Morgunblaðið - 04.12.1999, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Uppbygging nýrrar verslunarmiðstöðvar á Gleráreyrum
Rífa þarf húseigriir fyrir
um 100 milljónir króna
KAUPFÉLAG Eyfirðinga og
Rúmfatalagerinn þurfa að kaupa
upp húseignir fyrir um 100 milljón-
ir króna, sem svo rifnar verða nið-
ur í tengslum við uppbyggingu
nýrrar verslunarmiðstöðvar fyrir-
tækjanna á Gleráreyrum. Þar af
leggur Akureyrarbær fram 30
milljónir króna og er bærinn því að
leggja fram samtals 75 milljónir
króna í tengslum við flutning
Skinnaiðnaðar í Folduhúsið og
uppbyggingu verslunarmiðstöðvar-
innar.
Þórarinn E. Sveinsson aðstoðar-
kaupfélagsstjóri KEA sagði ekki
óvarlegt að meta svokölluða dúka-
verksmiðju, sem íyrirtækin keyptu
ásamt aðalverksmiðjuhúsi Skinna-
iðnaðar, á um 50 milljónir króna en
dúkaverksmiðjan verður rifin.
Einnig verður húseign Sportvers
keypt, svo og gamla Þórshamar,
þar sem Hjólbarðaverkstæði Ein-
ars, GV-gröfur og trésmiðja Þórar-
ins Arinbjarnarsonar eru til húsa.
Þórarinn sagði þessar húseignir
væru nálægt 1.000 fermetrum að
stærð og kostuðu samtals um 50
milljónir króna.
Dýrara en að
byrja úti á túni
„Þama verða því eignir fyrir að
minnsta kosti 100 milljónir króna
rifnar og þar fyrir utan bætist við
kostnaðurinn við að rífa þær, slétta
lóðina og útbúa bílastæði. Þegar
allt er talið er um 100- 160 milljón-
um króna dýrara að kaupa þessar
eignir í burtu en að byrja úti á túni.
En bærinn leggur fram 30 milljón-
ir króna í þessi eignauppkaup,"
sagði Þórarinn.
Hann sagði ekki búið að ákveða
endanlega hvernig að framkvæmd-
um á Gleráreyrum verður staðið en
að einn möguleikinn sem ræddur
hafi verið sé alútboð. „Ein hug-
myndin sem kom upp og er mjög
spennandi, var að rífa aðalverk-
smiðjuhús Skinnaiðnaðar líka og sú
hugmynd er reyndar enn uppi á
borðinu. Það liggur alla vega fyrir
að gera þarf miklar endurbætur á
verksmiðjuhúsinu," sagði Þórarinn.
Jólabærinn
Akureyri
Söngur
og grín
í mið-
bænum
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Hádegis-
tónleikar Björns Steinars Sólbergs-
sonar í dag, laugardag, kl. 12.
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun,
messa kl. 14, beðið fyrir bágstödd-
um og hjálparstarfi, Jónas Þórisson
framkvæmdastjóri Hjálparstarfs
kirkjunnar með fræðslu eftir
messu. Aðventukvöld kl. 20.30 á
sunnudagskvöld, ræðumaður er
Þorvaldur Þorsteinsson. Biblíulest-
ur í Safnaðarheimili kl. 20 í umsjá
sr. Guðmundar Guðmundssonar
héraðsprests á mánudagskvöld kl.
20. Morgunsöngur í kirkjunni kl. 9 á
þriðjudagsmorgun. Mömmumorgun
í Safnaðarheimili frá kl. 10 til 12 á
fímmtudag, jólastund, síðasta sam-
vera fyrir jól.
GLERARKIRKJA: Barnasam-
vera kl. 11 á morgun, sunnudag.
Foreldrar eru hvattir til að mæta
með börnunum. Hátíðarmessa verð-
ur á sunnudag kl. 14, á 7 ára vígslu-
degi kirkjunnar. Sr. Bolli Gústafs-
son vígslubiskup vígir nýtt altari.
Sr. Hannes Öm Blandon prófastur
predikar. Að athöfn lokinni verður
heitt súkkulaði og smákökur í um-
sjá Kvenfélagsins Baldursbrár.
