Morgunblaðið - 04.12.1999, Blaðsíða 80
#() LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Bandaríkjamenn
fyrstu heimsmeist-
arar í netbrids
BRIDS
Umsjón: Guðmunilur
Sv. Hermannsson
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í
NETBRIDS
FYRSTA heimsmeistaramótinu í
_ netbrids er nýlokið með sigri
Bandaríkjamanna eftir úrslitaleik
við Rússa. Þetta mót fór fram í
samvinnu netbridsfyrirtækisins
OKBridge og Alþjóðabridssam-
bandsins, og hefur staðið frá því í
vor. Um var að ræða einskonar
bikarkeppnisfyrirkomulag. Sveitir
netverja skráðu sig til leiks og
fyrst fór fram undankeppni í
hverju landi þar til ein sveit stóð
eftir. Heiminum var síðan skipt í
átta svæði og sveitirnar á hverju
svæði kepptu innbyrðis þar til ein
stóð eftir. Svæðameistararnir átta
kepptu loks til úrslita eins og um
væri að ræða venjulegt heims-
meistaramót. Eini munurinn var
~fá að hver og einn spilaranna sat
heima hjá sér við tölvuna og spil-
aði þar.
Tvær íslenskar sveitir skráðu
sig til leiks, Icy og Ice Cool. Sú
fyrrnefnda vann og átti þá að spila
við ísraelsmenn en vegna ýmissa
ástæðna komst sá leikur ekki á, og
var sigurinn dæmdur Irsraels-
mönnum.
A Netinu spila menn undir nöfn-
um sem þeir velja sér. I banda-
rísku sveitinni sem keppti til úr-
slita spiluðu seligman, dougs,
shadow, erodwell, soloway og jrs,
en á bakvið þessi dulnefni voru
heimsþekktir spilarar: Paul
Soloway, Eric Rodwell, Mike
Crawford, Marty Seligman, Doug
Simson og John Schuler. Undir
nöfnunum lasar, andvic, holly og
hup leyndust síðan rússnesku
landsliðsmennirnir Alex Petroun-
in, Andrei Gromov, Vadim
Kholomeev og Jourí Khioupp-
enen.
í úrslitaleiknum byrjuðu Rúss-
arnir ágætlega og höfðu nauma
forustu eftir 24 spil af 48 spila úr-
slitaleik. En í fjórðu átta spila lot-
jjunni tóku Bandaríkjamenn af
skarið og náðu 20 stiga forustu og
bættu við í fimmtu og sjöttu lotu
og unnu á endanum með 54 stiga
mun.
Þetta var eitt af vinningsspilum
Bandaríkjamanna:
Vestur gefur, NS á hættu.
Norður
* ÁK32
¥ ÁKG93
♦ Á985
+ -
Austur
+ 97
V 85
♦ 7
* ÁDG107653
Suður
* DG1054
»2
♦ KD103
+ K98
Það er athyglisvert að við bæði
borð töldu vesturspilaramir spilin
sín uppfylla kröfur um veika
tveggja-opnun. Við annað borðið
opnaði Rússinn Gromov á 2V,
Schuler í norður og Petrounin í
austur pössuðu. Crawford í suður
enduropnaði þá á 2A og Schuler í
norður stökk í 6* sem varð loka-
v^ögn. Hún var síðan auðveld til
vinnings og Bandaríkjamenn
fengu 1430.
Við hitt borðið opnaði Simson í
vestur á multi 2 ♦. Khiouppenen í
norður doblaði og þá stökk Rod-
well í austur í 54». Kholomeev í
suður doblaði, væntanlega til út-
tektar, en norður ákvað af ein-
nverjum ástæðum að passa. Rod-
well fór fjóra niður og Rússamir
fengu 800 en Bandaríkjamenn
græddu 12 impa.
