Morgunblaðið - 04.12.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 5%
Överjandi vinnubrögð
VINNUBROGÐ og
aðgerðir ríkisstjórnar-
innar í stóriðjumálum
taka á sig skuggalegi’i
mynd með hverjum
degi sem líður. Ál-
verksmiðja á Reyðar-
firði með 480 þúsund
tonna framleiðslugetu
hefur verið sett í mat á
umhverfísáhrifum. Að
mati ráðherranna má
hins vegar orkuöflun til
verksmiðjunnar, virkj-
anir og raflínur, ekki
lúta sömu reglu. Fram-
kvæmdavaldið tekur
sér það bessaleyfi að
túlka lög þannig að hér
sé EKKI um eina og óskipta fram-
kvæmd að ræða. Verksmiðjan þarf
þó sannarlega orku, raunar ekkert
smáræði, það er álíka mikla og nú er
framleidd á öllu íslandi. Hugmynd
stjómvalda er að fá með yfirstand-
andi umhverfismati grænt ljós fyrir
þennan orkugleypi, og eina virkjunin
sem ætlunin er að láta meta lögfonn-
lega á þessum vetri er 40 megavatta
gufuaflsvirkjun í Bjarnarflagi sem
myndi aðeins skila um 1/25 af þeirri
raforku sem verksmiðjan þyrfti á að
halda! Lögformlegt mat á Fljóts-
dalsvirkjun má ekki nefna og Kára-
hnjúkavirkjun og virkjun Jökulsár á
Fjöllum á ekki að taka til mats fyrr
en búið væri að taka ákvörðun um
verksmiðjuna. Þegar þar væri komið
sögu hefðu bæði ríkisstjórn og
Landsvirkjun skuldbundið sig gagn-
vart eigendum verksmiðjunnar að
tryggja henni raforku upp í fulla
stærð! Hér em ekki aðeins viðhöfð
óverjandi og siðlaus vinnubrögð
heldur verðskulda þau ennþá verri
einkunn.
Norsk Hydro stendur
ekki á sama
Síðustu daga hafa menn eðlilega
velt fyrir sér mótsagnakenndum yf-
irlýsingum ráðamanna Norsk
Hydro. Þegar betur er að gáð eiga
þær sínar skýringar. Með viljayfir-
lýsingu sinni ásamt íslensku ríkis-
stjórninni og Landsvirkjun frá 29.
júní 1999 hefur Norsk Hydro (Hydro
Aluminium A/S) sett
sig í vanda sem fyrir-
tækið hefur örugglega
ekki séð fyrir. Uttektin
sem þar er rætt um á
að gera aðilum kleift að
kveða upp úr um það
fyrir 1. júní á næsta ári,
hvort þeim þyki fýsi-
legt að ráðast í fram-
kvæmdir sem miðist
við allt að 480 þúsund
tonna álverksmiðju á
Reyðarfirði. Norsk
Hydro hefur vissulega
tryggt sér efnahagsleg
undirtök í málinu og
getur af þeim sökum
verið ánægt með þessa
yfirlýsingu. Hitt hlýtur að koma fyr-
h-tækinu í opna skjöldu að íslensk
stjórnvöld skuli halda á umhverfis-
þáttum málsins eins og þau séu ein í
heiminum og ætli hvorki að skeyta
um skömm né heiður.
Öllum má vera ljóst að það er ekki
Norsk Hydro sem þrýstir á niður-
stöðu úr álversathugunum fyrir 1.
júní á næsta ári, heldur er sú pressa
heimatilbúin í iðnaðarráðuneytinu.
Margar yfirlýsingar talsmanna fyr-
irtækisins staðfesta þetta, nú síðast
upplýsingafulltrúans í viðræðum við
talsmenn World Wide Fund for Nat-
ure. Öll eðlileg vinnubrögð eru hins
vegar látin víkja fyrir þeirri megin-
kröfu framsóknan’áðherranna að
Fljótsdalsvirkjun megi ekki undir
neinum kringumstæðum fara í lög-
formlegt umhverfismat. Þessum
vilja sínum hafa ráðherrarnir nú
þvingað upp á Norsk Hydro í skjóli
yfírlýsingarinnar frá síðasta sumri
og meirihlutann á Alþingi telja þeir
sig hafa í hendi eins og deig í jóla-
baksturinn.
