Morgunblaðið - 08.06.2000, Side 68
■Í8 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Atli Dagbjartsson ásamt nemedum 8. FG í Álftamýrarskóla.
Gjöf til vökudeildar
ATLI Dagbjartsson, yfirlæknir
vökudeildar Landspítalans, heim-
sótti 8. FG í Álftamýrarskóla fyrir
nokkru. Erindið var að taka á móti
40 þúsund króna peningagjöf til
styrktar vökudeild Landspítalans.
Nemendur í 8. FG söfnuðu pen-
ingunum með því að halda skóla-
ball fyrir samnemendur sína á
miðstigi, þ.e.a.s 5.-7. bekk. Atli
Dagbjartsson sýndi nemendunum
ýmsar myndir og fræddi um vöku-
deildina. Það var Ásmundur Ingi
Gunnarsson sem afhenti Atla ávís-
unina en Elísa Hrund Gunnars-
dóttir fræddi hann um hvernig
nemendurnir fóru að því að safna
peningunum.
Myndin sýnir líkan af Holdsveikraspítalanum í Laugarnesi en það er í
eigu dönsku Oddfellowreglunnar í Kaupmannahöfn.
Fyrirlestur um holdsveikra-
spítalann í Laugarnesi
ERLA Dóris Halldórsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og sagnfræðingur,
heldur fyrirlestur föstudaginn 9. júní
í Lífeðlisfræðistofnun Háskóla ís-
lands, Læknagarði við Vatnsmýrar-
veg 16, 5. hæð. Fyrirlesturinn nefn-
ist Holdsveikraspítalinn í
Laugamesi - miðstöð rannsókna.
Fyrirlesarinn mun skýra þar frá
rannsóknum sínum á starfsemi
U
Nettrn^
INNRÉTTINGAR
VORTILBOÐ
20-30% afsláttur
i<#Friform
| HÁTÚNI6A (í húsn. Fðnix) SlMI: 552 4420
Holdsveikraspítalans í Laugarnesi
en holdsveikraspítalinn var starf-
ræktur þar á árunum 1898-1940.
Þótt Holdsveikraspítalinn í Laugar-
nesi yrði einkum hjúkrunar- og ein-
angrunarstofnun voru þar reynd
margvísleg lyf til lækninga á holds-
veikinni. Spítalinn var einnig búinn
rannsóknartækjum og þar voru
stundaðar skipulagðar sjúkdóm-
skrufningar og aðrar rannsóknir á
sjúkdómssýnum. Holdsveikraspít-
alinn var kennsluspítali og þar hófst
skipulegt hjúkrunarnám á íslandi
fyrir öld síðan. Spítalinn í Laugar-
nesi var fyrsta spítalabygging á ís-
landi í nútímamerkingu. Hann var
jafnframt stærsta bygging sem til
þess tíma hafði risið í landinu. Lækn-
ingar þar vöktu á sínum tíma athygli
lækna víða um heima.
Fyrirlesturinn á föstudaginn hefst
kl. 12 og er öllum opinn.
Fossvogur — raðhús
í einkasölu glæsilegt endaraðhús með bílskúr við Hjallaland.
Húsið, sem er um 220 fm auk bílskúrs, er nær allt endurnýjað.
Nýtt eldhús, parket og flísalögð gólf. 5 herbergi, 2 baðherbergi
+ gestasnyrting og góðar stofur. Gott útsýni.
Háteigsvegur 2 herb.
f einkasölu glæsileg um 60 fm, 2 herbergja íbúð í góðu þríbýlis-
húsi við Vatnsholt, rétt við Háteigsveg. Björt og mjög lítið nið-
urgrafin. Gott hverfi, í nágrenni Kennaraháskólans.
Eignahöllin fasteignasala,
Hverfisgötu 76, Reykjavík, sími 552 4111.
VELVAKANDI
Svarað ísúna 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Uppástunga við
óþolinmæði
ÓÞOLINMÆÐI hefur oft í
fór með sér fylgifiskana
frekju, geðillsku og tillits-
leysi, hér er átt við í bílaum-
ferðinni. Það furðulega er
að sumir geðprýðismenn
breytast (hér ofangreint)
um leið og þeir setjast undir
stýri, einhvernveginn virð-
ist það skoðun margra
þeirra að (hinir) á hinum
bílunum sem aka á lögleg-
um hraða séu svo miklir
klaufar og þori ekki að aka
hraðar og flækist þess
vegna fyrir, svo loksins
þegar ökukapparnir kom-
ast fram úr (þessum klauf-
um) þá er nú aldeilis gefið í
með ó-fyrirsjáanlegum af-
leiðingum, oft er þá við lífið
eða örkuml að tefla.
