Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 35

Morgunblaðið - 27.06.2000, Side 35
34 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 35 fMtogiiiiHtiMfr STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. NÁTTÚRUÖFLIN OG HINN NÝIÓGNVALDUR Ð BÚUM í landi sem er í senn ógnvænlegt og ægifagurt. Stundum er engu líkara en við umgöngumst landið eins og hvert ann- að gæludýr án þess leiða að því hugann að það er ekki einungis fagurt og tign- arlegt, heldur einnig - og ekki síður - hættulegt ef ekki er höfð aðgát í hverju spori. Jöklarnir búa yfir hættulegum sprungum, jökulsárnar breytast frá degi til dags og verða stórhættulegar yfirferðar þegar klökknar til jökuls. Þannig getur tiltölulega meinlaust jök- ulvatn að morgni orðið lífshættulegt stórfljót uppúr hádegi þegar sól og þíð- ur andvari hafa látið til sín taka. Hér á landi hafa orðið sorgleg slys með mann- sköðum vegna vankunnáttu fólks sem hefur verið óvant þessum hættulegu fljótum og er þá bæði átt við útlenda gesti okkar og Islendinga sjálfa. En slysin hafa ekki orðið verst vegna þeirrar ógnar sem býr í landinu sjálfu né af völdum náttúruhamfara. Osagt skal látið hvort Suðurlandsskjálfta- hrinan er gengin yfir og óvarlegt að fullyrða að hún sé gengin yfir án mannskaða því að allt getur gerzt, að því er vísindin herma, og enn nauðsyn- legt að vera vel á verði. Þó ber að gleðj- ast yfir því og þakka forsjóninni það sem af er í þessari hrinu því að ekkert það hefur gerzt sem ekki er bætanlegt og í þessum náttúruhamförum hafa engir mannskaðar orðið. Því ber að fagna. Hús og brýr hafa að mestu staðið af sér verstu hrinurnar þó að mikið eignatjón hafi orðið sums staðar, en allt er það bætanlegt og vonandi verður staðið við stóru orðin þegar að því kem- ur því að ekki getum við látið fólkið í landinu gjalda þess hvar það hefur búið sér heimili, fundið kröftum sínum við- nám og leitað sér lífsafkomu. Það er þannig við blasandi að for- varnir hafa skilað árangri og mættum við ýmislegt af því læra. En hitt blasir þá einnig við að þrátt fyrir ógn ís- lenzkra náttúruafla hafa þau ekki vald- ið stórslysum á okkar tímum, en þessi sömu öfl hafa gegnum aldirnar gengið svo nærri þjóðinni að í móðuharðindum mátti þakka fyrir að fólkið í landinu þurrkaðist ekki út. A okkar tímum hef- ur þjóðinni illa blætt vegna sjóslysa, en svo er guði fyrir að þakka að sjóslys með miklum mannsköðum heyra að mestu fortíðinni til og eiga tæknin og forvarnir mestan þátt í þeirri þróun. Flugslys hafa nokkur orðið á síðustu árum, einkum af reynsluleysi og van- mati, og sem betur fer einungis á litlum vélum. A okkar tímum hafa ekki orðið mannskaðar í miklum og lífshættuleg- um eldgosum, jafnvel þótt Katla hafi komið og Eldfell nærri því þurrkað út Vestmannaeyjakaupstað. Þannig höf- um við sloppið við mannskæðar nátt- úruhamfarir og má að sumu leyti þakka það nýrri tækni og mikilli aðgát. Þó 'hafa slys orðið þegar við höfum reynt á þolrif náttúrunnar og ekki tekið tillit til þess að landið er ekki gæludýr en getur af minnsta tilefni orðið hættulegur ógn- valdur. En manntjón hefur ekki orðið í mestu náttúruhamförunum þó að segja megi að hurð hafi stundum skollið