Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 6

Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 6
6 LAUGARDAUUK æ.JULi zuuu FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samtökin Lífsvog starfað í fímm ár Morgunblaðið/Amaldur Guðrún María Óskarsdóttir (t.v.) og Jórunn Anna Sigurðardóttir héldu blaðamannafund samtakanna Lffsvogar á heimili Jórunnar þar sem megnið af starfsemi samtakanna fer fram. Flest mistök í bækl- unarlækningum BÆKLUNARAÐGERÐIR og lýta- lækningar eru þær sérgreinar þar sem flest læknamistök verða, ef marka má þann fjölda umkvartana sem berast til samtakanna Lífsvogar vegna slíkra mála. Ennfremur gagn- rýna samtökin takmarkað aðgengi almennings að upplýsingum um slík mál, en fagna nýjum lögum um sjúkl- ingatryggingu sem og bættri máls- meðferð hjá Landlæknisembættinu og Tryggingastofnun. Samtökin Lífsvog kynntu í gær tölur um kvartanir vegna læknamis- taka frá janúar 1998 til júní 2000 sem farið hafa um þeirra hendur til frek- ari meðferðar hjá landlæknisem- bættinu. Kom þar fram að flest þess- ara mála, eða 40 mál, hafa komið í kjölfar bæklunaraðgerða en 35 vegna lýtaaðgerða. A árinu 1999 bárust samtökunum allt í allt 119 kvartanir vegna læknamistaka og á fyrri hluta þessa árs hafa borist 46 kvartanir. Sögðu talsmenn samtakanna, þær Guðrún María Óskarsdóttir og Jór- unn Anna Sigurðardóttir, að þessar tölur væru einu vísbendingamar sem almenningi byðust um fjölda lækna- mistaka hér á landi. í heilbrigðiskerf- inu væri aðgengi almennings að slík- um upplýsingum ekki til að dreifa, né heldur um það hvemig tekið væri á slíkum málum gagnvart þeim lækn- um sem í hlut ættu. Dæmi væru um einstaka lækna hverra aðgerðir hafa leitt til 6-8 kvartana á umræddu tímabili, en almenningi væri ómögu- legt að komast að því, hvort til ein- hverra aðgerða hefði verið gripið til að koma í veg fyrir frekari mistök þessara lækna. Bentu þær til saman- burðar á Bretland, en í síðasta mán- uði tilkynntu þarlend yfírvöld um nýtt upplýsinga- og forvamakerfi sem komið hefur verið á fót til að af- hjúpa „lélega lækna“ og koma í veg fyrir tilfelli vanrækslu innan al- mannaheilsugæslukerfisins. Kom fram í máli þeirra Guðrúnar og Jór- unnar að nokkuð virðist um það, að Kvartanir um læknamístök frá janúar 1998 til júní 2000 sem fóru í gegnum samtökin Lífsvog, til meðferðar hjá landlæknisembættinu. Flokkaðar eftir sérgreinum. fleiri en ein kvörtun berist vegna sama læknisins, en hins vegar séu margir læknar að störfum sem aldrei hafi verið kvartað yfir. Kúvending lyá Trygginga- stofnun og landlækni Sögðu þær Guðrún og Jórunn að hlutverk samtakanna hefði á þessum fimm árum þróast í það að sinna eins konar ráðgjafarhlutverki fyrir þá sem telja sig verða fyrir læknamis- tökum. Samtökin vinni ekki beinlínis að málarekstri fyrir fólk, heldur veiti leiðbeiningar um það í hvaða farveg málunum skuli beint. Þannig séu þau, í sjálfboðavinnu, að vinna það starf sem umboðsmenn sjúklinga hafa með höndum í mörgum ná- grannaríkjanna. „Ný lög um sjúklingatryggingu hafa reyndar bætt verulega réttar- stöðu fólks sem lendir í svona málum og hjá Tryggingastofnun ríkisins, sem hefur með framkvæmd þeirra að gera, hefur orðið alger kúvending á