Spursmálið er: Hvers
vegna liggur þessum mönn-
um svona mikið á?
Þurfa menn að flýta sér
meira í dag en fyrir svona
30-40 árum?
Eru taugamar í meira
ólagi nú til dags?
Það segja fróðir menn að
það sé tiltölulega auðvelt að
róa taugamar viðsvona að-
stæður. Hér er til dæmis
ráð: Opnið fyrir útvarpið,
stillið á klassísku rásina,
hún er dásamleg, hún svæf-
ir ekki, en hún róar taug-
amar og það sem meira er,
hún hefur þau áhrif á
marga að þeim finnst allt
umhverfis verða feguma og
heimurinn brosa við sér.
Það mætti halda að þessi
tónlist væri af öðmm heimi.
Prófið sjálf.
211131-7219.
Skattur á íþrótta-
vörur og handavinnu
Á TÓNLEIKUNUM hjá
Elton John fannst mér fár-
ánlegt að selja fólki áfengi.
Fyrir um það bil 15-20
árum vantaði pening í ríkis-
kassann og þá datt einum
þingmanninum í hug að
leggja meiri skatt á handa-
vinnu og íþróttavörur. Það
getur verið þungur baggi á
heimilum að leyfa bömun-
um að stunda íþróttir og
fyrir eldra fólk að geta
stundað handavinnu, sem
oft veitir því mikla ánægju.
Er ekki hægt að fá þennan
skatt felldan út?
Agata.
Hvar er Pálmi?
KONA hafði samband við
Velvakanda og var í smá
vandræðum. Hún hafði
hringt í iðnaðarmann sam-
kvæmt auglýsingu í DV
sem heitir Pálmi Gunnars-
son. Hann kom og lagði
smábút af parketi í eldhúsið
hjá henni. Síðan kom hann
aftur stuttu seinna og sagð-
ist þurfa 5.000. kr. til þess
að geta keypt viðbót svo
viðgerðin liti betur út. Síðan
eru liðnir þrír til fjórir mán-
uðir og ekkert hefur til hans
spurst, fyrir utan einu sinni
náði hún í hann. Hún vill
gjaman að Pálmi hafi sam-
band við sig sem allra fyrst.
Konan á Austur-
strönd 14.
Sáðmenn söngvanna
MIG langar tíl að þakka
Herði Torfasyni fyrir þátt-
inn hans Sáðmenn söngv-
anna á þriðjudögum kl. 10 á
Rás 1. Þessi þáttur er ein-
staklega skemmtílegur og
Hörður talar svo rólega og
segir svo skemmtílega frá
söngvaranum og hans lífs-
hlaupi. Hafðu mínar bestu
þakkirfyrir.
Guðrún 0302404999.
Hneykslanleg
framkoma
GUÐRÚN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma því á framfæri að hún
hefði ekki verið ánægð með
Ingu Jónu Þórðardóttur í
þættínum Kastljós í Ríkis-
sjónvarpinu mánudags-
kvöldið 6. júní sl. Hún var
mjög hneyksluð á fram-
komu hennar og sagði að
það hefði legið við að hún
skammaðist sín fyrir að
hafa verið sjálfstæðismað-
ur. Framkoma hennar var
til skammar.
Guðnín
Sigurðardóttir.
Tapaö/fundió
Dömuarmbandsúr
fannst
DÖMUARMBANDSÚR
fannst á Meðalbraut í
Kópavogi fyrir um það bil
viku. Upplýsingar í síma
554-5021.
Myndavél tapaðist
CANON myndavél af gerð-
inni IXUS L-1 (litlu „vasa-
myndavélamar“) tapaðist
aðfaranótt sunnudagsins 4.
júní sl. á svæðinu frá Aust-
urstræti að Kaffibarnum.
Þeir sem mögulega hafa
orðið varir við ferðir þess-
arar myndavélar, vinsam-
legast hafið samband í síma
864-0479.
Á Reynisvatni.
Víkverji skrifar...
ATHYGLISVERÐAR fréttir
hafa birst í Morgunblaðinu und-
anfarna daga af erfiðleikum Reykja-
víkurborgar með að fá unglinga til
sumarvinnu og af lélegri þátttöku í
Vinnuskóla Reykjavíkur. 2-300 ungl-
inga vantar til sumarstarfa hjá garð-
yrkju- og gatnadeild borgarinnar og
unglingar í Vinnuskólanum verða 500
færri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Vinnuskólinn veitir 14-16 ára
unglingum vinnu hluta sumarsins og
er fækkunin langmest í elsta aldurs-
hópnum en 300 færri úr þeim hópi
hafa skráð sig til vinnu en í fyrra.
