Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Smáfólk Rignir hjá þér líka? BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Núna árþúsundamót - næst aldamót - í bæði skiptin áramót! Frá Rúnari Sig. Birgissyni: MARGUR landinn veður áfram í villu síns vegar varðandi komandi áramót og kallar árþúsundamótin um komandi áramót ranglega alda- mót. Ekki eru kaupmenn skárri sem greinilega sjá aukinn hagnað í öllu saman og ýta undir þennan mis- skilning með stórum og smáum falsauglýsingum nær daglega þar sem kynntur er ómissandi alda- móta glysvarningur hverskonar. Þessir sömu aðilar eru svo manna líklegastir til að endurtaka leikinn um þarnæstu áramót, hin eiginlegu aidamót. Enda, hvað jafnast á við tvenn aldamót, fyrst kaupmanna- aldamót og síðan hin réttu, fyrst landinn er margur hver tilbúinn að kokgleypa þessa vitleysu alla sam- an? Þykir mér miður að sjá hversu mörg fyrirtæki hafa faliið í þessa gryfju og þeim til ævarandi háð- ungar. Eða eru þetta kannski bara kaupmennirnir sem enda öll sín frábæru tilboðsverð á tölunum 99 eða 999 sem haga sér svona? Fjölmargt er til sem sýnir og sannar svo alls ekki verði um villst að aldamótin eru ekki fyrr en eftir rúmt ár. Síðasta öld hófst ár- iðl801og stóð út árið 1900. Ekki var haldið upp á aldamót um áramótin 1899-1900 heldur voru hátíðarhöld- in áramótin 1900-1901. Sjá til dæmis skemmtilega heimild í Öld- inni okkar 1901-1930 bls. 7, en þar hefst árið 1901 með skemmtilegri lýsingu á því hvernig landsmenn héldu upp á aldamótin. Rétt er að geyma þá upprifjun til næstu ára- móta, hinna eiginlegu aldamóta. Öldin sem nú er hófst árið 1901 og stendur út árið 2000 sem þýðir þá væntanlega að sú næsta byrjar 1.1. 2001 og stendur út árið 2100, alls ekki svo flókið þegar upp er staðið eða hvað? Hafa verður í huga að lífaldur manna hefur ekkert með þetta að gera. Þetta hefur fyrst og fremst með þá staðreynd að gera að árið 0 var aidrei til, heldur byrjaði tain- ingin árið 1. Fyrstu öldinni lauk því um áramótin 100-101 og ný öld hófst, já, einmitt árið 101. Allir sem kunna að reikna vita svo að í tug eru tíu og í öld eru 10 tugir ára eða 100 ár. Um áramótin komandi eru því eingöngu árþúsundamót sem út af fyrir sig eru afar merkileg tíma- mót, en látum hlutina heita sínum réttu nöfnum. Því miður höfum við ekki, eftir því sem ég best veit, neinar heim- ildir um hvernig eða hvort menn héldu almennt upp á árþúsunda- mótin árið 1000 eða hvort menn gerðu sér grein fyrir eða vissu al- mennt um þau þá. Svo það er eins víst að nú sé í fyrsta sinn haldið upp á árþúsundamót. Til fróðleiks má nefna að sá sem fyrstur fór að miða tímann við fæð- ingu Krists mun hafa verið enskur klerkur og fræðimaður að nafni Beda Venerabilis sem uppi var 673-735. Sá ágæti maður mun hafa verið einn þekktasti fræðimaður síns tíma í trúfræði. (Bede Venera- bilis: sjá fjölmargar heimildir m.a. á Netinu). Tímatalið sjálft, oft nefnt júlíanska tímatalið, er svo mun eldra eða frá dögum Júlíusar Ces- ars (100-44 f. Kr.). Með því var ár- inu skipt upp í 365 daga en 4. hvert ár gert að hlaupári með 366 daga. Þá var núverandi fjöldi daga fast- settur, hlaupársdegi bætt við febr- úar sem varð 29 dagar 4. hvert ár og byrjun árs var ákveðin 1. janúar. Til viðbótar við allt saman er mér sagt að til séu fræðimenn sem halda því fram að sú viðmiðun sem við notum sé einfaldlega röng og skeikar hjá sumum fjórum árum. Þannig að hugsanlegt er að raun- veruleg árþúsundamót séu liðin fyrir fjórum árum og aldamótin fyrir 3 árum. Hver veit, kannski hafa bæði árþúsundamót og alda- mót farið hjá afar hljóðlega án þess að kaupmenn eða almenningur hafi gert sér minnsta mat úr því um- fram það sem gengur og gerist venjulcg áramót! Eg vona svo að lokum að lands- menn allir eigi framundan ánægju- lega jólahátíð og eftirminnileg ár- þúsundamót eins og svo sannarlega má kalla komandi áramót og haldi svo að ári upp á aldamótin, hin einu sönnu. Rúnar Sig. Birgisson Vallarási 5, Reykjavík. Þúsár, ekki þúsöld Frá Árna Sigurjónssyni: NYLEGA stakk lærdómsmaður upp á því í Morgunblaðinu að það sem hingað til hefur verið kallað árþús- undamót ætti heldur að heita þúsaldamót. Mig langar að koma á framfæri þeirri skoðun að betra væri að tala um tíöld eða þúsár heldur en þúsöld. Hvað svo sem líður uppruna orðsins þúsund, gefur „þúsöld“ til kynna að átt sé við þúsund aldir, og má það því bíða uns 100.000 ár eru liðin frá fæðingu frelsarans. Tíöld er hins vegar, eins og allir mega skiija, tíu aldir eða þúsund ár. Á sama hátt liggur í augum uppi að með þúsár er átt við þúsund ár. Orðið þúsöld er bara reiknivilla. Höldum upp á þús- áramót á þúsund ára fresti, en þúsaldamót á þúsund alda fresti. Ennfremur langar mig að nefna að mér finnst skringilegt að kalla götu eða hverfi í borginni Þúsöld, sem nú er ráðgert. Jafnvel þótt orðskrípi þetta kunni að ná fótfestu í málinu, er engin ástæða til að hafa það sem nafn á stað, enda ekki venja að kenna t.d. götur við tíma. Hvernig fyndist mönnum að nefna Hagatorg Korter? Eða Árbæjarhverfið Viku? Mér þætti það heldur bjálfalegt. Arni Sigurjónsson Kvisthaga 17, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.