Morgunblaðið - 04.12.1999, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hús uppi
Hæðarmunur: 700 m
Lengd svifbrautar: 2,3 km
BIÁÍINDUP
Skltogtytmlur
SKÍÐAHÓTEL
Hús niðri í brekkunni
sunnan við Skíðahótelið
206 farþeg-
ar í milli-
landaflugi á
Egilsstöðum
TVÆR þotur í millilandaflugi lentu á
Egilsstaðaflugvelli í gærmorgun og
höfðu þar nokkurra klukkustunda
viðdvöl vegna slæmra veðurskilyrða
á Keflavíkui'flugvelli.
Ingólfur Arnarson flugvallarstjóri
á Egilsstöðum segir að vel hafi geng-
ið að taka á móti vélunum og farþeg-
unum sem hafi verið 206 talsins.
Vélamar voru að koma frá Halifax
og Boston. Fjórir tímar liðu frá því
að fyrri vélin lenti þangað til seinni
vélin fór í loftið.
Egilsstaðaflugvöllur hefur verið
alþjóðlegur flugvöllur í um þrjá ára-
tugi en 1993 var flugbrautin malbik-
uð. Ingólfur segir að tekið hafi verið
á móti 10 þotum í millilandaflugi á
ári á árabilinu 1993-1998 en á þessu
ári séu þær líklega um fimmtán tals-
ins. Fjórar þotur komu í tengslum
við ráðherrafund sem haldinn var á
Austurlandi í sumar og einnig komi
færeyskar vélar af og til þegar veð-
urskilyrði eru slæm í Færeyjum.
Tekjur flugvallarins af hverri vél eru
að meðaltali nálægt um 40 þúsund
krónum.
.. ------♦ ♦ ♦---—
Olvunarakstur
aðal ástæða
endurkröfu
TJON af völdum ölvunaraksturs,
sem leitt hafa til endurkröfu vátr-
yggingafélaga á hendur ökumönn-
um, hafa verið mjög tíð í desember-
mánuði og fram yfir áramót
undanfarin ár, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu endurkröfunefnd-
ar sem skipuð er af dómsmálaráð-
herra.
Síðastliðin fimm ár hefur endur-
kröfunefnd fengið til meðferðar að
meðaltali 120 mál áriega og er
ástæða endurkröfu á hendur ök-
umönnum ölvun í 90% tilvika. Á síð-
asta ári námu úrskurðaðar endur-
kröfur samtals 27,3 milljónum króna.
I umferðarlögum segir að vá-
tryggingafélag, sem greitt hefur
bætur vegna tjóns af völdum öku-
tækja, eignist endurkröfurétt á
hendur þeim sem olli tjóni af ásetn-
ingi eða stórkostlegu gáleysi.
Af þessu tilefni beinir endur-
kröfunefnd því til ökumanna að
hugsa um alvarlegar afleiðingar þess
að aka undir áhrifum áfengis.
Veðurmælingar á toppi Hlíðarfjalls í tengslum við hugmyndir um svifbraut
ÁHUGAMENN um byggingu svif-
brautar (kláfferju) upp á Hlíðar-
fjall við Akureyri hafa staðið fyr-
ir veðurmælingum á toppi
fjallsins undanfarin þrjú ár. Þess-
ar mælingar hafa þó verið með
hléum af tæknilegum ástæðum, að
sögn Sveins Jónssonar í Kálfsk-
inni sem farið hefur fremstur
áhugamanna um byggingu svif-
brautarinnar. Hann sagði að erfitt
hefði verið að halda veðurmælun-
um í gangi í allra verstu veðrun-
um og þeir hreinlega frosið.
Sveinn sagði að á Akureyri
hefðu farið fram veðurmælingar í
45 ár og hann sagði stefnt að því
að bera saman fyrirliggjandi mæl-
ingar á toppi Hlíðarfjalls við veð-
urmælingar niðri í bæ og gera
veðurspá til framtíðar, sem bygg-
ist á þeim upplýsingum. Áhuga-
mennirnir binda miklar vonir við
fyrirhugaða framkvæmd og telja
möguleikana á þessu svæði mikla
og þá ekki síst yfir sumartimann.
Ivar Sigmundsson, for-
fyrir sér að bæði félög og ein-
staklingar leggi fram hlutafé.
Hann sagði upplagt að gefa börn-
um og unglingum gjafabréf í jóla-
gjöf sem hlutafé „í þessu stórkost-
lega ævintýri", eins og hann
orðaði það sjálfur. Framhald
verkefnisins ræðst af viðbrögðum
fjárfesta og almennings en þegar
hafa nokkir aðilar skráð sig fyrir
hlutafé.