Rita varði
meistaratitiiinn
Um síðustu helgi lauk haustmóti
Bridssambands N-Ameríku í
Boston en hápunktur þess móts er
Reisingerkeppnin, sem um ára-
tuga skeið hefur verið ein af fjór-
um helstu sveitakeppnum þar í
álfu. Þetta er svokölluð Board-a-
Match keppni þar sem gildir að fá
hærri tölu en andstæðingurinn í
hverju spili.
Atvinnumannasveit Ritu Shug-
art gerði sér lítið fyrir og varði
titilinn sem hún vann í fyrra.
Sveitina skipa auk Ritu Norðmað-
urinn Geir Helgemo og Bretarnir
Andy Robson og Tony Forrester.
en í öðra sæti vora ítölsku Evrópu-
meistararnir Norberto Bocchi, Gi-
orgio Duboin, Guido Ferrari og
Dano DeFalco.
Það var mikið talað um þetta
spil í Reisingerkeppninni:
Suður gefur, allir á hættu
Norður
A -
¥ 6
♦ ÁG109873
♦ 98432
Austur
AÁD8532
¥ KG92
♦ -
+ G65
Suður
AG976
¥ 1087
♦ D6432
+ Á
Þegar spilin eru skoðuð kemur í
ljós að 6^ era óhnekkandi í NS
þótt punktarnir séu aðeins 12 sam-
tals. Við fyrstu sýn virðast AV
einnig geta unnið 6V eða 6A.
Þegar betur er að gáð sést að
vinnast 6A svo framarlega sem
sagnhafi tekur ekki fyrst á spaða-
kóng, en vörnin getur tekið 6V
tvo niður með því að spila laufi á
ás, gefa norðri spaðastungu og
suðri laufastungu.
I sýningartöfluleiknum milli
tveggja efstu sveitanna féll spilið.
Bæði lið spiluðu 6V íAVenhvor-
ugu NS parinu tókst að finna réttu
vömina. En í öðram leik munaði
litlu að sama liðið ynni slemmu við
bæði borð. Þar sátu August
Boehm og Richard Margolis NS
en Bobby Levin og Steve Wein-
stein AV:
Vestur Norður Austur Suður
Levin Boehm Weinst. Mar.
pass
IV 4 ♦ 5 ♦ 6 *
dobl pass pass 6 ♦
pass pass dobl/7
Það voru engin vandkvæði á að
vinna þennan samning og Boehm
og Margolis skrifuðu 1540 í sinn
dálk.
Við hitt borðið sátu Drew Chasen
og Lee Rauntenberg NS og Mark
Horton og Philip Alder AV:
Vestur Norður Austur Suður
Horton Casen Alder Rautenb. pass
1 ¥ 4 ♦ 5¥ pass
6 * 6 ¥// pass 6^ pass
Það er óneitanlega sérkennilegt
að suður skyldi passa allan tímann.
Casen fann laufaútspilið og suður
skilaði spaða til baka sem Casen
trompaði og spilaði meira laufi.
Það hefði þó engu breytt hvort AV
hefðu unnið 6V því spilið vannst
við hitt borðið.
Vestur
A86
¥ D10764
♦ G642
+ 42
>
Vestur
+ K104
¥ ÁD543
♦ K
+ KD107
í DAG
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur á undanförn-
um mánuðum oft átt erindi í
byggingavöruverslun. Oftar en
ekki hafa þær heimsóknir fallið á
helgardaga. Eftir þá reynslu er
Víkverji satt að segja farinn að ef-
ast um gagnsemi þess að hafa
þessar búðir opnar um helgar. Vík-
verji rak sig nefnilega á það, að
þyrfti hann á einhverri ráðgjöf að
halda - sem verður að viðurkenn-
ast að var alloft tilfellið - voru við-
brögðin hjá starfsfólkinu iðulega
ekki meiri en þau að yppta öxlum.
Allir reyndari starfsmennirnir
virðast nýta sér sinn sjálfsagða
rétt til helgarfrís, að minnsta kosti
á sunnudögum, og viðskiptavinirnir
verða að gera sér þjónustu íhlaupa-
afleysingafólks að góðu. Sem - að
minnsta kosti að reynslu Víkverja
- vill oft reyna allmjög á þolrif við-
skiptavinanna.