Fundur Æskulýðsfélagsins verður
kl. 20 um kvöldið. Kyrrðar- og til-
beiðslustund verður í kirkjunni kl.
18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera
í kirkjunni á miðvikudag frá kl. 12
til 13, orgelleikur, fyrirbænir, altar-
issakramenti og léttur málsverður í
safnaðarsal á vægu verði á eftir.
Opið hús fyrir mæður og börn á
fimmtudag frá kl. 10 til 12.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun,
sunnudag, bænastund kl. 16.30, al-
menn samkoma kl. 17 og unglinga-
samkoma kl. 20. Heimilasamband
kl. 15 á mánudag. Krakkaklúbbur
fyrir 6-10 ára á fimmtudag kl. 17.30,
11 plús mínus kl. 17.30 á föstudag.
Flóamarkaður alla föstudaga frá kl.
10 til 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Köku-
sala í göngugötu í dag, laugardag,
frá kl. 14 til 16, brauðsbrotning og
bænastund kl. 20. Sunnudagaskóli
fjölskyldunnar verður á morgun,
sunnudag, kl. 11.30, kennsla fyrir
alla aldurshópa í umsjá G. Theó-
dórs Birgissonar. Sama dag kl.
16.30 verður vakingarsamkoma,
Valdimar Júlíusson predikar, fyrir-
bænaþjónusta og barnapössun.
Gospelkvöld unga fólksins á föstu-
dagskvöld. Bænastundir kl. 6.30
alla morgna.
HRÍSEYJARPRESTAKALL: Að-
ventukvöld í Stærri-Árskógskirkju
kl. 20.30 á sunnudagskvöld. Sunnu-
dagaskóli í Hríseyjarkirkju kl. 11 á
morgun, sunnudag.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í umsjá Skúla
Torfasonar verður í Hólakirkju kl.
11 á morgun, sunnudag. Aðventu-
kvöld verður í Munkaþverárkirkju á
sunnudagskvöld kl. 21. Ræðumaður
verður Sigurður Jóh. Sigurðsson
forseti bæjarstjómar Akureyrar.
Aðventukvöld verður í Grundar-
kirkju fimmtudagskvöldið 9. desem-
ber kl. 21. Aðventukvöld verður í
Saurbæjarkirkju sunnudaginn 12.
desember kl. 21. Tónlistaratriði í
umsjá Tónlistarskóla Eyjafjarðai-
og kirkjukóranna.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundaskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn samkoma á
Sjónarhæð kl. 17. Bamafundur kl.
18 á mánudag, allir krakkar vel-
komnir, sérstaklega Ástirningar.
UA hlaut gæðaverðlaun
Coldwater í Bretlandi
Ljós kveikt
ájólatré
Kveikt verður á jólatrénu
frá Randers, vinabæ Akur-
eyrar í Danmörku, á Ráðhús-
torgi og hefst dagskráin kl.
15.30 með leik Lúðrasveitar
Akureyrar, þá syngur Kór
Akureyrarkirkju, flutt verða
ávörp og loks verður kveikt á
trénu kl. 16.15 og Kór
Menntaskólans syngur.
Harmonikuleikarar verða á
vappi í miðbænum og fjöl-
listahópur einnig og þá syng-
ur Hjálpræðisherinn jólalög.
Fjöllistahópurinn verður
einnig á ferðinni á sunnudag
kl. 13.30 og málmblásarak-
vintett Tónlistarskólans leik-
ur nokkur lög auk þess sem
jólasveinar verða á ferli.
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. fékk í vikunni afhent gæða-
verðlaun Coldwater Seafood UK,
dótturfélags SH í Bretlandi. Þetta
er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru
veitt en þau eru ætluð framleið-
anda sem náð hefur framúrskar-
andi árangri í vöruvöndun og
áreiðanleika f framleiðslu.
Coldwater Seafood UK rekur
tvær fiskréttaverksmiðjur í Grims-
by þar sem framleiddar eru full-
unnar afurðir fyrir veitingahúsa-
markað og smásölukeðjur í Bret-
landi. Meðal helstu viðskiptavina
eru MacDonalds og Marks &
Spencer.