Kostnaður við uppsetningu 2,3
km svifbrautar frá Skíðastöðum
og upp á fjallsbrún er áætlaður
um 320-350 milljónir króna og
sagði Sveinn að stofnhlutafé yrði
að vera að lágmarki 60% af þeim
kostnaði. Hæðarmunur frá Skíð-
astöðum og upp á brún Hlíðar-
íjalls er um 700 metrar. Sam-
kvæmt fyrstu hugmyndum er gert
ráð fyrir 20 átta manna klefum á
svifbrautinni sem flytja um 500
manns á klukkustund. Með 10
klefum til viðbótar væri hægt að
flytja 300 manns til viðbótar á
klukkustund upp á brún fjallsins.
Miklar vonir bundn-
ar við fyrirhugaða
framkvæmd
stöðumaður Skíðastaða í Hlíðar-
Qalli, sagði að ísland ætti eftir að
verða heimsfrægt fyrir skiðaiðk-
un yfir sumartfmann. „Þama er
vaxtarbroddurinn," sagði Ivar.
Sveinn bætti við að það væri liægt
að verða jafn sólbrúnn á tveimur
sólarhringum á íslandi meðan
miðnætursólarinnar nyti við og á
þremur vikum á sólarströnd er-
lendis.
Stefnt er að því að bjóða upp á
alls kyns afþreyingu uppi á Hlíð-
arfjalli, bæði í tengslum við skíða-
íþróttina, vélsleða, náttúruskoðun
og gönguferðir, svo og veitinga-
og sólbaðsaðstöðu á toppi fjalls-
ins. Hins vegar þurfi markað-
ssetning svifbrautarinnar að vera
í tengslum við annan rekstur í
fjallinu og að þar þurfi að halda
áfram uppbyggingu. Einnig horfa
menn til þess að nýta Vindheima-
jökul og Bægisárjökul í tengslum
við ferðir svifbrautarinnar upp á
topp fjallsins.
Eins og fram hefur komið vinn-
ur Kaupþing Norðurlands að und-
irbúningi hlutafjárútboðs og arð-
semisútreikningum en Sveinn sér
Svifbraut
í Olpunum
Á fímmta hundrað Kanaríeyjafarar lentu í ýmsum hremmingum á heimleiðinni
„Fegin að vera
komin heim“
„ÉG er fegin að vera komin heim,“
segir Viktoría Finnbogadóttir ein
þeirra 450 Islendinga sem lentu held-
ur betur í hrakningum á leiðinni heim
frá Kanaríeyjum tO íslands í vikunni.
Viktoría og maður hennar, Ragnar
Bragason, yfirgáfu hótel sitt á Kan-
aríeyjum sl. miðvikudag um hádegis-
bil að staðartíma og voru keyrð út á
alþjóðaflugvöllinn í Las Palmas ás-
amt öðrum Kanaríeyjaförum á veg-
um þriggja íslenskra ferðaskrifstofa.
Hópurinn, um 450 manns, innritaði
sig í flugið um kl. hálf tvö og til stóð að
vélin tæki á loft rúmum tveimur tím-
um síðar, eða um klukkan fjögur, með
þreytta en sátta farþega sem margir
hverjir voru eflaust famir að hlakka
til að komast til síns heima. Um kl.
fjögur kom hins vegar í ljós á upp-
lýsingaskjánum á flugvellinum að
seinkun yrði á fluginu heim. Áfram
biðu farþegamir þó rólegir, eða þang-
að til klukkutímarnir liðu hver af öðr-
um án þess að þeir fengju nokkrar
skýringar á töfirmi. Eftir sjö tíma bið
á flugvellinum voru farþegamir vel
flestir orðnii- mjög þreyttir og pirrað-
ir. Viktoría lýsir biðinni á hinn bóginn
á heldur hógværan máta. „Við vorum
orðin ansi þreytt á því að ganga þarna
um og sitja,“ segir hún. Biðin hélt
hins vegar áfram og ekki fengust
neinar skýringar á töfinni fyrr en um
tíuleytið um kvöldið, eða um sex tím-
um eftir áætlaða brottför. Þá bárust
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins óljósar fregnir um að olíuleka
hefði orðið vart í flugvélinni sem
flytja átti farþegana heim. Einn far-
þeganna, Magnús Guðmundsson, lýs-
ir því þannig að þá hafi fararstjóri frá
Samvinnuferðum/Landsýn komið út
á flugvöll og tekið þá snaggaralegu
ákvörðun að fara með sinn hóp aftur
til strandarinnar og koma honum fyr-
ir á hótelum yfir nóttina, enda útséð
um að vélin kæmist á loft vegna bilun-
ar fyrr en daginn eftir. Aðrir farþeg-
ar þurftu hins vegai- að bíða lengur
úti á flugvelli, sumir jafnvel til mið-
nættis, áður en ákveðið var að flytja
þá einnig til hótela niður við strönd-
ina. „Sjálfur var ég ekki kominn á
hótelið fyrr en um hálftvöleytið um
nóttina," segir Magnús og bendir
aukinheldur á að farþegunum „hafi
aðeins verið boðið upp á eina samloku
og einn drykk“, á meðan á þessai-i
átta til tíu tíma bið stóð á flugvellin-
um. „Það hefði átt að vera búið að
taka ákvörðun um að koma hópnum
fyrir á hótelum við ströndina mun
fyrr,“ segir enn einn farþeginn sem
Morgunblaðið hafði tal af en vill ekki
láta nafns síns getið. „Þarna var mik-
ið af eldra fólki sem var orðið mjög
þreytt og pirrað á biðinni."
