Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR KVIKMYNDIR B í n h ö 11 i n, Kringlubíó THE HURRICANE*** Vfe Leikstjóri Norman Jewison. Hand- ritshöfundur Dan Gordon. Tón- skáld Christopher Young. Kvik- myndatökustjóri Roger Deakins. Aðalleikendur Denzel Washington, Vicellous Reon Shannon, Deborah Kara Unger, John Hannah, Dan Hedaya, Clancy Brown, Harris Yul- in, Rod Steiger. Lengd 140 mín. Universal 1999. HOLLYWOOD hefur orð á sér fyrir að fara offari er hún tekur á viðkvæmum þjóðfélagsmálum. í The Hurricane fær hún tækifæri sem Norman Jewison og félagar nýta til hins ýtrasta. Til að byrja með liggur við að kvikmyndagerðar- mennirnir skjóti sig í fótinn er þeir lýsa óréttlætinu og kynþáttahatrinu sem eru örlagavaldarnir í lífi hnefa- leikamannsins þeldökka Rubins „Hurricane" Carter (Denzel Was- hington). Sem hefði getað orðið heimsmeistari, einsog Bob Dylan sönglaði í frábæru lagi og texta sem ýtti við upptöku á máli boxarans. Sem betur fer breytir myndin fljótlega um tón, hvítir verða ekki lengur alvondir og svartir eðal- menni og Jewison er fyrirgefið þar sem hann er að reyna að setja áhorf- andann inn í andrúmsloftið sem réð því að Rubin Carter var dæmdur saklaus til langrar vistar á betrun- arhæli aðeins 11 ára gamall. Aðal- hvatamaðurinn að þeim stranga dómi var lögreglumaðurinn Della Pesca (Dan Hedeya). Arin líða, ungi maðurinn sleppur loksins út í frels- ið, tekur að stunda hnefaleika með frábærum árangri. Þegar leiðin virðist vera komin að heimsmeist- aratitli reiðir Della Pesca aftur til höggs, ákærir Carter, sem nú hefur hlotnast viðurnefnið Hurricane vegna frækni sinnar í hringnum, fyrir hrottalegt morð á þrem bar- gestum á heitri sumarnótt í New Orð eru til alls fyrst Jersey. Ólyktin lá í loftinu frá upphafi, svo virtist sem tímasetningunni hefði verið hagrætt strax í upphafi, vitni breyttu framburði sínum, Carter í óhag. Hann barðist frá fyrstu stundu fyrir sakleysi sínu, skrifaði meðal annars bók í fangels- inu um sitt ógæfusama líf og mála- tilbúnaðinn, þar sem sannleikurinn og réttur hans var fótum troðinn. Fjöldi lista- og stjórnmálamanna (með Dylan í fararbroddi) komu að málinu - sem var að vísu tekið upp aftur en án árangurs. Þá gerist kraftaverkið. Lesra (Vicllous Reon Shannon), 15 ára blökkupiltur, finnur af tilviljun bók Carters í ruslagámi. Hún er fyrsta bók drengsins sem hefur verið fóstraður af þremur Kanadamönn- um sem urðu varir við óvenjulegar gáfur hans við ömurlegar kring- umstæður. Lesra og Kanadafólkið; Lisa (Deborah Kara Unger), Sam (Liev Schreiber) og Terry (John Hannah) komast við af lestrinum og ákveða að taka til óspilltra málanna. Ganga í lið með lögfræðingum Car- ters (sem eru búnir að gefa upp von- ina einsog fórnarlambið), hefja rannsókn sem ber árangur að lokum með fundi nýrra sönnunargagna - er Carter hefur setið saklaus í 19 ár bak við lás og slá. Sem fyrr segir er myndin áber- andi kaflaskipt, hefst á óþarflega svart/hvítu óréttlæti, gegnsýrðu kynþáttafordómum, ofbeldi og óréttlæti. Skiptir hinsvegar gjör- samlega um gír þegar Lesra og vin- ir hans koma til skjalanna og blása lífsvon í brjóst Carters. Eftir vafa- saman málaflutning gerist Hurri- cane einhver tilfinningaríkasta mynd síðari ára þar sem ber hæst ósvikið samband Lesra og