Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 43
____________UMRÆÐAN___________
Hverjar eru efndirnar sem
„sumir lofuðu sumum“?
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
FYRIR alþingis-
kosningar á sl. ári var
mikil umræða um kjör
öryrkja og allir sem
þar komu að máli voru
sammála um að bæta
þyrfti þau til muna svo
að þau yrðu viðunandi.
Eg held ég geti full-
yrt að nær allir þeir
sem nú sitja á Alþingi
hafi orðað það á einn
eða annan hátt, lofað
eða gefið undir fótinn
með að þeir skyldu
standa að slíkum
breytingum.
Vissulega hefur þó
nokkuð verið gert til að
leiðrétta og laga kjör öryrkja á þess-
um tíma.
Ég get samt ekki sagt annað en að
það hefur valdið mér miklum von-
brigðum að meira skuli ekki hafa
verið gert og lengra gengið, sérstak-
lega með tilliti til þess góða efna-
hagsástands sem nú er í landinu.
Frá því ísland varð frjálst og full-
valda ííki hefur forsetaembættið
verið æðsta embætti landsins. Allan
þennan tíma hafa forseti Islands og
maki hans verið undanþegin hvers-
kyns sköttum og gjöldum til ríkis-
sjóðs. Nú bar svo við að bráð nauð-
syn þótti að afnema þau fríðindi með
breytingu á lögum.
Fyrir um tveimur mánuðum voru
einnig samþykkt á Alþingi lög um
vörugjald á bifreiðar. Megininntak
þeirra var að lækkað var verulega
vörugjald á jeppum og dýrum bif-
reiðum, svokölluðum bankastjóra-
og forstjórabifreiðum.
Lögin höfðu líka það í för með sér
að tekjumissir ríkissjóðs verður
milli 350 og 400 milljónir á ári.
Þess ber þó að geta og þakka að
við þá lagabreytingu var alveg fellt
niður vörugjald á sérbúnum bifreið-
um fatlaðra.
Lagabreytingar þessar voru
keyrðar í gegnum Alþingi með al-
gjörum forgangshraða.
Á fjárlögum í ár eru „litlar" 324
milljónir fyrir kristnihátíð á Þing-
völlum nú í sumar. Þar á að fagna
því að 1000 ár eru liðin frá kristni-
tökunni á íslandi.
Mér mundi ekki bregða mikið þótt
heildarkostnaður liðinna ára við
undirbúning og ýmis aukakostnaður
sem á eftir að bætast við yrði það
mikill að allt tilstandið færi að halla í
500 milljónir þegar upp verður stað-
ið.
Nú um þessar mundir eru þing-
menn svo að ræða um og geta reynd-
ar ekki komið sér alveg saman um
500 milljóna þjóðargjöf
til landsmanna af
þessu tilefni.
Af þeim fréttum sem
borist hafa eru þeir að
ræða um að þetta verði
til fræðslu og kynning-
ar á og um kristni og
kristnitökuna.
Sennilega veitir ekki
af að fræða og kenna
um kristilegt hugarfar
og væri ágætt að byrja
á hæstvirtu Alþingi.
Ég get ekki skilið
hvaða hvatir lágu að
baki því að fyrrgreind
lög voru svo áríðandi
og þurftu slíka
forgangsmeðferð á Alþingi.
Af hverju voru ekki um leið af-
numin skattfríðindi fólks í utanríkis-
Öryrkjar
Það verður aldrei friður
eða þjóðarsátt í þessu
landi, segir Arnór
Pétursson, ef slíkur
tekjuafgangur verður
ekki notaður m.a. til að
hækka verulega og
bæta kjör öryrkja.
þjónustu, starfsmanna hjá Samein-
uðu þjóðunum og öðrum
alþjóðastofnunum?
Áf hverju var ekki um leið lækkað
vörugjald á eldsneyti á bifreiðar svo
þeir tekjulægri nytu kjarabóta líka?
Þegar svo slíkt er gert á sama
tíma og m.a. frumvarp til laga um að
afnema tekjutengingu hjóna vegna
útreiknings tekjutryggingar fæst
ekki einu sinni tekið til þinglegrar
umræðu skilur maður hvorki upp né
niður í alþingismönnum.
í a.m.k. tveimur viðamiklum,
vönduðum og marktækum skoðana-
könnunum kom fram að meirihluti
landsmanna er þeirrar skoðunar að
bæta þurfi kjör öryrkja og íslend-
ingar eru meira að segja tilbúnir til
að taka á sig hærri skatta til að
standa undir slíku.
Þrátt fyrir það haga ákveðnir
valdamiklir menn sér líkt og strút-
urinn, þegar málefni öryrkja koma
til umræðu, þeir stinga hausnum í
sandinn og hlusta ekki, sumir reka
hann svo öðru hvoru upp og hrópa
eitthvað í þessa veru: „Bull, vitleysa
Arnór
Pétursson
og áróður!“ Aðrir þegja þunnu
hljóði.
Svo ætla þeir menn, sem svona
hafa staðið að málum á Alþingi, með
lögum að flytja málefni fatlaðra til
sveitarfélaganna. Er hægt að
treysta þeim til að gera það á viðun-
andi hátt?