nærri hælum og er þess þá ekki sízt að minnast að mannvirki fóru eins og eld- spýtustokkar með Skeiðarárflóðinu sællar minningar án þess slys fylgdu í kjölfarið. Líklega yrði mesta ógnunin af völdum náttúrunnar nú um stundir ef eldgos yrði í Mýrdalsjökli og Katla kæmi með vatnsflóði yfir Mýrdalssand en það mun geta náð hæð meðalháhýsis auk firnastórra ísjaka eins og sjá má á gömlum myndum af Mýrdalssandi eftir síðasta Kötluhlaup. Það er stórmál að vera vel á verðinum og reyna að gera sér grein fyrir hættunni, áður en Katla kemur með öskufalli og ógnandi flóðöldu, hvort sem væri norður fyrir eða yfir Sólheimasand eða þá Mýr- dalssand, sem oftast hefur orðið. En hver er þá ógnvaldurinn mikli hér á landi fyrst það hefur ekki verið nátt- úran sjálf í okkar tíð? Það er því miður bifreiðin. Þetta nýja mikilvæga tækni- undur ógnar lífi fólks hvern dag sem guð gefur og nú er svo komið að varla líður sá dagur að við heyrum ekki frétt- ir af hörmulegum bílslysum um land allt. Þetta er hin nýja ógn um allar jarð- ir og höfum við ekki farið varhluta af henni. Bifreiðin gegnir svo miklu og mikilvægu hlutverki í lífi okkar að ekki verður án hennar verið úr því sem kom- ið er - en umgöngumst við hana eins og efni standa til? Býr allur sá fjöldi sem hefur yfirráð yfir bifreiðum yfir nægi- legri þekkingu og reynslu til að fara með þær, er þeim ekki ofgert vegna vankunnáttu og virðingarleysis? Er mönnum nógsamlega kennt að um- gangast þessi tryllitæki eins og nauð- syn krefur - eða hvað er að? Vegirnir hafa stórbatnað á síðustu árum, en það virðist ekki duga í síaukinni umferð eins og fréttirnar af umferðarslysum dynja yfir okkur flesta daga ársins. Það er engu líkara en við séum berskjölduð fyrir þessari ógn. Samt verðum við að mæta henni af æ meiri festu, rétt eins og um náttúruhamfarir væri að ræða. Fyrirbyggjandi aðgerðir verða aldrei of miklar og rétt innræting aldrei of metin. Bifreiðin er nauðsynlegt tæki. Hún er mikið tækniafrek. En hún er ekki leikfang, a.m.k. ekki í borgum og bæj- um eða úti á þjóðvegum. Þar er hún eins og hver önnur náttúruógn sem við verð- um að taka tillit til og umgangast eins og efni standa til. Slys geta að sjálfsögðu alltaf orðið en það getur ekki verið eðlilegt ástand að hryllilegar fréttir af umferðarlysum berist fjölmiðlum nánast hvern einasta dag. Það er ekki nóg að lögregluyfir- völd taki til hendi, fólkið sjálft verður að líta í eigin barm og gera sér grein fyrir því að bifreiðin er ekki einungis þægindi, heldur einnig - og ekki síður - ógnlegt tryllitæki, ekki sízt í höndum þeirra sem halda að þetta gæludýr geti ekki breytzt í lífshættulegt rándýr á hvaða andartaki sem er. Allt þetta skulum við hafa í huga þeg- ar við höldum á Kristnihátíð, svo dæmi sé tekið, því að gott skipulag, forvarnir og yfirstjórn lögreglunnar má sín lítils ef framúraksturssiðferðið situr við stjórnvöl. Það á raunar við í hvert sinn sem við setjumst undir stýri. Við þurfum þannig að horfast í augu við nýja ógn á nýjum tímum. Nordfoto Eyrarsundsbrúin böðuð skini aftansólarinnar. Myndin er tekin frá höfninni í Drager. Haf og hugur brúaður Brúin yfír Eyrarsund tengir ekki aðeins tvær strendur heldur tvær