Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 53

Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 53 INGIBJÖRG JÓNA JÓNSDÓTTIR + Ingibjörg Jóna Jónsdóttir fædd- ist í Reykjavík 5. des- ember 1927. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 20. nóv- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hallgríms- kirkju 29. nóvember. Kæra mágkona. Ekki átti ég von á því þegar við kvöddumst á fimmtudagskvöld að ég ætti ekki eftir að sjá þig meir eða að á laug- ardagsmorgni yrði mér tilkynnt lát þitt. Enn erum við á það minnt sem eftir lifum að lífið er að láni og er fyr- irvaralaust kippt í burtu. Allt sem við áttum í okkar dag- lega lífi er nú orðið minning. Ljúft er að minnast okkar fyrstu funda er við hittumst á Hótel Sögu 1973 ásamt Vilhjálmi, manni mínum og Hafsteini bróður mínum. Þið höfðuð stigið dans og hann boðið þér að okkar borði. Við tókum tal saman og upp frá því hófust okkar kynni. Hafsteinn hafði fundið nýjan lífs- förunaut. Þau giftu sig 1974. Ingi- björg bjó honum hlýlegt og fallegt heimili og var fljót að aðlaga sig nýrri fjölskyldu og gera hana að sinni. Dætrum sínum af fyrra hjóna- bandi var hún góð fyrirmynd og bar hag þeirra mjög fyrir brjósti. Hressilegt viðmót var einkenni Ingibjargar, hnyttni, gamansemi með tilheyrandi stjórnsemi. Ingi- björg var heimskona og ætíð hrókur alls fagnaðar þar sem hún var. Víð- lesin um menningu þjóða svo ekki sé nú talað um kóngafólkið, þar kunni hún allar ættartölur utan-bókar. Hún var mjög ljóðelsk og kunni ógrynni af ljóðum og gat farið með á góðri stund ásamt gátum og þraut- um sem hún lagði oft fyrir gesti sína og hafði gaman af. Við fráfall mannsins míns varð mér mikill styrkur að eiga þau að Ingibjörgu og Hafstein. Þá komu mannkostir hennar vel í ljós. Með hlýlegu og hressilegu viðmóti, óspör á nærveru sína og boðum á heimili þeirra og buðu mér með í ferðalög bæði innan lands og utan. Alltaf var Ingibjörg tilbúin að taka mig með þegar eitthvað stóð til og á ég henni margt að þakka. Ingibjörg var gædd þeirri persónu að allir sem kynntust henni geta kallað það gæfu sína. Fráfall Ingibjargar skilur eftir sig mikið tóm og söknuð, en minning hennar mun lifa. Kveð ég nú góða vinkonu og bið Hafsteini og dætrum hennar og fjölskyldum þeirra bless- unar. Þorbjörg. í starfsmannaskrá Fjölbrautaskólans við Armúla er Ingibjörg Jónsdóttir verzlunar- stjóri nemenda, og víst var hún það á annan áratug. En titill, þótt lýsandi sé, segir lítið um starfssvið, hvað þá manninn sem ber hann. Ingibjörg var vinur nemenda, sálusorgari þegar á þurfti að halda, ráðgjafi, uppalandi, mamma og amma; jafn- an hollráð þeim sem til hennar leituðu - og þeir voru margir; Ingibjörg í sjopp- unni hét hún í skólasamfélaginu. Hún var ákveðinn verkstjóri stúd- entsefna og annarra nemenda hverju sinni, og þeir eiga henni margt upp að inna þótt stundum hvessti; málin voru jafnan leyst í góðum friði, enda var Ingibjörg eldri en tvævetur og vissi hvað ungum kom bezt. Umvöndunarsöm þegar hún gekk með prikið út í salinn til þess að láta unglingana þrífa eftir sig, röggsöm og drífandi fyrir innan búðarborðið þegar mikið var umleik- is, jafnvel óþolinmóð ef henni þótti hægt ganga, skorinorð og hafði eng- ar vífilengjur, sérstaklega við ágenga sölumenn, enda hreinskiptin á alla lund: „Heyi'ðu, væni minn...“ Enda koma núorðið einungis ábyrgir menn á staðinn. Spurði mig gjarnan þannig að svarið lá í augum uppi: „Þú ætlar ekkert að láta krakkana borga leigu, er það?“ Eða: „Þau þurfa nú næði til þess að draga í happdrætt- inu. Er ekki bezt að gera það í tíman- um fyrir hádegið í dag?“ Og: „Hvað ætlar þú að kaupa mikið af rækj- um?