Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 39
Ríkisstjórnin hækkar lyfja-
kostnað sjúklinga um milljarð
■4-
MENNTUN
Í Búið er að taka saman hljóðfræði og
| málfræði og unnið er að því að gera
^ orðalista. Þá er að mestu búið að
taka saman menningarefni sem
verður í upplýsingabankanum á
diskinum.
Hins vegar á enn eftir að þýða
textann aftur á ensku, taka saman
málfræði- og framburðaræfingar og
hljóðrita einstök orð í orðalistanum.
Síðast en ekki síst er mikil vinna
: eftii' við að vefa allt efnið saman.
| Styrkur Málræktarsjóðs, sem nem-
| ur 500 þúsund krónum, gerði stofn-
í uninni kleift að ráða námsmann,
Baldur A. Sigurvinsson, í sumar til
að vinna að því að vefa efnið saman.
Að sögn Úlfars Bragasonar, for-
stöðumanns Stofnunar Sigurðar
Nordals, var tilgangurinn með því
að taka þátt í þessu verkefni þó ekki
eingöngu sá að búa til kennsluefni í
íslensku. Hugmyndin var einnig að
Íefia þekkingu þeirra sem stunda
kennslu í íslensku fyrir útlendinga á
kennslufræði tungumála og gefa
þeim tækifæri til að búa til kennslu-
efni í samvinnu við starfsbræður og
-systur annars staðar í Evrópu.
Hann segir enn fremur að vegna
fjárskorts hafi stofnunin þó ekki
getað sinnt þessum þætti sem
skyldi heldur orðið að einbeita sér
að því að búa kennsluefnið til með
svo litlum tilkostnaði sem mögulegt
Íværi.
íslenska í tísku
Stofnun Sigurðar Nordals annast
m.a. umsjón með kennslu í íslensku
við erlenda háskóla. Þá hefur stofn-
unin haft umsjón með alþjóðlegu
sumarnámskeiði við Háskóla Is-
lands frá árinu 1989.
Guðrún kennir á námskeiðum
stofnunarinnar. „ísland virðist vera
í tísku núna. Það streymir fólk hing-
að á þessi námskeið. Það byrjar
námskeið í júlí hjá stofnuninni og
1 það komast alltaf færri að en sækja
| um. Margir sem koma geta lesið ís-
lensku en hafa aftur á móti aldrei
heyrt málið talað,“ segir hún.
Margmiðlunarverkefnið, sem
kallast á ensku „Small is Beautiful -
Language Mobility: A Pilot for
Multimedia Package for Academic
Purpose", hefur notið velvildar
Linguaáætlunar Evrópusambands-
ins og hlotið styrki í þrígang.
Hér á landi hefur menntamála-
1 ráðuneytið styrkt verkefnið, þennsl-
| umálasjóður Háskóla íslands,
menningarsjóður íslandsbanka,
Þjóðhátíðarsjóður og Málræktar-
sjóður.
í UMRÆÐUM á Alþingi í vor
kom fram að ríkisstjórnin hefði
uppi áform um að spara um einn
milljarð króna á ári í
lyfjakostnaði. Margir
áttu erfitt með að trúa
þessum boðskap, að
mitt í margrómuðu
góðæri yrði enn eina
ferðina látið til skarar
skríða gegn því fólki
sem á við sjúkdóma
að stríða. Nú hefur
komið á daginn að al-
vara bjó að baki.
Um síðustu áramót
hækkaði lyfjakostnað-
ur sjúklinga talsvert.
Þegar sú hækkun er
lögð saman við þá
breytingu sem nú er
gerð á reglugerð um
hlutdeild Trygginga-
stofnunar ríkisins í lyfjakostnaði
mun hámarksgreiðsluhlutdeild
sjúklinga hafa hækkað um 72,22%
frá áramótum eða úr 1.800 krónum
fyrir hvem lyfseðil í 3.100 krónur.
Þetta á við um svokölluð B-lyf en í
þeim flokki eru meðal annars lyf
við hjarta-, astma-, psoriasis- og
geðsjúkdómum. Hækkunin í svo-
kölluðum E-lyfjaflokki er hlutfalls-
lega minni eða 28,57% en í krónum
nemur hækkunin eitt þúsund krón-
um fyrir hvern lyfseðil, fer úr
3.500 í 4.000 krónur. Hvað elli- og
örorkulífeyrisþega snertir er
hækkunin í báðum lyfjaflokkum
minni, 58,33% fyrir B-lyf og 25%
fyrir E-lyf. Á þessum hlutfalls-
hækkunum var vakin athygli í
greinargerð frá BSRB fyrir fáein-
um dögum.
Sjúkdómar draga
úr vinnugetu
Þegar litið er yfir þann lista sem
hér var nefndur um lyf í B-flokki,
sem hækka mest, þá eiga þeir
sjúkdómar sem lyfjunum er ætlað
að lækna eða halda í skefjum það
sameiginlegt að þeir draga allir
verulega úr vinnugetu og sumir
eru þess eðlis að þeir eru mjög
langvarandi. Árum og jafnvel ára-
tugum saman á fólk við þá að
stríða. Auk erfiðleika sem sjúk-
dómarnir skapa einstaklingnum á
sál og líkama verður
efnahagur þeirra og
fjölskyldna þeirra iðu-
lega bágbornari en
hjá öðrum einfaldlega
vegna þess að vinnu-
geta er ekki fyrir
hendi. Ofan á allt
þetta kemur síðan
beinn tilkostnaður við
sjúkdómana, læknis-
kostnaður og þar með
að sjálfsögðu lyfja-
kostnaður sem vegur
þungt.
