Morgunblaðið - 08.06.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000 33
ERLENT
Hjálparstarf eflt vegna jarðskjálftanna á Súmötru síðastliðinn sunnudag
Reuters
Læknir sinnir hér hinum átta ára gamla Jefrizal, sem var meðal þeirra
sem slösuðust íjarðskjálftanum í Bengkulu á sunnudag.
Kona sem búsett er í Bengkulu leitar að heillegum munum
í rústum heimilis sfns í gær.
Tala látinna og
slasaðra enn á reiki
Bcngkulu. AP, AFP.
NEYÐARAÐSTOÐ barst íbúum
borgarinnar Bengkulu á eyjunni
Súmötru í gær eftir að öflugir jarð-
skjálftar á sunnudagskvöld ollu miklu
tjóni. Hjálparsveitir komu bæði frá
Indónesíu og öðrum ríkjum, en áður
voru sveitir Sameinuðu þjóðanna og
Rauða krossins komnar til héraðsins.
Fjöldi þeirra sem fórust í skjálftun-
um var enn á reiki í gær og telja
fjölmiðlar í Bengkulu fleiri hafa látist
en opinberar tölur gefa til kynna.
Rigningar tefja hjálparstarf
Herskip sjóhers Indónesíu og er-
lendra ríkja hafa þegar flutt lyf og
birgðir til eyjunnar, en hjálparstarf
hefur gengið illa vegna mikilla rign-
inga. Enn varð vart eftirskjálfta í
Bengkulu-héraði í gær og voru íbúar
Bengkulu-borgar margir hvei’jir of
hræddir við frekari skjálftahiinur til
að snúa aftur til heimila sinna. Fólk-
dvaldist því ýmist í moskum eða í
bráðabirgðatjöldum á götum úti.
Mörgum fannst yfirvöld hafa brugð-
ist hægt við vandanum.
„Allt hefur eyðilagst, öll húsin eru
skemmd," sagði Wawan, einn af
hundrað flóttamönnum sem flúðu
eyjuna Enggano, sem liggur næst
upptökum skjálftans. „Engin hjálp
hefur borist okkur ennþá. fbúar
Enggano þurfa aðstoð, matvæli, lyf
og tjöld,“ sagði Wawan, sem gengur
aðeins undir einu nafni líkt og margir
aðrir Indónesíubúar. Hann sagði
engan hafa farist í skjálftanum á
Enggano, en tugir manna hefðu slas-
ast.
Erfiðlega hefur gengið að koma
hjálparsveitum til eyjunnar þar sem
smábátahöfn Enggano eyðilagðist í
skjálftanum og slæmt veðurfar hefur
hamlað flugsamgöngum. Búist var þó
við að hollensk og indónesísk herskip
næðu að flytja þangað matvæli og lyf
með þyrlum í dag.
Alþjóðlegar hjálparsveitir komu til
Bengkulu í gær, auk herflugvéla frá
Singapore með læknasveitir, lyf og
annan búnað. Þá voru lyf og matvæli
farin að berast frá héruðum í ná-
grenni Bengkulu.
Ekki virðiðst liggja fyrir hve marg-
ir hafa látist í jarðskjálftanum. Yfir-
völd í Bengkulu segja 94 hafa farist,
starfsfólk sjúkrahúsa sem sinnti slös-
uðum á bflastæðum sjúkrahúsanna
segir töluna lægri og fjölmiðlar í
Bengkulu-borg segja hana töluvert
hærri -117 manns hafi farist.
Þá virðist fjöldi slasaðra ekki síður
vera á reiki. AP-fréttastofan hafði
eftir starfsmönnum neyðaraðstoðar
indónesísku ríkisstjómarinnar að 930
hafi slasast alvarlega í jarðskjálftun-
um, á meðan aðrir 934 séu lítillega
meiddir. Samkvæmt AFP-fréttastof-
unni er þessi tala hins vegar meira en
helmingi lægri. 410 hafi slasast alvar-
lega í Bengkulu-héraði og 266 til við-
bótar séu minna meiddir.
Yfírvöld óttast
sjúkdómafaraldur
Um 40% af rafmagnskerfi Beng-
kulu-borgar var orðið starfhæft á ný í
gær og þá var vatnsveita einnig víða
komin á eftir skjálftann. Heilbrigðis-
yfirvöld óttast þó engu að síður far-
aldur sjúkdóma í kjölfar skorts á
hreinu vatni.
