Morgunblaðið - 04.12.1999, Qupperneq 68
» LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Jólakaffi Hringsins
verður í Broadway á morgun 5. desember kl. 13.30
Dagskráin verður sem hér segir:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, „Diddú“, syngur nokkur lög.
Meðleikari er Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Börn frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru, Davíð Gill Jónsson og
Halldóra Sif Halldórsdóttir, sýna dans.
Töframaðurinn Bjarni Baldvinsson sýnir töfrabrögð.
Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson og
Jónas Þórir Jónasson leika ljúfa tónlist á fiðlu og píanó.
Glæsilegt happdrætti — Girnilegt kaffihlaðborð
tfremclýrapaté með &alati og- cumkerlamkÁm
Qrafimv regktur laco <í &alati með graflaam&w
cAðcdréttir
cAndarhringcc ag- syJuirhrúnaóar
kartaflur i 'BmardedÁuc
kr. 4250
'Kegktur lamhaÉryggur, kartöflur, rauðkál
agyhaunir, með hmtri&á&w
kr. 3850
Iflglkúnahririgumeð &ætumkartöflumQgy
rauðmm&ð&u
kr. 3.950
Með aðak-étímumfyigú- fairéttui'
að eigiti mii ag ifiiiréttir d fUaðharði
Klapparstígur 26 - sími 552 6022
(I
Áttu eftír að fá þér aldamótafötín?
Ótrúlegt úrval
samkvæmísefna fyrír
dömuna og herrann.
V/RKA
i:x- Mörkin 3, sími 568 7477
UMRÆÐAN
Grátbroslegum
farsa lýkur
Á MÁNUDAGINN
lýkur ömurlegum kafla
í sögu Alþingis. Þann
dag verður umhverfís-
nefnd Alþingis neydd til
að stöðva faglega um-
fjöllun á ákaflega gagn-
rýniverðri skýrslu
Landsvirkjunar um af-
leiðingar Fljótsdals-
vilq'unar á umhverfí og
náttúru. Með því brýtur
Finnur Ingólfsson iðn-
aðarráðherra loforð sitt
um að Alþingi fengi tóm
til að fjalla á faglegan
máta um rökin með og á
móti því að sökkva
Eyjabökkum. Frá upp-
hafi til enda var málið farsi, settur
upp í því skyni að telja þjóðinni trú
um að það væri í lagi að farga Eyja-
bökkum vegna þess að Alþingi hefði
komist að þeirri niðurstöðu eftir fag-
lega umíjöllun. En til hennar fékk
þingið ekki tóm.
Falleinkunn sérfræðinga
Margir sérfræðingar, sem flestir
eru í þjónustu rítósins og hafa engra
hagsmuna að gæta, hafa á fundum
með umhverfisnefnd bent á alvarleg-
ar veilur á skýrslu Landsvirkjunar.
Sérfræðingar í náttúruvísindum
sögðu flestir aðspurðir að framsetn-
ing og túlkun gagna í skýrslunni væri
Landsvirkjun í vil. Fimm örstutt
dæmi: 1. Höfundar skýrslunnar
draga mjög úr mikil-
vægi sérkennilegra og
ákaflega fagurra jarð-
myndana, svokallaðra
Hrauka, á Eyjabökk-
um. Þess er hvergi get-
ið að þeir eru að lítónd-
um einstæðir í
heiminum. I saman-
tektarkafla skýrslunn-
ar er enn dregið úr sér-
stöðu þeirra innan-
lands, og haldið fram
(án þess að vísa til
heimilda) að þeir eigi
sér hliðstæðu á Sval-
barða! 2. í umfjöllun um
Ramsar-samninginn,
sem fjallar um vemd
votlendis, er af óstóljanlegum ástæð-
um ektó nefnt að samningurinn kveð-
ur á um að fórgun votlendis skuli háð
umhverfismati. 3. Allir náttúrufræð-
ingar sem ég hef rætt við telja áhrifa-
svæði virkjunarinnar einstakt að því
leyti að það er eina samfellda gróður-
lendið frá jötói til sjávar sem finnst á
íslandi. Þessa er getið í skýrslunni en
sem skoðunar tiltetóns náttúrufræð-
ings einsog um léttvægt minnihluta-
sjónarmið sé að ræða.