Undirskriftasöfnun
gegn ófarnaði
Margt bendir til að þessi þjösna-
skapur verði aðeins skammgóður
vermir. Með því að virða ekki eðlileg-
ar leikreglur hefur framkvæmda-
valdið brotið trúnað við almenning
og í raun fyrirgert siðferðilegum
rétti sínum í málinu. Framkvæmdir
sem þannig er til stofnað í andstöðu
Fljótsdalsvirkjurt
Ekki kæmi á óvart að
Norsk Hydro reyndi
fyrr en seinna, segir
Hjörleifur Guttorms-
son, að forða sér frá
þeirri hneisu sem ís-
lensk stjórnvöld eru á
góðri leið með að kalla
yfir fyrirtækið.
við stóran hluta þjóðarinnar hljóta
fyrr eða síðar að lenda í ógöngum.
Forystumenn Norsk Hydro eru lík-
lega að átta sig á því þessa dagana
hvers konar blindingjar það eru hér
uppi á Islandi sem þeir hafa bundið
trúss sitt við. Ljóst virðist að fyrir-
tækinu stendur ekki á sama um orð-
stír sinn í umhverfismálum. Ekki
kæmi á óvart að Norsk Hydro reyni
fyiT en seinna að forða sér frá þeirri
hneisu sem íslensk stjómvöld eru á
góðri leið með að kalla yfir fyrirtæk-
ið.
Aðvörunarorð heyrast víða að, nú
síðast í rökföstu Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins þar sem meginnið-
urstaða höfundar er sú, að öll rök
hnígi „...til þess að Alþingi verði við
þeirri kröfu, sem hvarvetna heyrist,
um lögformlegt umhverfismat á
Fljótsdalsvirkjun.“ - Brátt eru tvö
ár liðin síðan undirritaður lagði til
við Alþingi að sú málsmeðferð yrði
viðhöfð. Enn er lag til að bægja frá
þeirri ógæfu sem nú stefnir í að óbr-
eyttu. Sem flestir íslendingar ættu
þessa dagana að leggjast á sveif með
Umhverfisvinum úr öllum flokkum
og stéttum þjóðfélagsins og rita nafn
sitt undir kröfuna um að náttúran fái
að njóta vafans og Fljótsdalsvirkjun
fari í lögformlegt mat.
Höfundur er fyrrverandi al-
þingismaður.
Hjörleifur
Guttormsson
Jólakaffi Hringsins
KVENFÉLAGIÐ
Hringurinn var stofnað
fyiir 95 árum, árið
1904. í upphafi aldar-
innar studdu Hrings-
konur þá sem minna
máttu sín í þjóðfélaginu
og færðu m.a. snauðum
sængurkonum fatnað
og mjólk. Seinna réðst
Kvenfélagið Hringur-
inn í að reisa og reka
Kópavogshælið til end-
urhæfingar berkla-
sjúkum.
Þá starfsemi fjár-
mögnuðu Hringskonur
með rekstri kúabús.
Kópavogshælið gaf Hringurinn síð-
an ríkinu. Hringskonur hafa í 95 ára
sögu félagsins unnið ómetanleg líkn-
arstörf fyrir þjóðfélagið af fórnfýsi
og óeigingirni.
Barnaspítali Hringsins
Saga Barnaspítala Hringsins er
samofin sögu Kvenfélagsins Hrings-
ins undanfarin 40 ár. Arið 1957 var
fyrst opnuð barnadeild innan veggja
Landspítalans. Það var ekki síst fyr-
ir þrautseigju og dugnað Hring-
skvenna að deildinni var komið á
legg. Þegar Barnaspítali Hringsins
flutti í núverandi húsnæði árið 1965
var það einnig gert með drjúgum
stuðningi Hringskvenna. Rúm og
innanstokksmunir voru gefin af
Kvenfélaginu Hringnum við upphaf
Barnaspítalans. Þá er drjúgur hluti
þeirra tækja sem notaður er á
Barnaspítala Hringsins gjöf frá
Kvenfélaginu Hringnum.
Stuðningur Hringskvenna við
Barnaspítala Hrings-
ins er ómetanlegur og
stuðlai' að bættum ára-
ngri starfsins. Hann er
starfsfólkinu einnig
mikilvæg hvatning.
