Morgunblaðið - 19.03.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
67. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sendur
heim með
alnæmi
Sjálfstæðissinninn Chen Shui-bian kjörinn forseti Taívans
Kveðst vilja friðmælast
MÓSAMBÍKBÚINN Joao Joawe er
með alnæmi á lokastigi. Hann ligg-
ur á sjúkrahúsi í Maputo, höfuð-
borg Mósambík, en læknar segjast
brátt þurfa að senda hann heim því
nota þurfí rúmið undir aðra sjúk-
linga.
■ Þöglar hamfarir/Bl
við kínversk stjórnvöld
Taipei. Reuters, AFP, AP.
CHEN Shui-bian, sem hefur aðhyllst
sjálfstæði Taívans, fór með sigur af
hólmi í forsetakosningunum í landinu
Morgunblaðið/RAX
í gær og batt þar með enda á rúmlega
hálfrar aldar valdatíma flokks þjóð-
emissinna, Kuomintang. Kínversk
stjómvöld höfðu ítrekað hótað stríði
ef Taívanar kysu forseta sem aðhyllt-
ist sjálfstæði en kjósendurnir virtu
hótanimar að vettugi.
Chen lýsti því yfir eftir sigurinn að
hann vildi friðmælast við kínversk
stjórnvöld og bauðst til að fara til
Kína í því skyni. Hann bauð einnig
Jiang Zemin, forseta Kína, og Zhu
Rongji forsætisráðherra að heim-
sækja Taívan. Hann ítrekaði hins
vegar að hann myndi ekki fallast á
skilmála kommúnistastjórnarinnar í
Peking fyrir sameiningu Kína og
Taívans.
Kínversk stjómvöld sögðust ætla
að fylgjast með yfirlýsingum og að-
gerðum Chens en sögðu að úrslit
kosninganna breyttu ekki þeirri
„staðreynd" að Taívan væri óaðskilj-
anlegur hluti Kína. Kínverjar myndu
aldrei fallast á að Taívan yrði sjálf-
stætt ríki.
Chen, sem var frambjóðandi Lýð-
ræðislega framfaraflokksins, fékk
um 39% kjörfylgi og James Soong,
óháður frambjóðandi, var í öðra sæti
með 37%. Lien Chan, forsetaefni
Kuomintang, fékk aðeins 22,9% at-
kvæðanna.
Chen Shui-bian, sigurvegari kosninganna.
Um 100.000 manns söfnuðust sam-
an við höfuðstöðvar Lýðræðislega
framfaraflokksins í Taipei til að fagna
úrslitunum.
Chen var hlynntur því að Taívan
lýsti yfir fullu sjálfstæði en hefur fall-
ið frá þeirri stefnu. Hann lýsti því yfir
í kosningabaráttunni að hann hygðist
hvorki efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu umsjálfstæði né breyta
stjómarskránni og fána landsins.
Þróunin ræðst á næstu dögum
Viðbragða kínversku stjórnarinn-
ar við sigri Chens var beðið með mik-
illi eftirvæntingu í gær. Stjómmála-
skýrendur í Hong Kong töldu að
þróunin í samskipt-
um Kína og Taívans
gæti ráðist af yfirlýs-
ingum Chens á
næstu dögum.
„Kínverjar lýsa
ekki yfir stríði
strax,“ sagði Ma Lik,
þingmaður Hong
Kong á kínverska
þinginu. „Éghyggað
næstu skref Chens
verði mjög, mjög
mikilvæg. Hann
verður að fullvissa
Kínverja um að hann
hyggist ekki lýsa yfir sjálfstæði og
vilji bæta samskiptin við þá.“
Stjóm Taívans setti her landsins í
viðbragðsstöðu vegna hótana Kín-
verja þótt margir stjórnmálaskýr-
endur lýstu þeim sem eintómu orða-
skaki.
Vinstrisinnað dagblað í Hong
Kong sagði að kínverski herinn
hefði sent orrastuþotur, skriðdreka
og 60 liðsflutningavagna að borginni
Fuzhou í Fujian-héraði í suðaustur-
hluta Kína.
„Þetta er aðeins gert til að efla
stríðsviðbúnaðinn en ekki til að
hefja hernaðaraðgerðir," hafði blað-
ið eftir heimildannanni í hernum.
