Morgunblaðið - 22.07.2000, Side 12
12 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Afstaða Flugmálast j órnar til Reykjavrkurflugvallar harðlega gagnrýnd
„Oþolandi afskipti af skiplags- og
byggðarmálum höfuðborgarinnar“
Morgunblaðið/Þorkell
Samtök um betri byggð vilja að flugrekstri verði hætt í Vatnsmýrinni eins fljótt og auðið er.
FLUGMÁLASTJÓRN sætir
harðri gagnrýni, frá Samtök-
um um betri byggð og for-
manni svæðisskipulagsnefnd-
ar fyrir höfuðborgarsvæðið,
vegna afstöðu sinnar til
Reykjavíkurflugvallar og
framtíðar hans.
í fréttatilkynningu sem
Samtök um betri byggð
sendu frá sér í gær í tilefni af
nýrri greinargerð Flugmála-
stjórnar gagnrýna þau þá af-
stöðu Flugmálastjórnar að
fyrir flugrekstur komi ekki
aðrir kostir til greina en nú-
verandi flugvellir í Reykjavík
og Keflavík. Samtökin segja
að með þessu sé Flugmála-
stjóm að kynda undir ósætti
á milli höfúðborgar og lands-
byggðar með það að mark-
miði að festa flugvöllinn í
Vatnsmýri í sessi.
Ofagleg vinnubrögð
„Harma ber þessa
þröngsýnu og ábyrgðarlausu
afstöðu Flugmálastjómar og
ófagleg vinnubrögð, sem
koma að auki glöggt fram í
greinargerðum og skýrslum
hennar á sl. áratug, en allar
miða þær að því að festa
flugstarfsemi í sessi í Vatns-
mýri,“ segir í fréttatilkynn-
ingu Samtakanna. „ Samtök
um betri byggð telja að um
óþolandi afskipti Flugmála-
stjóraar af skipulags- og
byggðarmálum höfuðborgar-
innar sé að ræða.“
í fréttatilkynningunni seg-
ir að Flugmálastjóm hafi
lengi komist upp með sjálf-
dæmi í öllum málefnum flug-
vallar í Vatnsmýri og hafi
þannig ráðskast með mikil-
væga skipulagshagsmuni
borgarinnar. Stofnunin beiti
m.a. fyrir sig stöðlum Al-
þjóða flugmálastofnunarinn-
ar og viðmiðum og túlkunum
erlendra flugmálastjórna
varðandi slysahættu og háv-
aðamengun til að réttlæta
byggingu nýs flugvallar þar.
Borgaryfirvöld reki af
sér slyðruorðið
Samtökin telja tímabært
að Flugmálastjórn taki upp
faglega og ábyrga stefnu í
flugmálum á höfuðborgar-
svæðinu og taki m.a. mið af
brýnum hagsmunum höfuð-
borgarbúa. Samtökin telja þó
enn brýnna að borgaryfírvöld
reki af sér slyðruorðið og
taki nú þegar ábyrga stjóm-
valdsákvörðun um að flug-
rekstri skuli hætt í Vatns-
mýrinni eins og fljótt og
auðið er.
Samtökin fallast á það
sjónarmið Flugmálastjómar
að ekki komi til greina að
stunda áætlunarflug með
einni flugbraut í Vatnsmýri
eða á nokkram örðum stað á
höfuðborgarsvæðinu. Það er
skoðun Samtakanna að
minnkun flugvallarsvæðisins
í eina braut sé einungis rök-
rétt sem fyrsti áfangi í þeirri
aðgerð að leggja flugvallar-
rekstur niður í Vatnsmýri.
„Þegar núverandi flugvöll-
ur hverfur úr Vatnsmýri og
nýr verður byggður í hans
stað er eðlilegt að það gerist
með markvissum hætti þann-
ig að núverandi flugbrautir
og önnur aðstaða verði lögð
niður í áföngum um leið og
sambærileg aðstaða skapast
á nýjum og betri stað,“ segir
í fréttatilkynningunni. Þá
kemur fram að Samtök um
betri byggð og fleiri hafi bant
á a.m.k. 8 nýja staði á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir flugvöll,
m.a. Álfsnes, Geldinganes,
Engey, Akurey, Skerjafjörð,
Álftanes og Kapelluhraun.