þjóðir og á að mynda heildstætt svæði án tillits til landa- mæra, segir Sigrún Daviðsdottir. En það sem tengir suma stíar öðrum í sundur. LANDIÐ milli brúnna“ kallaði Marianne Jelved efnahagsráðherra Dana Danmörku nýlega. Nafn- giftin er ekki fjarri lagi. Það hefur haft töluvert áhrif á hugarfar Dana undanfarið að Sjáland hefur tengst Fjóni og um leið meginlandinu með Stórabeltisbrúnni sem var opnuð fyrir tveimur árum. Nú bætist Eyrarsundsbrúin við og tengir ekki aðeins landshluta held- ur tvær þjóðir sem fyrr á öldum elduðu grátt silfur. Tengingin á ekki að stöðvast við brúarsporðana heldur á að búa til úr Skáni og Sjálandi eitt svæði með um þremur milljónum íbúa í takt við svæðavæðingu Evrópu. En það sem tengir suma sundrar öðrum því brúin hefur áhrif á bæi eins og Drageyri, sökum þess að þangað til í fyrra gekk þaðan bíl- ferja til Svíþjóðar, og eins er lík- legt að það dragi úr umferðinni milli Helsingjaeyrar og Helsingja- borgar. Flugbátarnir munu eftir sem áð- ur fara milli Nýhafnarinnar í Kaupmannahöfn og Málmeyjar. Ferðin frá miðborg Kaupmanna- hafnar til miðbæjarins í Málmey tekur 45 mínútur með bátunum. Það tekur aðeins um tíu mínútur að keyra brúna sem liggur frá Kastrup, um 20 mínútna akstur frá Nýhöfn og kemur að utan við Málmey, svo ferðatíminn í heild er ekki alveg sambærilegur. Sameining- andstæðinga Nýja brúin á að mala eigendum sínum gull því öðruvísi væri ekki fýsilegt að byggja hana. Það er engin ný bóla að Eyrarsund sé uppspretta gulls og auðæfa. Brúartollar nútímans blikna í sam- anburði við sundtolla fyrri tíma. Ríkisreikningarnir dönsku fra 1602 sýna að á þeim tíma voru sundtollarnir næstdrýgsta tekju- lind ríkisins. Það var Eiríkur konungur af Pommern (1382-1459) sem fyrstur fékk þá snjöllu hugmynd að taka toll af skipum, árið 1429, sem fóru um þrönga sundið þar sem nú eru Helsingjaeyri og Helsingjaborg. Danir réðu þá löndum beggja vegna sundsins, urðu afar hug- myndaríkir í tollheimtunni og í raun frumkvöðlar á því sviði. Fyrst var aðeins innheimt fast gjald á hvert skip, síðan eftir stærð skips- ins og loks eftir varningi. Þeir sem reyndu að svindla á tollinum áttu á hættu að skip og farmur yrði gerð- ur upptækur. Brúartollar nútímans fara ekki í vasa kónga og drottninga heldur greiða þeir fyrir brúarsmíðina en það verður ekki ódýrt að fara í bíl- túra yflr sundið. Fyrir stakan túr kostar önnur leiðin 230 danskar krónur, um 2.300 íslenskar krónur. Ódýrastar geta ferðirnar orðið ef keypt er mánaðarkort með fimm- tíu ferðum fyrir 34 þúsund íslensk- ar krónur og kostar ferðin þá 680 íslenskar krónur. Margvíslegar deilur Þegar brúin opnar nú hvíla á henni skuldir upp á 18,6 milljarða danskra króna eða um 186 milljón- ir íslenskra króna. Verðið er miðað við að skuldirnar verði greiddar niður á 30 árum. Verðlagningin hefur því tekið mið bæði af afborg- unum og því hvað kostar að fara yfir sundið á annan hátt. Búist er við að mest af umferðinni framan af komi til vegna fólks á leið í sum- arfrí og svo Svíum og Dönum sem fara yfir sundið til að upplifa landið handan brúarinnar. Brúartollurinn hefur verið mikið deiluefni rétt eins og verðið fyrir að fara yfir Stórabeltisbrúna