Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍDAG Fjöldi skemmtiferða- skipa til Reykjavíkur FJÖLDI skemmtiferðaskipa kemur hingað til lands í sumar og hafa flest þeirra viðkomu í Reykjavík. Næsta skip sem kemur til höfuðborgarinn- ar er Funchal, Panama sem kemur á morgun, 28. júní, og leggur við Miðbakka klukkan 8. Hér fer á eftir listi yfir skemmtiferðaskipin sem eru væntanleg til Reykjavíkur það sem eftir er sumars: Explorer, Líberíu, 29. júní, Mið- bakki, kl. 21, Royal Princess, Bretlandi, 3. júlí, Korngarður, kl. 6, Astor, Bahama, 3. júlí, Sund- bakki, kl. 8, Arkona, Líberíu, 6. júlí, Ægis- garður, kl. 8:00, Astra II., Bahama, 6. júlí, Mið- bakki, kl. 10, Shearwater, Bahama, 7. júlí, Mið- bakki, kl. 6, Sapphire, Kýpur, 8. júlí, Mið- bakki, kl. 8, Caronia, Bahama, 9. júlí, Korn- garður, kl. 8, Delphin, Möltu, 13. júlí, Mið- bakki, kl. 17, Europa, Bahama, 15. júlí, Korn- garður, kl. 8, Vistamar, Panama, 17. júlí, Mið- bakka, kl. 7, Maxim Gorky, Bahama, 19. júlí, Korngarður, kl. 7, Astor, Bahama, 19. júh, Sund- bakki, kl. 8, Albatros, Bahama, 20. júlí, Ytri- höfnin, innan Engeyjar, kl. 7, Oriana, Bretlandi, 20. júlí, Ytri- höfnin, innan Engeyjar, kl. 8, Princess Danae, Panama, 20. júlí, Korngarður, kl. 10, Sapphire, Kýpur, 22. júlí, Mið- bakki, kl. 8, Seabourn Sun, Bahama, 22. júlí, Komgarður, kl. 9, Marco Polo, Bahama, 24. júlí, Korngarður, kl. 7, Arion, Bahama, 28. júlí, Mið- bakki, kl. 6, Saga Rose, Bahama, 29. júlí, Korngarður, kl. 7, Clipper Adventurer, Bahama, 30. júlí, Faxagarður, kl. 6, Hanseatic, Bahama, 30. júlí, Mið- bakki, kl. 8, Maxim Gorky, Bahama, 5. ágúst, Korngarður, kl. 7, Black Prince, Noregi, 5. ágúst, Miðbakki, kl. 8, Sapphire, Kýpur, 5. ágúst, Ægis- garður, kl. 8, Albatros, Bahama, 6. ágúst, Ytri- höfnin, innan Engeyjar, kl. 7, Ocean Majesty, Grikklandi, 8. ágúst, Miðbakki, kl. 9, Delphin, Möltu, 12. ágúst, Mið- bakki, kl. 7, Columbus, Bahama, 13. ágúst, Miðbakki, kl. 8, Crown Princess, Líberíu, 17. ágúst, Ytrihöfnin, innan Engeyjar, kl. 13, Albatros, Bahama, 23. ágúst, Ytrihöfnin, innan Engeyjar, kl. 7, Maxim Gorky, Bahama, 23. ágúst, Korngarður, kl. 13, Saga Rose, Bahama, 27. ágúst, Komgarður, kl. 7, Maasdam, Hollandi, 2. septem- ber, Komgarður, kl. 7, Rotterdam VI., Hollandi, 6. sept- ember, ytrihöfnin, innan Engeyjar, kl. 7, Delphin, Möltu, 9. september, Miðbakki, kl. 21, Seabourn Pride, Noregi, 10. sept- ember, Miðbakki, kl. 8. Lýst eftir vitnum UM síðustu helgi var ekið utan í bif- reiðina R 16325, sem er Ford Escort, hvít að lit, þar sem bifreiðin stóð við Bygggarða 8 á Seltjamamesi. Talið er að biíreið sú sem þarna hefur verið ekið utan í R16325 sé af Toyota-gerð. Ökumaður þeirrar bifreiðar svo og vitni em beðin að gefa sig fram við lögregluna í Reykjavík. Um síðustu helgi eða frá fóstudags- kvöldinu 23. júní sl. um kl. 20 og til laugardagsins 24. júní sl. um kl. 11, var ekið utan í bifreiðina NR 853, sem er Opel Combo, hvít að lit, þar sem bifreiðin stóð við Vitastíg 20 í Reykja- vík. Sá sem þama hefur ekið á bif- reiðina svo og vitni era beðin að gefa sig fram við lögregluna í