Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 60
60 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Skattpíning
öryrkja
ÞAÐ hefur verið mikið
rætt og ritað undanfarið
um kröpp kjör öryrkja, en
kannski gengi þeim örlítið
betur ef þessar bætur
væru ekki skattlagðar. Það
sagði mér öryrki að núna
fyrir jólin væri uppbót, en
af því væri tæplega helm-
ingur tekinn í skatt
(13.226). Þetta er mikið
fyrir þá sem iítið hafa. Ef
þessi skattur væri tekinn
af, þyrfti þetta fólk ekki að
þola þá niðurlægingu að
leita hjálpar hjá hjálpar-
stofnunum fyrir jólin. Það
hlýtur að vera hægt að
rétta hlut þess í góðærinu.
Öryi’kjar eiga þau sjálfs-
sögðu mannréttindi að fá
að lifa með reisn.
Sigrún.
Draumurinn getur
orðið að veruleika
SÆMUNDUR hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi hann vara fólk við
slagorðinu hjá íslenskri
getspá „Draumurinn getur
orðið að veruleika“. Hann
segist vera búinn að spila í
13 ár og aldrei unnið
krónu. Einnig vildi hann
nefna það, að honum var
lofuð skattalækkun hjá
Skattstofu Reykjaness,
hann fékk bréf þar sem
átti að athuga málið. Hann
hefur ekkert svar fengið
ennþá. Hann er 75% ör-
yrki og getur ekki látið
endana ná saman og allra
síst núna í desember. I
lokin langar hann að óska
öllum landsmönnum gleði-
legra jóla og farsældar á
nýju ári.
Miðbær Akureyrar
MAÐUR á áttræðisaldri
átti leið um miðbæ Akur-
eyrar laugardaginn 27.
nóvember sl. Ofbauð hon-
um sóðaskapurinn í mið-
bænum. Hann átti leið
framhjá porti, sem var
fullt af alls konar drasli,
þar voru meðal annars
gömul bíldekk og afskráð-
ur bíll. Finnst honum full
ástæða til að bæjaryfirvöld
geri eitthvað í málinu.
Norsk Hydro
RAGNAR hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri eftirfar-
andi: Norsk Hydro vill
meina Steingrími Her-
mannssyni og Arna Finns-
syni að sitja fund um Eyja-
bakka, en fjögur þúsund
Islendingar vilja ekkert
með jarðvegsvöðla frá
Hydro að gera á þeim slóð-
um.
Ragnar 090812-2119
Tapað/fundið
Pierre Cardin-úr
týndist
PIERRE Cardin-kveng-
ullúr með svartri leðuról
týndist við Kringluna
föstudaginn 19. nóvember
sl. Skilvís finnandi vinsam-
legast hringi í síma 565-
0281.
Dýrahald
Oriental-kisur
vantar heimili
VEGNA brottfiutnings af
landinu vantar ný heimili
handa tveimur kisum.
Þetta eru „rándýr“ fress af
Oriental-kyni, ekki ólíkir
síamsköttum, bara einlitir.
Annar er svartur og hinn
er brúnn. Báðir eru þeir
alger kelidýr og hegða sér
eins og lithr hvolpar,
henda sér á bakið í von um
stroku o.s.frv. Þeir eru
ógeltir og því eftirsóttir
elskhugar, stórættaðir
með ættbækur, 8 mánaða,
og vilja geta skroppið út.
Þeir sem vilja veita öðrum
eða báðum gott heimili
geta fengið hann eða þá.
Þeir sem hafa áhuga geta
hringt í Erlu í síma
861 6100.
Fjörugur kettlingur
fæst gefíns
FJÖRUGUR fjögurra
mánaða fress fæst gefins á
gott heimili. Hann er
bröndóttur með hvítar
lappir og hvítan háls.
Kassavanur og mjög blíð-
ur. Upplýsingar í síma
562-4766.
Kettlingur
fæst gefíns
ÉG heiti Jakob og er fjög-
urra ára hreinræktaður
persi. Mig vantar gott
heimili vegna flutninga.
Ættbók fylgir. Upplýsing-
ar gefur Ágústa í síma 564-
5025.
Kátir krakkar við Tjörnina
Morgunblaðið/Golli
Víkverji skrifar...
Safnaðarstarf
Opinberun
Jóhannesar í
Hallgrímskirkju
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
opnuð myndlistarsýning í forkirkju
Hallgrímskirkju. Myndimar eru
eftir Leif Breiðfjörð og fjalla um
texta úr Opinberun Jóhannesar. í
tengslum við þessa fallegu sýningu
verða þrír biblíulestrar á aðvent-
unni með skýringum og umræðum
út frá textum í Opinberunarbókinni,
miðvikudagskvöldin 1., 8. og 15.
desember kl. 20-21. Leiðbeinandi
verður sr. Jón Dalbú Hróbjartsson.
