Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 01.12.1999, Qupperneq 72
Drögum næst 10. ðes. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings ffgtmftljifeife Heimavörn Sími: 580 7000 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. Norsk Hydro ekki andvíg’t að Fljótsdalsvirkjun fari í umhverfísmat Missum ekki áhugann þó að tímaramminn raskist NORSKA stórfyrirtækið Norsk Hydro lýsti því yfir á fundi með full- trúum World Wide Fund for Nature að fyrirtækið væri ekki mótfallið því að fram færi lögformlegt mat á um- hverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar. Jafnframt kom fram á fundinum að fyrirtækið myndi ekki missa áhuga á verkefninu þótt einhver seinkun yrði á þeim tímamörkum sem samþykkt hefðu verið af Norsk Hydro og ís- lenskum stjómvöldum sl. sumar. Fundinn sátu fyrir hönd Norsk ' ™Hydro Andenas, yfirmaður kynn- ingar og upplýsingamála, Eivind Reiten, aðstoðarforstjóri og Jon Har- ald Nilsen, forstöðumaður álfra- mleiðsludeildar íyrirtækisins. Var fundurinn haldinn í Noregi í gær. Fyrir hönd WWF for Nature voru á fundinum dr. Peter Prokoseh, for- maður heimskautaverkefnis WWF, Tony Long, formaður WWF í Evrópu og Jorgen Randers, formaður al- þjóðadeildar WWF. Lang- þráðir endur- fundir LANGÞRÁÐUR draumur Skotans Douglas Hendersons rættist í gær þegar hann hitti Halldór Gíslason, fyrrverandi skipstjóra á togaran- um Gulltoppi. Halldór bjargaði Henderson og 32 félögum hans úr sjávarháska fyrir 58 árum. Höfðu Bretarnir verið í áhöfn breska flutningaskipsins Beaverdale, sem þýsknr kafbátur sökkti suðvestur af fslandi 1. aprfl 1941. Fagnaðarfundir urðu með gömiu mönnunum, en Henderson er 83 ára og Halldór 100 ára, á Hrafnistu í Hafnarfirði í gær, þar sem Halldór dvelur, og gaf Hend- erson Halldóri viskiflösku í þakk- lætisskyni fyrir lífgjöfina. Það er breska ríkissjónvarpið BBC sem lét langþráðan draum Hendersons rætast, en endurfundir hans og Halldórs verða hluti af sérstökum ^jólaþœtli sjónvarpsmannsins "Noels Edmonds sem sýndur verð- ur að aflokinni hátíðarræðu Elísa- betar Englandsdrottningar í breska sjónvarpinu á jóladag. ■ Gat þakkað/6 Samkomulag staðfest um 324 milljarða króna bætur til kvenna með sflikonbrjóst Tugir íslenskra kvenna gera kröfur um bætur Básafell hf. hættir á Suðureyri og Flateyri Heimamenn vinna að því að taka við rekstrinum ÖLLU starfsfólki Básafells hf. á Suð- ureyri og Flateyri og áhöfn línubáts- ins Gyllis, rúmlega eitt hundrað manns, var sagt upp í gærdag. Síð- degis voru hins vegar uppsagnir starfsfólks á Suðureyri dregnar til baka en viðræður standa yfir við eig- endur félagsins um að heimamenn taki við rekstrinum á þessum stöð- um. Guðmundur Kristjánsson, for- stjóri Básafells, staðfesti þetta í gærkvöldi. Hann sagði að heima- menn á Flateyri væru einnig að vinna af fullum krafti að því að yfirtaka reksturinn með það að markmiði að halda starfsemi áfram og vonir stæðu til að tækist að ljúka því fljótlega. Guðmundur hefur átt í viðræðum við heimamenn með heimild stjórnar Básafells þar sem ákveðið hafði verið að fyrirtækið hætti starfsemi á þess- um stöðum um áramót. „Það er mikill rekstrarvandi hjá þessu félagi og þetta er einn liður af mörgum í end- urskipulagningu félagsins," sagði Guðmundur, en 954 milljóna tap varð á Básafelli á rekstrarárinu, sem lauk 31. ágúst sl. „Það er líka spurning hvort svona lítil og veikburða félög hafa nokkuð að gera inn á Verðbréfaþing. Það er líka í skoðun," bætti Guðmundur við og sagði að nauðsynlegar ákvarðanir yi'ðu teknar á næstu dögum. Helge Stiksrud, upplýsingafulltrúi umhverfismála Norsk Hydro, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fundurinn hefði verið mjög uppbyggi- legur. Á honum hefðu fulltrúar Norsk Hydro leiðrétt þann misskilning að fyrirtækið væri á móti lögformlegu mati á umhverfisáhrifum Fljótsdals- virkjunar. Bíða niðurstöðu Alþingis „Helsta umræðuefnið var leiðrétt- ing á þeim misskilningi sem gætt hef- ur, að Norsk Hydro væri á móti því að lögformlegt umhverfismat færi fram. Það er ekki rétt og sá misskilningur var leiðréttur. Mér skilst að það hafi verið sett fram