Reykjavík. LEIÐRÉTT Morgunblaðið/Ingólfur Guðmunds Litabrengl og mynda- texta vantaði Vegna mistaka í prentun sunnu- dagsblaðsins brengluðust litir í myndum með grein um veiðihunda á Akranesi. Einnig féll niður myndatexti með nöfnum hundanna og eigenda þeirra. Era það Sigurmon Hreins- son og Þuríður Elín Geirsdóttir ásamt hundunum (f.v.) Falcon, Kolku, Quiz, Buck og Quail. Hjúkrunarþyngd Grundar 0,85-0,89 í grein í Morgunblaðinu á sunnu- dag var því haldið fram að hjúkrun- arheimilið Grund væri, samkvæmt RAI-mælingu, með hjúkranar- þyngdina 1,05 og yfir. Það er ekki rétt heldur er hjúkr- unarheimilið samkvæmt þessari mælieiningu með hjúkrunarþyngd- ina 0,85 til 0,89. Beðist er velvirð- ingar á þessu mishermi. Fréttin var í Aftenposten í frétt af orðrómi um ofurskjálfta í Morgunblaðinu á föstudag var rangt farið með heiti norsks dag- blaðs, sem vísað var til. Átt var við dagblaðið Aftenposten. Beðist er velvirðingar á þessu. Mynd af höfundi vantaði Með greininni Ávanaefnavandinn á eríndi við okkur öll, sem birtist í Morgunblaðinu sl. sunnudag, vantaði mynd af aðalhöf- undi greinarinnar, Bimi Hjálmars- syni. Um leið og beðist er velvirðingar á mistökun- um er myndin birt hér. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hernáms- árin MÉR datt í hug máltækið „margur heldur mig sig“ þegar ég horfði á þáttinn Hemámsárin á dagskrá Ríkissjónvarpsins miðviku- dagskvöldið 21. júní sl. sem fjallaði um samskipti her- manna og kvenfólksins. Ég vann á fjölmennum vinnu- stað á stríðsárunum. Þar unnu margar stúlkur, sum- ar þeirra kynntust her- mönnum og fóru á böll hjá þeim. Þær kusu einfaldlega heldur að dansa við kurt- eisa, ódrukkna hermenn en blindfulla íslendinga og ófullar komu þær heim af dansleikjunum, því kven- fólk drakk yfirleitt ekki á þessum árum. Og hvemig áttu stúlkur að veltast blindfullar í bröggunum, þar sem hverjum hermanni var úthlutað einni bjór- flösku á viku? Mér finnst ómaklega vegið að þeim stúlkum, sem kynntust her- mönnum, þar sem framleið- andi þáttanna kallar til sögusmettur, sem bera þeim ófagrar sögur. Sann- leikurinn er sá, að landinn var afbrýðissamur og reiður og sumir spunnu upp alls konar lygasögur á þess- um árum. Ofstækisfullir kommúnistar vom þar iðnir við kolann. Það þarf ekki annað en að fletta blöðum Þjóðviljans frá þessum tíma til þess að lesa óhróð- urinn. Sannleikurinn var ekki alltaf aðalsmerki þeirra, enda enduðu þeir á hausnum. Sumar stúlkn- anna giftust til útlanda og margar þeirra em nú látn- ar. Ég vil að ættingjar þeirra fái að vita, að þessar stúlkur voru flestar reglu- samar, fyrirmyndar mann- eskjur upp til hópa. Fyrir nokkrum ámm gáfu tveir þekktir bræður út bók um svo kallað ástand og ætluðu sér að græða á niðrandi umfjöllun um stúlkur stríðsáranna, en það lýsir nú best lágkúralegu hugar- fari höfundanna. Er ekki kominn tími tU að einhver kona gefi út bók eða taki saman þáttaröð með heit- inu „Konur og íslenskir karlmenn“. Þar mætti minnast á íslensku mellu- dólganna, sem reyndu að selja hermönnum stúlkur á stríðsámnum. Persónulega þekki ég konur sem lentu í klónum á þeim. Einn