Aftur töf á brottför
En raunum Kanaríeyjafaranna var
þar með ekki lokið. Fyrir það fyrsta
höfðu fæstir þessara farþega sem
gistu á hótelum víða um eyjarnar að-
faranótt fimmtudags einhvern far-
angur með sér, eins og hrein fót og
ýmsar nauðsynjar, enda löngu búið
að innrita töskumar í flugið. Þá fengu
þeir stuttan svefn, því þeir þuiftu að
yfirgefa hótelin snemma næsta
morgun.
Magnús sem áður var vitnað í segir
að hópnum hafi verið smalað saman
frá klukkan tíu til tólf um morguninn
og út á flugvöll, en áætlaður brottfar-
artími þessa dags til íslands var um
þrjúleytið. Hins vegar varð aftur
seinkun á fluginu heim og vélin fór
ekki í loftið fyrr en um tveimur tím-
um síðar.
Viktoría og Ragnar segja að flugið
heim hafi gengið vel, en eftir að flug-
vélin hafði lent í Keflavík sólarhring
síðar en upphafleg áætlun gerði ráð
fyrir „hófst martröðin fyrst að mínu
mati“, segir Viktoría. „Það var aga-
legt að komast í gegnum flugstöðina
hér heima, við fengum engar körfur
til að keyra farangurinn okkar og
þurftum að bera allt út,“ segir hún og
bætir því við að það hafi ekki verið
nema von að þrengslin væru mikil
þegar um 450 manns færa í gegnum
„þessa litlu flugstöð í einu“.
Skafrenningur og snjókoma
Það átti greinilega ekki að ganga
þrautalaust fyrii- Kanaríeyjafarana
að komast til síns heima þótt þeir
væru komnir heilu á höldnu til Kefla-
víkurflugvallar. Enn voru hindranir í
vegi. Skömmu eftir að vélin lenti í
Keflavík, eða á tíunda- tímanum á
fimmtudagskvöldið, versnaði veðrið.
Morgunblaðið skýrði m.a. frá því I
gær þurft hefði að kalla hefði út að-
stoð kröftugra bíla til að flytja stóran
hóp farþeganna sem voru að koma frá
Kanaríeyjum frá Leifsstöð og heim í
hús. Þeir sem Morgunblaðið ræddi
við kváðust þó ekki hafa þurft á þess-
ari hjálp að halda enda hefðu þeir
verið komnir það snemma út úr flugr
stöðinni. „Veðrið var ekki það slæmt
þegar ég komst út úr flugstöðinni en
þar beið bíll eftir mér og keyrði mig
heim. Hins vegar var skyggnið orðið
mjög slæmt þegar við keyrðum franí
hjá Kúagerði," segir einn heimildar-
maður Morgunblaðsins.
Sonur Viktoríu sótti þau ViktoríU
og Ragnar út á flugstöð, en svo heppí-
lega vill til að hann á heima í Keflavíly
Það var því afráðið að halda ekki út i
ófærðina til Reykjavíkur heldur
ákveðið að þau Viktoría og Ragnar
skyldu gista í Keflavík. „Veðrið var
svo vont að við gistum bara hjá syni
okkar um nóttina í Keflavík og fórum
svo með honum heim um morguninn
(í gærmorgun) þegar hann fór í vinn-
una í Reykjavík," útskýrn- Viktoría
og bætir því við að það hefði ekki vert
ið neitt vit í því að keyra á litlum bíl
alla leið til Reykjavíkur kvöldið áður,
enda mikill skafrenningur og snjór
koma. „Ég hef hins vegar aldrei lent I
svona löngu ævintýri og er svo sannr,
arlega fegin að vera komin heim,|
segir Viktoría.