Morgunblaðið - 04.12.1999, Page 60

Morgunblaðið - 04.12.1999, Page 60
ÖSO LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Fjölskylduvænn dagur - Fordæmið er besta forvörnin ÞAÐ er margt sem ber á góma, þar sem menn hittast og skipt- ast á skoðunum. Þá kemur það glöggt í ljós, að viðhorf manna eru mörg og misvísandi. Einn er maður for- tíðarinnar, fastur í því sem liðið er og sagan geymir. Annar er maður nú- tíðarinnar, sér best og skynjar það sem er að gerast í núinu. Þriðji horfír hugfanginn fram á veginn, lítið eða ekk- ert truflaður af fortíð eða nútíð, er fyrst og síðast með hugann bundinn við það sem kann að verða, er maður fram- tíðarinnar. Fjórði er þetta allt, lítur um öxl, horfir á það sem er að gerast - um leið og hann skyggnist forvitnum augum til framtíðar- innar. Allt ber að sama brunni. Það er misjafnt sem mennirnir sjá og skynja. Heimurinn er svo stór, margbrotinn og margþættur. Um sumt eru menn þó meira sammála en um annað. Þannig viðurkenna flestir, ef ekki allir áfengisböl og fíkni- efnavanda. Það er sama hvort litið er um öxl til fortíðar, svipast um á vettvangi dagsins í dag, eða horft til framtíðar. Menn komast ekki hjá því að sjá vandann sem fylg- ir áfengissýki og eiturlyfjafíklum. Óteljandi fjölskyldur hafa orðið óhamingjunni að bráð af þeim sök- um. Samfélög hafa riðað til falls og einstaklingar misst fótanna í fylgd Bakkusar og eiturlyfjabaróna. Þess- ar staðreyndir vekja ógn og ugg, hvort sem horft er til fortíðar, nútíð- ar eða framtíðar. Oft er spurt, þegar þessi vanda- mál eru rædd: Hvað er helst til ráða? Mörgum vefst tunga um tönn. Menn eru ekki á eitt sáttir. En fljótlega kemur upp orðið forvai'nir. Forvarn- h' vilja flestir ástunda og styðja, - forvarnir gegn áfengisvá og eitur- lyfjaböli. Börnin eru dýrmætasta eign okk- ar. Börnin eru líka sú framtíð, sem næst okkur stendur. Við viljum ekki að þau neyti áfengis. Við viljum ekki að þau verði fórnarlömb fíkniefna- sala. Við viljum forvarnir, sem Hörður Zophaníasson ÍSLENSKT MAL TIL MÁLS tekur Jón Aðal- steinn Jónsson cand. mag. og fyrrv. orðabókarritstjóri. „Kæri kollega og þjáningai'- bróðir um íslenzkt mál! Ég þakka þér þætti þína í Mbl., sem ég les að jafnaði með athygli. Ég hef haft orð á því á blaðinu og raunar víðar, að ég dáist að því, hversu þolinn þú ert við þáttinn og hefur komið að mörgum hlutum. Mér fínnst alveg nóg fyrir mig að sjá um litla hornið annan hvern sunnu- dag. Þar á eru líka þau vand- kvæði, að mér er úthlutað mjög takmörkuðu rými hverju sinni. Af þeim sökum get ég ekki leyft mér miklar bollaleggingar um þau orð og orðasambönd, sem ég sé ástæðu ti að minnast á. Þar kreppir skórinn mun meira að mér en þér í þínum þáttum. En tilefni þess, að ég sezt niður við tölvuna mína, það undra- tæki, eru ummæli þín í niðurlagi 1027. þáttar, 16. okt. sl. Verð ég hér að vitna orðrétt í þau. Þú segir: „Mér þykir nauðsynlegt að bera samsett orð þannig fram, að hljóðbil verði á sam- setningarmótum, dæmi: Sam- skip, ekki „Sams-kip“, Is-land, ekki „Issl-and“ eða jafnvel „Issl-and“, F á-skrúðsfjörður, ekki „Fásk-rúðsfjörður“. Svo mörg eru þau orð hjá þér. Hér hef ég nokkuð við að athuga. Vafalaust þekkir þú reglur þær um lengd hljóða, sem standa í ýmsum málfræðibók- um. Skýrastar eru þær settar fram í doktorsritgerð Björns Guðfinnssonar, Mállýzkum I, Rvík 1946. Þar fjallar hann m.a. **um lengd áherzluorðs í ein- kvæðum fyrri lið samsetts orðs, þar sem sérstakar reglur gilda, sjá 70.