Svipað á reyndar við um sunnu-
dagsafgreiðslutíma matvöruversl-
ana. Þar er ekki bætt í hillur þar
sem vörar vantar, grænmetið er
ekki ferskt og oft mikil göt í úrval-
inu. Víkverji er ekki að mæla með
því að verslanir verði aftur almennt
lokaðar á sunnudögum, en reynslan
hefur sýnt honum að gallarnir við
lengdan afgreiðslutíma era margir,
og þekkir hann þó aðeins þá hlið
sem snýr að viðskiptavininum -
hvernig þetta snýr að starfsfólkinu
og verslunarrekendum þekkir Vík-
verji ekki, en hann býður í grun að
þar séu heldur ekki allir jafnhrifnir
af þessu fyrirkomulagi.
XXX
EM áhugamaður um þýsk
stjórnmál hefur Víkverji fylgst
af athygli með fréttum sem borist
hafa síðustu daga af fjármála-
hneyksli í flokki kristilegra
demókrata í Þýskalandi. Hinn yfir-
lýsti íslandsvinur, Helmut Kohl,
sem í aldarfjórðung var formaður
flokksins og kanslari í 16 ár, hefur
gengist við ábyrgð á því að flokkur-
inn skyldi hafa haldið úti kerfi
leynilegra bankareikninga, þar sem
fé var geymt sem flqkknum barst
frá ýmsum stöðum. Áður en hann
lýsti þessu opinberlega yfír hafði
hann reyndar rokið upp á þinginu,
þar sem hann hefur lítið haft sig í
frammi frá því hann missti kansl-
arastólinn í fyrrahaust, og krafist
þess að rannsóknarnefnd þingsins
hlýddi tafarlaust á útskýringar sín-
ar á málinu svo að hann fengi nafn
sitt hreinsað fyrir jól. Þingnefnd-
inni er einkum ætlað að rannsaka
hvort milljón marka greiðsla sem
vopnasali afhenti fjármálastjóra
flokks Kohls árið 1991 hafi tengst
ákvörðun ríkisstjórnar hans um að
heimila útflutning stórrar her-
gagnasendingar til Sádi-Arabíu.
Kvöldið fyrir upphlaupið í þinginu
sátu Kohl og eiginkona hans, Hann-
elore, kvöldverðarboð Davíðs Odds-
sonar í sendiherrabústað Islands í
Berlín.
Víkverji nefnir þetta hér vegna
þess að þetta þýska hneyksli snýst
meðal annars um það, að með leyni-
legu „hliðarbókhaldi“ flokks Kohls
vora lög um stjórnmálaflokka brot-
in. I öllum nágrannalöndum Islands
era í gildi lög um stjórnmálaflokka,
sem einkum lúta að því að tryggja
gegnsæi í fjármögnun þeirra. Lengi
hefur verið rætt um þörfina á ís-
lenskri löggjöf um stjórnmála-
flokka. Er ekki kominn tími til að
hún verði að veraleika?
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Meira um
Jesúmyndina
ÉG VIL þakka Bjamdísi
Guðjónsdóttir fyrir þarfa
umfjöllun í Morgublaðinu
2. desember sl. um Jesú-
myndina, sem ekki var
pláss fyrir í Ki-inglunni.
Fyrir markaðshyggjunni,
sem tröllríður þjóðarsál-
inni með hina svokölluðu
ráðamenn í broddi fylking-
ar, þessa sem hvorki
skeyta um skömm né heið-
ur. Villuráfandi hjörðin á
eftir, syngjandi sama
markaðs- og lífsgæðakapp-
hlaupssönginn og eyða og
sóa peningum á báða bóga
eins og hin svokallaða rík-
isstjórn, sem er búin að
gera þetta þjóðfélag svo
hart, kalt, ljótt og ómann-
eskjulegt, að ég skammast
mín fyrir að vera Islend-
ingur. Eftir á að hyggja,
hver hefði tekið eftir Jesú-
myndinni í Kringlunni í
hröðum dansi í kringum
gullkálfinn? Þar held ég að
grýla, leppalúði og synir
hæfi best. Foreldrar ættu
að skammast til að gefa
sér tíma og fara með börn-
in sín í fjárhúsið í húsdýra-
garðinum eða leikskóla-
kennarar ef foreldrar hafa
ekki tíma og segja blessuð-
um börnunum frá fæðingu
frelsarans og það er í
minningu fæðingar hans,
sem við ættum að halda
heilög jól. Börnin vita líka,
að ef einhver á afmæli á af-
mælisbarnið að fá gjöf, en
ekki sá sem er boðinn í af-
mælið.
