Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 52

Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR BJARNIG. TÓMASSON + Bjarni Guðbjart- ur Tómasson fæddist 20. júní 1907 á Læk í Dýrafirði. Foreldrar hans voru Tómas Kristjánsson, bóndi á Gemlufelli í Dýrafirði, f. 29. ág’úst 1848 í Narfanesi, og kona hans Jósefína Jósefsdóttir, f. 1. júní 1866 á Hamri í Múla- sveit. Árið 1943 kvæntist Bjarni Katrfnu Svölu Guðmundsdóttur, f. 23. desember 1920, d. 9. febrúar 1974. Þau eignuðust dreng sem dó í bernsku en eftir- lifandi sonur þeirra er Hörður Brynjólfsson Bjarnason, f. 25. september 1944. Hinn 12. maí 1951 kvæntist Bjami eftirlifandi konu sinni, El- isu Marichen Henriettu Dorotheu Lexau, f. 5. ágúst 1920 í Liibeck í Þýskalandi. Dóttir þeirra er Guð- rún, f. 8. febrúar 1952. Hún er gift Karli Helga Gíslasyni og þeirra OSWALDS si'mi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSHULTI iB • 101 RKYKJAVÍK Davtð Ingo' Úlafitr Útfararstj. Umsjón utfararstj. LÍKKISTUVINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR ÚTFARARST OFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áratöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Utfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ dætur eru Lilja og Laufey en sambýlis- maður Laufeyjar er Jón Bjarni Braga- son. Bjarni bjargaðist naumlega ásamt móður sinni og tveimur systkinum úr snjóflóði 18. febr- úar 1910 í Hnífsdal en faðir hans og bróðir létust. Bjarni hóf að starfa við málara- vinnu um þrítugt í Reykjavík og hóf nám í iðninni árið 1950 við Iðn- skólann í Reykjavík. Hann lauk sveinsprófi árið 1954 og fékk meistarabréf árið 1958. Hann var síðan við vinnu og til fræðslu í Þýskalandi á árunum 1957-58. Bjarni ritaði margar greinar um málaraiðnina og annað í blöð og tímarit og flutti erindi í útvarp. Utför Bjarna fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Á kveðjustund er margs að minn- • ast. Minningamar verða varðveittar sem fjársjóður í huga okkar allra. Við kveðjum þig með þínum eigin orðum, sem við skráðum á blað og lögðum á náttborðið hjá henni Lísu þinni: Nú fólnar allt í fjallaMíðum háum, sem eitt sinn vorið fógru lífi bjó. Nú tjaldar hlíðin fanna möttli gráum, nú færist yfir helköld vetrarró. (B.G.T.) Vertu kært kvaddur og guði falinn. Guðrún, Karl Helgi, Lilja, Laufey og Jón Bjami. Við kynntumst Bjama fyrir um 12 ámm þannig að við þekktum hann að- eins sem háaldraðan mann. En það kom ekki að sök - Bjarni var fróðari, hressari og framkvæmdasamari en margir helmingi yngri menn. Við kynntumst í gegnum smá- auglýsingu í DV. Okkur vantaði ein- hvem til að líta eftir Agli, þriggja ára syni okkar, á meðan við foreldrai’nir vomm í vinnu. Einmitt þegar leit okkar stóð yfir birtist í DV auglýsing sem átti eftir að breyta lífi okkar allra en þar stóð að eldri hjón óskuðu eftir að gæta bama. Þannig hófust kynni fjölskyldunnar af hjónunum Bjama og Lísu og þannig eignaðist Egill - og síðar Anna Katrín - afa og ömmu eins og þau gerast best. Vandfundnari era blíðari og bamelskari hjón en þau Lísa og Bjami vora. Bjami talaði t.d. alltaf um það hvað bömin væra falleg og sagði þeim það oft á dag. Slík væntumþykja