sem er samsvarandi. Stjórnmálamenn hafa margir hverjir kvartað yfir að verðið sé alltof hátt og það fæli fólk frá því að fara yfir. Afengi er ódýr- ara í Danmörku og kaupmenn á Helsingjaeyri hafa notið góðs af því. Nú stefnir í lækkun sænskra áfengisskatta og hæpið er að inn- kaupaferðir borgi sig þegar tæpar fimmþúsund íslenskar krónur bæt- ast ofan á það sem keypt er í inn- kaupaferðum á bílnum. En meðan gengi sænsku krónunnar er lágt miðað við þá dönsku er áhugavert fyrir Dani að versla Skánarmegin. Ýmis deiluefni hafa komið upp og í Nýjasta deiluefnið er nafnið á brúnni. Félagið, sem byggt hefur brúna og er í eigu sænska og danska ríkisins og heitir nú 0re- sundsbro Konsortiet, sá áður um brúarbygginguna en tekur nú yfir reksturinn á brúnni. I merki fé- lagsins stendur 0resundsbron, þar sem 0resund er stafað upp á dönsku með dönsku 0, en ,,-bron“ er stafað upp á sænsku. Þetta féll þó hvorki í kramið í Svíþjóð né Danmörku. Þegar þessi dansk-sænski sambræðingur var borinn undir málnefndir landanna lögðust þær báðar gegn nafninu. Töldu þær að eðlilegast væri að brúin væri kölluð sænsku nafni í Svíþjóð, héti þar Öresundsbron, og dönsku í Danmörku, 0resunds- broen. Tvær þjóðir - eitt svæði Margvísleg sænsk-dönsk sam- ræming hefur fylgt brúargerðinni. Danska og sænska lestai’kerfið er að mörgu leyti gjörólíkt. Lestirnar nota ekki sömu spennu svo þær sem fara yfir brúna eru útbúnar fyrir bæði kerfin og skipt er um við sænska brúarsporðinn. Enn er vinstri umferð í sænska lestarkerf- inu, henni var haldið þótt önnur bílumferð skipti yfir í hægri árið 1968 en danskar lestir keyra hægra megin. Sænska og danska slökkviliðið nota mismunandi brunahana svo brunahanar í jarðgöngunum eru bæði með sænsku og dönsku lagi. Til að auðvelda samskipti slökkvi- liðs og lögreglu beggja vegna brúarinnar hafa verið gerðir orða- listar svo að sænskir lögreglu- og slökkviliðsmenn þekki orðaforða danskra starfsbræðra og öfugt. Þessa lista þurfa menn að kunna því ef eitthvað kemur upp á verður ekki tími til að stauta sig í gegnum orðalista. Sama gildir um ótal margt annað. Samtengingarverkefnin beggja vegna brúarinnar hafa verið marg- vísleg. Það er vart sú menningar- stofnun á Eyrarsundssvæðinu sem ekki hefur tekið upp eitthvert sam- starf við systurstofnanir handan sundsins. Skólar á háskólastigi á svæðinu hafa tekið upp víðtækt samstarf. Konunglega leikhúsið við Kóngsins nýja torg mun á kom- andi starfsári setja upp leiksýning- ar í samstarfi við leikhús á Skáni. Kaupmannahafnarrás TV2, ann- arrar rásar danska ríkissjónvarps- ins og Málmeyjarrás sænska ríkis- sjónvarpsins í Málmey hafa tekið upp samstarf um fréttir, svo dæmu séu nefnd. Það þarf ekki annað en að fara á milli Málmeyjar og Kaupmanna- hafnar að kvöldlagi til að sjá að Málmeyjarbúar sækja grimmt til Kaupmannahafnar, til dæmis í leikhús og á aðrar skemmtanir. Það eru aftur á móti fáir Hafnar- búar sem leggja á sig slíka ferð til Málmeyjar þótt þeim hafi fjölgað sökum þess að ýmsar menningar- stofnanir í Málmey eru farnar að auglýsa Danmerkurmegin. Áttatíu prósent Kaupmannahafnarbúa hafa aldrei komið til Málmeyjar. Eyrarsundsbrúin MÆLT í vinnuárum, eitt mannsverk