Til þess að vega
upp á móti tekjutapi
hafa verið ýmsar
reglur við lýði. Úpp úr
1990 urðu miklar deil-
ur þegar stjórnvöld fóru að draga
úr stuðningi almannatrygginga-
kerfisins og skerða þær hámarks-
greiðslur sem hverjum og einum
væri gert að borga. Nú er svo
komið að engin slík hámörk eru
fyrir hendi. Hins vegar er tekju-
lægsta fólkinu aðeins gert að
greiða hlutfall af lyfjakostnaði sín-
um og við reglugerðarbreytinguna
nú er tekjuviðmiðun endur-
greiðslna TR vegna læknis- og
lyfjakostnaðar hækkuð um tvö
hundruð þúsund krónur á ári og
fi'ádráttur vegna barna er aukinn
og tekur nú til barna og unglinga
til 18 ára aldurs í stað 6 ára áður.
Þessi breyting er til framfara og
henni ber að fagna. Hins vegar er
rétt að vekja athygli á að fjölskyld-
ur með samanlagðar tekjur hjóna
yfir 267 þúsund krónur á mánuði
fá engan stuðning.
Hátt reitt til höggs
Ekki er öll sagan sögð með
þessu. Með síðustu reglugerðar-
breytingu eru nokkur lyf hreinlega
tekin út úr tryggingakerfinu. Það
á til dæmis við um lyf við sveppa-
sýkingum, en það er sjúkdómur
eða kvilli sem ágerist með aldri og
hrjáii- hann margt eldra fólk. Sam-
Lyfjakostnaður
Auk erfiðleika sem sjúk-
dómarnir skapa ein-
staklingnum verður
efnahagur þeirra iðu-
lega bágbornari en hjá
öðrum, segir Ögmundur
Jónasson, vegna þess
að vinnugeta er ekki
fyrir hendi.
kvæmt upplýsingum sem ég hef
aflað mér hjá lyfsala nemur kostn-
aður við algengan þriggja mánaða
skammt tæpum 23 þúsundum
króna með þeim afslætti sem apó-
tekið gæfi. Hér fæst hins vegar
enginn afsláttur lengur frá al-
mannatryggingum. Læknir sem ég
leitaði til um upplýsingar sagði, að
nú hefði það hent í fyrsta skipti á
hans ferli að sjúklingur hefði geng-
ið út af stofunni með þeim orðum
að svo væri komið að hann hefði
ekki ráð á læknismeðferðinni.
Á það hefur verið bent að lyfja-
kostnaður þjóðarinnar hafi hækk-
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Uátintv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
að á undanförnum árum og beri að
sporna gegn því. Undir það skal
tekið að mikilvægt er að ráðast í
fyrirbyggjandi aðgerðir til að
koma í veg fyrir sjúkdóma. Þá er
einnig æskilegt að heilbrigðisstétt-
ir geri sér grein fyrir því að sum
lyf eru dýr og eðlilegt að það sé
haft í huga þegar um tvo mismun-
andi kosti jafngóða er að ræða. **-
Ekkert slíkt vakir hins vegar fyrir
ríkisstjórninni. Hún beinir aðgerð-
um sínum hvorki í fyrirbyggjandi
átt né að sparnaði og ráðdeild í
kerfinu. Hún ætlar að láta fjárráð
hvers og eins, sjúklinganna sem á
lyfjum þurfa að halda, ákvarða
hvaða lyf verði fyrir valinu ef þeir
á annað borð hafa efni á því að
neyta þeirra lyfja sem þeir nauð-
synlega þurfa á að halda. Ætlunin
virðist vera sú að hver og einn
kaupi lyf eftir efnum og ástæðum,
hinn efnaði kaupi gæðalyfin,en hin-
ir kaupi það sem ódýrara er þótt
gæðin séu minni. Hér er hátt reitt
til höggs. Ráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar ganga út á að draga úr út- »*■
gjöldum ríkisins vegna niður-
greiðslu á lyfjum um ríflega eitt
þúsund milljónir króna á árs-
grundvelli. Ljóst er að þetta verð-
ur gert á kostnað sjúklinga.
Höfundur er alþingismaður
og formaður BSRB.
exo I.is
<jexof>
kúí^nooekdtm
Fákafen 9, s: 5682866 Reykjavík
Ögmundur
Jónasson
Einstakur fjölskyldu- og ferðabíll!
KIA Carnival ersannkallaður fjölnotabill. Hann tekurallt að sjö manns í sæti. Að innan
má sveigja hann að þörfum flestra, hvort sem þeir eru einir á ferð eða með stórfjöl-
skylduna og allt hennar hafurtask. Sætunum ersnúið, rennt og raðað á hvem
þann veg sem heppilegastur þykir hverju sinni. Það spillirsíðan ekki fyrir
að rennihurðimar að aftan eru tvær.
Verð nú aðeins
2290.000
Sjálfskiptur - Bensín eða Dísil
Stærð bílsins, kraftur vélarínnar og öryggisbúnaðurínn
gerírKIA Carnival að ákaflega heillandi
ferðabíl, um leið og lipurð hans og fjöi-
breyttur staðalbúnaðurínn búa hann
kostum hins ríkulega fólksbíls.