-72. bls. Það, sem þú seg- ir í þætti þínum, stríðir alveg gegn þessum reglum og raunar að ég held almennum framburði flestra manna enn í dag. Það eru einungis þeir, sem ofvanda sinn framburð í lestri, sem fara gegn þessum reglum - því mið- ur. Bjöm segir, að sé sérhljóð langt, þegar það stendur ekki í ’ samsetningu, er ýmist, að lengdin helzt, þegar það lendir í samsetningu, eða stytting á sér stað. Þetta rekur hann svo ná- kvæmlega á 71. bls. Skal nú litið á dæmi þau, sem þú tekur. A í fyrri liðnum sam- er langt, þeg- ar hann stendur einn sér eða að- 3" Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1034. þáttur eins með beygingarendingu. Við segjum sa:mur, ekki sam:- ur. Þegar seinni liður orðs hefst á sérhljóði eða h + sérhljóði, en sa:m- er fyrri liður, helzt a-ið langt: sa:meign, sa:mhugur. Hefjist seinni liður orðsins hins vegar á samhljóði, styttist sér- hljóðið í fyrri lið. Þess vegna segja menn réttilega: Sam(:) skip, en ekki Sa:mskip, eins og þú leggur til með orðum þínum. Við segjum sa:mhygð o.s.frv., en aftur sam(:)mála, ekki sa:m- mála, sam:skipti, ekki sa:m- skipti, sam:vistir, ekki sa:mvist- ir o.s.frv. Annað hentugt dæmi í þessum samanburði er stytting- in Eimskip. No. eimur er borið fram ekmur og eins þf. ei:m. Hins vegar segjum við Éimskip, ekki Ei:mskip samkv. áður- greindri reglu. En svo segjum yið t.d. ei:myrja, ekki eim:yrja. Ég held þú og aðrii’ Norðlend- ingar og raunar flestir Islend- ingai' aðrir tali einnig svo.“ (Framhald í næsta þætti.) ★ Og eftir það sá ég annan engil ofan fara af himni, sá hafði mikla makt, og jörðin var upp- lýst af hans birti, og kallaði af valdi með hárri rödd og sagði: Hún er fallin, hún er fallin. Bab- ylon hin mikla og er djöflanna heimkynni vorðin og hirsla alls óhreins anda og hirsla alls óhreins og óþakknæmilegs fugls. Því að af reiðinnar víni hennar hóranar hafa allar þjóð- ir drukkið, og konungar jarðar- innar hafa með henni hóranir drýgt, og hennar kaupmenn eru auðigir vorðnir af hennar mikl- um munaðsemdum. (Opinber- anir Skt. Jóhannesar, 18; Oddur Gottskálksson (d. 1556) þýddi.) ★ __ Spurningar N.N. og svör. Onnur lota. 1) „ítalska knattspyi-nan, norska knattspyrnan, segja íþróttafréttamenn, og þó er knattspyrnan hvorki ítölsk né norsk. Ensk áhrif? Er ekki nær að tala um knattspyrnuna á Ítalíu og í Noregi? íslenskar strendur (þ.e. strendur Islands) - hvernig líst þér á?“ [Alls ekki illa. Góðir menn hafa látið sér sæma að tala um íslenskai' strendur og dali. Sjálfur Einar Benediktsson skrifaði um íslenskan sjó í blaði sínu Dagskrá laust fyrir síðustu aldamót. Og strendur Islands og dalir eru væntanlega enn þá íslenskari en sjórinn.] 