í ár, og að meðtalinni vinnu allra undirverktaka er Eyrar- sundsbrúin mesta framkvæmd á Norðurlöndum, 42 þúsund vinnuár. Á verðlagi síðasta árs kostar brúin 18,1 milljarð danskra króna, um 181 miltj- arð íslenskra króna. Áætlaður kostnaður við Fehmern-brúna er 23-33 milljarðar danskra króna, eftir því hvaða lausn verður valin. Samgönguráðherrar Svíþjóðar og Danmerk- ur samþykktu framkvæmdir 1991. Þær hófust 1995 og brúin er nú opnuð á tilsettum tíma. Áætlaður framkvæmdatími við Fehmernbrúna er átta ár, ef af verður. Þeir 16.380 metrar, sem tengja Svíþjóð og Danmörku, hefjast í 430 metra breiðum tilbún- um skaga Danmerkurmegin, þá taka við 4.050 metra löng göng og 4.055 metrar af tilbúinni eyju, Piparhólmanum. Þar næst kemur 3.014 metra löng tengibrú, 1.092 metra löng hábrú, önnur tengibrú upp á 3.739 metra og þá er Skáni náð. Jarðgöngin eru þau lengstu sinnar tegundar sem bæði eru fyrir bfla- og lestarumferð. Um 7,5 milljónum rúmmetra af jarðvegi var mokað upp til að búa til lægi fyrir göngin. Jarðvegurinn var notaður til að búa til skagann út á brúna Dan- merkurmegin. Brúarstólparnir á hábrúnni eru í allt 1.092 metra háir en eru 204 metra yfír yfirborði sjáv- ar, tvisvar sinnum hærri en ráðhústuminn í Kaupmannahöfn. Hallgrímskirkjuturn er 73 inetra hár. Hæðin frá yfirborði sjávar upp undir hábrúna er 57 metrar. Brúin hefur orðið til víða. Stólparnir og undirstöðumar voru steypt í Málmey, yfirbygging brúarinnar í Karlskrona, hlutar í tengibrúna koma frá Cadiz á Spáni og hlutar í jarðgöngin, sem byggð em á hafsbotni, vora gerðir 1 Kaupmannahöfn. Járnbrautarteinar og bflvegir liggja samhliða nema á hábrúnni, þar sem brúin er á tveimur hæðum, og lestirnar keyra á neðri hæðinni, und- ir bflabrúnni. Búið að kortleggja nær allt erfðamengi mannsins Grundvöllur að vísindum framtíðar Vísindamenn hafa búið til frumgerð af genamengi mannsins og er mikilvægi þessa áfanga í vísindum líkt við upphaf iðnbylt- ingar og beislun kjarnorkunnar á 20. öld. Reuters John Sulston, yfirmaður Sanger-stofnunarinnar í Bretlandi (lengst til vinstri), ásamt talsmanni VVellcomeTrust-lyfjafyririækisins, Michael Dexter og vísindamálaráðherra Bretlands, Sainsbury lávarði, á blaða- mannafundi í gær þar sem þeir skýrðu frá kortlagningu genamengisins. TVEIR samstarfshópar vís- indamanna gáfu í gær út sögulega og sameiginlega yfirlýsingu um að þeir væru búnir að ljúka við uppkast að korti yfir megnið af genamengi mannsins. Með kortinu þar sem gen- in, erfðavísarnir, eni staðsett verða til upplýsingai- sem líkt hefur verið við partalista yfir mannslíkamann. Markmiðið með kortlagningunni er að staðsetja genin vandlega á litn- ingapörunum sem eru 23 í hverri frumu mannsins. Genamengið hefur verið nefnt Lykillinn að manninum og Bók lífsins, svo margt er hægt að ráða um einstaklinginn með því að kanna erfðaefni hans. En það sem flestum finnst líklega mikilvægast í sambandi við þessi sögulegu þátta- skil er að með aðstoð genakortsins er talið að hægt verði í framtíðinni að finna lausnir á mörgum vanda í heil- - brigðismálum og ráða bug á ógn- völdum eins og hjartasjúkdómnum og krabbameini. Yfirstjóm Genamengisáætlunar- innar (HGP), sem