Morgunblaðið - 04.12.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.12.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fyrstu sjonvarpsumræður keppinauta um útnefningu Repúblíkanaflokksins Bush þykir hafa staðið sig vel New Hampshire. The Washinglon Post, AP. Reuters John MacCain og George W. Bush sýndu hvor öðruni vinarþel í sjónvarpsumræðunum í gær. GEORGE W. Bush stóð af sér gagnrýni mótframbjóðenda sinna í sjónvarpsútsendingu vegna vals á forsetaframbjóðanda Repúblikana- flokksins á fimmtudagskvöld. Þá komu frambjóðendur sem sækjast eftir útnefningu Repúblikana- flokksins til forseta Bandaríkjanna í fyrsta sinn saman í umræðuþætti sem sjónvarpað var frá fylkinu New Hampshire um öll Bandarík- in. Frambjóðendurnir, sem eru sex að tölu, svöruðu í umræðunum spurningum tveggja fréttamanna. Mjög stíft skipulag var á útsend- ingunni og var hverjum og einum frambjóðanda gert að svara spurn- ingum um kosningamálin, eitt í einu, og fengu þátttakendur ekki tækifæri til að skiptast beint á spurningum og svörum. Umræðurnar voru þær fyrstu sem Bush tekur þátt í en hinir frambjóðendurnir fimm hafa áður mæst í sjónvarpi. Var við því búist að útsendingin yrði eins konar prófraun fyrir Bush og gæti haft áhrif á hvort hann héldi forystu sinni í slagnum. Samkvæmt skoð- anakönnunum hefur Bush nokkurt forskot á aðra frambjóðendur og að mati skýrenda vestanhafs má búast við að sú staða haldist óbreytt mið- að við frammistöðu hans í gær. Skattastefna Bush gagnrýnd Eins og búist hafði verið við sætti Bush einna harðastri gagn- rýni af hendi Steve Forbes, for- stjóra fjölmiðlunarfyrirtækisins Forbes og ritstjóra samnefnds tímarits um viðskipti og efnahags- mál. Forbes hefur áður sóst eftir útnefningu sem forsetaframbjóð- andi Repúblikana, árið 1996 en beið þá ósigur fyrir Bob Dole. Forbes gagnrýndi einkum skatt- astefnu Bush. Bush hefur boðað víðtækar skattalækkanir ef hann nær kjöri sem forseti Bandaríkj- anna en var í umræðunum gagn- rýndur fyrir það af keppinauti sín- um að í áætlanir hans vantaði yfirlýsingu um að hann hygðist ekki leggja skatt á Netþjónustu ýmiskonar. Forbes gagnrýndi Bush einnig fyrir að áætlanir hans gerðu ekki ráð fyrir að fjármagnstekju- skattur yrði lækkaður. Forbes gerði ennfremur að um- talsefni að útgjöld hins opinbera í Texas, þar sem George W. Bush er fylkisstjóri, hafa aukist tvöfalt meir en útgjöld alríkisins á valdatíma Bill Clintons, núverandi forseta Bandaríkjanna. Forbes varð sjálfur að sæta gagnrýni af hálfu hinna frambjóð- endanna fyrir tillögur sínar í skattamálum. Hann hefur meðal annars boðað að eitt og sama tekjuskattshlutfall verði látið gilda í öllu landinu og gagnrýndi fram- bjóðandinn Gary Bauer hann fyrir það. Bauer þessi hefur setið í öld- ungadeild Bandaríkjaþings og var ráðgjafi Ronalds Reagans í forseta- tíð hans. Hann sagði að eitt skatt- þrep þjónaði hagsmunum fyrir- tækja en kæmi illa við hag fjölskyldna, sem Bauer ber mjög fyrir brjósti. Aðrir frambjóðendur voru einnig ósammála Forbes er hann sagði að hann myndi, næði hann kjöri, fella niður málsókn bandarískra stjórn- valda á hendur hugbúnaðarrisanum Microsoft. Gary Bauer opnaði umræðu um mikið hitamál í bandarískum stjórnmálum er hann sagði að hann myndi í embætti forseta aðeins út- nefna hæstaréttardómara sem væru á móti fóstureyðingum. Ann- ar frambjóðandi, blökkumaðurinn Alan Keyes, tók í sama streng en aðrir frambjóðendur tóku ekki til máls um fóstureyðingar þó vitað sé að skoðanir þeirra eru skiptar um málið. John MacCain, öldungadeildar- þingmaður og fyrrverandi hermað- ur í Víetnam, varð að svara spurn- ingum um skapgerð sína en hann hefur orð á sér fyrir að vera ör- geðja. MacCain hefur