Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 46

Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 46
£6 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Staða viðbúnaðar almanna- varna á Kötlusvæðinu EINS og lesendum er kunnugt hefur nú um tveggja mánaða skeið staðið yfir um- fangsmikil úttekt á stöðu viðbúnaðarmála á Kötlusvæðinu með tilliti til hugsanlegs eldgoss í Mýrdalsjökli ^fneð tilheyrandi jökul- hlaupi. Aðdraganda þeirrar úttektar má rekja til þess atburðar sem olli allstóru hlaupi í Jökulsá á Sólheima- sandi hinn 18. júlí á umliðnu sumri og þeirrar þróunar sem orðið hefur í Mýrdalsjökli í fram- haldi af því. Sú þróun hefur fram til dagsins í dag leitt af sér myndun 15 sigkatla sem raða sér umhverfis Kötluöskjuna alla. Umrædd úttekt hófst að afloknum fundi sem hald- inn var í Víkurskála hinn 30. ágúst, en þann fund sátu fulltrúar frá al- mannavarnaj'áði, Almannavörnum •Tíkisins, almannavarnanefndum Mýrdalshrepps, Rangárvallasýslu og Skaftárhrepps og embætti yfir- dýralæknis. Einnig mættu á fund- inn fulltrúar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, svæðisskrifstofu Rauða kross Islands og björgunar- sveitum og Rauðakrossdeildum á svæðinu. A fundinum var rætt um þau mál sem tengjast forvörnum, skipulagi og viðbúnaði á svæðinu í heild og mótuð áætlun um úttekt á stöðu þeirra mála. Niðurstaða fund- Aarins var sú að leggja bæri áherslu á eftirfarandi: Uppfærslu á neyðaráætlun v/ Kötlu, að skipuleggja og undirbúa rýmingaræfingu, að efla forvarnir og upplýsingar til almennings, að undirbúa og halda fræðslufund fyr- ir íbúa á hinum beinu áhrifasvæð- um Kötlu, að yfírfara fjarskipta- og Hlýfóðraðir barnaskón Ilafþór Jónsson sambandsmál og að lokum að yfirfara skipulag aðgerða- og vettvangsstjórnarmála á svæðinu. Ennfremur að huga að því að koma upp eldsneytis- birgðum fyrir þyrlur í Vík og á Klaustri. Nú tveimur mánuð- um síðar er staða framangreindra mála sem hér verður greint frá. Verið er að leggja síðustu hönd á útgáfu neyðaráætlunar v/eld- goss í Mýrdalsjökli. Lítilsháttar breytingar hafa verið gerðar á uppsetningu og heiti áætl- unarinnar, en í öllum megin atrið- um er hún í sama takti og útgáfan frá 1993. Borgarafundur fyrir íbúa Mýrdalshrepps, Skaftárhrepps og Eyjafjallahreppa var haldinn í fé- lagsheimilinu Leikskálum, mánu- daginn 13. september. A fundinum ræddu jarðvísindamenn um eðli og áhrif Kötlugosa, vöktunarkerfí vís- indastofnana og viðbúnað almanna- varna á svæðinu og sýsiumaður kynnti viðbúnað almannavarna á svæðinu. Æfingin „Katla ’99“ var síðan haldin laugardaginn 9. októ- ber sl. í þeirri æfingu var megin áhersla lögð á lokun vega skv. gild- andi áætlun, rýmingu byggðarinnar neðan bakkanna og austan Víkurár í Vík, í Alftaveri og vestanverðu Meðallandi og skráningu þeirra sem rýma þurftu hús sín. Auk al- Katla Allur viðbúnaður, segir Hafþór Jónsson, miðast að því að auka hæfni vegna þeirrar alvöru sem skapast þegar Katla gýs. mannavarnanefndanna þriggja tóku lögregla, björgunarsveitir, Rauðakrossdeildir, Vegagerð og gæslumenn lokunarstöðva og tal- stöðva almannavarna þátt í æfing- unni. I heild tókst æfingin svo sem best verður á kosið og tók það að- eins u.þ.b. 30 mín. að rýma byggð- ina í Vík og eftir 45 mínútur var búið að skrá alla og hafa upp á 14 aðilum sem _ekki skiluðu sér til skráningar. I Skaftárhreppi var rýmingu og skráningu lokið á u.