Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 4

Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Færði Skál- holtsstað Guðbrands- biblíu að gjöf SKÁLHOLTSSTAÐUR eignaðist fyrir skemmstu Guðbrandsbiblíu í upprunalegri prentun, frá 1584. Gefandi er Örn Arnar, ræðismaður Islands f Minnesota í Bandaríkj- unum. Hann er læknir að mennt og var lengi yfirlæknir á sjúkrahúsi í Minneapolis en er nú hættur störf- um. Þessi gjöf hans tengist annarri, en um miðjan febrúar síðastliðinn afhenti hann Stofnun Áma Magn- ússonar að gjöf myndskreytt hand- rit Snorra Eddu frá því um 1700. Þessar bækur tvær hafði Örn keypt af bónda í Kanada, sem er af ís- lensku bergi brotinn; sá heitir Ken Melsted og býr í Saskatchewan. Hefur víða farið Umrædd Guðbrandsbiblía hefur víða farið. Hún var um tíma í Sví- þjóð en fór þaðan til Englands og var seld þar á uppboði fyrir um 20- 25 ámm. Kaupandinn var Islend- ingur, sem seldi hana svo til bónd- ans í Kanada. Nú er hún loks end- anlega komin heim. Þetta er sagt gott eintak, í fal- legu bandi frá 1625, en litillega þurfti að gera við fremstu siður bókarinnar. Sigurður Sigurðarson, vígslu- biskup í Skálholti, tók við gjöfínni 15. júli síðastliðinn fyrir hönd stað- arins. Jónas Kristjánsson, fyrrverandi forstöðumaður Árnastofnunar, sagði f viðtali við Morgunblaðið að Öra Arnar hefði leitað til sín og beðið um aðstoð við að fínna Bibl- íunni góðan stað. I sameiningu komust þeir að þeirri niðurstöðu, að hún myndi vel geymd í Skálholti, þótt mörgum hefði e.t.v. þótt meira við hæfí að koma henni norður til Hóla, þar sem Guðbrandur Þorláks- son var biskup, en ástæðan fyrir því að svo var ekki gert er sú, að Hóla- kirkja á mjög vandað eintak fyrir, en Skálholt ekki. Gersemi íslenskrar bókagerðar Guðbrandsbiblía er oft nefnd gersemi fslenskrar bókagerðar og um leið mesta bókmenntaafrek þjóðarinnar fyrr og sfðar. Ut- gáfudagur var 6. júní árið 1584. Að sögn eiga sjö menn að hafa unnið við prentun hennar í tvö ár. Þykir með ólfkindum að slfku verki Morgunblaðið/Jim Smart Sigurður Sigurðarson, vfgslubiskup í Skálholti, fagnar bókinni góðu. skuli hafa verið lokið á svo skömm- um tfma, miðað við stærð bókarinn- ar og afköst þess túna f prentverki. Menn hallast þó að því, að þetta geti staðist. Af þessum sjö mönnum em aðeins tveir nafngreindir; annar er Jón Jónsson prentari en hinn Guð- mundur Erlendsson. Er talið, að einhveijir hinna fimm hafi verið skólapiltar, því vitað er að Guð- brandur setti þá pilta að einhverju leyti til starfa í prenthús. Guðbrandsbiblía var öll prentuð í svörtum lit nema hluti textans á tit- ilsíðu; hann var prentaður f rauðu. Upplagið var 500 eintök, sem telj- ast verður mjög stórt ef litið er á allar aðstæður. Var erlendur bókbindari, Jurin að nafni, fenginn til að binda bók- ina og batt hann helming upp- Iagsins. Vom 120 eintök send til bands f Kaupmannahöfn, en af- gangurinn falinn fslenskum manni, Jóni Amgrímssyni, sem lært hafði bókband af hinum erlenda. Var bandið hið vandaðasta, eins og raunar bókin öll, slegið utan með spennu og doppum. Brotið var stórt (fólfó) og blaðsfður um 1250. Það heyrði til nýjunga að Biblfan var skreytt myndum, 27 talsins. Lengi var talið að Guðbrandur biskup hefði skorið myndamótin sjálfur, að sumum myndanna a.m.k., en rannsókn hefur leitt f Ijós, að þær muni allar vera er- lendar. Ýmsar breytingar voru gerðar á bókum Biblfunnar meðan á prentun stóð og eftir að henni Iauk. Sumar villur hafa verið lagfærðar á þann hátt, að strikað hefur verið í lesmál- ið með penna, en leiðrétting prent- uð á spássfu; stundum hefur Ieið- rétting verið gerð með penna einum saman. Er svo mælt, að sennilega muni engar Guðbrands- biblfur, sem nú eru til, vera fylli- lega samhljóða vegna þessa. Dýr bók Biblfan mun ekki hafa farið að koma úr bandi fyrr en 1585. Hún var dýr bók, kostaði 8-12 ríkisdali hvert eintak. Það var feiknaverð á þeim tfma og myndi svara til 2-3 kýrverða í dag. Ef pappír hefði ekki