Sjálfstæðishugmyndir Færeyinga
Sagðir reikna með 50-
80 ára aðlögunartíma
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Gervihnöttum
Iridium eytt
New York. AP.
FARSÍMAFYRIRTÆKIÐ Iridium
hefur hætt leitinni að nýjum fjárfest-
um og bandarískur dómai-i heimilaði
því í fyrradag að eyða gervihnöttum
sínum og leggja niður farsímaþjón-
ustu við 55.000 viðskiptavini.
Iridium á 66 gervihnetti, sem
kostuðu fimm milljarða dala, and-
virði 370 milljarða króna, og ráðgert
er að láta þá brenna upp í gufuhvolf-
inu . Líklegt er að fyrstu gervihnött-
unum verði eytt innan hálfs mánað-
ar. Þangað til verður takmarkaðri
farsímaþjónustu Iridium haldið
áfram í Norður-Ameríku og e.t.v.
fleiri heimshlutum, að sögn tals-
manns Motorola, aðaleiganda Iri-
dium, sem rekur gervihnettina.
ÞAÐ getur tekið Færeyinga 50-80 ár
að ná þeim efnahagslega styrk að þeir
þurfi ekki á dönsku fjárframlagi að
halda. Þetta er að sögn Politiken og
Jyllands-Posten útkoman samkvæmt
útreikningum danska fjármálaráðu-
neytisins. Þá er reiknað samkvæmt
þeim forsendum, sem færeyska
heimastjórnin gefur sér að þurfi að
uppfylla til að Færeyjar verði sjálf-
stæðar án þess að það bitni á lífsskil-
yrðum Færeyinga.
Fréttir danskra fjölmiðla í gær af
fundi danskrar samninganefndar
undir forystu Pouls Nyrups Rasmus-
sens forsætisráðherra og færeyskrar
nefndar undir forystu Anfinns Kalls-
bergs lögmanns fjölluðu annars mest
um það áfall, sem fundurinn hefði
orðið Færeyingum. Ástæðan var for-
senda Nyraps um 3-4 ára aðlögunar-
tíma Færeyinga í stað 10-20 ára, sem
Færeyingar hafa sjálfir talað um.
Fyrirsögnin í Jyllands-Posten var
„Nyrap ögrar Færeyingum". Allt
bendir til að danska þingið standi ein-
huga að baki hugmyndum Nyraps
um skamman aðlögunartíma.
Ólíkir útreikningar
Skilningur danska fjármálaráðu-
neytisins á forsendum Færeyinga er
að í raun feli þær í sér að Danir gefi
eftir færeyskar skuldir upp á 4,4
milljarða danskra króna, um 44 millj-
arða íslenskra króna, auk þess sem
Elnahagslegur
ábati 3-4 milljarðar
FÓRNUÐUM OKKUR
FYRIR MARKAÐS-
HLUTDEILDINA
Danir eigi að halda áfram að leggja
Færeyingum til 650 milljónir danskra
króna á ári þar til þjóðarframleiðsla
þeirra hafi vaxið úr núverandi 6,5
milljörðum danskra króna í 20 millj-
arða. Með þessar forsendur í huga
reiknar ráðuneytið með að það muni
taka á milli 51 og 82 ára að ná þessum
vexti. Með því að samþykkja fær-
eysku forsendumar muni Danir þvi
taka á sig efnahagslegar skuldbind-
ingar um ófyrirsjáanlega íramtíð.
Afstaða Dana felur einnig í sér að
auk þess að missa framlag þeirra upp
á meira en milljarð danskra króna ár-
lega verða Færeyingar væntanlega
að greiða sérstaklega fyrir ýmsa
þjónustu, sem þeir óskuðu frá Dön-
um, til dæmis á sviði mennta-, heil-
brigðis-, vamar- og utanríkismála.
Ovænt tilboð Nyraps kom eins og
sprengja yfir Færeyjar. í viðtali við
SocMurin segir Jóannes Eidesgaard
að tilboð Nyrups þýði að öll fullveldis-
áætlunin hafi hranið. Eidesgaard er
þingmaður færeyska Jafnaðarflokks-
ins, systurflokks Jafnaðarmanna-
flokks Nyraps.
MORGUNBLAÐIÐ 19. MARS 2000