Opinberun Jóhannesar er síðust
meðal rita Nýja testamentisins og
er mjög sérstakt rit, þar sem Jó-
hannes lýsir sýnum og ber fram
spádóma sem hafa valdið miklum
heilabrotum á umliðnum öldum.
Að loknum biblíulestri kl. 21
verður náttsöngur í kirkjunni eins
og verið hefur á miðvikudögum í allt
haust.
Aðventusamvera
fyrir eldri
borgara hjá
KFUM og KFUK
FÖSTUDAGINN 3. desember nk.
bjóða æskulýðsfélögin KFUM og
KFUK félagsmönnum sínum sem
komnir eru yfir sextugt til sérstakr-
ar þakkarsamveru á aðventu. Vel-
komið er að bjóða gestum með sér.
Hin bráðum 101 árs gömlu æsku-
lýðsfélög eiga trúfasta félagsmenn,
fyrirbiðjendur og bakhjarla, bæði
formlega og óformlega úti um alla
borg. Fólk sem vakir yfír starfi fé-
laganna með áhuga og biður fyrir
því.
Félögin sjá því sérstaka ástæðu
til þess að bjóða eldri félagsmönn-
um í KFUM og KFUK til aðventu-
samveru föstudaginn 3. desember
nk. í aðalstöðvum félaganna við
Holtaveg. Hefst samveran kl. 14.
Þá er öðrum eldri borgurum sem
fylgst hafa með starfi KFUM og
KFUK í gegnum árin einnig vel-
komið að sækja samveruna.
Á samverunni mun Þórdís K.
Ágústsdóttir, formaður KFUK í
Reykjavík, segja nokkur orð. Þórar-
inn Bjömsson guðfræðingur mun
flytja stuttan þátt úr sögu félag-
anna en hann vinnur nú hörðum
höndum að riktun sögu KFUM og
KFUK í 100 ár. Sigurbjöm Þorkels-
son, framkvæmdastjóri félaganna,
mun lesa frumsamda jólasögu úr
bók sinni, Kærleikurinn mestur.
Laufey Geirlaugsdóttir syngur ein-
söng og sr. Olafur JOhannsson, for-
maður KFUM í Reykjavík, hefur
hugbvekju.
Boðið verður upp á aðventuveit-
ingar í lok samvemnnar. Allir
áhugasamir em velkomnir.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður
með ung böm kl. 10.30-12 í safnað-
arheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10
í safnaðarheimilinu. Orgelleikur á
undan. Léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Samvemstund eldri
borgara. Ökuferð innanbæjar. Lagt
af stað frá kirkjunni kl. 13.45 og
Skólavörðustíg 21 • sími 551 4050 •Reykjavík
komið þangað aftur um kl. 16. Starf
fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Ung-
lingastarf kl. 20.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12.
Fræðsla: Slysavarnir. Elva Möller
hjúkmnarfræðingur. Biblíufræðsla
um Opinberanarbók Jóhannesar k.
20-21. Náttsöngur kl. 21.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13-17. Spil, lestur,
handavinna. Kaffi og meðlæti kl. 15.
Djákni flytur hugvekju. Söngstund
undir stjóm Jóns Stefánssonar org-
anista.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30. St-
arf fyrir 7-9 ára börn. TTT kl. 16.
Starf fyrir 10-12 ára böm. Ung-
lingakvöld á vegum Laugames-
kirkju, Þróttheima og Blómavals.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Sr. Örn Bárður Jónsson
verður með fræðslu um aðventuna.
Biblíulestur kl. 16 í umsjá sr.
Franks M. Halldórssonar. Kaffi-
veitingar. Opið hús kl. 17. Baldur
Sveinsson annast dagskrána. Bæna-
messa kl. 18.05. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Félagsstarf eldri borgara
laugardaginn 4. desember. Samvera
í kirkjunni kl. 13 og jólahlaðborð á
Hótel Loftleiðum. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 511-1560. Allir hjartanlega
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu. Starf fyrir 11-12 ára
börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins.
Brciðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkar-
ar, starf fyrir 7-9 ára böm kl. 16.
TTT starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirlya. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður.
KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl.
17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 ára (TTT) kl.
