Morgunblaðið - 19.02.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 71
BRÉFTIL BLAÐSINS
Ar aldraðra 1999...
Hjálparbeiðni frá Samtökum
vegna sjálfsvíga
Frá Steindóri Halldórssyni:
UM þessar mundir eru samtökin að
skipuleggja ferð hringinn í kring-
um landið til þess að halda fyrir-
lestra og safna fjármagni til að gefa
út bók sem ætluð er aðstandendum
sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Bókin inniheldur reynslusögur
annarra aðstandanda og svör við
ýmsum þeim spurningum sem
vakna eftir missi ástvinar.
Bókin á sér margar líkar og er
þessi byggð á mörgum öðrum bók-
um og greinum um sjálfsvíg sem
eru skrifaðar af fólki sem bæði hafa
menntað sig í viðbrögðum við
sjálfsvígum, og eins fólki sem hefur
reynsluna af því að missa ástvin
vegna sjálfsvígs.
Þær bækur sem samtökin hafa
komist yfir eru bækur sem hafa
komist í hendur aðstandenda í
flestum löndum. Umsagnir fólks,
sem lesið hefur bækur þessar, urðu
til þess að samtökin sáu sig knúin
til að gefa út bók á íslensku.
Umsagnirnar eru úr ýmsum átt-
um, allt frá læknum og sálfræðing-
um til venjulegs fólks sem lesið
hefur þessar bækur til þess að fá
hugarró og sátt við lífið aftur.
Bókin er komin í vinnslu og þeir
sem tekið hafa að sér verkefnið eru
fólk sem hefur misst ástvin og fólk
menntað til að takast á við vanlíð-
an. Bókin verður byggð á þeim
bókum sem samtökin hafa komist
yfir.
Ytarlegt efnisyfírlit og stuttir
kaflar sem gefa svör við þeim
spurningum sem vakna hjá að-
stendendum og þeim sem standa
aðsetndendunum næst.
Samtökin voru stofnuð til að
opna augu fólks fyrir þeim gríðar-
lega vanda sem sjálfsvíg eru. Það
kann að hljóma illa, en er engu að
síður staðreynd, að sjálfsvíg eru
víðast hvar (t.d. í Bretlandi og
Bandaríkjunum) önnur algengasta
dánarorsök ungs fólks, en á íslandi
eru þau algengasta dánarorsök
ungs fólks og taka fleiri líf en
krabbamein.
Þegar einhver fellur fyrir eigin
hendi er spurningin sem brennur á
vörum allra „hvers vegna?“ Þegar
þetta kemur fyrir unga manneskju
er ringulreiðin jafnvel enn meiri.
„Hann hafði svo mikið að hlakka
til“, „hún virtist svo hamingjusöm11,
„ég hafði enga hugmynd um að
hann væri svona þunglyndur".
Þetta eru aðeins nokkrar af þeim
hugsunum sem sjálfsvíg ættingja
eða vinar kallar fram hjá þeim sem
eftir verða. Sektarkennd, rugling-
ur, reiði og einangrun eru nokkrar
þeirra tilfinninga sem vakna við
þessar aðstæður.
Hvert sjálfsmorð er harmleikur
sem allir hlutaðeigandi taka þátt í.
Eitt af því erfiðasta sem aðstand-
endur lenda í er skömmin og vand-
ræðagangurinn sem fylgir, fólk
forðast að tala um það sem gerðist
og forðast oft nána aðstandendur,
einfaldlega vegna þess að það veit
ekki hvernig það á að vera.
Við gerum okkur fyllilega grein
fyrir því að þetta gerist ekki nema
með mikilli hjálp góðra manna. Því
biðjum við þig, lesandi góður, að
hugsa til okkar og hafa samband ef
þú getur aðstoðað okkur með þau
verkefni sem fram undan eru.
STEINDÓR HALLDÓRSSON,
formaður.
Frá Margréti Hansen:
NÚ er ár aldraðra á enda og þar
með margar ráðstefnur að baki svo
og ótölulegur aragrúi af ályktunum
frá pappírshernum, en gamla fólkið
varð ekki fyrir neinum vonbrigðum,
heldur ekki öryrkjar eða aðrir lág-
launahópar, þetta fólk átti sér, sem
sé, enga von um nokkrar betrum-
bætur á kjörum sínum.
Ég á í fórum mínum gamla úr-
klippu úr DV frá 12. febr. ’94 eftir
Hauk heitinn Helgason ritstjóra,
sem ber heitið: Afnám þrísköttun-
ar... Það vill svo til að þeir þrír
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
sem stóðu að þingsályktunartillög-
unni, þau Sólveig Pétursdóttir,
Guðmundur Hallvarðsson og Vil^
hjálmur Egilsson, eru öll á núver-
andi þingi. Þess vegna vil ég spyrja
þau hvort þau hafi nokkur áform
um að bæta úr þessu á ári aldraðra?
Ég á einnig í fórum mínum aðra
úrklippu úr DV frá 12.9. ’95 eftir
Jónas Kristjánsson ritstjóra, sú ber
heitið: Þjófar á þingi, og er einnig
um skattamál. Ég vil hvetja aldr-
aða, öryrkja og alla láglaunahópa til
að verða sér úti um þessa hressi-
legu 5 ára gömlu ádrepu, sem á
vissulega rétt á að birtast enn og
aftur...
F.h. aðgerðahóps aldraðra, <
MARGRÉT HANSEN,
Ásholti 2, Reykjavík.
11B HESTOFL
r / /
ELANTRA ER KRAFTMESTI BILLINN I SINUM FLOKKI
1.395.000
BEINSKIPTUR
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
Hyundai Elantra er með 116 hestafla 16v vél sem þýðir að enginn bíll í sama stæröarflokki
er jafn kraftmikill. Þar að auki er enginn á jafn góðu verði. Staðaibúnaður: ABS hemlalæsivörn,
2 loftpúðar, útvarp/kassettutæki m/4 hátölurum, samlæsingar, vökva- og veltistýri, rafknúnar
rúður, bensínlok opnanlegt innanfrá, litað gler, samlitir stuðarar, stafræn klukka, tvöfaldir
styrktarbitar í hurðum, snúningshraðamælir, haldari fyrir drykkjarmál, krumpusvæði, bamalæsingar,
hæðarstillanleg öryggisbelti og margt fleira.
HYunoni
me/ra
afollu