verið kominn til sögunnar hefði þurft 311 kálfskinn f hvert eintak Guðbrandsbiblfu. Af Guðbrandsbiblfu mun nú vera mest til allra fslenskra bóka frá 16. öld. Ástæðan er talin vera sú, að hún var stór og því erfíð viðureign- ar. Þá em líkur til þess, að menn hafi hlekkjað Biblfuna í kirkju, eins og gert var á bókasöfnum erlendis, þegar dýrmætar bækur áttu í hlut. Arin 1824-1825 lét Hið fslenska biblíufélag gera könnun á Biblíu- eigpi landsmanna og birtust niður- stöður hennar árið 1826. Sam- kvæmtþeim voru 160 eintök Guðbrandsbiblíu til f landinu, ýmist í opinberri eign eða einkaeign. Hver þessi tala er núna er ekki vit- að, að öðm leyti en því, sem Jónas Kristjánsson segir, að Guðbrands- biblfa sé til „í fáum eintökum, all- mörgum þó, misgóðum". Ráðinn framkvæmdastjóri hjá ESA JÓNAS Fr. Jónsson, lögfræðingur og fyrrverandi aðstoðarfram- kvæmdastjóri Verslunarráðs, tók þann 1. júlí síðastliðinn við fram- kvæmdastjórastarfí hjá Eftirlits- stofnun EFTA (ESA) í Brussel en Jónas hefur starfað hjá stofnuninni síðan í mars 1998. Hefur Jónas verið ráðinn framkvæmdastjóri þeirrar deDdar ESA sem fer með fijálst flæði fólks, þjónustu og fjármagns en til viðbótar falla undir hana ýmis málefni sem óbeint tengjast innri markaði Evrópusambandsins, svo sem umhverfismál, neytendavemd, fyrirtækjalöggjöf og jafnrétti kynj- anna. Að sögn Jónasar kemur hann til með að bera ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar gagnvart stjóm ESA og þá einkum gagnvart þeim stjómarmanni sem fer með þessi til- teknu málefni innan stjómarinnar. Níu manns starfa í deildinni og kemur starfsfólkið frá fjórum mis- munandi þjóðlöndum enda hefur sú almenna regla verið viðhöfð hjá ESA að auglýsa laus störf til um- sóknar fyrir fólk frá öllu EES-svæð- inu. Segir Jónas að í bígerð sé að bæta við einum starfs- manni á næstunni. Sjálfur var Jónas starfsmaður deildar- innar þar til hann ráðinn framkvæmda- stjóri og bar hann ábyrgð á málaflokk- um er tengdust hlutafélagalöggjöf, verðbréfaviðskiptum, íjármagnsfíutningum og gagnkvæmri virð- ingu á starfsréttind- um. Hann starfaði áður sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri Versl- unarráðs Islands, eins og þegar hef- ur komið fram, en að auki hefur hann meistaragráðu í lögfræði frá Bretlandi með áherslu á Evrópurétt og alþjóðlegan verslunarrétt. „Þetta er að mínu mati mjög áhugaverður vinnustaður fyrir lög- fræðing,“ segir Jónas en átta af níu starfsmönnum deildarinnar eru lög- fræðingar. „Ekki síst að vinna í deild eins og þessari sem fer með fjölbreytta málaflokka og virkar oft á tíðum eins og lítið alþjóðlegt lögfræðifyrirtæki." Segir hann að sú reynsla sem hann öðlað- ist hjá Verslunarráði ís- lands nýtist honum vel í nýju starfi. ESA fylgist með því að ákvæðum EES- samningsins sé hlýtt Jónas hefur verið ráð- inn til að gegna fram- kvæmdastj órastarfinu til næstu þriggja ára. Starf ESA felst í því að hafa auga með því að samningurinn um Evrópska efnahags- svæðið sé virtur í aðildarríkjum EFTA og færi borgurum frá EES- ríkjunum þau réttindi sem þeim ber samkvæmt ákvörðunum EES og Evrópusambandsins. í því skyni fylgist ESA með því að stjómvöld í aðildariöndunum lög- leiði á viðunandi hátt ákvæði samn- ingsins sjálfs, sem og þeirra gerða sem teknar eru yfir af Evrópusam- bandinu; markmiðum þeirra sé hrint í framkvæmd og þeim beitt á réttan hátt. „Hingað koma mál annað hvort þannig að okkur berast kvartanir frá einstaklingum eða lögaðilum eða þá að við verðum sjálfir einhvers varir og opnum mál að eigin frum- kvæði,“ segir Jónas. Játar hann því að þetta eftirlitshlutverk geti oft og tíðum verið nokkuð snúið þar sem reyni á ýmis sjónarmið við túlkun á ákvæðum samningins, gerða ESB, dómaframkvæmd og síðan lands- réttar í einstökum EFTA-ríkjum. „í EES-samningnum er talað um að samræmi skuli gilda í beitingu reglanna milli Evrópusambandsins og EFTA sem þýðir að við erum í stöðugu samráði og sambandi við framkvæmdastjómina varðandi