boxarans sem þeir túlka óviðjafnanlega, stór- leikarinn Washington og nýliðinn Shannon. Samleikur þeirra kemur við hjartað. Magnaður leikur er einn af góðum þáttum í hágæðamynd sem einnig státar af einstaklega vel heppnuðu leikaravali í minni hlut- verkum. Hedeya er traustur sem fyrr í hlutverki óþokkans Della Pesca. Kanadabúarnir eru í firna góðum höndum Ungers, Schreibers og Hannah (The Mummy). Clancy Brown, Rod Steiger, Haris Yulin og David Paymer fylla óaðfinnanlega minni hlutverkin. Tónlistin og takan og samtölin eru á svipuðum nótum. Afraksturinn er óvenju tilfinn- ingaheit mynd og vel gerð þar sem gamli góði Norman Jewison (In the Heat Of the Night (67), Moonstruck (87)), á heldur betur óvænta endur- komu. Hurricane er þó alls ekki gallalaus frekar en önnur mannanna verk. Illmennið Della Pesca er óþægilega illa útskýrð persóna. Hvaða hefndarþorsti fær hann til að gera allt til að leggja líf saklauss manns í rúst? Eitthvað meira en kynþáttahatur og óvenjuleg mann- vonska hlýtur að búa að baki. Sjálf- sævisögulegar myndir um misrétti og óréttlæti verða heldur aldrei full- komlega trúverðugar. Það er í sjálfu sér óyfirstíganlegur þröskuldur og fyrirgefanlegur þegar árangurinn er jafnhrífandi og hjá Jewison, Washington og Shannon. Sæbjörn Valdimarsson MB ÉB A * 1 0k". |H R . tínno i; t 9Hr ■ Morgunblaðið/Jim Smart Skólahljómsveit Mosfellsbæjar hefur á að skipa um 130 börnum og ungmennum. AÐALFUNDIR 2000 / VÁXTAR SJÓÐURINN 27. mars 2000, kl. 16:15 Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi. Dagskrá: HLUTABRÉFA SJOÐURINN 27. mars 2000, kl. 17:00 Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, sbr. 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga til breytinga á 4. gr. samþykkta félagsins um aukningu hlutaQár með áskrift nýrra hluta. 3. Tillaga um heimild til sljómar félagsins um kaup á hlutabréfum félagsins skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 4. Önnur mál, löglega upp borin. 1. Venjuleg aðalfundarstörf, sbr. 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga til breytinga á 4. gr. samþykkta félagsins um aukningu hlutafíár með áskrift nýrra hluta. 3. Tillaga um heimild til sljómar félagsins um kaup á hlutabréfum félagsins skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Erindi: Össur hf. - Útrás á alþjóðamarkaði. Jón Sigurðssonforstjóri Össurar hf. flytur erindi um starfsemi fyrirtœkisins. Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Kirkjusandi, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Hluthafar eru hvattir til aö mæta. REKSTRARAÐILI: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900 • Veffang: vib.is • Netfang: vib@vib.is Tónleikar Skólahljóm- sveitar Mosfells- bæjar SKÓLAHLJÓMSVEIT Mosfellsbæj- ar hcldur árlega tónleika í dag, sunnudag, kl. 16 í nýjum sam- komusal Varmárskóla. Tónleik- arnir eru helgaðir minningu Lárus- ar Sveinssonar, tompetleikara og kórstjóra, sem lést fyrr á þessu ári en hann tók virkan þátt í tónlistar- lifinu í Mosfellsbæ um langt árabil. Reykjalundarkórinn kemur einnig fram á tónleikunum. I Skólahljómsveit Mosfellsbæjar eru á bilinum 120-130 börn og ung- menni. Hún hefur nýlokið við gerð geislaplötu. mbl.is __/\LLTAf= en-TH\SA£y A/ÝTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.