þ.b. 1 klukkustund. Almenn ánægja var með framkvæmd æfingarinnar og ber þar sérstaklega að þakka já- kvætt viðhorf og almenna þátttöku íbúanna þrátt fyrir rok og rigningu. Almannavarnanefndir Mýrdals- og Skaftárhreppa hafa í samvinnu við Almannavarnir ríkisins gefið út þrjú fréttabréf sem dreift hefur verið í Eyjafjalla-, Mýrdals- og Skaftárhreppum. I þeim er fjallað um viðbúnað og öryggi almennings með tilliti til eldgoss í Mýrdalsjökli og einnig veitt svör við fyrirspurn- um frá íbúum á svæðinu. Utgáfu umræddra fréttabréfa verður hald- ið áfram svo lengi sem þurfa þykir. Almannavarnir ríkisins og starfs- fólk skóla á svæðinu eru að vinna að sérstökum neyðaráætlunum fyrir skólana. I framhaldi af því verður síðan haldin sérstök rýmingar- og viðbúnaðaræfing fyrir Víkurskóla. Ekki er vitað um heyrnarlausa eða blinda á rýmingarsvæðum og því er ekki þörf á sérstökum leiðbeining- um þar að lútandi. Fjarskipta- og sambandsmál hafa verið rækilega yfirfarin og á það bæði við um fjarskiptakerfi almannavarna og fjarskiptakerfi björgunarsveita. I framhaldi af niðurstöðum úr æfing- unni „Katla ’99“ er nú unnið að end- urbótum á fjarskiptasamböndum innan Skaftárhrepps. Landsími Is- lands hefur yfirfarið öll sín aðal- og varasambönd á svæðinu og fram- kvæmt úrbætur sem miða að öryggi í vararafmagni og betra sambandi á GSM- og NMT-kerfunum. Einnig hafa dreifikerfi sjónvarps og hljóð- varps (Rúv og Stöð 2) verið yfir- farin. Rafmagnsveitur ríkisins hafa gert áætlun um færanlegt varaafl fyrir byggðina ofan bakkanna í Vík, ef vararafstöð RARIK í staðnum verður óstarfhæf. Vegagerð ríkisins hefur yfirfarið vegalokunarbúnað- inn á sex stöðum á þjóðvegi 1 og skipulagt viðbrögð vegna skyndi- lokunar og tekið saman lista yfir þá sem annast fyrstu lokun. Einnig hafa starfsmenn Vegagerðarinnar í Vík tekið saman skrá yfir þau far- artæki á svæðinu sem nýtast til samgangna yfir ár og vötn og lista yfir nothæfa flugvelli á svæðinu. í samráði við Almannavarnir ríkisins og lögreglustjórann í V-Skaftafells- sýslu hefur Vegagerðin komið upp aðvörunarskiltum beggja vegna Mýrdalssands, þar sem fólki er ráð- lagt að dvelja ekki á sandinum að nauðsynjalausu vegna hættu á Kötlugosi. Einnig hefur Vegagerðin tekið saman kostnaðaráætlun yfir hugsanlega endurbyggingu sam- göngumannvirkja á svæðinu. Emb- ætti yfirdýralæknis hefur gert áætlun um viðbrögð er varða öryggi búpenings og húsdýra. Að lokum ber að geta þess að ríkisstjórn ís- lands ákvað að veita Raunvísindast- ofnun Háskólans, Veðurstofu ís- lands, Norrænu eldfjallastöðinni og vatnamælingasviði Orkustofnunar sérstaka fjárveitingu til að efla og auka það vöktunarkerfi sem komið hefur verið upp við Kötlu. Um- ræddar vísindastofnanir hafa í framhaldinu aukið eftirlit og rann- sóknir sínar á svæðinu og má full- yrða að Kötlusvæðið er nú best vaktaða svæði á íslandi í jarðfræði- legum skilningi. Einnig samþykkti ríkisstjórnin að veita Almannavörn- um ríkisins sérstaka fjái-veitingu til að vinna að áhættugreiningu fyrir Kötlusvæðið. Samið var við verk- fræðistofuna Orion um að annast það verkefni og er lokaskýrsla væntanleg í byrjun desember. Það er von Almannavarna ríkisins að við lestur þessarar greinar verði les- endur örlítið fróðari um þær að- gerðir, sem í gangi hafa verið á Kötlusvæðinu, sem fyrst og fremst miða að því að gera allan viðbúnað bæði tæknilegan og mannlegan hæfari til að takast á við þá alvöru sem skapast þegar Katla gýs. Höfundur er aðalsviðsstjóri hjá Almannavörnum ríkisins. Stærðir 29-35 Verð kr. 3.990 Smáskór Sérverslun með barnaskó í bláu húsi við Fákafen Framkvæmdir við vesturenda flugbrautarinnar í Skerjafirði VIÐ sem búum í Skerjafirði sunn- an flugbrautar, höfum að sjálfsögðu fylgst grannt með öllum fram- kvæmdum er varða breytingar á að- komuleið í hverfið okkar í gegnum tíðina. Margt hefur þar verið vel gert og tilraunir til lagfæringa sem ekki hafa þó tekist sem skyldi. Nú er enn einu sinni grafið í sundur og má trú- lega tengja þá aðgerð væntanlegum lagfæringum á flugbrautum þótt ekki viti ég það með vissu. Ymislegt má minna á varðandi þennan vegarkafla fyrir flugbraut- ina: 1. Slysahætta er til staðar. Flest- Jóiagjöfin sem gleymist seint risk,|y»i ir muna eftir því er flugvél Flugfélags ís- lands rann fram af brautinni í flugtaki. Hrein heppni var að ekki varð slys, jafnvel stórslys. 