Helgi Anton Eiríksson, inn-
kaupastjóri Coldwater Seafood
UK, afhenti Guðbrandi Sigurðs-
syni, framkvæmdastjóra ÚA, verð-
launin. Helgi Anton sagði að ÚA
hefði verið mikilvægur samstarfs-
aðili í markaðsstarfi fyrirtækisins
á undanförnum misserum Hann
sagði framleiðendur á breska
markaðnum þurfa að mæta mjög
hörðum kröfum bæði neytenda og
smásölukeðja og að það hefði ÚA
gert með sóma.
Sem dæmi um hvert fram-
leiðsluvörur ÚA fara nefndi Helgi
Anton að stærstur hluti fiskrétta
hjá MacDonalds í Bretlandi væri
úr fiski frá ÚA. Guðbrandur Sig-
urðsson sagði verðlaunin mikla
viðurkenningu fyrir starfsfólk
ÚA.
FJÖLBREYTT dagskrá verð-
ur í miðbæ Akureyrar í dag,
laugardag. Félagar úr kór
Menntaskólans á Akureyri
syngja jólalög kl. 14.30, lesið
verður upp úr nýjum bókum í
Bókvali, jólasveinar verða á
ferð í hestvagni og gefa vörur
frá Sól-Víking og Kexsmiðj-
unni. Þá verður opið hús hjá
Landsbanka Islands frá kl.
13.30 til 15.30 og þangað koma
m.a. jólasveinar í heimsókn,
leikþáttur verður sýndur og
kór Lundarskóla syngur auk
þess sem nemendur Mynd-
listaskólans verða með sýn-
ingu.
Afhending gæðaverðlauna Coldwater Seafood UK fór fram í nýrri
Þróunarstöð ÚA. Fremst standa þeir Helgi Anton Eiríksson, inn-
kaupastjóri Coldwater í Bretlandi, t.v., og Guðbrandur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri ÚA. Fyrir aftan þá standa Nigel Holt, sölustjóri
Coldwater, t.v., Caryn Kendall frá Marks & Spencer, Magnús H. Bald-
ursson, Gunnar Larsen og Elvar Thorarensen, starfsmenn ÚA.
Hjalteyrargata 4
%MkumyiL
Tii íeigu skrifstofuhúsnæði á 1. og
2. hæð, samtals um 160 fm.
Húsnæðið býður upp á marga
nýtingarmöguieika. Mögulegt er
að hafa 4~6 góð vinnuherbergi.
Sérinngangur á jarðhæð. Laust
fljótiega.
Strandgötu 29, Akureyri, sími 462 1744_og 462 1820, fax 462 7746
dYCjUO Söiumertn: Ágústa Ólafsdóttir og Björn Guðmundsson Opið virka daga frá kl. 9-17
Bæjarráð
Lækkun
fasteigna-
skatts
BÆJARRÁÐ Akureyrar legg-
ur til að fasteignaskattur af
eigin íbúðum þeirra sem verða
70 ára og eldri á árinu 2000
verði lækkaður um allt að 20
þúsund krónur af hverri íbúð
sem nýtt er tO eigin nota.
Jafnframt er lagt tO að fast-
eignaskattur af eigin íbúðum
örorkulífeyrisþega (75% ör-
orka) verði lækkaður um sömu
upphæð. Um er að ræða ein-
staklinga með tekjur allt að
1.125 þúsund krónur og hjá
hjónum eða fólki í sambúð með
tekjur allt að 1.550 þúsund
krónur.
Tónlistarskólinn
Tvennir
tónleikar
TVENNIR tónleikar verða
haldnir á vegum Tónlistarskól-
ans á Akureyri á sunnudag, 5.
desember.
Gítardeild verður með tón-
leika á sal skólans og hefjast
þeir kl. 14 en þar koma fram
yngri gítamemendur skólans.
Jólatónleikar píanódeildar
skólans verða svo haldnir á
sama stað kl. 16.
Jóladans-
sýning
JÓLADANSSÝNING Ballett-
skólans á Akureyri verður á
sunnudag, 5. desember, kl. 14 í
Gryfjunni, samkomusal Verk-
menntaskólans á Akureyri.