Þetta ástand getur kallað vand-
ræði yfir sveitarfélögin því nú skortir
fólk til að slá gras og hirða um gróður
á opnum svæðum og í almennings-
görðum og til þess að hirða um og
lagfæra götur sem legið hafa undir
saltpækli langan og þungan vetur.
Þessar fréttir komu Víkverja ekki
á óvart því hann á tvo unglinga og
hefur fylgst með því undanfarnar
vikur að eftirspumin eftir vinnuafli á
höfuðborgarsvæðinu er slík að ungl-
ingarnir á heimilinu hafa vart vitað í
hvorn fótinn þeir ættu að stíga og
hvaða atvinnutilboði þeir ættu að
taka því þau streymdu að. Þannig gat
17 ára dóttir Víkverja valið úr fjórum
atvinnutilboðum og fannst hvert
þeirra öðru gimilegra. Bæjarvinnan
var þar ekki samkeppnishæf hvað
varðar laun og vinnutíma.
Þetta er mikil breyting frá því sem
var fyrir fáeinum ámm þegar lítið
var um sumarvinnu á almennum
vinnumarkaði og sveitarfélögin
bmgðu á það ráð að ráða mun fleiri til
sumarstarfa en þörf var fyrir til þess
að halda uppi atvinnu fyrir skólafólk.
Ekki er lengra síðan en 1996 að
Vinnuskólinn fór að taka unglinga á
16. ári í vinnu; áður hafði sá hópur
treyst á almenna vinnumarkaðinn.
Miðað við fyrrgreindar fréttir og
reynslu unglinganna á heimili Vík-
verja finnst honum óhætt að álykta
að fækkunin meðal þessa hóps í
Vinnuskólanum skýrist af því að
starfskraftar þeirra sem era 16 ára
og jafnvel hinna sem yngri em séu
aftur orðnir eftirsótth' á almennum
vinnumarkaði yfir sumartímann.
Víkverji vonar að unglingarnir í
borginni noti þetta góðærissumar vel
til að afla sér tekna og leggja fyrir
svo þeir þurfi ekki að vinna með skól-
anum í vetur og geti einbeitt sér að
náminu og félagslífinu.
XXX
EINS og lesendur Víkverja vita er
hann áhugasamur um knatt-
spymu og íylgist vel með keppni í
Landssímadeildinni, sem svo er
nefnd, en kemst hins vegar ekki á
völlinn eins oft og hann gjarnan vildi.
Löngum hefur hann þá brugðið á það
ráð að fylgjast með lýsingum út-
varpsstöðvanna tveggja, Bylgjunnar
og Rásar 2, sem hafa fylgst vel með
helstu leikjum mótsins áram saman.
En í sumar hefur bragðið svo við að
Víkverji hefur gefið þessum stóra
stöðvum frí og hefur sótt sér upp-
lýsingar og skemmtun með því að
hlusta á útvarpsstöðvar sem tvö
knattspymufélög í Reykjavík eru
farín að reka þá daga sem lið þeirra
leika.
KR-ingar hafa útvarpað frá sínum
leikjum síðan í fyrra og í sumar hafa
Framarar fetað í fótspor Vesturbæj-
arstórveldisins og fengið þekkta út-
varpsmenn úr hópi stuðningsmanna
sinna tii að hafa umsjón með útsend-
ingum. Víkverji hefur nokkram sinn-
um lagt þar við hlustir og geðjast vel
að þessum útsendingum, þótt vissu-
lega sé ekki hægt að saka þá sem að
þeim standa um hlutleysi. Hins vegar
íylgjast þeir með leiknum af eldmóði
og ræða gang mála við spakvitra
sérfræðinga. Að vísu vill spjallið
stundum bera lýsingarnar ofurliði
þannig að hlustandinn á erfitt með að
fylgja þræðinum í leiknum en það
horfir vonandi til bóta með tímanum.
XXX
AÐ lokum leggur Víkverji tii að
stórmarkaðir í eigu Baugs og
Kaupáss sýni umhyggju og virðingu
fyrir neytendum í verki með því að
hafa á boðstólum kjúklinga frá Is-
fugli, þá einu hér á landi sem ekki eru
sýktir af kamfýlóbakter. Þá vöru er
nú varla hægt að fá nema í minni
hverfabúðum, t.d. Kjöthöllinni á
Háaleitisbraut og Skipholti og í
Melabúðinni.