Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 48
•p 48 SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens /AÉR VAR KALT Á FÓTUNUM SVO ES KLÆDDI MIS í SJÖ SOKKAPÖR ( ENÞÁKOMSTÉS \ | ( EKKII SKONA ) | ÞÁ FÓR ÉS AÐ VELTA ÞVÍ FYRIR MÉR ■ ITL HVERS ES ÞyRFTT SKÓNA 10^' Tw /7 P r )/(ÉG HELD ÉS SNÚI ' \ MÉRA6EIN- (hverju OÐRU^- l J?MPAVf£> 10-1 Hundalíf SVO PESARPU FER6 AFTUR í VINNUNA ÞÁ SES6UPEIM AÐÉG HAFIFARIÖ Á ' SOLFVÖLLINN Smáfólk I HEAR I GOT TRAPEP BACK, CHARLE5,50 I JUST WANTEPTO 5AY 600PBYE.. IGUE55IWA5NTMUCH HELP TOYOUR BA5EBALLTEAM..I PIPN'TSCORE A 5IN6LE 60AL.. Ég frétti að kaupin á mér hefðu gengið til baka, svo mig langaði bara til að kveðja. Líklega gerði ég liðinu ekki mikið gagn. Ég skoraði ekki eitt einasta mark. Ég náði ekki einu sinni fríkasti. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Afnotagjöld Sjónvarpsins Frá Geir Hólmarssyni: TIL AÐ sjónvarpsstöð geti haft tekjur af auglýsingum þarf hún að hafa dagskrá sem smalar saman áhorfendum sem síðan eru flokk- aðir í markhópa og aðgangur að þeim seldur í formi auglýsinga- tíma. Auglýsand- inn hefur að öllu jöfnu aðeins áhuga á einum markhóp, fólkinu sem er að eyða peningum. Fólk sem er á milli fenn- ingar og fertugs. Því verður sjón- varpsstöðin að birta sjónvarpsefni sem dregur þetta fólk að skjánum. Það er því ljóst að það er ekki sjón- varpsstöðin sem ræður efnisvalinu heldur áhorfendur sem auglýsendur vilja fá aðgang að. Það er ætlast til þess að Sjónvarpið sé yfir þetta haf- ið án þess að því sé gert það kleift. Það er ætlast til að Sjónvarpið sinni menningarmálum og ýmsu öðru sern ekki er líklegt til vin- sælda. A sama tíma er því gert að hafa tekjur af sölu auglýsinga til að mæta útlögðum kostnaði. Afnotagjald Sjónvarpsins er svo lágt að það stendur ekki undir dag- legum rekstri. Því þarf Sjónvarpið í auknum mæli að mæta fjárþörf sinni með auglýsingum. Þar með er dagskrárgerðin valin þar sem Sjónvarpið hefur ekki efni á öðru en að elta markaðinn. Við lestur á fundargerð 3445. fundar útvarps- ráðs segir í umræðunni um fjár- hagsáætlun „Þótt verulegur sparn- aður hafi náðst undanfarin ár vægi það engan veginn upp á móti launa- hækkunum og hækkun annars til- kostnaðar. Síðustu hækkanir af- notagjalds hefðu verið 4% 1. febrúar 1993 og síðan 5% 1. desem- ber 1998. Aukning auglýsingatekna á þessu tímabili hefði engan veginn brúað bilið milli tekna og gjalda. I fundargerð kemur fram að það er gert ráð íyrir því að fjárhagsáætlun verði lokað með 100.000.000 króna halla. Sjónvarpið á því tvo kosti og báða vonda, annars vegar að fara fram á hækkun afnotagjalda eða að auka auglýsingar í dagskránni. Ég er ekki tilbúin að sætta mig við það að auglýsingar verði undir, ofan á og inni í öllum dagskrárliðum Sjónvarpsins, bara svo það geti haft í sig og á. Ef við ætlum að halda ríkisrekna sjónvarpsstöð verður það að vera gert með þeim hætti að sómi sé að en ekki ósómi. Við verð- um því að hækka afnotagjöldin mik- ið, ég segi það aftur, við verðum að hækka afnotagjöldin mikið og ítreka það með því að segja við verðum að hækka afnotagjöldin mikið. Það er ekki sanngjöm krafa að við séum skylduð að greiða fyrir aðgang kaupmanna að neytendum. Því á að hætta að birta auglýsingar í Sjónvarpinu og við eigum samhliða að gera kröfu um aukin hlut metn- aðarfulls dagskrárefnis. Það er nauðsynlegt í framhaldi af því að breyta útvarpslögum á þann hátt að annað hvort sé gefið leyfi fyrir áskriftarstöð eða auglýsinga- stöð. Yfirburðir íslenska útvarps- félagsins á almenna markaðinum eru samkeppnishamlandi þar sem þeir synda um pollinn í björgunar- beltinu sínu sem afruglara/áskrift- arkerfi þeirra er, og berjast um auglýsingamolana við þá sem engar áskriftir hafa. Það er því eðlilegt að stjórnvöld lagi jarðveginn á þann hátt að aðrar sjónvarpsstöðvar eigi möguleika á að veita Islenska út- varpsfélaginu eðlilega og heilbrigða samkeppni. GEIR HÓLMARSSON, Hulduhlíð 30, Varmá. Oánægja með nýjan kj arasamning Frá Sigurjónu M. Lúthersdóttur: EFTIR nýgerða kjarasamninga Flóabandalagsins get ég ekki orða bundist. Vanvirðing er skilaboðin til okk- ar sem skilum áttastundavinnu- degi og hljótum í hækkun tæplega 14% á 3 árum. Eg er mjög undrandi á því að þeir sem semja fyrir okkur skuli ekki hafa meiri metnað og hug á því að berjast betur fyrir fólkið. Ég er viss um að þeir myndu ekki treysta sér til að lifa á þessum laun- um. Er ekki bara með þetta fólk eins og marga aðra, ef þeir hafa nóg fyrir sjálfa^ sig er þeim sama um okkur hin? Ég tel mig t.d. hafa mjög lítið út úr þessum samningum. Auðvitað þurfa lægstu laun að hækka, en hvað með fólkið sem stundar vinnu sína af samviskusemi og vinnur árum saman á sama vinnustað? Mér hlýtur að finnast að okkar laun ættu að hækka meira en raun ber vitni. Það er ein- faldlega niðurlæging að taka við laun- um sínum sem eru rúmlega 90.000 kr. á mánuði fyrir 100% vinnu í dag. Eflaust segja samningsmenn að meiru er ekki hægt að ná fram. Er kosið verður um þennan samning skora ég á alla sem hlut eiga að máli að segja nei við þessum samningum. SIGURJÓNAM. LÚTHERSDÓTTIR, Seilugranda 2, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þáðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.