síðasta ári. Stofnunin tekur nú með mjög myndarlegum hætti á öllum málum sem þangað berast fyrir til- stilli samtakanna Lífsvogar," sagði Guðrún María. BM'VALLÁ Söludeild í Fomalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 Þakskífur með 25 ára ábyrgð fegra húsið þitt. Kynntu þér málið á www.bmvalla.is. www.bmvalla.is Torfkirkja vígð við Þj óðveldisbæinn LITIL torfklædd stafkirkja við Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal var vígð í gær. Er hún smfðuð eftir tilgátu um kirkju sem fannst við fornleifarannsóknir á Stöng í Þjórsárdal og við smíð- ina var stuðst við ýmsar aðrar heimildir um kirkjur á fyrstu öldum kristni á íslandi. Gunnar Bjarnason húsasmíða- meistari smíðaði kirkjuna eftir teikningu og forsögn Hjörleifs Stefánssonar arkitekts. Gunnar sagði kirkjuna smfðaða úr reka- viði af Ströndum, einkum lerki og furu. Hún var sýnd árið 1997 á fslensk-norskri sýningu um miðaldakirkjur og kirkjulist í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu en sjóðurinn Þjóðhátfðargjöf Norðmanna kostaði þá sýningu. Var ákveðið að framtíðarstaður kirkjunnar yrði sfðan við Þjóð- veldisbæinn. Reist eftir tilgátu í kjölfar rannsókna Þjóðveldisbærinn er reistur sem tilgáta Harðar Ágústssonar um bæinn sem rannsakaður var á Stöng árið 1939 og árið 1986 hóf Vilhjálmur Örn Vilhjálms- son nýja rannsókn þar. Komu þá m.a. f ljós rústir kirkjunnar og er torfkirkjan að nokkru leyti túlkun á fornleifarannsókn Vilhjálms. Leitað var til þeirra sem á sfnum tíma kostuðu gerð Þjóð- veldisbæjarins, þ.e. forsætis- ráðuneytis, Landsvirkjunar og Gnúpverjahrepps. Féllust þessir aðilar á að greiða kostnað við smfðina. Þjóðminjasafnið lánaði helgi- gripi við vígsluna en stefnt er að því að kirkjunni verði sfðar lagðir til gripir, eftirmyndir samtfma kirkjugripa. Biskup íslands, Karl Sigur- björnsson, vígði kirkjuna en Ieikir og Iærðir tóku þátt í vfgsluathöfninni m.a. með lestri ritningarorða og bæna. í upp- hafi bar skrúðfylking kirkju- gripina til kirkju, kross, kerta- stjaka, kaleik, patfnu, skírnar- fat og Biblfu. Fór biskup síðan fyrir altari og tók við gripunum og eftir að kirkjan hafði verið vígð flutti hann svonefnda kirkjudagsprédikun úr Hómilfu- bókinni. Að vfgslunni lokinni komu viðstaddir saman í Þjóðveldis- bænum og flutti Sólveig Péturs- dóttir kirkjumálaráðherra þar ávarp og fleiri gestir. Skeljastaðakirkja? Stjórn Þjóðveldisbæjarins mun bera ábyrgð á rekstri og viðhaldi kirkjunnar nýju en Landsvirkjun hefur haft umsjón með rekstri og viðhaldi bæjar- ins. Stjórnina skipa Hjörleifur Stefánsson arkitekt, Jóhann Már Marfusson, fulltrúi Lands- virkjunar, og Benedikt Sigurðs- son, fulltrúi Gnúpveijahrepps. Helgihaldið verður á vegum Stóra-Núpsprestakalls og sagð- ist sr. Axel Árnason sóknar- prestur í viðtali við Morgun- blaðið gera ráð fyrir ákveðnu helgihaldi f kirkjunni nýju. Hann kvaðst eiga von á að skfrna, og mætti þá e.t.v. fá inni í Þjóðveldisbænum fyrir veislu í framhaldi af slfkum athöfnum. Kirkjan hefur ekki fengið nafn en hún stendur á þeirri jörð sem Skeljastaðir stóðu á til forna. Kvaðst sóknarpresturinn vel geta hugsað sér að kirkjan yrði nefnd Skeljastaðakirkja. Morgunblaðið/jt Sljóm Þjóðveldisbæjarins ber einnig