er fjölþjóðleg, er á hendi Bandarísku heilbrigðisstofn- unarinnar, NHS. Hinn aðilinn sem unnið hefur að kortlagningunni er einkafyrirtæki vísindamannsins Craigs Venters, Celera Genomics í Maryland í Bandaríkjunum. Celera sagðist í vor hafa greint allt gena- mengið í mannveru sem ekki var nafngreind og hefur síðan unnið að því að staðsetja genin á litningunum. Þótt enginn ágreiningur sé um að merkum áfanga sé náð í þekkingar- leit mannsins er ljóst að kortlagning genamengisins er aðeins upphafið að nýjum veruleika í heimi líffræðinnar og læknavísindanna. Afrekinu er líkt við fyi-stu tunglgönguna og uppruna prentlistar, sumir segja að þáttaskil- in séu eins og við upphaf sjálfrar iðn- byltingarinnar. Aðiir nota þá sam- líkingu að stutt sé í að orðabókin sé endanlega tilbúin en þá er eftir að raða orðunum saman af viti til að fá einhvern botn í hlutina. Tíu ára tölvustarf Tíu ára starf HGP að greiningu mengisins hefur kostað um 300 millj- ónir dollara eða 23 milljarða króna. Embættismenn segja að búið sé að greina um 50 þúsund gen og búast við að mörg þúsund finnist í viðbót en tölum um heildarfjölda gena í manninum ber ekki saman, heimild- armenn nefna allt frá 50 þúsund upp í 140 þúsund. Búið er að greina um 97% erfðaefnisins í manninum að sögn HGP en talsmenn verkefnisins viðurkenndu að lokaútgáfa kortsins, þar sem búið væri að fara í saumana á greiningunni, yrði ekki tilbúin fyn- en í fyrsta lagi eftir tvö ár. Þá yrðu jafnvel enn eftir göt í þekkingunni sem ekki yrði hægt að fylla með þeiiri tækni sem menn réðu nú yfir. Craig Venter sagði í gær að eftir að kortlagningunni væri lokið myndu vísinda- menn standa andspænis geysilega flóknu verk- efni sem væri að finna og greina hin ýmsu prótín sem genin mynda og átta sig á því hvemig þau störf- uðu. „Það gæti tekið heila öld,“ sagði Venter. Yfirmaður HGP, Francis Collins, tók undir og sagði að fullur skilningur á hlutverki prótínanna gæti tekið öld. „Séu genin 50.000 getur þurft að fylgjast með allt að milljón prótín- um,“ sagði hann. Collins taldi að næst á dagskránni væri að rannsaka muninn á genum sem gætu valdið sjúkleika og hinum sem gerðu það ekki. Vísindamenn yrðu að fara yfir 10 milljón afbrigði af DNA- núkleótíðum, einingum sem nefnast SNP á ensku, og eru það samanlögð áhrif þeirra sem gera hverja mann- veru einstaka. Munurinn á gena- mengi milli tveggja einstaklinga er hins vegar afar lítill, aðeins brot úr prósenti. „Flest SNP hafa ekki marktæk áhrif í læknisfræðilegum skilningi," sagði Collins. „Sennilega eru það að- eins nokkur þúsund sem valda sjúk- dómum en við verðum að finna þau og það er erfiðasti hjallinn." Þegai’ búið er að greina umrædd núkleótíð geta vísindamenn hugað að gerð nýrra lyfja eða annarri meðferð til að sigrast á áhrifum gölluðu gen- anna sem innihalda sjúkdómsvald- andi núkleótíð. Collins minnti einnig á að hægt yrði að nota þekkinguna til fyrir- byggjandi aðferða, hægt yrði að ráð- leggja fólki sem greindist með vara- söm gen að breyta mataræði sínu og öðru í lífsháttum til að draga úr lík- um á að gallinn hefði sjúkdóm í för með sér. Loks mætti hugsa sér að það tæki fyrirbyggjandi lyf í stað lyfja sem ætlað er