4. Höfundar komast að þeirri nið-
urstöðu með „samanburði fyrirliggj-
andi gagna“ að gróðurfélög á Eyja-
bökkum eigi sér „hliðstæður víða á
hálendinu". Þetta er ein af þyngstu
náttúrufræðilegu röksemdunum sem
hneigja niðurstöðuna að því að verj-
Össur
Skarphéðinsson
-/elinek
Fegurðin kemur innan fró
Laugovegi 4,
www.mmedia.is/stuss
hrein og fallegjþqnnun
Býrð þú úti á landi?
Ef þú kaupir gleraugu hjá
Sjónarhól, getur þú
ferðast fyrir mismuninn
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi
Stórliöfðu 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844.
www.flis^flis.is • nctfanc: flisC^itn.is
Alþingi
Handstýrður meirihluti
þingheims mun svo taka
að sér, segir Össur
Skarphéðinsson, að
sökkva Eyjabökkum
með vísan til skýrslu
sem búið er að tæta
sundur og saman.
anlegt sé að sökkva Eyjabökkum.
Gallinn er bara sá að þetta er rangt. 5.
Skýrslan staðhæfir að virkjunin muni
ektó hafa áhrif á gróður við strendur
Lagarfljóts. Prófessor við Háskóla
íslands tók þetta sem dæmi um til-
hæfulausa staðhæfingu, enda nefnd
án heimilda.
Rannsóknum stórlega áfátt
Yfirmaður stórrar vísindastofnun-
ar tjáði nefndinni að stofnunin gerði
verulegar athugasemdir við hvernig
niðurstöður hennar væru matreiddar
í skýrslunni. Hann kvað miklar
gloppur á einstökum köflum sem
vörðuðu náttúrufar og benti á að höf-
undum hefðu yfirsést þýðingarmiklar
innlendar rannsóknii', t.d. á rofi við
virkjunarlón. Yfirmaður annarrar
rítósstoihunar taldi úttekt á öðrum
virkjunarkostum en Fljótsdalsvirk-
jun villandi og ektó væri hægt að fall-
ast á nauðsyn hennar nema útreikn-
ingar um hina kostina væru birtir.
Fulltrúi þriðju rítósstofnunarinnar
kom með álnarlangan lista yfir það
sem henni þótti áfátt við skýrsluna,
benti til dæmis á skelfilega Útla um-
fjöllun um hið gríðarlega efnisnám
sem virkjuninni fylgdi, auk fjölda
annarra atriða.
Mikilvægur þáttur í mati á um-
hverfisáhrifum er að benda á svokall-
aðar mótvægisaðgerðir, sem vinna
gegn tjóni framkvæmdar á umhverf-
inu. Frá því er skemmst að segja að
þær hlutu falleinkunn hjá öllum sem
um þær ræddu við umhverfisnefnd.
Á Alþingi var haldið fram að ekk-
ert landsvæði á Islandi væri jafn vel
rannsakað og Eyjabakkar. í skýrsl-
unni segir enda „að rannsóknir á
dýralífi við Eyjabakka hafi nú staðið í
hartnær 30 ár...“ í umhverfisnefnd
kom fram að þessi staðhæfing um
dýralífsrannsóknirnar er kolröng.
Rannsóknir hafa verið afar takmark-
aðar enda stóðu þær aðeins yfir sum-
urin 1979-1981, auk einnar viku
sumarið 1975. Að öðru leyti er eink-
um um að ræða talningar á gæsum og
hreindýrum á Eyjabökkum, dagpart
á hverju sumri. Úttekt höfunda á
gæsum á Eyjabökkum var einmitt
OFNBAKAÐUR
Kjúklingur í hunangs og sinnepssósu fyrir 4 til 6.
Notið: 4 tii 6 úrbeinaðar kjúklingabringur, kjúklingabita eða heilan
ferskan kjúkling.
Sósa: 1/2 bolli hunang • 1/2 bolli dijon sinnep • 1 tsk. basil krydd •
1 tsk. paprikkukrydd • 1/2 tsk. þurkuð steinselja • salt og pipar.
Erlendar uppskrrftasíður:
http://www.chickenrecipe.com/
http://www.eatchicken.com/
Matreiðsluaðferð: Kryddið kjúklingin með salti og pipar og leggið í
eldfast mót. Blandið saman kryddinu, hunangi og sinnepi og penslið
kjúklinginn og notið aðeins helminginn af blöndunni. Bakið við 180 C
í 20 mín (bitar) heila fuglinn í 30 mín. Snúið bitunum og fuglinum og
penslið með afganginum af kryddblöndunni. Bakið í aðrar 20 mín (bitar)
en heila fuglinn í 35 min. _ »■» ■ ■•■
... hreint lostœti!
KJUKLINGA^ / BÆNDUR