þannig á íslandi að Norsk Hydro væri á móti því að slíkt mat færi fram en það er ekki rétt og fulltrúum WWF var gerð grein fyrir því,“ segir Stiksrud. Stiksrud segir að fyrirtækið bíði nú eftir niðurstöðum umræðna á Alþingi um þingsályktunartillögu iðnaðarráð- herra um að framkvæmdum verði framhaldið við Fljótsdalsvirkjun og segir að fyrirtækið muni virða niður- stöðu þingsins. „Við skiptum okkur ekki af lýðræð- islegri umfjöllun annarra landa um ákveðin mál. En að sjálfsögðu er fyr- irtækið opið fyrir opinni umræðu um þetta mál frá öllum aðiium sem áhuga hafa á því, að meðtöldum WWF, öðr- um náttúruverndarsamtökum og stjórnmálamönnum,“ segir Stiksrud. Þurfúm að taka allt með í reikninginn Stiksrad benti á það þegar hann var spurður um tímaramma verkefn- isins að ekki hefði verið tekin ákvörð- un um það af hálfu Norsk Hydro hvort af byggingu álversins yrði. Fyr- irtækið væri tilbúið að taka ákvörðun um það sumarið 2000. Hann sagði ennfremur að yrði röskun á þeim tímaramma sem samþykktur hefði verið milli Norsk Hydro og íslenskra stjómvalda myndi það ekki draga úr áhuga fyrirtækisins. „Við myndum vilja að tímaramminn sem settur hef- ur verið stæðist. En það myndi ekki þýða að við misstum áhugann á að reisa álverið ef Alþingi ákvæði að fram skyldi fara lögformlegt mat á umhverfisáhrifum," segir Stiksrud. Stiksrud segii- að ekki beri að horfa á endanlega ákvörðun Norsk Hydro um álverið í Ijósi þess hver niðurstað- an verður um hvort ráðist verði í lög- formlegt mat á virkjuninni eða ekki. „Það eru engin tengsl á milli þess hvort formlegt mat á umhverfisáhrif- um fari fram á virkjuninni og ákvörð- un Norsk Hydro um hvort fyrirtækið muni ráðast í framkvæmd álversins. Ástæðan er sú að við þurfum að taka allt með í reikninginn, bæði hagræn, félagsleg og að sjálfsögðu umhverfis- leg áhrif verkefnisins. Það mun ráða endanlegri niðurstöðu um hvort fyrir- tækið ræðst í verkefnið,“ segir Stiks- rud. Morgunblaðið/Kristinn Eftir að hafa hitt Halldór fór Henderson í stutta siglingu og minntist hann þá látinna félaga sinna, sem einnig voru skipsmenn Beaverdale, með því að kasta blómum í hafið. ATVINNUBILAR FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA REKSTRARLEIGA • FJÁRMÖGNUNARLEIGA • KAUPLEIGA • BÍLALÁN Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1225/26 ALRÍKISDÓMARI í Michigan-ríki í Bandaríkjunum kvað upp þann úrskurð í gær að staðfesta bæri samkomulag um 324 milljarða króna skaðabótagreiðslu sílikonframleiða-. ndans Dow Corning til hátt á annað hundrað þúsund kvenna viðsvegar í heiminum vegna veikinda í kjölfar sílikonbrjóstaaðgerða þar sem not- að var sílikon frá Dow Corning. Meðal þeirra kvenna sem krefjast bóta úr gjaldþrotasjóði Dow Corn- ing eru fáeinir tugir íslenskra kvenna, en um tíu þeirra eru skjól- stæðingar lögfræðistofu í Frankfurt og annast bandaríski lögmaðurinn Melissa R. Ferrari mál þeirra. Ferrari sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöld að næstu skref- in í málum kvennanna yrðu m.a. þau að lögð yrðu fram afrit lækna- skýrslna, sem sönnun þess að kröfu- hafarnir hefðu fengið sflikon fram- leitt af Dow Corning. Ein lögmannsstofa með tíu íslensk mál „Við rekum mál um það bil tíu ís- lenskra kvenna en samtals eru um- bjóðendur okkar um 850,“ sagði Ferrari. Einn skjólstæðinga Ferrari er Sigrún Sigurðardóttir, sem er tals- maður sjálfshjálparhópsins Vonar og beðið hefur full eftirvæntingar eftir úrskurði dómara. Hún er 75% öryrki og hefur gert kröfu í Dow Corning-sjóðinn vegna veikinda. „Nú þurfum við að setjast niður með landlækni sem hefur lofað að vera okkur innan handar við að finna lækni, sem er viðurkenndur af bandarískum dómstólum til að framkvæma rannsóknir á okkur í því skyni að kanna hvort um sé að ræða þá sjúkdóma sem leiða til bóta- skyldu Dow Corning," sagði Sigrún. Sérhver bandarísk kona sem gert hefur kröfu í Dow Corning-sjóðinn getur vænst frá 12 til 300 þúsund dollara, eða sem nemur um 900 þús- und íslenskum krónum til rúmlega 20 milljóna, allt eftir því hversu al- varleg veikindin reynast.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.