Morgunblaðið - 19.02.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.02.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 35 LISTIR Leikhópurinn Norðanljós sýnir f samvinnu við Leikfélag Akureyrar Skækjan Rósa á fjöl- unum fyrir norðan Morgunblaðið/Kristján Saga Jónsdóttir í hlutverki skækjunnar Rósu í sýningu Leikhópsins Norðanljósa á Akureyri, en leikritið verður frumsýnt í kvöld. Morgunblaðið/Kristj án Saga Jónsdóttir, Edvard Fugle og Helga E. Jónsdóttir bera saman bæk- ur sínar en þau þijú mynda Leikhópinn Norðanljós og er uppsetning leikritsins um skækjuna Rósu fyrsta verkefni hópsins. LEIKHÓPURINN Norðanljós í samvinnu við Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld, laugardags- kvöldið 19. febrúar, leikritið Skækjan Rósa eftir José Luis Martín Desealzo í þýðingu Örnólfs Árnasonar. Um er að ræða einleik og fer Saga Jónsdóttir með hlutverk skækjunnar Rósu. Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttir og leikmynd og búninga gerir Edvard Fuglo, en hann er frá Færeyjum. Þau þrjú mynda Leikhópinn Norðanljós, en nafn sitt dregur hann m.a. af því að Helga og Saga eru að norðan, frá Akureyri, og Edvard telst einn- ig vera að norðan, er frá Klakksvík í Færeyjum. Feður þeirra stall- systra, Jón Kristinsson, faðir Helgu, og Jón Ingimarsson, faðir Sögu, létu báðir til sín taka á árum áður hjá Leikfélagi Akureyrar. Þær Saga og Helga hafa áður starfað saman að eftirminnilegri uppsetningu á leikritinu Barpar í Borgarleikhúsinu. Edvard kom inn í hópinn með þeim hætti að hann og Saga kynntust í Færeyjum þeg- ar hún setti upp leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, Þrek og tár árið 1998, en hann sá um leik- myndina. Hópurinn var myndaður kringum þessa sýningu, Skækjuna Rósu, sem reyndar á líka rætur að rekja norður, er frá norðurhluta Spánar. Félagarnir þrír töldu alls ekki óvíst að um yrði að ræða framhald á samstarfinu. „Við get- um vel hugsað okkur það,“ sagði Saga. í leikritinu segir frá mið- aldra gleðikonu sem býr ein í fel- um í gömlu hóruhúsi sem búið er að loka. „í leikritinu segir hún sögu sína en út í gegnum leikinn talar hún við Krist, sem þarna er uppi á háaloftinu hjá henni í formi risavaxins líkneskis," sagði Helga. Sagan gerist á Spáni en Rósa missti foreldra sína í borgarastyrj- öldinni sem þar geisaði 1936-1939. „Hún varð fyrir miklum missi og líf hennar einkennist mjög af þeim mikla ótta sem býr innra með henni, hún óttast mjög að missa þá sem hún elskar,“ sagði Saga um Rósu sem hún mun túlka á fjölum Samkomuhússins á Akureyri næstu vikurnar. „Þrátt fyrir áföll í lífinu er hún lífsglöð og skemmtileg og hún hef- ur sérstaka hæfileika til að lifa af í hörðum heimi. Hún býr yfir mikl- um styrk og sál hennar er hrein þótt það sé í mótsögn við það starf sem hún sinnir," bætir Helga við. Kristslíkneskið farið víða um Norðurlönd Ákveðinn atburður sem varð í hóruhúsinu leiðir til þess að því er lokað en Rósa flýr upp á háaloftið, þar sem verið hafði griðastaður gleðikvennanna og þar á hún stundir með Kristi. Líkneskið sem notað er í leikritinu á Akureyri er eftir norskan listamann, Karel Hlavaty, en hann lést fyrir fáum mánuðum. Það hefur áður verið notað víða um Norðurlönd þar sem þetta.leikrit hefur verið sýnt. Það hefur hins vegar aldrei verið sýnt á Islandi þannig að um frumsýningu á verkinu er að ræða hér á landi. „Þetta er alls ekki þungt og al- varlegt verk, þrátt fyrir alvarlegan undirtón er í því gamansemi og það er mjög manneskjulegt. Rósa er kjaftfor og lætur ýmsa hafa það óþvegið, hún á það til að ræða við Krist á frjálslegan hátt, en fyrir henni er Kristur manneskja sem hún tjáir bæði gleði sína og sorg. Hún talar líka við hann um skoðan- ir sínar á þjónum kirkjunnar og á þjóðfélaginu yfirleitt," sagði Helga. Saga sagði það vissulega nokk- urt átak að leika Rósu, það væri alltaf erfitt að takast á við einleiki. „Þetta er ögrandi verkefni, þótt það sé erfitt er það líka mjög skemmtilegt,“ sagði hún. Einn fremsti myndlistarmaður Færeyja