“ Er hægt að svara svona spurn- ingum nema á einn veg þegai’ konan stendur hálf í gættinni með vísifing- ur á lofti og bros í augum? Ingibjörg var stjórnsöm án þess að vera ágeng, ýtin án þess að vera frek, afar fylgin sér í hvívetna og æv- inlega háttvís. Svo var líka fjarska skemmtilegt að gera að gamni sínu við hana. Glensi og glettum tók hún vel, enda glaðvær að upplagi og hafði gott auga fyrir því sem var kímilegt í umhverfinu og í hennar eigin orðum eða athöfnum; sagði skemmtilega frá, ekki sízt ef henni varð á í mess- unni og hló dátt þegar sá var gállinn á henni. Hún lifði ríkulega í samtíð sinni, ferðaðist mikið erlendis, en leiddist að þeytast um landið í bíl. Samt hafði hún í hávegum gömul gildi; kom í gættina og spurði ásak- andi: „Eruð þið hætt að kenna ungl- ingum að syngja Vorhvöt Steing- ríms?“ Eða: ,J\f hverju kunna börnin ekki Skúla fógeta?" Svo var hún horfin fyrir hornið en fingurinn benti ennþá ásakandi frá dyrastafnum. Um skeið hafði hún haft á orði að hún ætlaði að láta af störfum við skólann, en nú hafði okkur talazt svo til að hún stæði vaktina til vors. „Þá get ég hætt,“ sagði hún, „og ég veit hver tekur við af mér.“ Að vísu hleypur enginn beinlínis í skarðið hennar Ingibjargar, því að hún var svo einstök, en hún var búin að finna þann sem henni þótti hæfur til starf- ans - og það er vel, og nú sjáum við hvað setur. Ingibjörg var árrisul með ein- dæmum. Hún kom fyrst allra í skól- ann og mátti stundum bíða um stund úti í bíl í notalegum takti morgunút- varpsins þangað til öryggiskerfið í skólanum lognaðist út af eftir fréttir; lærði það einungis af því að verðir komu þjótandi þegar allir lúðrar blésu og ekki beint eftir nótum og spurði þá hvassyrt - hendur á mjöðmum og hleypti í brýnnar: „Hvaða fyrirgangur er þetta? Ég get ekki smurt brauðið í friði.“ Hún var röskleikakona með afbrigðum og þoldi hvorki hangs né hálfverk af nokkru tagi; gekk hratt um ganga og sársjaldan settist hún til þess að bera upp erindi; stóð í dyragættinni og krafðist svara með sínum hætti, arkaði svo til eldhúss og fékk sér af krásum Kristjönu eða Svölu, svo sem einn bolla, en ekki hótinu meira til þess að sér dveldist ekki of lengi. Ingibjörg var glæsileg kona í sjón og raun. Hún hélt sér ávallt til, bjó sig upp á daglega, klæddist af sérstakri smekkvísi og kunni að njóta lysti- semda lífsins. í haust greindist hún með illkynja æxli í hálsi. Hún kom og sagði mér frá því, settist ekki fremur en endr- anær, sagði að þetta yrði fjarlægt og hún færi síðan í geisla. Líklega yrði hún frá vinnu í einn til tvo daga. Þeg- ar hún fór sneri hún við í gættinni, hallaði hurð að stöfum og sagði: „Ég var að hugsa um að gráta þegar læknirinn sagði mér þetta, en ég hætti við það. Hverju hefði það breytt?" Hún var nánast ekkert frá vinnu vegna veikinda sinna, sagðist ekkert vera veik, mætti sem endra- nær um það leyti sem klukkan sló 7.00. Og síðasta skoðun sýndi að lækning var í höfn, hún hafði sigrazt á því meini að svo miklu leyti sem menn geta sagt svo. En enginn veit sína ævina. Síðasta ljóðið í Kvæðasafni Snorra Hjartarsonar er ferhenda: Sjá grasið sprettur, gleðstu, mundu að þú grerir sjálfur fyrrum líkt og það, þó innra með þér blikni sef og blað gef beyg og trega engan griðastað! Ingibjörg gladdist yfir afkomend- um sínum og þeirra fólki. Ég efast ekki um að hún kom oft í gættina hjá þeim og spurði um það sem henni fannst máli skipta - og hafði svörin líka til reiðu; hún var afskiptasöm með sínum hætti. Hún var teinrétt til lokadægurs og stóð fyrir stórveizlu kvöldið fyrir dauða sinn, beygur var henni alla tíð fjarri, en trega mátti hún ekki síður en við hin. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu og láti nú guð henni raun lofi betri. Þau Haf- steinn, förunautur hennar, áttu framundan notalegt ævikvöld, búin að skila sínu og gott betur, en dauð- inn blæs ekki í básúnum fyrir sér. Hann kemur ævinlega á óvart og veröldin skiptir litum. Við starfsfólk og pemendur Fjöl- brautaskólans við Armúla söknum Ingibjargar sárt, hún var vissulega áberandi í því samfélagi sem dafnar innan veggja skólans, átti sinn þátt í að móta það með fasi sínu og ábend- ingum. Við sendum Hafsteini samúð- arkveðjur og dætrum hennar og fjöl- skyldum þeirra og ekki sízt barnabörnum, því að það er vissa mín að þau sakna nú vinar í stað. Hún var fjallið sem fylgdi þeim eftir „hvert skref, hvert fótmál" eins og segir í ljóði Hannesar Péturssonar. Blessuð sé minning Ingibjargar Jónsdóttur og megi hollvættir vaka yfir fólkinu hennar. Sölvi Sveinsson. Nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla hafa misst mikið. Við áttuð- um okkur á því er við fréttum um skyndilegt fráfall Ingibjargar í sjoppunni, eins og hún var iðulega nefnd. Hún hafði staðið bak við Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmai-kast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við "eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. sjoppuborðið og afgreitt nemendur Armúlaskólans í fimmtán ár. Ingi- björg hafði mikil og góð samskipti við útskriftarnema, því þeir unnu á sinni lokaönn með henni í sjoppunni. Það var iðulega ekki fyrr en þá að nemendur áttuðu sig á því hversu stórbrotinn persónuleika hún hafði að geyma. Við efumst ekki um það að oft hafi nýnemum brugðið er þeir mættu þessari glaðbeittu konu, sem rak skólasjoppuna með harðri hendi, og taldi það vera sitt hlutverk að ala upp unga nýnema sem hvorki kunna almenna kurteisi né nokkrar um- gengnisreglur. En engu að síður er víst að hún hafði ánægju og gaman af að umgangast nemendur skólans og taka þátt í þeim upplifunum sem fylgja menntaskólaárunum, því það fékk hún svo sannarlega að gera. Sem dæmi um hversu vel nemendur kunnu að meta hana og hennar störf í þeirra þágu, má nefna að hún fékk oftar en ekki gjafir frá útskriftar- nemendum í lok hverrar annar. Á meðan kennurum voru gefnar „gríngjafír“ voru henni gefnar veg- legri gjafii- sem tákn um hlýhug. Það má með sanni segja að Ingi- björg hafi staðið fyrir sínu og meira en það. Hún var alltaf mætt klukkan sjö á hverjum morgni til að smyrja. Jafnvel þegar hún gekk í gegnum erfið veikindi og þá meðferð sem þeim fylgdi, var ekki að finna á henni neinn bilbug. Við sem þekktum Ingibjörgu, segjum að framtíðar útskriftamem- ar missi af miklu að fá aldrei að kynnast þessari frábæru konu og að starfa með henni í sjoppunni. Til eftirlifandi eiginmanns Ingi- bjargar, Hafsteins, viljum við senda okkar dýpstu samúðarkveðjur, og viljum við segja þér að okkur þótti vænt um Ingibjörgu, og munum við alltaf minnast hennar með hlýhug. Dætrum Ingibjargar og fjölskyld- um þeirra sendum við einnig okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. nemenda, stjórn nffá 1999-2000. Hún er falleg sú minning sem ég á um Ingibjörgu Jónsdóttur. Fyrir all- mörgum árum kynntumst við í sam- eiginlegum félagsskap okkar, Sina- wik í Reykjavík, og áttum þar góðar stundir saman. Við sátum saman í stjórn félagsins í tvö ár og var Ingibjörg ritari félags- ins seinna árið. Það starf innti hún af hendi af samviskusemi og alúð og fyrir það ber að þakka. Stjórnarfundir voru ávallt eitt skemmtiefni í bland við félagsmálin og átti Ingibjörg stóran þátt í þeim skemmtilegheitum. Hún vai' góður sögumaður og kunni þá list að segja þannig frá að við gleymdum oft hvað tímanum leið. Af glaðværð átti hún nóg og kunni að útdeila henni til annarra. Það má með sanni segja að við fórum af þeim fundum glaðari í bragði en við kom- um. Ingibjörg var virðuleg kona, ávallt svo fallega klædd og vel til höfð, hnyttin í tilsvörum og hláturmild. I Ingibjörgu átti ég góðan vin, við áttum skap saman því ég kunni svo vel að meta eðliskosti hennar og ég naut þess að vera samvistum við hana. Þegar Ingibjörg varð sjötug var boðið til veglegrar veislu og þar geislaði mín kona af enn meiri gleði en fyrr. Ég hvíslaði að henni, að þegar ég yrði sjötug vildi ég verða eins og hún. Hún svaraði að bragði: Ásta, ef þú vilt verða eins og ég þá skaltu fara snemma að sofa á kvöldin og snemma á fætur á morgnana. Við áttum samtal í síma í október, þá leitaði ég fregna af krabbameins- meðferð sem senn var lokið. Ingi- björg var