Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 5
LhýJCBðEpá
Samskipti yfir GSM,
Internet og gervihnetti
r
l
Netverk er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir gagnaflutninga um
þráðlaus fjarskiptakerfi með takmarkaða flutningsgetu. Með
MarStar, FoneStar og nú síðast WapStar hefur Netverk skipað
sér í fremstu röð fyrirtækja á þessu sviði.
Með WapStar geta farsímanotendur nýtt sér kosti Internetsins, hvar
sem þeir eru. WapStar notandinn getur unnið með tölvupóstinn (sótt,
svarað, fra,msent og eytt) á auðveldan og öruggan hátt. Með WapStar
getur notandinn tengst öllum pósthólfum sem hann notar í dag.
FoneStar gerir farsímanotendum kleift að flytja tölvupóst og hvers
kyns viðhengi úr fartölvunni um GSM kerfið með mun meiri hraða og
öryggi en fiingað til hefur þekkst. Með þvf að auka nýtinguna á lágri
bandvídd farsímakerfisins, eykur FoneStar sendingarhraðann um allt
að áttatfu prósent og sparar þannig tíma og peninga fyrir notandann.
MarStar hugbúnaðurinn tryggir örugga og hagkvæma gagnaflutninga
milli skips1 og lands um gervihnattakerfi á borð við INMARSAT. Með
þróaðri samskiptatækni, sem meðal annars felst í því að senda og
taka á móti gögnum samtímis og þjöppun gagna, styttist sendingar-
tíminn allt að fimmfalt.
Nánari upplýsingar um Netverk fást á heimasíðu fyrirtækisins,
netverk.is eða með þvf að senda tölvupóst á netverk@netverk.is
VERK
gsp.