SÚTTUORF
... sem slá í gegn!
Færeyjar - Danmörk
• •
Ogurstund í
sjálfstæðis-
málum?
Þörshöfn. Morgunblaðið.
ÞRIÐJA lota viðræðnanna milli fær-
eysku landstjórnarinnar og dönsku
stjómarinnar um fullveldi Færeyja
hófst í Kaupmannahöfn í gær. Getur
hún skorið úr um framvinduna í
þessum málum á næstunni.
„Það er komið að því að taka
ákvörðun og þá einkum hvað varðar
hinn efnahagslega umþóttunar-
tíma,“ sagði Anfinn Kallsberg, lög-
maður Færeyja, en beri viðræðurn-
ar engan árangur verður
landsstjórnin og Færeyingar að taka
af skarið um framhaldið.
Færeyingar fá nú um 11 milljarða
ísl.kr. í beinan styrk frá danska rík-
inu og raunar meira ef allt er talið.
Vilja þeir, að undið verði ofan af
styrkjimum á 12 til 15 ámm en Poul
Nyrup Rasmussen, forsætisráð-
herra Danmerkur, hefur nefnt fjög-
ur ár í mesta lagi. Nýtur hann í því
mikils stuðnings á danska þinginu.
Albright ræðir við Sýrlendinga
Segist ekki vænta
mikils árangurs
Kaíró. AP, AFP.
MADELEINE Al-
bright utanríkisráð-
herra Bandarikjanna
sagðist í gær ekki
búast við að fundur
hennar með Farouk al-
Sharaa utanríkisráð-
herra Sýrlands skilaði
miklum árangri. Þau
Albright og al-Sharaa
funduðu í gær í Kaíró,
en Albright tekur nú
þátt í friðarviðræðum
Paléstínumanna og
Israelsmanna í Israel.
„Við viljum gera
[Sýrlendingum] ljóst að
standa opnar,“ sagði Albright og
„Engin málefni skipa
hæm sess í utanríkis-
stefnu Clintons," sagði
Albright á fundi með
fréttamönnum í gær.
Sýrlenskir fjölmiðlar
voru ekki á eitt sáttir um
mikilvægi fundarins. I
leiðara dagblaðsins
Tishrín var sagt að eng-
inn árangur myndi nást
nema Albright færði
Sýrlendingum þær frétt-
ir frá ísraelsmönnum að
þeir myndu láta af hendi
það landsvæði sem þeir
kvaðst ekki búast við því að fundur-
inn myndi marka tímamót. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti hefði
hins vegar mikinn áhuga á að sjá
frið komast á í Miðausturlöndum.
Madelaine
Albright
dyrnar tóku 1967. Dagblaðið Ath-Thawra
var öllu bjartsýnna. „Færir Al-
bright ný loforð frá ísraelsmönnum
sem koma munu friðarviðræðunum
á skrið á ný?“ sagði í Ath-Thawra,
sem sagði afskipti bandaríska ríkis-
ins geta bjargað friðarferlinu.
ÞÓR HF
Hoykjnvflc - Akurayrl
Reykjavík: Ármúla 11 -Sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070
PALLALVFTUR
ÞOR HF
Reykjavík - Akureyrl
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
Þú færð allor helstu
fúavarnartegundir hjá
iitaveri, Grensásvegi.
Kjörvari 14 4 Itr. - gegnsær
Verð kr.
3.447-
Okkar verð kr. 2.758
Woodex Ultra 2.5 Itr.- gegnsær
Verðkr.
2.509-
Okkar verð kr. 2.133-
Sólignum 5 Itr.- þekjandi
........
æ, Verð kr.
Oltkar verð kr. 4*570-
Texolin 4 Itr. • þekjandi
Verð kr.
3.493-
Okkar verð kr. 2.795-
Viö reiknum efnisþörfina og veiturr
þér faglegar ráðleggingar
um vinnu á viðnum
Grensásvegi 18 s: 581 2444
Þar sem þjónustan
er í fyrirrúmi.
STJÓRNMÁL
staf fyrlr staf.
Sláiu í gegn og erfiiii veriur leikur einn - Útsölustaiir um allt land
Oií Úrvaii /Av
VETRARSÓL
HAMRABORG 1-3- S 564 1864