Guðlaug Halser
títiljósin kveikt
NU ER vetur konungur
genginn í garð og allra
veðra von. Það er ósk blað-
bera Morgunblaðsins að
fólk hafi útiljósin kveikt og
mokað frá aðaldyrum. Það
getur verið stórhættulegt
að þurfa að paufast með
blöðin í svarta myrkri og
hálku. Er fólk vinsamleg-
ast beðið að huga að þessu.
Jólalög og
jólastemmning
KONA, í miklu jólaskapi,
hafði samband við Velvak-
anda og vildi koma á fram-
færi þakklæti til útvarps-
stöðvarinnar Stjörnunnar
102,2. Hún sagði að þeir
spiluðu jólalög allan sólar-
hringinn. Hún var að baka
og var mjög ánægð með
þetta framtak hjá þeim og
í mikilli jólastemmingu.
Hughreysting
UNG kona hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri hug-
hreystingu til unga manns-
ins, sem varð fyrir því
óláni að keyra á eldri konu
á Suðurlandsbrautinni ný-
verið. Henni fannst hann
svo einn og umkomulaus.
Kalablómið óskast
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
spyrjast fyrir um það
hvort einhver ætti kaffi-
bolla úr Kalablóminu frá
Silfurbúðinni. Bollarnir
eru hvítir með gylltu og
undirskálarnar eru svart-
ar. Henni vantar inn í sett.
Upplýsingar í saíma 557-
1590.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
SVARTUR GSM-sími í
leðurhulstri týndist, senni-
lega í Skautahöllinni í
Laugardal, íyrir rúmri
viku. Skilvís finnandi vin-
samlegast hringi í Fjólu í
síma 557-8019.
Þrír lyklar fundust
ÞRIR lyklar í leðurveski,
fundust laugardaginn 27.
nóvember fyrir utan Toll-
stjórahúsið við Tryggva-
götu. Upplýsingar veittar í
síma 586-1990.
Skartgripir
ÞRETTÁN ára stúlka
týndi gullhálskeðju með
demanti fyrir skömmu.
Hún er nemandi við Víði-
staðaskóla í Hafnarfirði og
gæti hálsmenið hafa dottið
af henni þar. Hálsmenið er
gjöf frá ömmu hennar heit-
inni og er þess sárt sakn-
að. Frá sama heimili týnd-
ist fyrir 6-8 vikum, askja
með demantseyrnalokk-
um. Hún hefur sennilega
dottið uppúr veski við inn-
kaup ef til vill í Fjarðar-
kaupum. Ef einhver hefur
orðið var við þessa gripi,
er hann vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í síma
555-3388 eða 697-7277:
Mjög góð fundarlaun í
boði.
Dýrahald
Kisu vantar heimili
VEGNA veikinda vantar
kisu okkar gott heimili.
Hún er þrílit og angóru-
blönduð. Þeir sem hafa
áhuga, hafi samband við
Gunnlaugu í síma 557-
6801.
Tveir hvolpar
1 óskilum
TVEIR hvolpar eru í óskil-
um á hundahótelinu að
Leirum. Annar er svartur
Border-Collie og hinn er
ljósbrúnn blendingur. Eig-
endur eru vinsamlegast
beðnir að vitja þeirra
strax. Upplýsingar hjá
Hreiðari í síma 566-8366.
Morgunblaðið/Golli