túlkun laga og ræðum einstök dæmi fram og til baka,“ segir Jónas. Eiga starfsmenn ESA einnig mikil og góð samskipti við stjómvöld EFTA- ríkjanna, leita sér þar upplýsinga og gera athugasemdir eftir því sem ástæða er talin tíL „Ég held að mMvægi þess fyrir réttindi fólks og fyrirtækja sam- kvæmt EES-samningnum að hafa öfluga og sjálfstæða eftirlitsstofnun verði seint ofmetið," sagði Jónas að lokum. Fjármálaráðuneytið Nýir aðlög- unarsamn- ingar ekki gerðir BANDALAG háskólamanna (BHM) hefur ritað Geir H. Haarde fjármála- ráðherra bréf og óskað eftir liðsinni hans til að koma á fundi í samstarfs- nefnd BHM og fjármálaráðuneytis- ins til að ræða mál er lúta að gerð að- lögunarsamninga. Er tilgangurinn að leiða til lykta öll vafaatriði og eyða öllum misskilningi áður en viðræður hefjast í haust um nýja kjarasamn- inga opinberra starfsmanna. Tilefni þess að BHM leitar liðsinn- is fjármálaráðherra er að sögn Bjark- ar Vilhelmsdóttur, formanns BHM, skrif í fréttabréfi fjármálaráðuneytis- ins fyrii' stjómendur ríkisstofnana frá 28. júní síðastliðnum. Er þar rifj- að upp að flest stéttarfélög opinberra starfsmanna hafi samið í síðustu kjarasamningum um breytt launa- kerfi og að gerð aðlögunarsamninga sé því lokið. Segir í fréttabréfinu að þess mis- skilnings virðist gæta nokkuð víða að gera þurfi nýja aðlögunarsamninga í kjölfar næstu kjarasamninga. Svo sé hins vegar ekki því starf aðlögunar- nefnda hafi einungis snúistum það að semja um stofnanaþátt hins nýja launakerfis eða útfæra forsendur launasetningar hjá hverri stofnun. „Það er alveg rétt að það verða ekki gerðir fleiri aðlögunarsamning- ar því það er búið að laga nýja launa- kerfið að því garnla," sagði Björk í samtali við Morgunblaðið. „Hins veg- ar er alveg Ijóst að í kjarasamningun- um er kafli um stofnanaþáttinn, þ.e. að laun skuli ákvarðast af stofnunum og taka mið af þörfum bæði starfs- manna og stofnunar. Áfram verða því stofnanasamningar að okkar mati en þeir virðast vera að loka svolítið á það með þessum skrifum." Formbreytingar aðeins gerðar innan ramma stofnanasamninga Gunnar Bjömsson, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, lagði áherslu á að í ráðuneytinu hefðu menn einfald- lega viljað leggja áherslu á þann greinarmun sem væri á aðlögunar- samningum og stofnanasamningum. Margir hefðu viljað rugla þessu tvennu saman og sum stéttarfélög reyndar viljað fara út í gerð nýrra að- lögunarsamninga. Sagði Gunnar að það væri hins vegar alveg ljóst að all- ar breytingar - utan þeirra sem gerð- ar yrðu á launatöflum í kjarasamn- ingum í haust - yrðu framkvæmdar innan ramma stofnanasamninganna. „Menn verða að hafa í huga að í gamla launakerfinu var starfsheita- kafli kjarasamningsins bundinn í því sem kalla má miðlægan kjarasamn- ing. Það var aðeins samið um einhver 10-15 starfsheiti og þau ein voru gild, alveg án tillits til þess hvemig það hentaði starfsemi stofnunarinnar. Þessu vorum við að breyta með að- lögunarsamningunum, við tókum í rauninni þennan kafla út úr hinum miðlæga hluta kjarasamninga og færðum yfir til stofnananna." Segir Gunnar að nú geti stofnan- imar því, innan þess ramma sem kjarasamningurinn gefur, búið til sín eigin starfsheiti og raðað þeim upp í samræmi við þær áherslur sem stofn- unin vilji hafa hverju sinni. Þetta eigi að vera síbreytileg þróun. Fram kom í máli Bjarkar Vil- helmsdóttur að BHM muni ganga til samninga í haust út frá þeim forsend- um að launaákvarðanir eigi að hluta til að vera úti á stofnununum. Þau muni halda þessu til streitu því að í sumum stofnunum hafi ekki verið gerðir neinir samningar heldur hafi úrskurðir um laun fólks komið til. Menn muni ekki sætta sig við að þeir úrskurðir gildi til frambúðar. Sagði hún einnig að BHM myndi beita sér fyrir því að inn í hinn mið- læga hluta kjarasamninga við fjár- málaráðuneytið verði sett ákvæði um að skoða skuli stofnanasamninga með reglubundnu millibili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.