undanfarið dregið á Bush í New Hampshire fylki en eftir því var tekið að í um- ræðunum sýndu keppinautarnir hvor öðrum vinarþel. Bush svarar gagnrýni Forbes Bush lét að mestu vera að gagn- rýna hina frambjóðendurna en er sagður hafa náð sér einna best á strik í svari við gagnrýni Forbes á stefnu hans í lífeyrismálum. Bush hefur sagt að hann voni að ekki þurfi að hækka almennan eftir- launaaldur í landinu umfram það sem þegar hefur verið ákveðið. Al- dur þeirra sem komast á eftirlaun í Bandaríkjunum er um þessar mundir að hækka úr 65 ára í 67 ára. Forbes hefur beitt sér fyrir því að almennur eftirlaunaaldur verði lækkaður og vill að einstaklingar axli sjálfír aukna ábyrgð í lífeyris- málum. Hann sakaði í sjónvarps- umræðunum Bush um að brjóta pólitískt samkomulag í landinu með því að neita að útiloka að eftir- launaaldurinn verði hækkaður frekar. Bush þykir hafa svarað vel fyrir sig með því að vitna í grein sem Forbes hafði skrifað í tímarit sitt árið 1977 þar sem hann lýsir sig fylgjandi því að eftirlaunalaldur verði hækkaður í Bandaríkjunum. AP Olíueldar í Taílandi FJÓRIR Iétust og 15 slösuðust þeg- ar sprenging varð í olíuhreinsunar- stöð í Taílandi í gær. Miklir eldar loguðu í hreinsunarstöðinni sem liggur um 90 kílómetrum suðaustur af höfuðborginni Bangkok og er / eigu olíufélagsins Thai Oil. 35 manns voru við vinnu sína í stöðinni þegar sprengingin varð en ekki hefur verið upplýst hvað olli henni. Auðkýfíngur deyr í íkveikiuárás Monte Carlo. AP, Reuters. TVEIR grímuklæddir menn vopnað- ir hnífum ruddust fyrir dögun í gær- morgun inn í íbúð auðkýfingsins Ed- monds Safras í Monte Carlo og kveiktu í henni. Kafnaði hann í eldinum, að því er segir í yfirlýsingu frá stjórnvöldum í Mónakó. Safra, sem var 68 ára gyðingur frá Líbanon og einn af stofnendum Republic Nation- al Bank í New York, var að mati For- bes-tímaritsins talinn með allra rík- ustu mönnum heims. Bankinn hans hafði á síðustu árum lent í erfiðleik- um vegna fjármálakreppunnar í Suð- ur-Ameríku og rússneska fjármála- hrunsins í fyrra. Um kl. 5:30 að staðartíma gerði fullkomið öryggiskerfi hússins, sem íbúð Safras var í, nærri spilavítinu í AP Slökkviliðsmcnn á þaki glæsi- hýsis í Monte Carlo, sem hýsti bæði íbúð aukýfingsins og útibú Republic National-bankans. Monte Carlo, lögreglu viðvart um að eitthvað mjög óeðlilegt væri á seyði. Mónakósk yfirvöld greindu frá því að tveir grímuklæddir menn hefðu ruðzt inn með hnífa á lofti, en að Safra hefði tekizt að læsa sig inni á baðherbergi ásamt fóstru bama- bams eiginkonu hans. Eiginkonan og stúlkan, barnabamið, lokuðu sig inni í öðm herbergi. Arásarmennimir, sem mistókst að ná til Safras, gripu til þess ráðs að kveikja í íbúðinni, sem er í risi á sjöttu hæð. Breiddist eldur- inn skjótt út um viðarklætt risið. Það tók slökkviliðið þrjá tíma að ráða nið- urlögum eldsvoðans. Safra og fóstran köfnuðu inni á baðherberginu en eiginkonan og barnið sluppu ómeidd. Lífvörður fjöl- skyldunnar vai’ lagður inn á sjúkra- hús eftir að hafa verið stunginn í kvið- inn í viðureign við árásarmennina. Lögreglan í Mónakó leitaði árásar- mannanna dyrum og dyngjum í gær, og var t.a.m. öll umferð til og frá furstadæminu stöðvuð vegna leitar- innar. Kallaður var til liðsauki frá frönsku lögreglunni. Ekkert var vit- að að svo stöddu um ástæður morðtil- ræðisins, en verið er að ganga frá kaupum HSBC-bankans, sem hefur höfuðaðsetur í Lundúnum, á Repu- blic National-banka Safras. Edmond Safra Otrúlegt úrval 15% afsláttur gildir til 7. desember Alhliða innrömmun Eftirprentanir Ásgrímur Jónsson í ramma tilboð 5.900 RAMMA MIÐSTÖÐIN INNRÖMMUN SÓLTLJNI 10-SÍMI511 1616 (SIGTUNI)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.