Höfundurinn, José Luis Martin Descalzo, var Spánverji, hann var kaþólskur prestur og heimspeking- ur en starfaði lengst af ævi sinnar sem blaðamaður og ritstjóri auk þess að skrifa sögur og leikrit. Hann vann til fjölda verðlauna á ferli sínum, en hann lést árið 1991. Edvard Fuglo er einn af fremstu myndlistarmönnum Færeyja af yngri kynslóðinni. Hann opnaði nú nýlega sýningu á verkum sínum i Listaskálanum í Þórshöfn - fékk naumlega leyfi þeirra stallsystra að bregða sér frá til að opna. Þá er að koma út þessa dagana bókin Vængjað myrkur eftir William Heinesen með myndskreytingum hans, en Mál og menning gefur bókina út. Kappkostað verður að hafa bókina til sýnis og sölu á sýn- ingum Norðanljósa í Samkomuhús- inu á Akureyri. Níu grafík- listamenn í Galleríi Reykjavík SÝNING níu graffldistamanna verð- ur opnuð í dag, laugardag, kl. 16 í Gallern Reykjavík, Skólavörðustíg 16 og ber sýningin yfirskriftina níu. Listamennimir em: Bima Matth- íasdóttir, Guðmundur Ármann, Jó- hanna Sveinsdóttir, Helgi Snær Sig- urðsson, Marilyn Herdís Mellk, Sigurveig Knútsdóttir, Valgerður Björnsdóttir.Valgerður Hauksdóttir og Þorgerður Sigurðardóttir. Sýningin stendur til 4.mars og er opin virka daga 10 til 18, laugardaga 11 til 16 og sunnudaga 14 til 17. Grafíklistamennirnir sem sýna í Galleríi Reykjavík. M-2000 Laugardagur 19. febrúar NORRUT. Opnun sýningar í Listasafni ASÍ kl. 16 í Listasafni ASÍ munu fjórar norrænar listakonur sýna verk byggð á forsendum veflistar og þrívíddarskúlptúra. Sýnendur em Guðrún Gunnarsdóttur (Reykja- vík), sem sýnir m.a. þráðarskúlpt- úra, Inger-Johanne Brautaset (Bergen), Agneta Hobin (Hels- inki) og Ulla-Maija Vikman (Hels- inki). Forskot á sæluna Kringlan kl. 14 Arnar Jónsson leikari flytur hluta úr Job - Þjáning manns - einleik sem fluttur verður í fullri lengd í Neskirkju 27. og 29. febr- úar. Kynningamar í Kringlunni, „Forskot á sæluna“, eru haldnar á sama tíma hverjum laugardegi þegar gestum og gangandi er boð- ið upp á sýnishom af völdum við- burðum næstu daga. Nýjar bækur • ÚT er komin ný útgáfa af ritinu Stjórnskipunarréttur eftir Gunnar G. Schram prófessor, aukin og endurbætt. Ritið kom fyrst út 1997. Síðan hefur stjórnarskránni verið breytt á sl. vori. Voru þá gerðar breytingar á kjördæmamörk- um, fjölda þing- sæta í kjördæm- um og úthlutun þeirra að loknum alþingiskosningum. I nýju útgáf- unni er gerð grein fyrir þessum breytingum og getið nýrra laga sem sett hafa verið síðustu árin og varða stjórnskipun landsins. Má þar m.a. nefna ný sveitarstjórnar- lög, lög um veiðar og vinnslu er- lendra skipa í fiskveiðilandhelg- inni, breytingar á dómstólaskipuninni, ný lög um lög- menn, loftferðir, náttúruvernd, Háskóla íslands og ný áfengislög, svo nokkuð sé talið. í ritinu eru öll ákvæði stjórnar- skrárinnar skýrð og ítarlega fjall- að um æðstu stjórn ríkisins, m.a. völd forseta og ráðherra. Þá er rætt um gildi alþjóðasamninga í ís- lenskum rétti, m.a. EES-samning- inn og þá mannréttindavernd sem íslendingar og erlendir menn sem hér búa njóta, og hvernig mann- réttindaákvæðin veita mönnum vernd gegn ágangi ríkisvaldsins. „Hér er um ómissandi rit að ræða fyrir alla þá sem vilja kynna sér æðstu lög ríkisins og réttindi og skyldur borgaranna á grundvelli þeirra," segir í kynningu. Höfundur bókarinnar er pró- fessor í stjórnskipunarrétti og þjóðarrétti við Háskóla Islands í Reykjavík. Háskólaútgáfan gefur bókina út en hún er 683 bls. að stærð. Verð kr. 6.500.- Ljóðakvöldi frestað LJÓÐAKVÖLD sem vera átti á sunnudagskvöld með Hjalta Rögn- valdssyni á Næstabar er frestað vegna veikinda. LISTMUNIR Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð. Fyrir viðskiptavini leitum við að góðum verkum eftir Jón Stefánsson, Nínu Tryggvadóttur, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving, Þórarin B. Þorláksson, Kristínu Jónsdóttur og Louisu Matthíasdóttur. ART CALLERY Gallerí Fold :íg 14- fold@artgalieryfold.com Rauðarárstíg 14-16, sími 551 0400.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.