þeirra þekki ég. Hann rak sjoppu á stríðsámnum og hugðist drýgja tekjurnar á þennan smekklega hátt, en núna yrkir hann ijóð um græðg- ina. Mér er ekki kunnugt um að menningarvitarnir, að fyrrverandi biskupi meðtöldum, hafi gert nokk- uð til að stöðva dólgana. Það vom nefnilega ungl- ingsstúlkur, nýkomnar úr sveit, sem þeir reyndu að tæla. Svo er af ýmsu að taka. Nú þekkist að íslensk- ir karlmenn panti sér konur eftir verðlistum frá útlönd- um. Heyrst hefur að karl- menn sæki sér konur í pútnahús í öðmm löndum, en þegar heim er komið, misþyrma sumir þeim svo þær neyðast til að leita í Kvennaathvarfið í hópum. Það er af mörgu að taka. Guðrún Magnúsdóttir- Kleppsvegi 40, Reykjavík. Bleik kirkja ÉG VAR á ferð vestur í Dölum um helgina og þar skoðaði ég kirkjuna að Hjarðarholti í Dölum. Þessi kirkja er ein af okkar perl- um. Þegar ég kom inn, brá mér heldur betur í brún. Kirkjan er máluð að innan í nærfataljósbleikum lit. Það er gömul hefð fyrir því hvemig kirjur em málaðar. Þetta er litur sem menn geta sullað á stofumar heima hjá sér. Ég vil gera athugasemd við þetta og þeir sem sjái um þessi mál, sjái sóma sinn í þvi að breyta þessu. Hans A. Clausen. Auglýsingablöff!! MÉR er spum, hvort ís- lensk getspá standi ekki við það sem þeir segja, eða hvort þeir þurfi að ritskoða auglýsingar sínar betur? Ég tók mjög vel eftir auglýsingu frá þeim sem sagði frá fimmfóldum lottó- potti, og endar auglýsingin á þeim orðum að ég átti að muna eftir að gleyma að kaupa miða ef ég vildi ekki vinna!! Út úr þessari auglýsingu les ég að ég átti að hafa öruggan vinning ef ég keypti miða, og þar sem ég keypti jú miða spyr ég, af hverju ég fékk ekki vinn- ing? Svar óskast. Jónina. Tapað/fundið Brún lesgleraugu töpuðust BRÚN lesgleraugu töpuð- ust á leiðinni frá Laugavegi og vestur í bæ í byrjun júní. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa sam- band í síma 562-7932. Dýrahald Kettlingur fæst gefins ÉG heiti Brandur og er átta vikna fress. Er ekki einhver kattarvinur sem vill eiga mig?. Upplýsingar í síma 567-5404 eða 699-4056. Tvær læður fást gefíns TVÆR læður fæddar 1. maí fást gefins. Önnur er hvít, svört og brún og hin er hvít og svört. Upplýsingar i sima 555-2447. Læða hvarf frá Hólmasundi LÆÐA hvarf frá Hólma- sundi við Sæbraut fyrir um viku. Hún er lítil og grann- vaxin, bröndótt með rauð- brúnan blett á kollinum og var með slitna bleiklitaða ól og bjöllu. Viti einhver um ferðir hennar, vinsamlegast hafið samband í síma 863- 8333. Komið inn til lendingar. Morgunblaðið/Ómar Víkverji skrifar... MIKIÐ er um að vera á landinu á sumrin. í höfuðborginni rekur hver menningardagskráin aðra og úti á landi era fjölmargar héraðshátíðir allt sumarið en þær era gjaman tengdar merkum tímamótum í sögu byggðarlaganna, menningarviðburð- um eða ferðamennsku. Upp í hugann koma danskir dagar, írskir og fær- eyskir. Allt era það góð tilefni vegna gamalla og nýrra tengsla okkar við þessar þjóðir. En Víkverji er að velta því íyrir sér af hverju ekki era einnig haldnir pólskir dagar eða hátíðir tengdar öðrum þjóðum sem eiga marga fulltrúa hér á landi um þessar