Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rrkisskattstjóri um kaupréttarsamning Landsbankans Hefði átt að berast embættinu Skemmdi sex bfla í einum árekstri FÓLKSBIFREIÐ var ekið á fimm kyrrstæða bfla á bflast- æði við Hringbraut í Reykja- vík í gærkvöldi. Engan sakaði. Óhappið varð með þeim hætti að ungur ökumaður BMW-bif- reiðar, með tvo farþega, missti stjórn á bifreiðinni á hring- torginu við Ánanaust og hafn- aði á fimm bílum sem lagt var á bflastæði við hlið torgsins. Að sögn lögreglu skemmdust bifreiðimar allar mikið. Þrjár voru fluttar af vettvangi með kranabíl. Rigning í Reykjavík ÞAÐ hefur rignt á Reykvíkinga undanfarna daga. Margir borgar- búar hafa vart hætt sér út fyrir hússins dyr. Þú létu ekki allir rigninguna aftra för. Á Lauga- veginum mátti sjá þessa vel búnu þremenninga sem sáu ekkert því til fyrirstöðu að spúka sig í bæn- um. Mælingar Veðurstofunnar sýna að úrkoman í gær var ekki ýkja mikil, eða um 5 mm frá 9 til 18. Það er þú ekki víst að þeir sem lentu í mestu dembunum í höfuð- borginni í gær séu samþykkir því mati Veðurstofunnar að lítið hafl rignt. Mesta rigningin á landinu var á Vatnsskarðshúlum, sem eru skammt austan Kirkjubæjar- klausturs. Þar mældist úrkoman 45 mm. INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskatt- stjóri segir það mjög miður að Landsbankinn skyldi ekki fyrirfram senda rfldsskattstjóra áætlun um kaupréttarsamninga, sem Morgun- blaðið greindi frá í gær. „Það stend- ur skýrum stöfum í 8. tölulið B-liðar 8. greinar laga um tekju- og eignar- skatt að félag sem hefur í hyggju að veita starfsmönnum kauprétt eigi að hafa sent ríkisskattstjóra fyrirfram til staðfestingar áætlun um kauprétt starfsmanna," segir hann. Indriði segir að ríkisskattstjóra hafi fyrst borist samningurinn í gær. „Tilgangurinn með því að leita staðfestingar ríkisskattstjóra hlýtur að vera að kanna hvort fyrirkomu- lagið samrýmist lögum. Það var ekki gert og það er miður,“ segir Indriði. Samkvæmt samningi bankaráðs og starfsmannafélags Landsbank- ans öðlast allir starfsmenn bankans og félagasamstæðunnar kauprétt á hlutabréfum í bankanum. Sam- kvæmt samningi bankaráðsins og fyrr félagsins verður sölugengi til starfs- manna fundið með því að reikna meðalgengi hlutafjár á almennum markaði á síðustu 30 viðskiptadög- um fyrir 30. júní sl. Indriði segist ekki vilja tjá sig um efni samningsins, þar sem hann sé til skoðunar hjá embættinu. „Þó get ég vakið athygli á því ákvæði lag- anna sem segir að kaupverð skuli ekki vera lægra en gangverð þegar kaupréttarsamningur er gerður,“ segir Indriði. Morgunblaðið/Kristinn Ný vitneskja um inúítann Alex, son Fannýjar Pannigablúk Staðfest að Vil- hjálmur Stefáns- son er faðirinn fímm ára son þeirra Al- ex Alik Alahúk til krist- innar trúar“. Þetta gerist snemma í þriðja og síðasta heimskautaleiðangri Vilhjálms, sem stúð frá 1914-1918. I viðtölum Gísla og Hákonar við Qögur af sex börnum Alex, barnabömum Vil- hjálms, sem búsett era í Inúvik, hefúr komið fram að um þetta leyti hjuggu þau Vilhjálmur og Pannigablúk saman í húsi sem þau reistu sér þar sem Firth-áin rennur til sjávar skammt frá Herschel-eyju. Frank Stefansson, sonarsonur Vilhjálms. KIRKJUBÆKUR sem fundist hafa í bænum Túktoyaktuk við strönd Norður-íshafsins sýna fram á með úyggjandi hætti að Vilhjálmur Stef- ánsson landkönnuður eignaðist son- inn Alex með inúitakonunni Pann- igablúk er hann dvaldi með inúítum um skeið á öðrum áratug aldar- innar. Nú eru staddir í Inuvik í norðvest- urhéruðum Kanada Gísli Pálsson, prúfessor í mannfræði, og Hákon Már Oddsson kvikmyndagerðar- maður, en þeir eru að safna efni í heimildakvikmynd um samskipti Vilhjálms Stefánssonar, mannfræð- ings og landkönnuðar, barasmúður hans Pannigablúk og sonar þeirra Alex. Alex er eina bam sem vitað er til að Vilhjálmur Stefánsson hafi átt. Gísli og Hákon fengu