að lækna sjúk- dóminn þegar hann er orðinn stað- reynd. Erfðir og umhverfi Nýtingarmöguleikamir á gena- kortinu fyrii’ líffræði og læknisfræði eru stórkostlegir, ekki síst verður um að ræða framfarir varðandi kvilla og sjúkdóma þar sem vitað er að erfðir leika mikilvægt hlutverk. I sumum tilvikum eru þær grandvallaratriðið en vægi þeirra og samspil þeirra við umhverfi og uppeldi er eitt flóknasta rannsóknarefnið sem vís- indamenn fást við og endalaust efni í ágreining. Vísindamenn álíta að með aðstoð genamengiskortsins verði hægt að búa til klæðskerasaumuð lyf fyrir hvern einstakling, þar sem tekið verður tillit til margvíslegra þátta sem skilja hann frá öðrum sjúkling- um, auðveldara verði að gera kann- anii’ til að fyrirbyggja sjúkdóma og loks að einhvern tíma í framtíðinni verði hægt að stunda genalækning- ar, þ. e. flytja genahluta milli tveggja gena til að lækna sjúkdóma. Sumir vísindamenn vara við of miklum væntingum. Ian Purvis, sem er aðstoðai’forstjóri deildar sam- eindalíffræði hjá lyfjafyrirtækinu GlaxoWellcome í Bretlandi, segir í samtali við BBC að genamengis- kortið muni fljótlega geta komið að miklu gagni við að finna nýjar leiðir til að hagnýta lyf. En getgátur hafa verið um að í hinni fögra vísindaver- öld firamtíðarinnar verði hægt að láta DNA-kanna í baðherberginu fylgjast með heilsufarinu, honum muni duga að fá munnvatnssýni. „Þetta gæti orðið einhvem tíma í fjarlægri framtíð en hugmyndin byggist á því fremur hrokafulla við- horfi mannskepnunnar að hún muni skilja allt sem hún uppgötvar - og það höfum rið aldrei gert,“ segir Purris. Enn aðrir hafa bent á að hægt verði að misnota þessa nýju þekk- ingu og tækni eins og önnur mann- anna verk á siðlausan hátt. Þeir full- yrða að hátækniþekkingin muni aðallega koma auðugum til góða. Framfarir í erfðatækni muni verða lyftistöng fyrir þá sem rilja hanna fólk eftir ákveðinni forskrift, og þá sé stutt yfir í hugmyndir nasista um ræktun á kynstofni ofunnenna. Loks er bent á að eftir sem áður muni fólk í þróunarríkjunum halda áfram að deyja unnvörpum vegna þess að grandvallaratriði eins og hreint vatn skorti. Áherslan í vest- rænum læknarisindum á flókin erfðavísindi muni ekki breyta neinu um hlutskipti þeirra. Háskólar og fleiri op- inberar stofnanir í nokkram löndum, fyrst og fremst Bretlandi og Bandaríkjunum en einn- ig Þýskalandi, Frakk- landi, Japan og Kína, hafa starfað saman í genamengis- áætlunnni að því að gera kortið og vora fyrstu áætlanir miðaðar rið að bráðabirgðakort yrði tilbúið 2003. Vísindamennimir era því á undan áætlun. Óþreytandi ofurtölvm- hafa undanfarin ár haldið áfram að ryðja út úr sér samtengingum á basaröð- um, minnstu einingum erfðaefnisins í genunum. Alls þarf að greina um 3,1 milljarð af þessum basaröðum sem táknaðar era með nokkram bókstöfum í mismunandi röð. Deilt um einkaleyfi Fyrir tveim áram fékk HGP sam- keppni frá Celera Genomics og hef- ur verið mikill rígur milli þessara tveggja aðila. Hefur ekki síst verið deilt á Craig Venter fyrir að krefjast þóknunar fyrir aðgang að upplýsing- unum sem tölvur hans hafa safnað um genamengið en niðurstöður HGP hafa verið settar jafnóðum á Netið. Venter og menn