ábyrgð á rekstri og viðhaldi nýju kirkjunnar. Frá vinstri: Benedikt Sigurðsson, Hjörleifur Stef- ánsson og Jóhann Már Marfusson. Hringt erlendis á kostnað íslenskra NMT-notenda UNDANFARIÐ hafa komið upp tilvik þar sem að íslenskir notendur NMT-farsímakerfisins hafa fengið mun hærri reikninga en þeir könn- uðust við og við nánari skoðun hef- ur komið í ljós að erlendir aðilar hafa verið að hringja á kostnað ís- lenskra notenda. Gylfi Jónsson, forstöðumaður NMT-farsímakerfisins, segir að þetta eigi sér þannig stað að í NMT-símum séu númerin forrituð í símann ólíkt GSM-símum sem not- ast við símakort. Aðeins er hægt að forrita símana á verkstæðum við- Umferð- arátak á Suður- nesjum LÖGREGLAN í Keflavík, Grindavík og Hafnarfirði hóf í gær umferðarátak í tengslum við verslunarmannahelgina. Fylgst verður með hraðakstri og ásigkomulagi bifreiða. Sér- staklega verður hugað að tjaldvögnum og hjólhýsum. Atakið fór rólega af stað að sögn lögreglunnar í Keflavík en langflestir ökumenn óku á löglegum hraða. í Grindavík voru þó nokkrir stöðvaðir en þeir höfðu gleymt að spenna beltin. komandi umboðsaðila, en Gylfi seg- ir að „svona þrjótar virðast alltaf getað náð í hlutina eftir einhverjum leiðum“. í þessum tilfellum hafa einhverjir aðilar komist yfir slíkan forritunarbúnað og forritað íslensk númer inn í síma eriendis, með þeim afleiðingum að íslenskir not- endur hafa fengið hærri reikninga en þeir bjuggust við. Að sögn Gylfa eru þetta yfirleitt mjög fá tilfelli á ári og rauninni sárafá. Hann segir að þetta séu ekki stórar upphæðir í heildina tekið, en auðvitað séu menn ekki sáttir við að slíkt geti komið upp á. Síðar í sumar eða haust verður lokað fyrir þennan möguleika með því að tengja forritaða númerið saman við innra númer hvers síma, nokkurs konar seríunúmer. Eftir að það er orðið virkt nær síminn ekki sambandi við kerfið nema að núm- erin passi saman. Að sögn Gylfa er búið að setja upp þennan búnað, en ekki hefur verið hægt að taka hann að fullu í notkun vegna þess að eldri símar hafa ekki þetta innra númer. Hins vegar eru nýir NMT-símar ör- uggir gagnvart þessari misnotkun. Kæra ólöglegan flutning eldisfísks Kvíar brustu o g eldisfískur slapp VEIÐIFÉLÖG við Breiðafjörð hafa sent sýslumanninum í Stykk- ishólmi kæru vegna þess sem þau telja ólöglegan flutning á eldisfiski frá Suðurlandi vestur í Hrauns- fjörð. í kærunni, sem fulltrúar 9 veiði- félaga undirrita, er farið fram á að sýslumaðurinn rannsaki rökstudd- an grun þeirra um að fyrirtækin Stofnfiskur hf. og Hvurslax ehf. hafi flutt mikið magn af regnboga- silungi í eldiskvíar við Hrauns- fjörð. Þær kvíar hafi síðan brostið og mörg tonn af eldisfiski því sloppið. Þetta er sagt brot á reglu- gerðum um flutning og sleppingar laxfiska og varnir gegn fisksjúk- dómum og blöndun laxastofna. I kærunni segir að háttsemi fyr- irtækjanna geti haft alvarlegar af- leiðingar fyrir veiðiréttareigendur og valdið þeim fjárhagslegu tjóni. Auk þess geti hún valdið röskun á lífríki ánna við Breiðafjörð og stofnað náttúrulegum veiðistofnum þeirra í hættu. Veiðiréttareigend- ur áskilja sér rétt til þess að krefja Stofnfisk og Hvurslax um skaðabætur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.