Morgunblaðið - 08.06.2000, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
______
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Sæbjargarbikarinn afhentur í tiunda og síðasta sinn. Fremri röð f.v.: Atli Leifsson, Gísli Hallgrímsson, Hafþór
Þorvaldsson, Þórarinn Óskarsson, skipverjar á Hamrasvani SH. Aftari röð: Hilmar Snorrason, Einar Örn Jóns-
son, Valgeir Helgason, Þráinn E. Skúlason, Eiríkur Aðalsteinsson, Jóhannes Bjarnason og Selma Sigurðardótt-
ir hjá Slysavarnaskóla sjómanna.
Hamrasvanur SH hlaut
Sæbj argarbikarinn
SÆBJARGARBIKARINN var af-
hentur í 10. sinn á sjómannadaginn
en hann er veittur þeirri áhöfn sem
að mati Slysavarnaskóla sjómanna
skaraði framúr í námi við skólann á
starfsárinu. Bikarinn var gefinn af
Jóhanni Páli Símonarsyni, sjómanni,
árið 1990 og skyldi hann vera farand-
bikar í 10 ár. Þetta er því í síðasta
skipti sem bikarinn er veittur skips-
höfn en að þessu sinni kemur bikar-
inn í hlut áhafnarinnar á Hamra-
svani SH, undir skipstjóm Hafþórs
Þorvaldssonar. Mun bikarinn verða
varðveittur um borð í Hamrasvani
fram á næsta sjómannadag en eftir
það mun hann verða varðveittur í
Slysavarnaskóla sjómanna. Ahöfnin
á Hamrasvani sótti námskeið við
skólann um borð í skólaskipinu
Sæbjörgu í Stykkishólmi í júní á síð-
asta ári og var hún valin úr hópi
margra efnilegra áhafna.
A þeim 10 árum sem bikarinn hef-
ur verið veittur hefur eftirtöldum
skipum hlotnast sá heiður að fá bik-
arinn:
1991: Mánaberg ÓF-42
1992: Baldur
1993: Súlnafell EA-840
1994: Skafti SK-3
1995: Herjólfur
1996: Akraborg
1997: Júpiter ÞH-61
1998: Mánaberg ÓF-42
1999: Kambaröst SU-200
„Þakka fyrir
aflaheimildir44
„BER er hver að baki nema sér bróð-
ur eigi.“ Þannig hugsum við Færey-
ingar og íslendingar. Sem sjávarút-
vegsráðherra Færeyja þakka ég enn
og aftur fyrir þá velvild, sem íslend-
ingar hafa sýnt okkui’ Færeyingum
með því að veita okkur aflaheimildir
við ísland allt frá árinu 1977. Þetta
skipti sérstaklega miklu máli upp úr
1990, þegar miklir erfiðleikar voru í
færeyskum sjávarútvegi. Þótt afla-
heimildirnar væru ekki miklar voru
þær okkur Færeyingum mjög mikil-
vægar,“ sagði Jörgen Niclasen, sjáv-
arútvegsráðherra Færeyja, í ávarpi
sínu til íslenzkra sjómanna á sjó-
mannadaginn.
Hvalveiðar
Niclasen ræddi einnig um hval-
veiðar og benti á rétt okkar og
skyldu til að nýta auðlindir hafsins á
sjálfbæran hátt. „Öll veröldin talar
um viðfræðilegt mat og í Norður-
Atlantshafi höfum stærsta forðabúr
veraldar. Við, sem búum á norður-
slóðum, erum ekki ógnun við þetta
mikla vistkerfi, heldur er það hin
mikla mengun iðnríkjanna, sem
þrýsta á okkur um ójafnvægi í nýt-
ingu auðlindanna, með því að leyfa
sjávarspendýrum óhefta samkeppni
við okkur um matinn úr sjónum,“
sagði Niclasen.
Hann sagði að það væri af slæmri
samvizku sem íbúar iðnríkjanna létu
af hendi miklar fjárfúlgur til að
styðja umhverfisvemdarsamstök í
baráttunni gegn okkur. Gæfum við
eftir rétt okkar til nýtingar á auð-
lindum hafsins, gerðum við grann-
þjóðum okkar erfitt fyrir og hann
væri hrædddur um að næst yrði
reynt að banna allar fiskveiðar.
Morgunblaðið/Þorkell
Jörgen Niclasen flytur erindi sitt
á sjómannadeginum í Reykjavík.
Engin uppgjöf
„Takið eftir veiðum okkar á mar-
svíni (grindhval). Það ætti að vera af-
ar auðvelt hjá verndunarsinnum að
stöðva þær. Þær eru mjög blóðugar
og auðvelt að taka af þeim myndir.
Við höfum verið undir miklum þrýst-
ingi í 15 ár án þess að gefa eftir. Nið-
urstaðan er sú að ferðamennska hef-
ur aldrei verið meiri í Færeyjum og
aldrei hefur verið eins auðvelt að
selja fiskinn, þrátt fyrir að við veið-
um hvalinn áfram. Spumingin er svo
sú: Eigum við að berjast eða slökkva
ljósið og hverfa á braut.“
OPHW
V\ð crttW
unv4sm
MARkaÐUR
Við Faxafen
í Reykjavík
(1 bláu húsunum)
v\ð h\'ðina
£ Mc®°na^5
gsa.'- ”
i
12-2°
to
Olp*
yindþétt
VatnsheW
meðútöndun
Lagersala
á vönduðum útivistarvörum
frá heimsþekktum framieiðendum.
Takmarkað magn af hverri vöru.