Morgunblaðið - 04.02.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.2000, Blaðsíða 1
FOSTUDAGUR4.FEBRUAR2000 NYTT TAKN A HVERJUM DEGI/2 ■ PLÖTUSAFNIÐ MÆLTI METRUM/4 ■ HORMÓN FEPRANNA/5 ■ BÍÓ FYRIR BÖRN/5 ■ HÁR ÁN SAPU/6 — " "KT EFTIR DAGSBIRTU/7 ■ FELPENKRAIS-AÐFERPIN/8 Elísabet Birgis- dóttir starfsstúlka Týnda hlekksins hugs- ar til fjalla með stafí, gleraugu og siijóbrett- ið á bakinu i þar til gerðum brettapoka. með gleði og gát SNJÓBRETTIN eru komin til að vera. Pað er ekki um að villast og það er heldur ekki gaman að vill- ast þegar í brekkumar er komið. Af þeim sökum er íslensku brettafólki bæði Ijúft og skylt að íræðast um leyndardóma fjall- na, réttan útbúnað og aðferðir á ögurstundu. I vikunni hélt Islenski alpaklúbburixm í samvinnu við versl- unina Týnda hlekkinn kvöldnám- skeið um leiðarval, mat á snjóflóða- hættu og fleiri hliðar fjallamennsku. Námskeiðið var opið öllu fjallafólki en þangað mættu meðal annars snjó- Íbrettaiðkendur sem áhuga hafa á að bæta nýjum víddum við iðkun sína. ‘ Ekki nóg að vera i flottri flík Já, um þessar mundir er vaxandi áhugi á því sem stundum er kallað að „hæka“ - að ganga á fjöll utan hefð- bundinna skíðalyftusvæða með snjó- brettin á bakinu,“ segir Rúnar Óm- arsson í Týnda hlekknum. „íslendingar hafa reyndar gengið á íjöll og rennt sér í fjölda ára en nú er ákveðin vakning í þessu meðal snjó- brettafólks. Snjóbrettaskór eru nefnilega ágætir að ganga á og ásamt tengdum útbúnaði gefa þeir mögu- leika á talsverðum hreyfanleika í fjallaferðum," segir Rúnar. Sjálfur segist hann stundum fara „á röltið" í fjöllunum með vinum sín- um í leit að púðursnjó, fjarri lyftu- röðum. „Maður gerir það kannski ekki oft en það eru samt yfirleitt skemmtilegustu dagar ársins,“ segir hann og kveður litla hópa henta einna best til slíkra ferða. I hlutarins eðli liggi um leið nauðsyn þess að vita hvemig draga megi úr þeim hættum sem steðjað geta að á fjöllum. „I svona ferðum er ekki nóg að vera í flottum galla en láta svo góma sig í bómullamærfötum og gleraugnalausan. Maður þarf að vera rétt klæddur og útbúinn, kunna að lesa í brekkumar, meta veður og aðstæður og undirbúa tryggar aðferðir til þess að hafa samband við um- heiminn ef eitthvað kem- ur upp á,“ undirstrikar Rúnar og bætir því við að á póstlista Týnda hlekks- ins séu yfir þúsund manns á aldrin- um 6-57 ára, sem gefi vissa hugmynd um aldursbreidd snjóbrettaiðkenda. Spuming um rétta tímann Snjóflóðanámskeiðið á miðvikudag var hluti af námskeiðaröð íslenska alpaklúbbsins, en eftii annarra nám- skeiða er kynnt á vefsíðunni www.isalp.is. „Þetta er enginn hræðsluáróður heldur spuming um að velja sér rétta tímann til þess að renna sér niður ákveðnar brekkur," segir Karl Ingólfsson leiðbeinandi Morgunblaðið/Jón Svavarsson Tilþrif Aðalheiður Birgisdóttir tekur flugið á snjóbrettamóti i Bláfjöllum. um skilaboð sín til fjallagarpa. „í bestu brekkunum er alltaf snjóflóða- hætta að einhverju marki, annars væra það ekki góðar brekkur. Það sem skiptir höfuðmáli fyrir snjó- brettafólk, skíðakappa og aðra sem vilja halda til fjalla er ákveðin þekk- ing á landslagi, snjógerð og veður- fari,“ segir Karl sem á námskeiðinu fór meðal annars í saumana á réttu leiðarvali, notkun snjóflóðaýla og mati á styrk snjóþekju. Allt til þess að gera góðar fjallaferðir enn betri og farsælli. Chiropractic heilsudýnumar ★ Svqfiiherbergishúsgögn Heilsukoddar Hlffðardýnur * Rúmteppasett ★ Hágœða bómidlarlök ★ Sængur ★ Sœngurver * Lampar ★ Speglar AVÍK-AKU Lísthúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheilsa.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.