Morgunblaðið - 27.06.2000, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala S. 555 2222
The Hammer of Thor
A mythological action-comedy
Mið. 28/6 kl. 13 örfá sæti laus
Sun. 2/7 kl. 20
Fim. 6/7 kl. 20 uppselt
Sýningartími 50 mínútur.
IEIKFÉLAG ÍSLANPX
L°H!7ISÍÁBNKI 55x 3°o°
Sjeikspír eins og hann leggur sig
fös. 30/6 kl. 20
Síðasta sýning í sumar
530 3030
Hádegisleikhús með stuðningi
Símans — BJÖRNINN
mið. 28/6 kl. 12 nokkur sæti laus
fös. 30/6 kl. 12 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka daga,
kl. 14-18 laugardaga og fram að syningu sýningar-
daga. Miðar óskast söttir I viðkomandi leikhús
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vtsa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavik.
Sími 525 2000.
= ..............
mbl.is
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBOND
Dulræn
spennu-
mynd
Hættuspil
(Heaven)
Spennumynd
★★
Leikstjórn og handrit: Scott Reyn-
olds. Aðalhlutverk: Martin Donov-
an, Danny Edwards og Joanna
Going. (99 mín.) Bandarfkin, 1998.
Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
ÞAÐ gengur á ýmsu í þessari
sérkennilegu spennumynd sem fjall-
ar um ógæfumanninn Robert Marl-
ing (Martin Donov-
an) sem misst
hefnr allt vegna
spilafíknar og
drykkjusýki. A
næturklúbbnum
sem Robert spilar í
öll kvöld kynnist
hann klæðskipt-
ingnum Heaven en
hún er gædd þeim
hæfíleikum að sjá atburði áður en
þeir eiga sér stað. Heaven segir að
Robert muni bjarga lífi sínu og laun-
ar honum með því að hjálpa honum í
vandræðum sínum. Flétta myndar-
innar er öll hin dularfyllsta en þar
koma fyrir of margar klisjur til að
hún geti talist frumleg. Það sem hins
vegar heldur áhorfandanum við efn-
ið er brotakenndur frásagnarmáti
sem er vel unninn og þjónar sögunni
ágætlega. Martin Donovan gerir
mildð fyrir myndina og gerir aðal-
persónuna líklegast mun áhugaverð-
ari en handritið segir fyrir um.
Danny Edwards fer sömuleiðis vel
með hlutverk klæðskiptingsins sem
er jarðbundin og viðkunnanleg
persóna, ólík þeirri kómísku staðal-
týpu sem sjá má í svo mörgum kvik-
myndum. A heildina litið á þessi dul-
ræna spennumynd sínar jákvæðu
hliðar þótt hún taki nokkuð mörg
feilspor.
Heiða Jóhannsdóttir
- then charqes
of obscen'ity
wiH aiwags hit theír
marK.
Pubtic perception MATTERS.
As íonq as the broader community
msumes that comics, bg their nature. are
wíthout socia! vaiue anb, by their nature,
are suitable onlg for kids --
And tcr aii
our progrns.
those assumptions
are stiil in force in
mang regions of the
United States.
FYRIR sjö árum síðan gaf
Scott MeCloud út kennslu-
bókina „Understanding
Comics" þar sem hann skilgreindi
myndasögulistformið til hins ýtr-
asta. Svo sýndi hann fram á að
samkvæmt skilgreiningu sinni hefði
upphafleg mynd formsins birst á
hellaveggjum stein-
aldarmanna og því
væri í raun um mun
eldra listform að
ræða en ritmálið. Sú
bók olli mikilli um-
ræðu á sínum tíma
og var í raun bylting
í baráttu mynda-
sagnanna til þess að
öðlast virðingu innan
bókmenntaheimsins.
Með þeirri bók má
eiginlega segja að
Scott McCloud hafi
kennt mörgum að
lesa myndasögur
upp á nýtt. Innsýn
hans í listformið og
hæfni hans til að miðla upplýsing-
um er slík að lesandinn hefði létti-
lega getað fengið það á tilfinning-
una eftir lesningu bókarinnar að
hún væri lykill að áður óuppgötv-
uðu dulmáli sem snyrtilega hefur
verið falið í áraraðir á milli ramma
myndasagnarinnar. Það eru fáir
einstaklingar sem hafa litið mynda-
söguna sömu augum eftir lesningu
þeirrar bókar.