hans hafa auk þess notfært sér upplýsingarnar frá HGP til að fylla upp í myndina. En fyrir milligöngu Bills Clintons Bandaríkjaforseta og Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, tókst að fá í gang samstarf milli aðilanna tveggja og var sáttin handsöluð í maí. Komu þeir Venter og Francis Collins, yfirmaður HGP, fram með Bandaríkjaforseta á blaðamanna- fundi í gær er skýrt var frá kortlagn- ingunni og yfirlýsingin um stöðuna var sameiginleg. Þykir ljóst að Vent- er og ráðamenn HGP hafi verið þringaðir til að brjóta odd af oflæti sínu og sýna merki um samstöðu á þessum sögulega degi. Venter fann upp aðra aðferð til að greina basaraðimar en notuð var hjá HGP, svonefnda „haglabyssuað- ferð“, og mun hún vera afar hrað- rirk. Á hinn bóginn er hann einnig sagður hafa stytt sér leið með því að einbeita sér fyrst í stað að því að fá einkaleyfi á þeim hlutum erfða- mengisins sem líklegast þykir að geti veitt svör rið spumingum er tengjast áhrifum erfða á sjúkdóma og vekja því áhuga lyfjafyrirtækja. Einkaleyfi á genum í mönnum og skilgreining á leyfunum er einn af umdeildustu þáttum í erfðavísindum nútímans. Er verjandi að einkafyrir- tæki hagnist á því að uppgötva fyrir- bæri eins og gen? Talsmenn HGP eru ákafir talsmenn þess að slík þekking eigi að vera aðgengileg öll- um vísindamönnum án gjaldtöku, þannig verði best tryggt að fram- hald verði á risindaþróun, hömlur í nafni einkaréttarins muni geta stöðvað framfarir. John Sulston er yfirmaður Sang- er-rannsóknarstöðvarinnar í Bret- landi sem lagði fram einna drýgstan skerf í kortlagningunni. Sulston hef- ur barist ákaft fyrir því að upplýs- ingarnar verði öllum aðgengilegar án gjalds og harmaði hann að deil- urnar rið Venter um einkaleyfin skyldu verða til að sundra fylkingum vestanhafs. Sulston sagði sitt fólk hafa unnið af vísindalegum metnaði en ekki með peningavon í huga. „Þau hafa gert þetta vegna þess að þeim fannst það mikilvægt,“ sagði hann. Clinton og Blair hafa báðir lýst andstöðu rið slík víðtæk einkaleyfi en um leið tekið fram að tryggja verði að þeir sem leggja fram fjár- magn og rinnu til rannsóknanna beri eitthvað úr býtum. Venter og fleiri ráðamenn einkafyrirtækja í líftækni hafa dregið nokkuð í land á þessu sviði, leggja nú áherslu á að aðeins verði sótt um einkaleyfi á notkunarmöguleikum uppgötvana í sambandi rið ákveðið gen en ekki geninu sem slíku. Ný skoðanakönnum í Bandaríkjunum, sem gerð var fyrir rikuritið Time, gefur til kynna að um 65% Bandaríkja- manna séu því andvíg að hægt sé að nýta einkaleyfi á mannagenum í hagnaðarskyni. Fyrirtæki í Banda- ríkjunum og Evrópu hafa þegar sótt um einkaleyfi á mörg þúsund gen- , um. í könnuninni kom einnig fram að margir efast um að kortlagning genamengisins verði til góðs, 46% segjast álíta að hún verði til ills, 40% að hún verði til góðs. Efasemdar- mennirnir sögðust fyi’st og fremst óttast að tryggingafélög eða stjórn- völd myndu misnota upplýsingamar sem hægt er að fá um einstaklinga jr með því að kanna erfðaefni þeirra. Upplýsingarnar gætu nýst við lyfjagerð og forvarnir Margir Banda- ríkjamenn telja að kortið verði misnotað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.