Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 67

Morgunblaðið - 01.12.1999, Page 67
T MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 6'1 ffi]MAGNAÐ BIO /DD/ Sýnd kl. 6,9 og 11.25. B.i.12 STREttK Sýndkl. 5, 7, 9 og 11. B. i. 12 [....AfJQAR/ (esið allt um RANDOM HEARTS ó www.stjornubio.is James Bond er mættur (sinni stæistu mynd hingað tíll Pierce Brosnan, Robert Carlyle, Sophie Marcueau og Denise Richards fara á kostum og hasaratriðin slá öllu við. Algjörlega ómissandi mynd. Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.30. Mynd af Ylfu sem aritinum The r ace. Þær voru nú svolít- ið ánægðar með sig ALVÖRU BÍO! □□ STAFRÆNT ____________ HLJÓÐKERFII I t-j X ÖLLUM SÖLUM! <> ★ ★★ Dv ★ ★ ★ ★ gp i^ibi ★ ★★ 1/2 ÓFE Nmisvorku 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. b.í. 16. Harrison FORD Sýnd kl. 5, 9 og 11.20. augnrasbio.is Sýnishorn úr Uósmyndamöppu Ylfu" ISLENSKAR fyrirsætur hafa í gegnuin tíðina reynt fyrir sér er- lendis og margar hverjar með ágætis árangri. Dagbjört Ylfa Geirsdóttir er fimmtán ára stúlka sem hafa boðist stór verkefni sem fyrirsæta víða um heim eftir að hún komst í úrslit í Ford- keppn- inni hérlendis. Hún kom m.a. fram á tískuviku í Lundúnum í septem- ber og sýndi hönnun Roberts Ca- ry-Williams m.a. ásamt fyrirsæt- unum Naomi Campbell og Kate Moss. Á tiskuvikum stórborganna sýna fremstu hönnuðir heims hönnun sína og fólk um allan heim fylgist grannt með í sjónvarpi, tímaritum og dagblöðum. Sýndi með Moss og Campbell „Það var rosalega gaman að taka þátt í tískuvikunni," segir Dagbjört Ylfa sem yfirleitt er að- eins kölluð Ylfa. „Það er mikið stress en mjög gaman og mikil stemmning í kringum þetta. Svo kynnist maður fullt af fólki.“ Kynntist þú einhverjum ofurfyr- irsaetum? „Eg var að sýna með Naomi Campbell og Kate Moss.“ Hvernig persónur virðast þær vera? „Þær eru nú svolítið ánægð- ar með sig,“ játar Ylfa og hlær. „Kate Moss er viðkunnanleg og talar við alla en Naomi Campbell lét ekki mikið sjá sig meðal hinna og sagði aldrei orð.“ Eru mikil veisluhöld í kringum þessar tískusýningar? „Já, stundum eftir sýningar eru haldnar veislur en þær eru frekar saklausar. Eg tók nú voða lítinn þátt í þeim af því að ég er ennþá svo ung. Mamma var þarna með mér til halds og trausts.“ Ylfa hóf fyrirsætustörf síðastlið- inn vetur og síðan þá hefur hún ferðast víða vegna starfsins. And- lit hennar hefur birst á síðum þekktra tískublaða á borð við Hel- lo!, The Face, italska Vouge og breska blaðsins ID. Pirrandi þegar kalt er úti Ylfa er í 10. bekk og segist stefna á nám í framtíðinni og þá jafnvel eitthvað sem nýst gæti henni í tískuheiminum. „Eg ætla að taka skólann fyrir en fara út á sumrin og í öðrum frístundum og vinna sem fyrirsæta.“ Hvernig hnnst þér að vera orðin þekkt nafn í fyrirsætuheiminum? „Það er mjög gaman,“ svarar Ylfa hugsi. „Mér finnst þetta reyndar ekki vera jafnmikil vinna og margir segja en rosalega skemmtileg. Það getur samt verið pirrandi að vera úti í myndatöku þeg- ar það er kalt og mann langar helst að fara upp í rúm,“ segir hún og hlær. Ylfa segist líka hafa gaman af ferðalögunum í kringum starfið og að ekki skemmi fyrir að þetta sé vel borgað. „Ég held ég eigi alveg eftir að halda áfram í þessu starfi, fyrst ég er komin þetta langt. Fólk hefur sagt að mér gæti átt eftir að ganga mjög vel en ég ætla ekkert að spá í það fyrr en það gerist, ef það gerist.“ Ertu ekkert smeyk að fara út í þennan harða heim fyrirsætunnar? „Jú, svolítið," játar Ylfa. „En það er hugsað mjög vel um mann. Þegar ég var í New York síðasta sumar bjó ég hjá konunni sem átti skrifstofuna sem ég vann hjá. En mér finnst það skipta mjög mikiu máli að vel sé hugsað um mann, annars gengur þetta ekki upp.“ Þessi mynd birtist af Ylfu við hlið myndar af Naomi Campbell í blað- inu Hello! Fótboltalið sem hefur ekkert að fela KVENNALIÐ Ástralíu í knattspyrnu, sem gengur undir viðurnefninu Mat- ilda, stillti sér upp nakið fyrir dagatal af liðinu sem gefið var út í Sydney í gær. f dagatalinu hafa þær ekkert að fela og er ætlunin með þessu framtaki að vekja athygli á liðinu fyrir Ólymp- íuleikana árið 2000. Upphaflega stóð til að prenta dagatalið í um 5 þúsund eintökum en nú hefur þeim verið fjölgað í 45 þúsund og gæti þeim fjölg- að enn frekar eða upp í 70 þúsund ef eftirspurnin helst eftir þessu opinská- asta nektardagatali úr heimi iþrótt- anna í Ástralíu. JHl .mfnlMi Hi iiíi fyrir 990 PUNKTA fmulBló IHCAirill Thx Keflavik - simi 421 1170 www.samfilm.is Simi 462 3500 • Akureyri • www.nell.is/borgaibio III » IIIXIIUIJII ID-Elin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.