Morgunblaðið - 15.02.2000, Side 4

Morgunblaðið - 15.02.2000, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Reuters Alan Shearer skoraði tvö mörk hjá Manchester United. Hér skorar hann með því að senda knöttinn fram hjá Jaap Stam. Man. Utd. steinlá á St. James Park SPENNAN í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar magnaðist á ný um helgina. Manchester United steinlá í Newcastle, 3:0, en Leeds marði sigur á Tottenham, 1:0. Þar með munar á ný aðeins þremur stigum á Man.Utd og Leeds, og liðin mætast um næstu helgi á Elland Road, heimavelli Leeds. Liverpool vann mikilvæg- an sigur á Arsenal, 0:1, á Highbury og gæti hæglega blandað sér í baráttuna um titilinn, og þá hefur Chelsea nálgast efstu liðin hægt og bítandi og lagði nú Wimbledon, 3:1. FOLK ■ HEIÐAR Helguson fór af velli sex mínútum fyrir leikslok þegar Watford gerði jafntefli við Leicest- er. Jóhann B. Guðmundsson var ekki í 16 manna hópi Watford og Amar Gunnlaugsson sat á bekkn- um hjá Leicester allan leikinn. ■ EIÐUR Smári Guðjohnsen var rekinn af velli fyrir gróft brot þegar mínúta var eftir af leik Bolton við Birmingham í 1. deild. Guðni Bergsson lék allan leikinn með Bol- ton sem tapaði, 2:1, og datt niður í 10. sætið. ■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék all- an leikinn með WBA sem vann Crewe, 1:0, í fallslag í 1. deildinni. Þetta var fyrsti sigur WBA í 15 leikjum og liðið komst fjórum stig- um frá fallsætinu. ■ BJARNÓLFUR Lárusson lék síðustu 20 mínútumar með Walsall sem tapaði, 0:2, í öðram fallslag í 1. deildinni, gegn Nottingham For- est. Þetta var fyrsta tap Walsall í 5 leikjum. ■ BRYNJAR Bjöm Gunnarsson lék allan leikinn með Stoke og var nálægt því að skora þegar liðið vann Cambridge, 1:0, í 2. deildinni. Sigursteinn Gislason sat á vara- mannabekk Stoke en Einar Þór Daníelsson var ekki í hópnum. ■ STOKE vann þarna sinn fyrsta sigur í fimm leikjum og er áfram í sjötta sætinu. Paul Connor skoraði eina mark leiksins. ■ ÍVAR Ingimarsson fór af velli 7 mínútum fyrir leikslok þegar lið hans, Brentford, gerði 1:1 jafntefli í Cardiff í 2. deildinni. Gunnar Ein- arsson sat á bekknum hjá Brent- ford. ■ BJARKI Gunnlaugsson fór af velli 2 mínútum fyrir leikslok þegar Preston vann mikilvægan útisigur, 0:1, gegn Chesterfield. Preston er nú með tveggja stiga forystu í 2. deild. ■ SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson lék allan leikinn með Chester sem gerði 0:0 jafntefli við Hull í 3. deild. Sigurður var óheppinn því hann átti þramuskot í þverslána. ■ SHAKA Hislop, markvörður West Ham, fótbrotnaði í leiknum við Bradford og leikur ekki meira í vetur. Stephen Bywater tók stöðu hans í markinu og lék sinn fyrsta úrvalsdeildarleik. ■ WEST Ham hefur nú augastað á Ian Feuer, bandarískum markverði sem hefur áður verið hjá félaginu og spilaði síðast með Cardiff í 2. deild. Craig Forrest, varamark- vörður West Ham, er í keppnisferð með landsliði Kanada og kemur eftir tværvikur. ■ IGOR Stimac, varnarmaður West Ham, segir að dómarar í Eng- landi séu markvisst að reyna að koma Paolo Di Canio úr jafnvægi til að hefna fyrir atvikið í fyrra þeg- ar Di Canio hrinti Paul Alcock dómara. Það sé bara tímaspursmál hvenær Di Canio gefist upp og yfir- gefi England. ■ DI CANIO var á suðupunkti í leiknum við Bradford á laugardag og litlu munaði að hann gengi af velli eftir að hafa þrívegis verið neitað um vítaspyrnur. ■ HORACIO Carbonari og Stefan Schnoor, vamarmenn Derby, meiddust í síðustu viku og misstu af leik liðsins við Everton um helgina. Darryl Powell og Lars Bohinen vora einnig frá vegna meiðsla. Manchester United hafði ekki tapað á St. James Park eftir 5:0-skellinn fræga árið 1996, og fyrstu 25 mínútumar leit ekki út fyr- ir að nein breyting yrði á því. En þá skoraði Duncan Ferguson fyrir Newcastle, gegn gangi leiksins, og þar með tók hans lið völdin. Um miðj- an síðari hálfleik fékk Roy Keane, fyrirliði Manchester United, sitt ann- að gula spjald og var þar með rekinn af velli. Eftirleikurinn varð New- castle auðveldur og Alan Shearer skoraði tvívegis á lokakaflanum. Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var ekki sáttur við dómar- ann, Stephen Lodge, og sagði hann hafa verið full ákafan í að reka Keane út af. Ferguson sagðist hins vegar ekki geta afsakað framkomu leik- manna sinna, Andy Coles og Jaap Stams, sem fengu gul spjöld fyrir að missa stjóm á skapi sínu. „Það er aldrei hægt að réttlæta slíkt og leik- mennirnir eiga að vita það,“ sagði Ferguson. Alan Shearer þakkaði Bobby Robson, stjóra Newcastle, sigurinn og framgöngu liðsins undanfarnar vikur. „Robson er ótrúlega ferskur og áhugi hans er magnaður. Hann hefur gjörbreytt öllu hjá okkur. Robson getur stjómað liði okkar langt framundir áttrætt," sagði Shearer en Robson verður 67 ára í vikunni. Harkan allsráðandi hjá Leeds og Tottenham Leeds var ekki sannfærandi gegn Tottenham en náði stigunum þremur ogþað skipti öllu máli. Leikurinn ein- kenndist af mikilli hörku og átta gul spjöld fóra á loft. Það rauða hefði átt rétt á sér í einhverjum tilvikum, sér- staklega þegar Ian Bowyer hjá Leeds braut illa á Stephen Clem- ence. Framganga hans hleypti leikn- um upp, leikmenn liðanna slógust í kjölfarið og illskan var allsráðandi til leiksloka. Harry Kewell skoraði eina mark leiksins en hann fór meiddur af velli um miðjan síðari hálfleik. David O’Leary, stjóri Leeds, var ekki sammála því að hans menn hefðu leikið gróft og taldi meira að segja að Bowyer hefði ekki brotið illa af sér. „Við getum ekkert að því gert þótt leikmenn Tottenham standi ekki í lappirnar. Þeir hafa líklega ekki verið með góða takka undir skónum því mitt lið er ekki gróft. Þetta var fyrst og fremst mikil barátta," sagði O’Leary. George Graham, stjóri Tottenham, var afar ósáttur við að Gary Kelly fengi ekki rauða spjaldið fyrir að brjóta á David Ginola, sem var að sleppa einn í gegn. Svo gæti farið að enska knatt- spymusambandið sektaði bæði liðin fyrir óprúðmannlegan leik. Collymore kom á óvart Stan Collymore mætti til leiks með Leicester í Watford og lék vel þrátt fyrir að hafa ekkert spilað í langan tíma hjá Aston Villa. „Ég var hissa á að hann skyldi end- ast allan leikinn en hann lyfti okkar mönnum verulega og það var eftir- vænting í loftinu í kringum liðið. Það verður fróðlegt að sjá hvemig hann spjarar sig á næstunni,“ sagði Martin O’Neill, stjóri Leicester. Leikurinn endaði 1:1 og það var Nordin Wooter sem jafnaði fyrir Watford í byrjun síðari hálfleiks. Heiðar Helguson var í framlínunni með Wooter en fékk engin opin færi. Stigið dugar skammt fyrir Watford, enda sagði stjórinn, Graham Taylor, að sennilega væri orðið of seint fyrir liðið að bjarga sér. Hann væri þó ánægður með leikinn og að lykilmenn væra að koma aftur inn eftir meiðsli. Di Canio afgreiddi Bradford í níu marka leik West Ham átti ótrúlegan enda- sprett gegn Bradford, sem stefndi í góðan útisigur á Upton Park eftir að hafa komist í 2:4. En varnarmenn Bradford réðu ekki við Paolo Di Can- io sem skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö - sigurmarkið fyrir Frank Lampard sex mínútum fyrir leikslok, 5:4. Southampton vann sinn annan sig- ur í röð eftir að Glenn Hoddle tók þar við stjóminni og lagði nú Sheffield Wednesday, 0:1, í fallslag á Hillsbor- ough. Joe Tessem skoraði sigur- markið um miðjan fyrri hálfleik. Joe-Max Moore, bandaríski sókn- armaðurinn hjá Everton, skoraði sitt fjórða mark í fimm leikjum fyrir fé- lagið í 2:1 sigri á Derby. Coventry komst í 3:0 eftir 18 mín- útur gegn Sunderland, sem þar með hefur ekki unnið í sjö leikjum í röð og er dottið niður í sjötta sætið. Must- apha Hadji var fljótur að gera vart við sig eftir fjarveruna í Afríku- keppni landsliða því hann lagði upp fyrsta markið og skoraði mark núm- er tvö. Sunderland minnkaði muninn í 3:2 undir lokin en átti aldrei mögu- leika á stigi. „Þetta eru engar ýkjur en við hefð- um átt að vera 7:0 yfir í hálfleik. Mönnum hér ber saman um að lið Coventry í dag sé það skemmtileg- asta í sögu félagsins," sagði Gordon Strachan, stjóri Coventry, sem var afar stoltur af sínum mönnum. Ánægður með Val og Egil RON Noades, knatt.spyrnustjóri Brentford, er ánægður með íslensku piltana tvo, Val tílfarsson úr Víkingi og Egil Atlason úr KR, sem hafa verið til reynslu hjá enska félaginu í rúma viku. „Þetta eru ungir strákar og ansi góðir. Það var ekki al- veg að marka leikinn þeirra með varaliðinu í síðustu viku því þeir léku ekki sínar stöður, en þeir stóðu sig samt vel,“ sagði Noades við enska fjölmiðla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.