Sjálfsbjörg mun aldrei samþykkja
þær breytingar nema tryggt verði
að réttarstaða fatlaðra verði enn
betri en hún er í dag. Jafnframt því
sem nægilegt fjármagn verði tryggt
til að sveitarfélögin geti sinnt þeim
verkefnum sem þeim verður falið í
lögunum.
Ingibjörg Pálmadóttir, trygginga-
málaráðherra, hefur a.m.k. tvisvar
óskað eftir „þjóðarsátt" í þessum
málum við litlar eða engar undir-
tektir.
Það er kjarni málsins, henni verð-
ur að koma á og það á að vera auð-
velt ef vilji er fyrir hendi hjá forystu-
mönnum ríkisstjórnarflokkanna.
Það væri verðugur minnisvarði um
1000 ára kristnihald á íslandi.
Henni verður samt ekki komið á
nema fulltrúar öryrkja komi að því
borði með fullan tillögu- og samn-
ingsrétt.
Umræðunni um kjör öryrkja á Al-
þingi undanfarið hefur oftast verið
snúið upp í ómerkilegt karp milli
stjórnar og stjórnarandstöðu. Ég
frábið mér slíka umræðu og Sjálfs-
björg mun aldrei taka þátt í slíkum
málflutningi.
Það ríkir góðæri í landinu þótt
stjórnvöld hafi reynt að draga úr tali
um það. Nýlega var upplýst að
væntingar í ríkisfjármálum fæni
langt fram úr björjnstu áætlunum
og að ríkissjóður mundi skila 28
milljörðum í tekjuafgang á þessu
ári.
Það verður aldrei friður eða
þjóðarsátt í þessu landi ef slíkur
tekjuafgangur verður ekki notaður
m.a. til að hækka verulega og bæta
kjör öryrkja. Sérstaklega þegar litið
er til þess að ,jeppaforstjórunum“
hafa þegar verið færðar umtalsverð-
ar kjarabætur.
Það þarf ekki lengur að gera
kannanir eða rannsaka frekar kjör
öryrkja. Það liggur fyrir margkann-
að, rannsakað og rökstutt að þau
verður að lagfæra svo að ísland sé
það réttláta og siðmenntaða þjóðfé-
lag sem við öll viljum að það sé. Vilji
er allt sem þarf.
Geta forsætisráðherra, utanrikis-
ráðherra og biskup gengið með
hreina samvisku til kristnihátíðar á
Þingvöllum ef ekki hafa verið efnd
marggefin loforð um leiðréttingai' á
kjörum öryrkja?
Finnst þeim í lagi að allt þetta
fjármagn fari úr ríkissjóði til að
halda kristnihátíð í tvo daga á Þing-
völlum án þess að öryrkjar fái
sanngjarnar leiðréttingar á kjörum
sínum?
Finnst þeim í lagi að „banka/for-
stjórum" séu færðar 350 til 400
milljónir vegna kaupa á jeppum og
dýrum bifreiðum án þess að svipuð
upphæð fari til að leiðrétta kjör
öryrkja?
Að lokum í anda Kristnihátíðar:
„Eins og þér viljið að aðrir menn
gjöri yður skulu þér og þeim gjöra.“
Er einhver vilji hjá þessum herra-
mönnum að gjöra þannig?
Hötundur er formaður Sjálfsbjarg-
ar, landssambands fatlaðra.
.Oðkaupsveislur—útlsamkomur—skemmlanir—tónleikar—sýnlngar—kynningor ogfl.ogtl.ogll.
1X5
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta á veðrið þegar
eggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald
á staðinn - það marg borgar sig.
skipuleggja
Trygt
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700 m2
Einnig: Borð, stólar, tjaldgóll
og tjaldhltarar.
skátum ó heimoveili
slmi 562 1390 • fax 552 6377 • bii@scout.is
BAÐSTOFAN
BÆJARLIND 14, SlMI 564 57 OO
*
, * ’ ‘ / - *—2 ÞITT FE
Maestro HVARSEM
t ' -- 5 -^r ÞÚ ERT
URKL/EÐNING
Kynntu þér ELGO múrklæðningu
Traust íslensk múrefni * 9 w
Sisa°197s áður en þú ákueður annað
ELGO múrklæðning er létt og sterk, sem fegrar, ver og einangrar.
Á verði við allra hœfi
tar á ný og eldri húsn
X/arist eftirlíkingar
Leitið tilboða!
Sl steinprýði
Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík
Simi 567 2777 — Fax 567 2718
ELGO MURKLÆÐhllNGIN hefur verið undir eftirliti
RB síðastliðin 9 ár og hefur farið í gegnum
ýmsar prófanir, svo sem NORDEST NT Build
G6, og staðist þær allar. ELGO
MURKLÆÐNINGIN var tekin út af
Birni Marteinssyni, verkfræðingi
hjá RB, ÁN ATHUGASEMDA.
Flest ELGO efnin hafa
verið prófuð hjá RB.