2. A hverjum vetri safnast þarna mikill snjór, m.a. vegna skaf- rennipgs frá flugvellin- um. An efa er talsverð- ur kostnaður því samfara á ári hverju að halda þessari leið op- inni auk þess sem margir vegfarendur minnast erfiðleika og hættuástands Ásgeir Guðmundsson húsá- og snmarbústaðaskilti úr tré Axel Björnsson S: 897 3550 565 3553 Pantið tímanlega fyrir jól sem skapast hefur í vondum vetrarveðr- um. 3. I hláku myndast þarna mikill vatnselgur og hafa niðurföll ekki undan. Vatnsflaumur er bæði af flugvelli og vegna mikilla snjóa á götunni sem liggur nokkru neðar en flugvöllur- inn. Iðulega eru þá að störfum starfsmenn borgarinn- ar að bjarga málum. 4. Fyrir allmörgum árum var komið fyrir lýsingu á þessum kafla. Var það gert vegna langvarandi kvartana íbúa í Skerjafirði. Ekki var hægt að koma venjulegri götulýsingu við vegna flugumferð- ar. Var þá komið fyrir núverandi lágljósum. Þetta hefur þótt til mikilla bóta sérstak- lega þegar ljós er á per- unum. Það gerist hins vegar æði oft að ljósin hverfa um mismunandi löng tímaskeið, að því er virðist, án þess að um skemmdarverk hafi verið að ræða eins og vart var við í upp- hafi. Það kann hins vegar að vera rangt. Hugsanlega mætti fleira til nefna. Ef að líkum lætur stefnir í að þétta byggð í Skerjafírði og komið hefur fram tillaga um byggð meðfram flug- Reykjavíkurflugvöllur Að mínu mati er ein leið fær til að koma í veg fyrir allt það sem nefnt er hér að framan, segir Asgeir Guðmundsson, C^SenÓum lólajíakkana %ðen/\%- Gœðavara Gjafavara — malar- og kaffistell. Allir veröílokkar. . Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Latigavegi 52, s. 562 4244. Hraðsendingar um allan heim •V Federal Express Levfíshafí Federal Express Corporation: Flutningsmiðlunin Jónar hf. Skútuvogi le 104Rcykjavík sími: 535 8000 netfang: jonar@jonar.is vefsíða: www.jonar.is . ...eftirleikurinn verður auðveldur www.bnksala.is en það er að gera göng á þessum kafla. vellinum í austur frá Einarsnesi, þó vonandi ekki á uppfyllingum á firðin- um, og mun umferð af þeim ástæðum aukast verulega. Að mínu mati er ein leið fær til að koma í veg fyrir allt það sem nefnt er hér að framan en það er að gera göng á þessum kafla. An efa hafa margir aðrir velt þessu fyrir sér en ekki minnist ég þess að sú umræða hafi farið hátt. Eg spyr því gatnamála- stjóra og aðra ráðamenn í umferðar- málum borgarinnar hvað sé því til fyrirstöðu að ganga þannig frá um- ferðartengingu í Skerjafjörðinn. Það þarf ekki einu sinni að bora! Hættum vegna flugumferðar yrði bægt frá, snjómokstur hyrfi, vatnselgur einnig og vegfarendur til og frá Skerjafirði þyrftu ekki lengur að kljást við hætt- ur samfara rysjóttu tíðarfari á þess- um stutta vegarkafla. Þá mætti lengja flugbrautina án þess að loka fyrir umferð P.s. Framkvæmdum fer nú senn að ljúka á þessum spotta en ráðamenn hefðu mátt huga að ein- hverri lýsingu til bráðabirgða vega- kaflanum sem gerður var. I slæmu skyggni eins og verið hef- ur undanfarið er vegarspottinn nýi hættulegur gangandi og akandi. Höfundur er fv. forstjóri með búsetu íSkerjafirði sfðustu 35 árin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.