fyrir nokkr- um dögum vísbendingu f skjalasafni í Yellowknife um að Alex Stefáns- sonar og múður hans væri getið í kirkjubúkum frá Herschel-eyju, sem geymdar væru í kirkju Anglican- safnaðarins í Aklavik. Við eftir- grennslan kom í Ijús að kirkjan í Aklavik hafði brunnið, en hins vegar væri hugsanlegt að kirkjubækurnar hefðu varðveist í bænum Túktoyakt- uk við strönd Norður-íshafsins. Þegar Gísli og Hákon heimsúttu biskup Anglican-safnaðarins í Inú- vik í fyrradag drú hann fram kirkju- bækuraar frá Herschel-eyju og sagðist hafa safnað kirkjubúkum á svæðinu saman þegar prestaköllum á svæðinu fækkaði svo að þær glöt- uðust ekki. í kirkjubúkum Herschel-eyju er tekinn af allur vafi um hjúskap Vil- hjálms og Pannigablúk og faðemi Alex, en þar segir að hinn 15. ágúst 1915 hafi klerkurinn C.E. Whittaker skírt „Fanný Pannigablúk, eigin- konu Vilhjálms, 45 ára gamla, og Ólst upp hjá móður sinni Alex úlst því upp hjá múður sinni og fúlki hennar, en hermt er að Vil- hjálmur hafí ætlað að taka son sinn með sér og ala hann upp í heimi hinna hvítu. Pannigablúk hafi hins vegar ekki léð máls á því að missa eina bara sitt. Lengst af hafði Alex framfæri af veiðum að hætti inúfta. Hann efnað- ist vel um túna, enda sagður slyngur bæði í veiðum og viðskiptum. Hann þútti líkur foður sínum og oft átti hann erfitt uppdráttar sem „blendingur". Nýru hans sködduðust þegar hann lenti ung- ur að árum í rysking- um við inúíta vegna uppruna síns og hann lést úr nýmakrabba- meini árið 1967. í æsku var hann skráður „hvítur", en síðar á ævinni þegar heilsu hans túk að hraka og hann þurfti á þeirri opinberu aðstoð að halda sem inúítum stúð til boða lét hann skrá sig sem inúíta. Að sögn Gísla kom fyrir að hvítir ferða- langar sem eignuðust böra með in- úftakonum í norðvesturhéruðum Kanada í byijun aldarinnar gengj- ust við böraum si'num af fúsum og fijálsum vilja. Aðrir tryggðu börn- um sfnum afkomu með einhveijum hætti þútt þeir sjálfir hyrfu á braut, með því að tryggja þeim fyrirvinnu eða fústra í húpi inúfta eða greiða með þeim. Vilhjálmur gerði hvor- ugt. Alla ævi, eða frá því að leiðöngrum hans lauk árið 1918, neitaði hann að gangast við hjúna- bandi sínu og Pannigablúk og syni þeirra Alex. Bensín- lækkun um mán- aðamótin ALLAR líkur eru á því að bens- ínverð lækki á innanlandsmark- aði um næstu mánaðamót. Að sögn Magnúsar Asgeirssonar, innkaupastjóra eldsneytis hjá Olíufélaginu, hefur olíuverð lækkað töluvert á heimsmarkaði og ætti sú lækkun að skila sér til íslenskra neytenda í byrjun ágústmánaðar. Magnús sagði aukið framboð og minnkandi eftirspum á Bandaríkjamai'kaði vera helstu ástæðumar fyrir lækkuninni, en auknar kröfur um gæði bensíns í Bandaríkjunum hafa orðið til þess að olíuhreinsunarstöðvar þar hafa ekki náð að anna eftir- spum sem skyldi. „Það hefur orðið um 12-13% lækkun á alheimsmarkaði og sú lækkun ætti að skila sér að hluta til hér um næstu mánaðamót," sagði Magnús. „Verðbreytingar skila sér ekki eins fljótt hér á landi vegna þess að við keyrum á birgðaverði, hvort sem um er að ræða hækkanir eða lækkanir á verði. Ef það væri olíuhreins- unarstöð hér á landi myndu verðbreytingar skila sér mun fyrr,“ sagði Magnús. Að sögn Magnúsar bjóst hann við að bensínverð ætti eftir að lækka enn frekar og sagði að mikið þyrfti til að sú þróun yrði ekki. „Ég býst fastlega við að það verði frekari lækkanh- í framtíð- inni þótt verðið nái eflaust ekki því lágmarki sem var í lok árs 1998.“ Reynir Guðlaugsson, inn- kaupastjóri eldsneytis hjá Skelj- ungi, hafði sömu sögu að segja og taldi að fyrirtækið myndi lækka bensínverð um mánaða- mótin. Hann gaf og sömu skýr- ingar fyrir lækkuninni. Sérblöð í dag msáitm____ LCaDuiv ÁLAUGARDÖGUM KR-stúlkur komnar í bikarúrslit eftir stórsigur á Val/B2 Skagamenn og dómarar með Herjólfi til Eyja/Bl Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.