17.45-18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Tekið á móti
fyrirbænaefnum í kirkjunni og í
síma 567-0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr-
irbænir, léttur málsverður á eftir í
Ljósbroti, Strandbergi ld. 13.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og bænastund í kirkj-
unni kl. 12.10. Samverastund í
Kirkjulundi kl. 12.25. Djáknasúpa,
salat og brauð á vægu verði. Allir
aldurshópar. Sjá nánari upplýsingar
um safnaðarstarfið í Vefriti Kefla-
víkurkirkju: keflavikurkirkja.is
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest-
ur.
Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.30.
Kennsla kl. 19.30, krakkaklúbbur,
unlingafræðsla, kennsla fyrir
enskumælandi, biblíulestur og Alfa-
námskeið. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20 1. desem-
berhátíð í umsjón Heimilasam-
bandsins. Sr. íris Kristjánsdóttir
talar.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hóianeskirkja, Skagaströnd. Kl. 12
bæn og súpa. Allir velkomnir.
UMRÆÐAN um Reykjavíkur-
flugvöll tók nokkuð nýja stefnu
á dögunum þegar því var varpað
fram að hægt væri ef til vill að tak-
marka umfang vallarins með því að
hann yrði aðeins ein braut en ekki
tvær eða jafnvel þrjár eins og nú er.
Hugmyndin var sett fram til að
benda á að þannig mætti hugsan-
lega nýta hluta flugvallarsvæðisins
til íbúðabyggðar eða fyrir nýjar
stofnanir sem tengjast ættu Háskól-
anum. Víkverja finnst þessi hug-
mynd nokkuð framleg og allrar at-
hygli verð. Spuming er hvort þetta
er raunhæf málamiðlun milli þeirra
sem vilja flugvöllinn burt og finna
honum allt til foráttu og hinna sem
vilja festa hann í sessi sem alvöru-
völl til ófyrirsjáanlegrar framtíðar.
Lítum aðeins á rökin.
Forseti borgarstjómar, sem setti
hugmyndina fram nú en hún hefur
reyndar áður komið fram, telur að
vegna veðurlags sé austur-vestur
brautin næstum því nægileg fyrir þá
umferð sem verið hefur um völlinn.
Ríkjandi vindáttir leggist þannig að
þeir séu ekki margir dagar sem sú
braut verði ófær. Mætti jafnvel
fjölga þeim dögum ef brautin yrði
lengd og á þann hátt gerð öraggari.
I þessu sambandi var bent á (annað-
hvort af honum eða einhverjum öðr-
um) að hugsanlega mætti hafa norð-
ur-suður brautina stutta, þ.e. fella
burt norðurhluta hennar og það sem
eftir stæði af brautinni gæti þá stað-
ið sem neyðarbrauð eða braut og þá
kannski helst fyrir þær vélar sem
þurfa ekki langa braut.
Meðal flugmanna hefur verið bent
á að þessi lausn sé allsendis ófull-
nægjandi og að hún dragi úr öryggi.
Þrátt fyrir að hægt sé að lenda flug-
vél í ákveðnum hliðarvindi kjósi
flugmaður vitanlega að nota þá
braut sem vindur stendur af hafi
hann valið og þegar hann hafi tvær
brautir að velja um sé það engin
spuming. Með aðeins einni braut
væri hættan sú að menn reyndu að
skælast niður eða reyna ílugtök við
skilyrði sem era á mörkunum og
slíkt auki slysahættu. Þetta era
kannski helstu mótrökin.
Eftir stendur sú spurning hvort
innanlandsflugið og einka- og
kennsluflug um völlinn getur búið
við þannig skerta möguleika miðað
við það sem völlurinn býður í dag.
Ef áhættan er meiri vegna þess að
menn tefli á tvær hættur vegna of
mikils hliðarvinds hlýtur að vera
hægt að setja strangari reglur og
fylgjast betur með að eftir þeim
verði farið. Þá þarf bara að finna út
hversu marga daga á ári völlurinn
er ófær þegar þetta veðurfar er fyr-
ir hendi.
Víkverji endurtekur að honum
finnst hugmyndin góðra gjalda verð.
Hann beygir sig þó fyllilega fyrir
rökum um öryggi ef þau reynast
vega þungt að bestu manna yfirsýn.
Þetta hljóta sérfræðingar vallarins
og flugmála að geta sagt okkur. Sé
hægt að búa við slíkan skertan völl
getum við velt fyrir okkur notkun á
norðurhluta Vatnsmýrarinnar og
byrjað að rífast um hvort og hvaða
mannvirki mega rísa þar. Kemur þá
ekki að spumingunni um umhverfis-
mat?