Nú eru yfirstandandi
byggingaframkvæmdir
þar sem nýr Barnaspít-
ah Hringsins mun rísa
á Landspítalalóð. Þessi
framkvæmd hefur
einnig verið studd af
miklum myndarkap af
Kvenfélaginu Hringn-
um. Fram hefur komið
hjá ráðherrum og ríkis-
stjóm að ekki megi
draga úr framkvæmdahraða bygg-
ingarinnar enda brýn framkvæmd á
ferðinni. Það væri líka aumt góðæri
sem ekki stuðlaði að bættum aðbún-
aði veikra barna.
Hringskaff!
Á morgun, fyrsta sunnudag í des-
ember, verður haldið árlegt Hring-
skaffi á Hótel íslandi og hefst það
klukkan 13:30. Hringskonur bera þá
fram mikið lostæti og selja jólakort
Hringskaffið
Stuðningur Hrings-
kvenna við Barnaspítala
Hringsins, segir
Asgeir Haraldsson, er
ómetanlegur og stuðlar
að bættum árangri
starfsins.
ásamt því sem happdrætti verður
með veglegum vinningum.
Hringskonur hafa með fórnfúsu
starfi, mikilli framsýni og bjartsýni
stuðlað að bættum hag barna á ísl-
andi. Það er von mín að sem flestir
sjái sér fært að sýna Kvenfélaginu
Hringnum stuðning í verki á morgun
í Hringskaffinu og njóta um leið frá-
bærraveitinga.
Höfundur erprófessor og for-
stöðulæknir Barnaspítala Hringsins.
-' Gœðavara
Gjafavara — matar- og kaffistell.
Allir verðflokkar.
Heiinsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Ásgeir Haraldsson
Hver er afstaða
dómsmálaráð- '
herra til spilavíta?
FYRIR Alþingi
liggja nú tvö frumvörp
og ein þingsályktunar-
tillaga sem snerta
spilakassa eða spilavít-
isvélar sem svo hafa
verið nefndar. Ástæðan
fyrir þessari nafngift
er sú að spilakassar af
því tagi sem Háskóh
Islands og Islenskir
söfnunarkassaiy sem
Rauði kross íslands,
Slysavarnafélagið,
Landsbjörg og SÁA
standa að eru af sama
toga og spilavíti á stöð-
um á borð við Las Veg-
as byggja afkomu sína
á. Afleiðingarnar em einnig áþekk-
ar, harmleikur fjölskyldna þar sem
einstaklingar hafa ánetjast spilafíkn-
inni.
Þekktur bandarískur geðlæknh’
Sheila B. Blum sem sinnir spilafíkl-
um í New York komst svo að orði í
sjónvarpsviðtali hér á landi: ,Áfeng-
issýki eyðileggur fjölskyldu, konu,
mann og börn en spilafíkn eyðileg-
gur fyrir mörgum kynslóðum. Ekki
er einungis eignum nærfjölskyld-
unnar sóað heldur foreldra, afa og
ömmu, barna og barnabarna. Svo
spilafíkn fer verr með fjölskyldur en
áfengissýki."
Vitnisburður lækna
Vitnisburður lækna er mjög á eina
lund. Undirritaður hefur átt mjög
fróðleg og upplýsandi samtöl við
lækna SÁA á Vogi til að fræðast.um
spilafíknina. Guðbjörn Björnsson
læknir upplýsti undirritaðan meðal
annars um að sú könnun sem gerð
var árið 1998 um spilafíkn á meðal
sjúklinga SÁÁ á Vogi benti til þess
að útbreiðsla þessarar fíknar væri
hlutfallslega orðin svipuð og gerist
með öðrum þjóðum þar sem gott að-
gengi væri að spilavítum. Læknir
SÁA upplýsti jafnframt að það væri
sláandi hve margir þeirra sem ánetj-
uðust þessari fíkn væru greindir og
vel gerðir einstaklingar, sómakærir
á alla lund. Við spilafíknina fengju
þeir hins vegai- ekki ráðið án aðstoð-
ar. í upplýsingum sem SÁÁ hefur
sent frá sér er spilafíknin skilgreind
sem „sjúkleg viðvarandi og síaukin
löngun til að spila eða leggja undir
og fjárhættuspil eða spilahegðunin
setji í hættu eða eyðileggi stöðu ein-
staklingsins, félagslega og fjárhags-
lega hvort sem er á heimili eða á
vinnustað".