mundir. Víða um landið hafa myndast tengsl við þessi lönd vegna fjölda fólks sem hingað hefur flust eða hér dvelur tímabundið til að sækja at- vinnu. Það væri til dæmis tilvalið að halda pólska daga einhvers staðar á Vestfjörðum þar sem Pólverjar hafa haldið uppi atvinnulífinu í sumum plássunum. Hátíðir þessar era mjög mismunandi að gæðum, að því er Vík- verja sýnist þótt hann komist ekki yf- ir að fylgjast með öllum, en innan um virðast mjög áhugaverðir atburðir. Allt er þetta jákvætt fyrir íbúa byggðarlaganna og ferðafólk, enda er í mörgum tilvikum beinlínis verið að höfða til þess að brottfluttir íbúar staðanna vitji heimahaganna af þessu tilefni. Eins og byggðin hefur þróast er markhópurinn stór enda era brott- fluttir staðarmenn væntanlega í flestum tilvikum fjölmennari hópur en núverandi íbúar hans. XXX OFT era það einstaklingar sem eiga heiðurinn af menningarvið- burðum. Á Seyðisfirði er haldin ein metnaðarfyllsta listahátíðin. Nefnist hún Á seyði og er haldin á hverju sumri. Miðpunktur hennar er menn- ingarmiðstöðin Skaftfell. Einstakl- ingur gaf húsið til menningarstarf- semi og hópur einstaklinga hefur staðið fyrir endurbótum á húsinu og uppbyggingu menningarmiðstöðvar- innar og sami hópur á mikinn hlut að listahátíðinni. í tengslum við hátíðina er haldin röð tónleika í Seyðisfjarðar- kirkju og nefnist hún Bláa kirkjan. Tónleikar era haldnir á hverju mið- vikudagskvöldi allt sumarið. Þetta vita margir, enda eykst aðsókn á tón- leikana ár frá ári. Færri vita hins vegar að Bláa kirkjan er einkafram- tak Muff Worden, bandarísks tónlist- arkennara sem hefur sest að á Seyð- isfirði. Hlutverk hennar felst ekki einungis í því að skipuleggja tónleik- ana, fá íslenskt tónlistarfólk og erlent til að koma fram og sjá um fram- kvæmdina að öllu leyti heldur tekur hún sjálf á móti listafólkinu og kemur því á staðinn, hýsir það á sínu heimili og eldar ofan í það. Þau persónulegu tengsl sem þetta fyrirkomulag skap- ar á áreiðanlega þátt í því hvað það er að verða eftirsótt hjá tónlistarfólki að taka þátt í Bláu kirkjunni. Auðvitað nýtur Muff Worden aðstoðar annarra einstaklinga og einhverra styrkja en framtak þessarar konu er samt aðdá- unarvert. XXX SEGJA mætti fleiri sögur af lofs- verðu framtaki einstaklinga á menningarsviðinu. Hér skal aðeins getið uppbyggingar Valgeirs Þor- valdssonar bónda á Vesturfarasafn- inu á Hofsósi. Hann fékk áhuga á tengslum Islendinga við frændur sína í Vesturheimi og réðst í það verk að byggja upp gamalt hús á Hofsósi og koma þar upp Vesturfarasetri og sýningu um fólksflutningana til Vest- urheims. Sýningin er unnin af mjög færa fagfólki og er ákaflega fróðlegt og skemmtilegt að skoða hana. Val- geir fékk nokkur fyiiitæki til liðs við sig þegar hann réðst í verkefnið og nú hefur ríkisvaldið viðurkennt starfið með því að styrkja áframhaldandi uppbyggingu og viðurkenna Vestur- farasetrið sem þjónustumiðstöð á þessu sviði. Er það vel. Er nú hafin uppbygging nýrra húsa á svæðinu og verið að setja upp nýjar sýningar sem Víkveiji hlakkar til að skoða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.