2) „Eitt er það einkenni á fréttum í fjölmiðlum, einkum íþóttafréttum, sem mér þykir ófagurt, að skjóta inn í aðalsetn- ingar atriðum eða lýsingum í til- vísunarsetningum, jafnvel mik- ilvægum atriðum sem skipta máli í frásögninni. Dæmi: Sveinn sigraði Bjöm í 400 m hlaupi. Sveinn, sem hefur löng- um keppt með HJ en gekk til liðs við KF fyrir hálfu ári, varð tveimur sekúndum á undan Birni í mark. - Miklu fallegra þætti mér ef upplýsingarnar um Svein kæmu í sjálfstæðri aðal- setningu. Em þetta ensk áhrif? Annað dæmi: Nýr togari kom til hafnar í gær. Togarinn, sem er 30 m langur og búinn öllum nýjustu siglingatækjum, er smíðaður í Noregi. Það er snubbótt að sjá eitt orð í byrjun setningai', togarinn, skorið frá framhaldinu með innskotssetn- ingu - einkum af því að það er óþarfi. Ertu sammála? Er sama hvort sagt er að vera sammála einhverjum (manni) eða ein- hverju (viðhorfi, skoðun)? Er fyrrnefnda orðalagið ekki eldra?“ [Umsjónarm. er á móti of miklu af innskotssetningum. Klassískur, sagnsterkur stíll Is- lendinga sagna má þar vera til fyrirmyndar, ríkur af aðalsetn- ingum. En um togarann er ég ekki sammála bréfritara. Ég held eðlilegra og upphaflegra að vera sammála einhveijum um eitthvað, heldur en vera sam- mála einhverju.] ★ Hlymrekur handan kvað: Mælti Jón sem var kaldur sem klettur: „Það komu á mig fettur og brettur, og gegnum haus minn og hött fluguparhundraðvött er ég horfði fyrst á beruglettur.“ ★ „íslensk tunga mun áfram vega þyngst í varðveislu sjálf- stæðrar menningar og stjórnar- farslegs fuljveldis þjóðarinnar. Landfræðileg og menningarleg einangrun dugar ekki lengur til þess að vernda tunguna." (Tryggvi Gíslason skóla- meistari 1999.) byrgja brunninn, áður en barnið dettur ofan í. Og nú kunna spurningar að vakna. Eru það forvarnir, að grípa hvert tækifæri til þess að gera sér „glaðan dag“ með því að sötra áfengi úr fín- um glösum? Eru það forvarnir, að fagna sigri eða drekkja ósigri með áfengi úr fagurskreyttum umbúðum? Eru það forvarnir, að Bindindisdagur Sumir dagar eru öðrum dögum fjöl- skylduvænni, segir Hörður Zóphaníasson. Einn þeirra er árlegur bindindisdagur fjölskyldunnar. auka og auðvelda sem mest aðgengi að áfengi? Eru það forvarnir, að koma áfengi í hillur verslana um land allt við hliðina á matvöru og annarri nauðsynjavöru og Jeggja þannig þetta allt að jöfnu? Ég bið lesendur að hugleiða þetta og láta dómgreind sína og reynsluheim um svörin. Margir hafa nú á orði, að foreldrar séu besta forvörnin. Það er mikið til í því. Því meiri tíma, sem foreldrar gefa sér til að vera með börnum sín- um, því minni hætta er á að þau verði áfenginu að bráð. Fjölskyldan verður því traustari, heilli og hamingjusamari, sem ánægjulegar samverustundir fjöl- skyldunnar allrar verða fleiri. Vináttuböndin verða traustari, samheldnin sjálfsagðari og viðhorfin sköpuð af sameiginlegri dómgreind allra í fjölskyldunni. Þá eru allir fjöl- skyldumeðlimir saman að skapa hamingju til framtíðar. Engir foreldrar mega við því að tapa þeim tækifærum til hamingju og farsældar sem fjölmargar ánægjulegar samverustundir fjöl- skyldunnar allrar gefa. Auður framtíðarinnar er fólginn í samveru og samheldni hverrar fjöl- skyldu. Og fjölskyldan er hornsteinn sam- félagsins, - eða hvað? Því skyldi eng- inn gleyma. Sumir dagar eru öðrum dögum fjölskylduvænni. Einn þeirra er ár- legur bindindisdagur fjölskyldunn- ar. Þá er mjög eindregið til þess mælst, að sérhver fjölskylda geri eitthvað saman gott og skemmtilegt og láti vera að blóta Bakkus þann daginn. Einn bindindisdagur á ári er ekki stórt spor, en þó mikilvægt og í rétta átt þótt lítið sé. Bindindisdagurinn 1999 verður laugardaginn 4. desember. Þá