Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 64

Morgunblaðið - 01.12.1999, Síða 64
84 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Forvitnilegar bækur SAGA SUNDA Y SPORT KOMIN ÚT Microsoft Barbarians Led by Bill Gates BABES/I BOOZE/ .EgEgBEB ort^Whlotl ^ ■ORGIES andHI ALIENS from the Inside JENNIFER EDSTROH A M p MARLIN ELLER hluta af klám- verslunum sfnum, 139 alls, og flest hinna tuttugu klámblaða sem hann hafði komið á fót. 24 geirvörtur í hverju blaði Hann var margmilljóneri, 37 ára gamall, hagfræðimenntaður, og dauðleiddist að sögn. í miðjum leið- indunum datt honum í hug að setja á stofn dagblað, sem ganga myndi lengra en önnur blöð, vekja athygli og umtal og skila peningum í kass- ann. Hann var með markhópinn á hreinu, ómenntað verkafólk, aðal- lega karlmenn sem kunnu að meta að fá íþróttafréttir, uppljóstranir um ríka og fræga fólkið og myndir af berbrjósta stúlkum. Það var og dagskipun sem fyrsti ritstjórinn fékk: ber brjóst á annarri hverri síðu að minnsta kosti; ekki færri en 24 geirvörtur í hverju blaði. Sunday Sport náði mikilli hylli áður en það fór af stað og Sullivan þóttist himin hafa höndum tekið þegar sjónvarpsauglýsingar blaðs- ins voru bannaðar áður en fyrsta eintakið kom út. Hann sparaði 25 milljónir króna sem leggja átti í auglýsingaherferð vegna blaðsins og fékk miklu meira umtal og at- hygli en ella. Þegar blaðið loks kom út, með hneykslunarfrétt um kynsvall í skátaferð undir stjórn Karls Bretaprins, var blaðið rifið út og ekki leið á löngu að upplagið var hálf milljón eintaka á viku. Helsti styrkur Sunday Sport er að ritstjórar þess hafa jafnan verið Olíkindatól- ið William Gates III. MENN LEGGJA út í blaðaútgáfu í misjöfnum tilgangi; sumir til að berjast fyrir hugsjón eða trúarsetningum, en aðrir einfald- lega til að græða og eru þá ekki alltaf vandir að meðulum. Eitt frægasta dæmi um hið síðarnefnda er eitt vinsælasta blað Bretlands, Sunday Sport, sem byggir frétta- flutning sinn á lygisögum, léttu klámi og flestu því sem siðvandari blöð Iáta sig ekki varða. Breska síðdegispressan er fræg að endem- um fyrir vinnubrögð sín og virð- ingarleysi fyrir friðhelgi einka- Iífsins. Frægustu dæmin um það eru News of The World og Sun, en ekki langt undan er Sunday Sport, sem náði langt á því gamla heil- ræði: ef sverð þitt er stutt, gakk þá feti framar. Fyrir nokkru kom út í Bretlandi saga Sunday Sport og systurblaða þess, sem klámkóngurinn David Sullivan ýtti úr vör fyrir ellefu ár- um því honum þótti sem upp- áhaldsblöðin sín, News ofThe World og Sun, væru orðin of vönd- uð í umfjöllun sinni. Honum fannst vanta meiri kraft í fréttamennsk- una, meiri sora, fleiri uppljóstranir og fleiri berbrjósta stúlkur. Sulliv- an var þá nýverið búinn að selja stærstan aSðUha?abirtfyr^-arík, Forsíða bókarinnar um sögu Sunday Sport. Ólánssamir foreldrar drengs sem breyttist í raspaðan fisk- staut sýna ljósmyndara Sunday Sport drenginn. næmir á tilfinningar almennings, þótt þeir gefi jafnan lítið fyrir til- finningar þeirra sem komast í sviðsljósið. Þannig vakti mikla hrifningu þegar blaðið hét hverj- um þeim hermanni sem felldi Sadd- am Hussein í Persaflóastríðinu bif- reið að launum. Þegar þýskur dómari dæmdi mark af Englend- ingum í mikilvægum leik í heims- meistarakeppni birti blaðið heim- anúmer dómarans og nokkur vel valin blótsyrði á þýsku sem hreyta mætti í hann. Þjóðernishyggjan var sterk í blaðinu, líkt og mun tíðkast í breskri þjóðarsál almennt, og þeg- ar íþróttakappleikir voru annars