í „Understanding Comics“ fjall-
aði Scott McCloud aðeins lítillega
um þau áhrif sem tilkoma tölvunn-
ar hefur haft og mun að öllum lík-
indum koma til með að hafa á gerð
myndasögunnar. I nýjustu bók
sinni, „Reinventing Comics", bætir
hann okkur það upp þar sem helm-
ingur bókarinnar fjallar sérstak-
lega um hjónaband myndasögunn-
ar og Netsins. Öll bókin tekst samt
á við framtíð myndasögunar og
spáir hann tólf uppreisnum sem
hann fullyrðir að séu nauðsynlegar
Reinventing Comics eftir Scott
McCloud. Framhald bókarinnar
Understanding Comics. Bókin er
gefin út af Paradox press/DC Com-
ics árið 2000. Fæst í myndasögu-
verslun Nexus VI. Skoðið endilega
www.scottmccloud.com.
til þess að listformið geti haldið
áfram að þróast og fanga þannig
athygli þeirra 99,9% bókmennta-
áhugamanna heimsins í dag sem
gefa myndasögum engan gaum.
Hann byrjar ávallt, eins og góðum
leiðbeinanda hæfir, á að skilgreina
vandann sem hann sýnir fram á að
liggur jafn mikið hjá öllum aðilum.
Lykilatriðið hljóti samt alltaf að
vera þetta nána samband sem höf-
undurinn nær við lesandann eftir
að myndasagan er komin fyrir
augu hans. Það sé galdur allra bók-
mennta og eins augljóst og það
ætti að vera sýnir McCloud samt
fram á það að út af því hve mynda-
sögumarkaðurinn hefur átt erfitt
með að muna þessa frumreglu hafi
hann ekki náð til breiðari lesenda-
hóps en raun ber vitni. En sjón-
deildarhringurinn er bjartur og
breiður því eins og áður sagði kast-
ar McCloud ljósi á tólf leiðir úr
þeirri gryfju sem myndasögumark-
aðurinn hefur grafið sér undanfarin
ár.
Þrjár þessara byltinga eru tölvu-
tengdar og er McCloud sérstaklega
duglegur að benda á þá möguleika
sem tengjast þessum „bita-stæðu“
félögum okkar.
Hann bendir meðal annars á að
nú sé komin styttri leið frá höfundi
til lesanda sem þurrkar út kostnað-
arsama milliaðila og því geti höf-
undar átt færi á því að selja verk
sín á mun hagstæðara verði án
þess að ágóðahluti þeirra minnki.
Hann fagnar einnig tilkomu net-
myndasagna því að með þeim sé í
fyrsta sinn í sögu myndasagnanna
komið tækifæri að brjóta sig út úr
takmörkuðu plássi blaðsíðunnar inn
í þann stafræna sem hefur engin
plásstakmörk. Myndasagan hefur
því í fyrsta sinn á lífskeiði sínu færi
á því að þróast í allar áttir, í orðs-
ins víðasta skilningi.
Birgir Örn Steinarsson
VIKUNNAR
Frá atómum
til bita
Viltu prófa
nýtt lífsmunstur?
Áriö 2000
Veldu
^Jeit i n cj a k ú s
mánaðarins
og þú gætir unnið kvöldverð fyrir tvo!
___________________________________
Sendisttil:
Morgunblaðsins, merkt'Veitingahús mánaðarins'', Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Veitingahús mánaöarins er:
í<jL~k
©
Nafn
Kenmtala
Heimilisfang
Umsogn:
Sími:
Einnig hægt aö velja á icelandic-chefs.is Gildir út áriö 2000. Skilist fyrir 1. hvers mánaöar.
vlsa.ís ícelandíc-chefs.is
REYKJAVf K
MINNINOAMOIia IVRÖPU
AMIB 2000
reykjavik2000.is
má
Við bjóðum heilsárs-, hálfsárs- og sumardvöl
og erum að taka á móti umsóknum um þessar
mundirtil landa með brottför í janúar-mars.
AFS á íslandl
Ingólfsstræti 3 | 2. hæð | sími 552 5450 | www.afs.is
Þyrstir þig í nýja reynslu og ævintýri?
Viltu læra nýtt tungumál?
Ertu á aldrinum 15-18 ára?
Viltu öðruvísi menntun?
Meiri víðsýni? Meira sjálfstraust?
Ef þú gerist skiptinemi á vegum AFS kynnist
þú ólíkri menningu, eignast nýja vini og öðlast
dýrmæta reynslu sem endist þér ævilangt.
íþróttir á Netinu
/fj>mbl.is