félagsleg-
an stuðning er mjög mikill. Lang-
stærsta vandamál flestra er að þá
skortir algjörlega lífslöngunina. Það
er alls ekki óalgengt að þau séu eins
og lömuð þrátt fyrir alla möguleik-
ana sem þau skynja að þau eiga. Þau
eni oft hissa á því sjálf að finna ekki
til gleði yfir að geta allt í einu fengið
að lifa lengur. Þörf fyrir aðstoð til
þess að finna nýjan tilgang með líf-
inu er mjög mikil. Þau þurfa hjálp
við að vinna úr sínum upplifunum og
fá reiðu á tilfinningalíf sitt. Slík að-
stoð er m.a. mikilvæg vegna lyfja-
töku, sem ennþá er mjög krefjandi.
Ef lyfjameðferð á að gagnast þá er
nauðsynlegt að taka reglulega fjölda
taílna 2-3 sinnum á dag, annað hvort
fyrii', með eða eftir mat.
Að lokum
Það er trúlegt að mörgum finnist
niðurstöður þessarar rannsóknar
sláandi. Margir hafa e.t.v. haldið að
vandamál HlV-jákvæðra hafi verið
leyst með tilkomu nýju lyfjanna. En
eins og svo oft þegar skyggnst er
undir yfirborðið, þá getur annar og
nýr sannleikur komið í ljós. Tilkoma
nýju lyfjanna hefur bætt líkamlega
heilsu og gefið von, en andlegri og
félagslegri vellíðan HlV-jákvæðra
er ennþá mjög ábótavant.
Það gæfi HlV-jákvæðum tví-
mælalaust mikinn styrk til þess að
takast á við sinn sjúkdóm, ef allir á
nýrri öld legðust á eitt til að uppræta
þá fordóma sem ennþá ríkja gagn-
vart þeim og opna þeim nýjar leiðir
til eðlilegrar þátttöku í samfélaginu.
Höfundur er deildarféiagsráðgjafí á
Sjúkrahúsi Reykjavfkur.
Sigurlaug
Hauksdóttir