vegar voru öll meðul leyfileg, þar á meðal beiðni blaðsins um að flug- vélar á vegum British Airways los- uðu salerni sín yfir Madríd til að búa í haginn fyrir landsliðið sem átti að mæta Spánverjum. Geggjaðar fréttir og óta- kmörkuð ósvífni Gengi Sunday Sport hefur verið ævintýralegt frá fyrsta degi. Það náði snemma mikilli útbreiðslu, en svo var sem lesendur þess yrðu leiðir á því og heldur hallaði á ógæfuhliðina. Útgefandinn kunni þó ráð við því, rak ritstjórann og réð í hans stað mann sem var enn ósvífnari. Svona hefur það gengið koll af kolli; blaðið hefur tekið dýf- ur á milli þess sem það sveifast upp á við aftur með geggjaðri fréttum en nokkru sinni, en einnig hefur rekstur klámsímarása verið drjúg tekjulind. Ritstjórnin hefur og ver- ið skrautleg, aðallega ungir menn sem gaman hafa af drykkju og dufli en endast yfirleitt skamma stund, því vinnuálagið er gríðar- legt; um tíma var ritstjórnin aðeins fimm manna sem þykir harla gott á vikublaði sem seldist í yfir 500.000 eintökum. Ritstjórar og frammámenn ann- arra breskra blaða hafa yfirleitt ekki farið leynt með viðbjóð sinn á blaðinu, en þó tekið upp hanskann fyrir það þegar yfirvöld hafa reynt að banna það. Eftir því sem Sunday Sport hefur lagt meiri áherslu á furðufréttir hafa menn síðan tekið því betur, farið að líta frekar á það sem gamanrit en sem keppinaut sem mark sé á takandi. Þótt mest hafi borið á berbrjósta stúlkum fyrstu árin og ber reyndar talsvert á enn eru furðufréttir aðal Sunday Sport. f breskri útgáfusögu eru frægar fyrirsagnir á við: Risastytta af Elvis á Mars, Marilyn Monroe lif- andi - vinnur sem fóstra, Sprengjuvél úr seinni heimsstyrj- öldinni finnst á tunglinu, Skyggn brauðrist spáir fyrir um bikar- úrslit. Barbarians led by Bill Gates, bók eftir Jennifer Edstrom og >Marlin Eller. Henry Holt gefur út. 256 síður með registri, innbundin. Kostaði 16 dali og 10 sent hjá Ama- zon, um 1.100 kr. Ein af eftir- minnilegustu uppljóstrunum Sunday Sport er þessi mynd sem birt var af Adolf Hitler. Kapp er best með forsjá, eins og sjá má á Jimmy Wrinkle sem fór í allharkalegt fitusog. MIKIÐ hefur verið fjallað um Microsoft undanfarna mánuði og varla nema von; ekkert fyrirtæki hefur verið eins umdeilt á seinni tíð og þá ekki bara fyrir hugbúnað sinn heldur fyrir ókræsilega viðskipta- hætti og bellibrögð. í umræðum - ,er annars vegar dregin upp mynd af stjórnarformannin- um William Gates III. sem snillingi og mannvini, en á hinn bóginn segja menn hann kaldrifjaðan markaðs- mann sem svífist einskis. í frásögn þeirri sem hér er gerð að umtalsefni fer meira fyrir seinni myndinni en þeirri fyrri og ekki örgrannt um að lesandi velti því fyrir sér hvort vel- gengni Gates sé einskær heppni eftir allt saman. Höfundar Barbarians led by Bill Gates segjast hafa mikla inn- sýn í starfsemi Microsoft, enda var Marlin Eller einn af helstu ■'hugbúnaðarsmiðum Micrsoft framan af og móðir Jennifer Edstr- om stýrði markaðssetningu og ím- yndarsmíði Microsoft og starfar enn fyrir fyrirtækið í eigin fyrirtæki. Sagan er sögð frá sjónarhorni Ellers sem er ekki að skafa utan af því að hann var aðal maðurinn og að manni skilst yfirleitt sá eini sem vissi hvaða stefnu fyrirtækið átti að taka. Þegar ákvarðanir Gates bera árangur er yfirleitt að þakka heppni eða tilviljun að mati Ellers, eða þá því hversu ós- vífinn hann er. Þrátt fyrir þennan ágalla á bókinni, sem rýrir óneitan- lega trúverðugleika hennar, gefur hún merkilega innsýn í sitthvað í starfsemi fyrirtækisins ekki síst >hversu ósvífnir þeir Microsoft-menn voru þegar klekkja þurfti á keppina- utum. Til að mynda er áhugavert að lesa um kynningu á PenWindows, sem Gates taldi ógna Mierosoft, þar sem starfsmaður skrifaði á skjá og sýndi á tjaldi samtímis fullkomna lófatölvu með Windows löngu áður en Palm kom til. I bók Ellers og Edstroms kemur aftur á móti fram að kynningin var tekin upp á band fyrir sýninguna og starfsmaðurinn í raun með ótengda tölvu. Bók þeirra Edstroms og Ellers er gölluð um margt og sums staðar of mikið á sig lagt til að vera smellinn, sjá til að mynda nafnið sem vísar í eina frægustu viðskiptabók seinni tíma vestan hafs. Hún er þó bráð- skemmtileg lesning og gefur aðra mynd af Gates en glansmyndina sem veifað er í fjölmiðlum. Árni Matthíasson Risastytta af Elvis á Mars Forvitnilegar bækur Pælingar um popp- söguna Good Vibrations - A History of Record Production. Höfundur: Mark Cunningham, Sanctuary Publishing Ltd., London, 1999,438 bls. Fæst í bókabúð Máls og menn- ingar, Laugavegi 18, verð 2700 kr. SAGA upptökutækni og upptöku- stjórnunar er hér rakin í nokkum veginn réttri röð. Hún hefst á fyrstu tilraunum ameríska gítarleikarans Les Pauls með „tape-delay“ og „overdub" og teygist þaðan tU okkar stafrænu daga. Bókin blandar ágæt- lega saman þjóðsögum úr bransan- um og tæknilegu spjalli. Ekki vefst fyrir höfundi að útskýra það sem gæti reynst flókið eða torskilið og til glöggvunar er lítið tækniorðasafn aftast í bókinni. Efni bókarinnar er vel rannsakað og höfundi hefur tek- ist að ná tali af ólíklegasta fólki. Einn fróðlegasti kaílinn í bókinni byggist á viðtali við Carol Kay sem var heitasti „session“-bassaleikarinn í Los Angeles á seinni hluta sjöunda áratugarins. Hún lék á vel flestum upptökum Phil Spectors og sömu- leiðis á hinni ódauðlegu „Pet Sounds“-breiðskífu Brian Wilsons og félaga hans í Beach Boys. Carol Kay vill einnig meina að hún og kol- legar sínir í L.A. hafi spilað grunna að fjölmörgum Motown-upptökum sem hafi verið ranglega eignaðir svörtum tónlistarmönnum í Detroit, þai' á meðal lög eins og „Baby Love“ og „You Keep Me Hangin’ On“ með The Supremes. Bítlarnir og George Martin fá sinn eigin kafla, en í þetta skiptið fær Martin mesta athygli. Þrátt fyrir samstillt átak síðskeggjaðra dag- skrárgerðarmanna um víða veröld hefur enn ekki tekist að tæma Ser- gent Peppers-sagnabrunninn. Hér er margt nýtt dregið fram, m.a. rætt við einleikarann sem lék á piceolo- trompet í sækadelíska smellinum um „Penny Lane.“ Bókin slappast held- ur þegar kemur að áttunda áratugn- um og pínlega miklu púðri er eitt í hljómsveitir á borð við Genesis, Yes og Queen. Höfundurinn hefur greini- lega minni áhuga á seinni tíma tón- list og umfjöllunin um níunda og tíunda áratuginn er nær eingöngu um Bretland. Bókin nær ákveðnum lágpunkti með umfjöllun um endurgerð Sir El- ton Johns á lagi sínu „Candle in the Wind“, tileinkað Díönu prinsessu og britt-popp kaflinn leggur lítið til mál- anna. Hver á eftir að muna eftir „Kula Shaker“ eftir tíu ár? Inn á milli koma þó fróðlegir sprettir með góðum viðtölum, t.d. kaflinn um pró- dúsentinn Trevor Jones (Frankie Goes to Hollywood, Art of Noise) og poppstóriðju Stocks, Aitkens og Watermans. Allir sem hafa mátuleg- an áhuga á popp-músik finna eitt- hvað við sitt hæfi í þessari bók en til þess að leiðast ekki ein einasta blaðs- íða verður maður að eiga mjög stórt Pink Floyd safn og a.m.k. eitt plakat af Phil Collins uppi á vegg. Úlfur Eldjárn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.