Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 69

Morgunblaðið - 01.12.1999, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 SlMiliiStl EINA BÍÓIÐ MEÐ , THX DIGITAL í ÖLIUM SÖLUM KRINGLU FYfílR 990 PUNKTA FERDUÍBlÓ Krínglunni 4 - 6, simi 588 0800 MBL ÓHT Rás2 ‘ Xiö Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 enskt tal Sýnd kl. 5 og 7 með ísl tali. mciidigital Óborganleg mynd eftir leikstjóra Pretty Woman. ★ ★★ ÓHT Rás2 .. AKOBBtTS ROTARDOBIE RUNAWAYBRDE Sýndkl. 9 og 11.10. IDIGfTAL www.samfllm.is VWNtfffr S3M!ÍÍ®ll EICECRei Tarzan, konungur frumskogarmS| mættur til leiks I nýju ævimp? Sýnd kl. 5 og 7. ísl. tal JOTAROMRtS RICHARDOERE RUNAWAYBRIDE FERDU i BÍÚ Snorrabraut 37, sími 551 1384 Sýnd kl. 9 og 11. Kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. www.samfilm.is Eftir eigin sannfæringu TOIVLIST Geisladiskur deep inside, geisla- plata páls óskars hjalmtýssonar A geislaplötunni eiga lög Jóhann Jóhannsson, Barði Jóhannsson, Patrick Rushen, Herb Legowitz, Bjarki Jónsson, Viðar Hákon Gísla- sono og Chris Spier. Páll Óskar semur alla texta utan einn sem Bunny Jones semur. Pop gefur út en Skífan dreifir. PÁLL ÓSKAR Hjálmtýsson er einn fárra íslendinga sem komist hafa á þann stall að geta talist stjama. Að hafa þvílík áhrif að veg- farendur tryllast við það að sjá goðið á götum úti hlýtur að teljast afrek á landi hvar daglegt brauð er að sjá þekkt andlit. Páll hefur gefið út orðið þónokkrar plötur á eigin vegum og TTieð öðmm listamönnum við góðar undirtektir og á orðið nokkurt safn nær sígildra laga. Það er nokkuð um liðið frá þvi Páll Óskar gaf út síðustu breiðskífu, hann hefur langt í frá verið í fríi, vakti m.a. mikla lukku í Söngvakeppni evrópskra sjónvai-ps- stöðva fyrir rúmum þremur árum og söng með Gunnari Hjálmarssyni á bamaplötu svo eitthvað sé nefnt. Það er þó við búið að einhverjir hafi beðið spenntir eftir nýrri afurð frá Páli sem nú er komin út. I þetta sinnið kemui’ Páll fram undir nafninu Paul Oscar og syngur á ensku. Eflaust er geislaplatan að einhverju leyti ætluð vaxandi aðdáendahópi söngvarans erlendis en hann hefur vakið nokki-a athygli erlendis eftir frammistöðu sína í Evróvision. Páli til aðstoðar er fjöldi tónlistar- manna, Jóhann Jóhannsson sem Páll hefur unnið með áður, Barði Jó- hannsson, forsprakki Bang Gang, Bjarki Jónsson, Viðar Hákon Gísla- son og fleiri semja lög á plötunni og hljóðfæraleikarar á plötunni eru fjöl- mai’gir. Tónlistarmenn þessir eru í framlínu raftónlistargerðar hér á landi og hjálpa þeir Páli við að fram- leiða rafdiskó sem hann alla tíð hefur verið hallur undir. Við fyrstu hlustun heyrist að platan er nokkuð í ætt við geislaplötuna Stuð sem Páll gaf út fyrir nokkrum árum í samvinnu við Jóhann Jóhannsson, fönkskotið rafdiskó kryddað poppaðri teknó- tónlist er svo að segja skilgreining á allri tónlistinni. Lögin rokka reyndar frá hreinu diskói yfir í rafpopp en heildarhljómurinn er mjög heil- steyptur og trúr rafdiskóinu. Annað áberandi er þema tónlistarinnar, Páll er samkynhneigður og hefur aldrei farið dult með það enda hefur samkynhneigðin verið lítið áberandi í tónlist hans hingað til. Á Deep In- side eru hins vegar þó nokkrar vís- anir í kynhneigð hans, bæði í glys- legri hönnun umbúða og í textum. T.d. má nefna eitt betri laga geisla- disksins sem reyndar er ekki eftir hann sjálfan, I Was Born This Way. Textar eru allvel smíðaðir og enska öll rétt sem ekki er algengt þegar ís- lenskir tónlistarmenn syngja á er- lenda tungu. Lögin eru flest mjög góð, titillag plötunnar, Deep Inside t.d. er kraft- mikið upphaf á geisladisknum, mikið teknódiskó, annað lag plötunnar Please reject me (like my father did) er einnig skemmtilegt, nær hreint diskó, Then Came You, hugljúf raf- ballaða, kannski skemmtilegasta lag plötunnar og svo mætti í raun lengi telja. Umbúðir geislaplötunnar eru vel gerðar og falla vel að tónlistinni. Þá eiga tónlistannenn, höfundar og hljóðfæraleikarar hrós skilið því öll er tónlistin leyst fagmannlega af hendi. Allt er þetta afar vel gert ven-i hliðar plötunnar er hins vegar að finna í útsetningum og hljóð- blöndun geisladisksins. í vinnslu plötunnar falla Páll Óskar og sam- starfmenn hans í sömu giyfju og Páll hefur verið í áður. Páll Oskar hefur afar skemmtilega rödd en löngum hefur hún verið blönduð mjög of framarlega, þetta er áberandi í hljóðblöndun Deep Inside og kemur illa við kraft og heildarhljóm geisla- disksins. Auk þessa nýtir Páll ekki rödd sína til fullnustu, rödd hans get-*-* ur verið mjög sterk og hefur hann mun meira raddsvið en sýnt er. Við þetta bætist svo að hljóðfæraleikur og útsetningar eru oft í hógværara lagi og verður afraksturinn sá að hljómur og kraftur er ekki nálægt því sem hægt væri að gera. Með öðruvísi raddbeitingu, þyngri hryn og annarri hljóðblöndun gæti tónlist Páls Óskars sem og rödd notið sín mun betur. Deep Inside á sennilega ekki eftir að ná viðlíka vinsældum hér á landi og fyrri plötur Páls, hvorki tónlistin né undirtónn plöt- unnar er jafn fjöldavænt og popp það sem Páll hefur oft gert, t.d. á geisla- plötu sinni Palli sem kom út fyrir nokkrum árum auk þess sem tónlist sungin á ensku nær yfirleitt ekki við-v' líka hylli og sú íslenska. Þetta getur þó aldrei talist vansi á tónlistinni því hver verður aðgera tónlist eftir sinni sannfæringu sem Páll og gerir. Gísli Árnason 8.5 0 0 l< r ó n u r á t í m a n n ! s l< r á ó u þ i g S T R A X . . . BePaid

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.