verð- ur heilmikil fjölskylduskemmtun í Ráðhúsinu við Tjörnina, sem aðstandendur bindindisdagsins standa fyrir. Skemmtunin hefst klukkan 15:00, er hin fjölbreyttasta og öllum opin. Það er tilvalið fyrir þig og fjölskyldu þína að koma þangað. Að lokum skora ég svo á alla að virða bindindisdaginn og láta allt áf- engi lönd og leið, - eyða deginum með fjölskyldunni við leiki og störf, við eitthvað sem er uppbyggjandi og skemmtilegt. Þannig er hægt að leggja traustan stein í grunninn að hamingju og framtíðarheill fjölskyldu þinnar. Munum að gott fordæmi foreldr- anna og ánægjulegar samveru- stundh' fjölskyldunnar eru besta forvörnin. Höfundur er formaður Lands- sambandsins gegn áfengisbölinu og fyrrverandi skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Einlæg og óskyggð gleði SANNARLEGA er gott til þess að hugsa, nú þegar enn er efnt til Bindindisdags fjöl- skyldunnar, að á hverri ráðstefnunni eftir aðra er samstaða um nauð- syn þess að fólk taki höndum saman í bar- áttu gegn þeirri vá sem notkun hvers konar fíkniefna fylgir - og að börnum og unglingum sé leiðbeint og þau studd svo að þau geti staðið sjálfstæð og hafnað slíkum efnum. Leikir og lærðir minna á að neysla áfengis er jafnan undanfari notkunar ólöglegra efna. Foreldrar hafa fitjað upp á nýmælum til að vernda börn sín, til að mynda með umræðu- og samver- ustundum og eftirliti á stöðum þar sem unglingar safnast saman. Mikil- vægi fordæmisins verður æ ljósara og sífellt fleiri taka þá ákvörðun að hætta að hafa áfengi um hönd meðan böm þeirra vaxa úr grasi. Þá er horfst í augu við mótsögnina sem felst í því að benda öðrum á besta veginn en feta hann ekki sjálfur. Nú er aðventa og börn bíða jóla með eftirvæntingu. Öll viljum við, foreldrar, afar og ömmur, frændur og frænkur, að aðventan verði þeim ánægjuleg og engan skugga beri þar á. Við kappkostum að undirbúa há- tíðina vel svo að þau megi eiga gleði- legjól. Að sjálfsögðu er margt sem varp- að getur skugga yfir daga og veg. Sumt er ekki á okkar valdi að hindra - annað af því tagi að við ráðum þar mestu um sjálf. Streitan, sem gjarna fylgir önnum, kann að leiða til óvar- kárni í orðum og athöfnum. Annirn- ar við undirbúninginn leiða stundum til að börnum sé síður sinnt en skyldi. Eitt af því sem særir börn mjög er áfengis- neysla nákominna, jafnvel þó að í litlu sé. Þau skynja fljótt þá breytingu á persónu- leika og fasi sem henni fylgir og fellur hún illa. I stað tilhlökkunar kemur kvíði og depurð. Sem betur fer er okkur flestum þetta ljóst og því er óskráð lögmál á flestum heimilum að jólahald og áfengis- neysla fara ekki saman. Bindindisdagur fjöl- skyldunnar er árlegur viðburður. Til hans er efnt í dag og aðalviðburðurinn fjöl- skylduskemmtun í Ráðhúsinu. Með henni er minnt á gildi þess að fjöl- Bindindisdagur Mikilvægí fordæmisins verður æ ljósara, segir Karl Helgason, og sí- fellt fleiri taka þá ákvörðun að hætta að hafa áfengi um hönd meðan börn þeirra vaxa úr grasi. skyldan eigi ánægjulegai' samver- ustundir þar sem áfengi er hvergi nærri. Þau fjölmörgu félög, sem að bindindisdeginum standa, óska þess að einlæg og óskyggð gleði megi ríkja þann dag sem aðra í jólamán- uði. Karl Helgason Höfundur er ritstjóri Æskunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.