Morgunblaðið - 04.01.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.01.2000, Qupperneq 1
• MARKAÐURINN © SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 4. janúar 2000 Blað c Hærri lágmörk í Ijósi reynslunnar var talið rétt að hækka lágmörk framfærslu- kostnaðar í greiðslumatinu, segir Haliur Magnússon hjá fbúðalána- sjóði í þættinum Markaðurmn, en þar íjallar hann um nýlegar breyt- ingar á greiðslumatinu og birtir töflur þar að iútandi. / 2 ► ‘‘áwníiTvi.*, Varúðar- ráðstafanir Það er nauðsynlegt fyrir okkur að huga vei að húsum okkar og íbúðum á þessum árstíma, þegar allra veðra er von. f þættinum Smiðjan fjallar Bjarni Ólafsson um ýmsar gagnlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fýrir tjón af völdum storma. / 22 ► Góðar horfur Töluverð bjartsýni ein- kennir markaðinn nú í ársbyrjun. Eftirspurn er mikil og horfur góðar. Verðhækkanir á fasteignum á höfuðborgarsvæðinu verða samt varla jafn miklar og á síðasta ári. Hafa verður í huga, að verð hafði verið svo lágt í mörg ár þar á undan, að framan af ári voru verð- hækkanirnar aðallega verð- leiðrétting. Guðrún Árnadóttir, for- maður Félags fasteignasala, segist samt búast við áfram- haldandi þenslu á höfuðborg- arsvæðinu, ef aðflutningar fólks utan af landsbyggðinni halda áfram í svipuðum mæli og verið hefur. Það eitt kall- ar á fleiri hundruð nýjar íbúðir á ári. Stefán B. Gunnarsson, framkvæmdastjóri bygginga- fyrirtækisins Húsvirkis, seg- ist ekkert eiga óselt af íbúð- um nú og að ástandið að und- anförnu minni helzt á upp- gangstímabilið, sem hér ríkti 1984-1986. Á þessu ári er áformað að úthluta mun fleiri lóðum hjá Reykjavíkurborg og þá fyrst ojg fremst í Grafarholti, segir Agúst Jónsson, skrifstofu- stjóri hjá borgarverkfræð- ingi. ’I desember var úthlutað lóðum fyrir 204 ílníðir í ein- býlishúsum, raðhúsum og fjölbýlishúsum og á næstunni verður úthlutað lóðum undir 400 íbúðir til viðbótar í Graf- arholti. / 16 ► Verð á höfuðborgar- svæðinu hækkar enn VERÐ á íbúðarhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu fór ört hækkandi á síðari hluta nýliðins árs eins og teikningin hér til hliðar ber með sér, en hún er byggð á upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Til höfuðborgarsvæðis teljast Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnar- nes, Garðabær, Hafnarfjörður og Mosfellsbær og til umfjöllunar eru steinhús reist 1940 eða síðar. Þessar hækkanir voru í sam- ræmi við mikil umsvif á markaðn- um, sem mótaðist af þenslu í þjóð- félaginu og mikilli eftirspurn eftir flestum tegundum húsnæðis. Eft- irspurnin var stundum svo mikil, að nýjar íbúðir seldust ekki ósjaldan samkvæmt teikningum eins og kallað er. Varla var búið að steypa, þegar tilboð voru farin að berast. Fasteignamat á höfuðborgar- svæðinu hækkaði mikið eða um 18%, en víða annars staðar nam hækkunin allt að 15%. Þetta mun væntanlega leiða til hærri fast- eignagjalda, en þau eru samansett af mörgum gjaldaliðum, sem yfir- leitt taka mið af fasteignamati. Á síðasta ári var ávöxtunarkrafa húsbréfa lengst af afar lág og það svo, að húsbréf seldust á yfirverði, sem hafði mjög hagstæð áhrif á markað- inn og hélt verðhækkunum í skefjum. I haust fór ávöxtunarkrafa hús- bréfa svo aftur hækkandi og afföllin um leið, sem hefur öi-ugglega haft sín áhrif til hækkunar á íbúðarhús- næði. Upp á síðkastið hefur ávöxt- unarkrafan svo lækkað á ný, sem ætti að draga úr hækkandi verði samkvæmt framansögðu. Erfitt er að spá neinu með vissu um verðþróun á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. En fasteignasalar gera almennt ráð fyrir, að mikil umframeftirspum haldist áfram eftir íbúðarhúsnæði, sem ætti að halda verðinu uppi. Fyrirfram var gert ráð fyrir, að fjárfesting í íbúðarhúsnæði myndi aukast verulega á síðasta ári. En þó að mikið sé byggt, hefur byggingar- iðnaðurinn ekki undan eftirspurn- inni. Fermetraverð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu 1996-1999 Vísitala, staðgreiðsluverð hver fermetri, jan. 1996 = 100 Þriggja mánaða meðaltöl , 4 4 W ; í n ÞU FÆRÐ MEIRA FYRIR HÚSBRÉFIN HJÁ FJÁRVANGI $ i°/< -O OK^ Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist við að bjóða besta kaupgengið og staðgreiðir Húsbréfin samdægurs. Ráðgjafar Fjárvangs veita allar upp- lýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. FJARVANGUR LOGGIU VtRÐBRfFAFYRIRTftKI Laugavegi 170 slmi 5 40 50 60, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.