hress í bragði og snerist samtalið fljótt út í annað umræðu- efni. Svo snögglega og svo óvænt er hún kölluð til annarra heimkynna, lífsgöngunni lokið og komið að kveðj- ustund. Við hjónin sendum Hafsteini, dætrunum og öðrum ástvinum inni- legar samúðarkveðjur og biðjum al- góðan Guð að veita þeim styrk. Ásta Guðjónsdóttir. Hinn 20. nóvember fengum við þær sorgarfréttir að hún Ingibjörg væri farin frá okkur. Ingibjörg var verslunarstjóri verslunarinnar í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. * Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að kynnast þessari góðu konu er við gerðumst nemendur við skólann. Nú í haust, á síðustu önn okkar í skólanum, vorum við stelp- urnar fengnai' í verslunina til hennar og þar fengum við að kynnast henn- ar einstaka persónuleika. Eftir því sem tíminn leið urðum við allar góð- ar vinkonur og dáðumst allar að kraftinum og orkunni sem í henni bjó. Við gátum talað við Ingibjörgu um allt og okkur kom mjög vel sam- an. Einnig var gott að vinna undir hennar stjórn og var hún ávallt þakklát fyrir það sem gert var og hældi okkur óspart. „Meira vinnur vit en strit,“ heyrðum við oft, sem er hveiju orði sannara. Ingibjörg var glettin og skemmtileg, hún kom okk- ur alltaf til að hlæja með sínu yndis- lega skopskyni. T.d. átti hún sittbíla- stæði við skólann og ef hún þurfti að skreppa frá sótti hún stól inn í skóla og setti hann í stæðið til að enginn tæki það á meðan hún var í burtu. Ingibjörg var vel gefin kona og full af fróðleik og átti auðvelt með að miðla honum til annarra. Við sendum fjölskyldu og vinum Ingibjargar innilegustu samúðar- kveðjur. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkstþúmeð guði, Guðþérnúíylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku Ingibjörg, við kveðjum þig með söknuði. Við munum aldrei gleyma þér. Þínar vinkonur Guðbjörg Elín, Þurý Björk og Þóra Kristín. Kæra vinkona. Ég á erfitt með að trúa því að þú sért búin að kveðja þennan heim. Ég ætlaði að hringja í þig á afmælisdaginn og spjalla eins og ég var vön eftir að ég útskrifaðist. Þú vildir alltaf fylgjast svo vel með mér, hvernig mér gengi í skólanum, hvernig ástamálin stæðu, hvað væri að frétta af foreldrum mínum, og öllu því sem mér fylgdi. Ég á þér svo margt að þakka. Þú tókst mig upp á þína arma þegar ég saklaus stelpa utan af landi flutti í höfuðborgina og byijaði í Ármúla. Við áttum vel sam- an, þú varst alltaf svo hrein og bein og lást ekki á skoðunum þínum og svoleiðis fólk kunnum við báðar best að meta. Það var svo vinalegt að sjá þig í sjoppunni þar sem þú hugsaðir um fjármál tilvonandi stúdenta af mikilli röggsemi. En alltaf varstu á leiðinni að hætta, það var alltaf síð- asta önnin, en það var eitthvað sem hélt í þig þannig að þú gast ekki hætt þó að mjöðmin væri farin að setja strik í reikningnn. Það var svo gam- an að heyra þig tala stolta um fjöl- skylduna þína og þá sérstaklega barnabörnin og langömmustelpuna í Ameríku. Þegar þau bárust í tal ljómaðir þú öll og sagðir: þau eru svo sniðug, en það varstu vön að segja um hvem þann sem þér leist vel á eða gerði eitthvað vel. Oft voru líka allir allt í einu orðnir frændur manns. Ef þú varst að tala um ein- hvem sem þú vildir ekki nafngreina í fjölmenni þá var það bara: æi, hann frændi þinn, og þá varð maður bara að geta í eyðurnar. Það var svo yndislegt að eiga athvarf hjá þér í sjoppunni ef eitt- hvað bjátaði á. Þú varst líka orðin sérfræðingur í ástamálum okkar stelpnanna. Oftar en ekki gafstu okkur ráð ef einhver vandamál komu upp og þú varst alltaf með á hreinu ef eitthvað var að gerast í þeim efnum í kiingum þig. Ég vildi að ég hefði get- að sagt þér að nú gengur allt vel hjá mér og þá sér í lagi í ástamálunum, en ég veit að þú veist það og þú ert örugglega að fylgjast með mér. Mig langar til þess að kveðja þig, kæra vinkona, með texta úr einu af uppáhaldslögunum þínum: SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.