og hrós er bami ómet- anlegt. I nokkur ár var Egill hjá þeim daglega, ásamt öðram litlum strák, Einari, og þama döfnuðu þeir eins og blómi í eggi. Lísu fannst ekki við hæfi annað en fara á fætur upp úr kl. 7 til að undirbúa hádegismatinn fyrir karlana sína, smáa sem stóra, og það vora engar pylsur í potti heldur al- mennileg máltíð, elduð á þýska vísu. Uppáhaldsréttur allra karlanna held ég hafi verið spínatrétturinn hennar Lísu og það era áreiðanlega ekki margir litlir strákar á Islandi sem háma í sig spínat. Bjami gætti þess þó vel að dekra strákana ekki um of og skammaði okkur t.d. fyrir að láta Egil ekld ganga nógu mikið - honum væri ekið til þeirra og svo væri verið að halda á honum! Það væri gott fyrir strákinn að hreyfa sig og síðan gekk hann með þann stutta úr Hlíðunum, í banka niðri í miðbæ og tilbaka aftur. Hann var svo sannarlega framsýnn þar því að undanförnu hafa í fjölmiðlum verið að birtast og heyrast hvatning til for- eldra um að láta börn borða hollan mat á matmálstímum og umfram allt að hreyfa sig meira. Bjarni var líka afskaplega meðvit- aður um gildi íþrótta fyrir kkamann og ekki ósjaldan hneykslaðist hann á því að búið væri að banna box á Is- landi. Sjálíúr hafði hann æft box á yngri áram og taldi að það hefði ekki haft annað en góð áhrif á sig og aðra þá sem það stunduðu. Hann gætti þess líka vandlega að það sem hann borðaði væri ekki ann- að en hollmeti og sykursnautt. Þann- ig gat hann lifað mun betra lífi en margir aðiir sem sams konar sjúk- dómar herja á, þ.e. sykursýki og hjartasjúkdómar. Alltaf á meðan heilsan leyfði mættu þau Bjarni og Lísa í afmælisveislur bamanna og þá var þess alltaf gætt að á veisluborðinu væra veisluföng sem Bjarni gæti not- ið - en ekki vegna þess að hann væri að biðja um sérmeðferð sér til handa, heldur vegna þess að það var svo gaman að gefa honum það sem hon- um þótti gott. Rétt fyrir jókn - vanalega á Þor- láksmessu - komum við og börnin í stutta heimsókn til Lísu og Bjama. Þá var ekki við annað komandi en að þiggja koníakstár á meðan spjallað var um málefni kðandi stundar og skipst á jólagjöfum. Bjami hafði óbil- andi áhuga á stjórnmálum allt til dauðadags og íylgdist mjög vel með því sem þar er að gerast. Hann starf- aði um árabil ötullega fyrir Alþýðu- flokkinn og hélt ætíð tryggð við hann. Þó hafði hann síður en svo á móti því að hans gamli flokkur færi í samstarf + ÞÓRUNN MARGRÉT TRAUSTADÓTTIR, frá Grímsey, Smáratúni 7, Selfossi, áður Sólbakka, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, sunnudaginn 28. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 4. desember nk. kl. 13.30. Inga Dóra Sigurðardóttir, Friðrik Karlsson, Ögmundur Brynjar Sigurðsson, Elsa Karin Thune Sigurdsson, Anna Linda Sigurðardóttir, Magnús Hermannsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Kaerar þakkir til allra þeirra, er hafa sýnt okkur samúð og hlýju við fráfall GYÐU JÓNSDÓTTUR, Hávallagötu 15, Reykjavík, sem lést 22. nóvember. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild L-3 Landakoti, svo og þeirra, sem styrktu hana í baráttunni við erfiðan sjúkdóm. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Sigurður Jónsson, Ásgeir Sigurðsson, Anna Hrönn Jóhannsdóttir, Jón Viðar Sigurðsson, Unnur Svavarsdóttir og barnabörn. með öðram flokkum og leist bara nokkuð vel á Samfylkinguna. Bjarni skrifaði oft greinar í dagblöðin um viðhorf sín til ýmissa þjóðmála og tU að vera í takt við kröfur tímans fékk hann sér tölvu fyrir nokkram áram. Mér er tU efs að það sé margt fólk um nírætt sem það gerir. Hann hélt skrif- um sínum áfram eins lengi og heilsan leyfði og það er ekki fyrr en kannski á þessu ári að hann hætti að skrifa. Þau Bjarni og Lísa höfðu gaman af að ferðast og fóra alltaf reglulega að heimsækja föðurland Lísu, Þýska- land, og það era ekki nema örfá ár síðan þau fóra síðast. Bjami sagði okkur oft frá því þegar hann sá fyrst þessa fallegu þýsku konu og hann hafði yndi af því að gefa Lísu sinni fal- leg föt. Ekki síður var Bjami smekk- maður á föt fyrir sjálfan sig og það vora því alltaf sérlega glæsileg, eldi-i hjón á ferð þar sem þau fóra. Það er svo margt gott og fallegt hægt að segja um Bjama en við ætl- um að enda þessi kveðjuorð til þessa aldna heiðursmanns á að þakka fyrir að hafa fengið að kynnast honum og fyrir að hann skyldi hafa tekið ást- fóstri við bömin okkar og verið þeim sem besti afi. Við eigum öll eftir að sakna hans sárt. Enginn þó eins og Lísa. Henni og fjölskyldunni vottum við okkar inni- legustu samúð. Bryndís Krisljánsdóttir, Valdimar Leifsson, Egill og Anna Katrín. Haustið 1987 auglýstum við eftir bamfóstra fyrir rúmlega eins árs gamlan son okkar. Fullorðin hjón í Barmahlíð svöraðu auglýsingunni og buðu okkur heim til sín. Þau kynni er þar sköpuðust hafa varað æ síðan. Bjami Tómasson sem nú kveður þennan heim og Lísa, kona hans, gættu beggja sona okkar til fjölda ára. Þótt Lísa hafi haft veg og vanda af þeirri vinnu var Bjami ætíð skammt undan. Bjami var afar barngóður og hafði gaman af að vera innan um börn. Nær daglega, í fjögur ár, fór Bjami með strætisvagninum úr Hlíðunum niður að Tjamarborg, þar sem hann sótti Einar Rafn í hádeginu og tók næsta vagn upp í Hlíðar aftur. Síðai- sama dag gátu þeir farið nið- ur að tjörn og alltaf í vagninum. Stundum þegar skap þess unga var ekki sem best fóra þeir í hringferð með leið 8 eða 9. Tengsl Bjama og Einars, og síðar Bjama og Sigurðar Kr., vora sterk. Hann var þeirra afi í Reykjavík. Bjami var alla tíð hraustur maður, en síðustu árin hrakaði honum nokk- uð og þetta ár var honum erfitt og að lokum kvaddi hann, sáttur við allt og alla. Bjarni var pólitískur, hann studdi Álþýðuflokkinn. Hann fylgdist alla tíð vel með pólitíkinni og hafði skoðanir á hlutunum. Maður fékk oft til tevatnsins. Sérstaklega þótti hon- um sem núverandi stjómvöld gerðu naumt við eldri borgara landsins. Þrátt fyrir það vildi Bjarni ekki safna auði, enda verða þau orð hans minnis- stæð „að síðasta skyrtan hefur enga vasa“. Bjami var lífsnautnamaður, hann naut þess að borða góðan mat og dreypa á víni. Það var enda það besta sem fyrir hann var gert að bjóða hon- um í mat, hvort sem það var í bænum eða í Borgarfirðinum. Nálægðin við náttúrana var honum mikilvæg. Söngurinn var Bjarna einnig sérstakt yndi. Við gleymum aldrei þegar hann söng einsöng, níræður, í afmæli Guð- rúnar Hrannar fyrir 130 manns og „átti salinn". Það leika ekki margir eftir. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við minnast Bjarna Tómassonar og vonum að hann njóti alls hins besta sem honum verður nú búið hjá al- mættinu. Við Guðrún Hrönn og strákamir biðjum algóðan Guð að geyma Bjama o g styrkja Lísu í hennar sorg. Ingimar, Guðrún Hrönn, Einar Rafn og Sigurður Kr. HARALDUR BRAGI BÖÐ VARSSON + Haraldur Bragi Böðvarsson fæddist í Hafnarfirði 4. júlí 1960. Hann lést á Landspítalan- um 21. nóvember síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 30. nóv- ember. Vinur okkar og fyrr- verandi vinnuveitandi, Haraldur Bragi Böðv- arsson, kvaddi okkur félagana fyi'r en okkur hafði órað fyrir. Ekki er ofsögum sagt að við þá harmafregn, sem barst okkur til eyrna mánudag- skvöldið 22. nóvember, hafi dimman skammdegisskuggann sett enn dekkri fyrir augu okkar og kaldur vetrarnæðingurinn níst okkur inn að beini. Það var erfiðara en orð fá lýst að átta sig á þeirri bláköldu staðreynd að tæplega fertugur að aldri hefði þessi hörkuduglegi bjartsýnismaður beðið lægri hlut í glímunni við þau máttarvöld sem ætla okkur öllum eilífa hvíld fyrr eða síðar. Við sem ritum þessi fátæklegu kveðjuorð störfuðum hjá Haraldi síðastliðinn vetur á skemmtistað- num Vegas sem dyraverðir og þjón- ar. Er það einróma álit okkar að þau störf hafi veitt okkur meiri skemmt- un og gleði en við höfðum áður kynnst á sama vettvangi, svo ánægjulegur var andinn og stemmningin á Vegas veturinn 1998-1999. Starfsfólkið var þéttur hópur lífsglaðra ungmenna og margt brallað innan vinnustaðar sem utan. Haraldur, eða H eins og við kölluðum hann, var iðulega við- staddur þegar staðurinn var opnað- ur þótt hann hefði setið daglangt á skrifstofunni yfir pöntunum á að- föngum, staðið í samn- ingastappi við erlenda umboðsmenn, verið að taka á móti nýjum skemmtikröftum eða sinnt öðra af því ótalmarga sem rekstur skemmtistaðar krefst. Starfið varð honum þó aldrei um megn, alltaf birtist hann brosandi að kvöldi og átti ekki í neinum vandræðum með að sjá spaugilegu hliðarnar á amstri dagsins sem hann miðlaði okkur af smit- andi kímni. Annað hvert sunnudagskvöld gerðum við okkur glaðan dag eftir lokun og héldum starfsmannateiti. H lét sig ekki vanta þar fremur en annars staðar og var hrókur alls fagnaðar; betri yfirmaður er áreið- anlega vandfundinn. Alltaf stóð staðurinn okkur opinn ef halda þurfti upp á afmæli eða fagna ein- hverjum ánægjulegum viðburði og ekki kviðum við því að eitthvað hefði gleymst eða farist fyrir, við státuð- um af traustum og ósérhlífnum veislustjóra sem kunni sitt fag. Þær stundir lifa í minningunni öðrum lengur. Okkur gafst ekki tækifæri til að hitta H í veikindum sínum sem voru sem betur fór ekki langvinn en sjaldan verður ósinn eins og upp- sprettuna dreymir og engan okkar óraði fyrir að framvinda málsins yrði sú sem raun varð. Við kveðjum Harald með söknuði og trega um leið og við þökkum ógleymanlegar stundir ásamt hollu og góðu vegan- esti út í lífið. Kynni okkar verða seint metin að fullu. Atli Steinn, Ásgeir, Georg Rúnar, Ivar Örn og Magnús Ófeigur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.