Finnum nýja tekjustofna
Frumvörpin sem liggja fyrir Al-
þingi ganga út á það að banna spila-
víti hér á landi. I greinargerð með
frumvörpunum segh’ jafnframt að
mikilvægt sé að finna aðra tekju-
stofna „til að fjármagna samfélags-
þjónustu og forvarnar- og meðferð-
arstarf sem rekið hefur verið fyrir
ágóða af þessari hættulegu starf-
semi.“
I þingsályktunartillögu sem nú
hefur verið lögð fram er þetta sjón-
armið áréttað og lagt til að skipuð
verði „nefnd sem geri tillögur um
leiðir til fjáröflunar fyrir Háskóla Is-
lands, Rauða krossinn, SÁA og
Slysavarnafélagið Landsbjörg sem
komið geti í stað tekna af rekstri
söfnunarkassa."
Eins og fram hefur komið í frétt-
um og blaðaskrifum er þetta ekki í
fyrsta skipti sem
frumvarp af þessu tagi
er lagt fram á Alþingi.
Það hefur verið gert
áður en hlutskiptið hef-
ur orðið það sem iðu-
lega hendir óþægileg
mál. Það hefur einfald-.
lega verið látið sofna-'
svefninum langa. Á
þessu eru þó til ýmis
tilbrigði. Þannig var
frumvörpunum síðast
þegar þau komu fram
vísað til ríkisstjómar í
trausti þess að eitthvað
yrði aðhafst. Flutn-
ingsmenn létu tilleiðast
að fallast á þessa máls-
meðferð þar sem starfandi var þá
nefnd sem hafði happdrættismál
þjóðarinnar til gagngerar endur-
skoðunar. Þegar síðan vai- gengið
eftir því við fyrirrennara núverandi
dómsmálaráðherra að málinu yrði
fylgt eftir kannaðist hann ekki við að
neitt annað hefði vakað fyrir Alþingá
en skjóta þessum málum inn í alls-
Fíkn
/ ✓
Læknir SAA upplýsti
jafnframt að það væri
sláandi, segir Ög-
mundur Jónasson, hve
margir þeirra sem án- ^
etjuðust þessari fíkn
væru greindir og vel
gerðir einstaklingar,
sómakærir á alla lund.
heijarendurskoðun. Þessu hefðu
ekki fylgt neinar skuldbindingar.
Það kann reyndar rétt að vera en
hitt er þó jafnvíst að við sem stóðum
að frumvörpunum höfðum staðið í
þeirri trú að meiri alvara væri að
baki.
Við bíðum svars ráðherra
Nú liggur fyrir skýrsla umræddr-
ar endurskoðunarnefndar. Þar kem—
ur ekkert fram sem bendir til þess að
vilji sé til þess að taka á málinu og
losa okkur við þessar vélar fyrir fullt
og allt. Einu gagnrýnisnóturnar
hvað kassana snertir eru á þá lund
að ráðuneytið hafi ekki sett reglu-
gerð um þessar vélar eins og þó er
lögboðið. Þetta er vissulega ámælis-
vert og sýnir alvöruleysið í þessum
málum. Hitt er svo mikilvægt að
menn geri sér grein fyrir að krafa
okkar lýtur ekki að reglugerðum og
eftirliti heldur hinu að dómsmálar-
áðherra gangi fram fyrir skjöldu og
lýsi því yfir að vilji sé til þess að ísl-
and verði án spilavíta.
Nú er þess beðið að dómsmála-
ráðherra segi sinn hug í þessu efnk
Ef afstaða Sólveigar Pétursdóttur,
dómsmálaráðherra er jákvæð þá er
ég sannfærður um að fyrir því sé
þverpólitískur vilji að finna þeim
stofnunum og þeirri mikilvægu
starfsemi sem hagnast á spilavítum
aðra og betri tekjustofna.
Höfundur er alþingismaður og for-
maðurBSRB.
Ögmundur
Jónasson
ÞÚ GETUR /ate
SPARAÐ «p
ÞÚSUNDIR
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi
Skólavöröustíg 35,
sími 552 3621. "