Ekki hægl að útiloka
annan flugvöll
Ámi Þór Sigurðsson, for-
maður svæðisskipulagsnefnd-
ar fyrir höfuðborgarsvæðið,
segist ósáttur við afstöðu
Flugmálastjómar til Reykja-
víkurflugvallar og framtíðar
hans, en framtíð flugvallarins
hefur verið til skoðunar um
nokkurt skeið.
Að sögn Áma hefur Flug-
málastjórn einblínt á tvo
óviðunandi möguleika, ann-
ars vegar að halda vellinum
óbreyttum í Reykjavík og
hins vegar að flytja allt flug
til Keflavíkur.
„Eg tel að fleiri möguleik-
ar séu í stöðunni þrátt fyrir
þessa skoðun þeirra. Ég tel
til dæmis ekki hægt að úti-
loka annan flugvöll fyrir
sunnan Hafnarfjörð. Flug-
málayfirvöld telja að hann
yrði dýr og að aðstæður þar
séu ekki jafn góðar og í
Reykjavík. Það kann vel að
vera rétt en mér finnst samt
sem áður ekki hægt að úti-
loka þennan möguleika," seg-
ir Ámi.
Danskt ráðgjafafyrirtæki
gerði frumathugun
Svæðisskipulagsnefnd fékk
danskt ráðgjafafyrirtæki,
sem hefur sérþekkingu í
flugvallar- og flugrekstrar-
málum, til þess að vinna
framathugun um framtíð
Reykjavíkurflugvallar en
Árni segir að Flugmálastjóm
hafi ekki tekið fullt tillit til
sjónarmiða þeirra.
„Mér finnst þeir ekki
leggja sig nógu mikið fram
við að finna einhverjar mála-
miðlanir. I þessu máli eru
auðvitað mörg sjónarmið
uppi. Þeir sem vilja halda
flugvellinum og þeir sem vilja
færa flugvöllinn til Keflavík-
ur eru alveg á öndverðum
meiði. Með því að halda sig
við þessa tvo möguleika ýtir
Flugmálastjórn undir þessi
sjónarmið. Ef finna á ásætt-
anlegar leiðir til þessa að
leysa vanda flugvallarins þarf
að skoða aðra möguleika af
einhverri alvöra."
Ferjuflugið á ekki heima
á Reykjavíkurflugvelli
Ami segir dönsku ráðgjaf-
ana hafa bent á möguleikann
á einni flugbraut á Reykja-
víkurflugvelli, sem myndi
draga úr flugumferð þar.
„Flugmálastjórn telur það
ekki raunhæft en okkar ráð-
gjafar hafa haldið sig við sín-
ar tillögur þrátt fyrir það. í
þessu sambandi kæmi ýmis-
legt til greina svo sem að
vera með eina aðalbraut og
stutta þverbraut sem væri
notuð í mestu hliðarvindun-
um.“
Að sögn Áma hafa borgar-
yfirvöld og samgönguyfirvöld
verið að vinna að því að ein-
skorða Reykjavíkurflugvöll
við áætlunarflug ef hann
verður áfram á sama stað.
,Áætlunarflug ætti að vera
eina flugið sem færi hér um.
Ferjuflugin, þar sem verið er
að feija flugvélar milli Amer-
íku og Evrópu, viljum við
heldur sjá á stóram flugvelli
með stóra landsvæði í kring.
Það á ekki heima í miðri borg
enda er mest slysahætta af
því.“
Svæðisskipulagsnefndin
verður með fund í ágúst þar
sem tekin verður ákvörðun
um framhaldið í málefnum
flugvallarins.
Framkvæmdir
við Barnaspítala
Hringsins
Unnið verður í allan vetur
við byggingu nýs barna-
spítala.
Uppsteypun
lýkur fyrir
áramót
Hringbraut
UNNIÐ er hörðum höndum
við uppsteypun nýs bai’na-
spítala á lóð Landspítalans við
Hringbraut. Aðalsteinn Páls-
son, forstöðumaður bygginga-
deildar Landspítalans, sagði
að framkvæmdir hefðu hafist í
maí og að unnið yrði við bygg-
inguna í allan vetur. Fyrsta
skóflustungan að spítalanum
var tekin í nóvember 1998 en
vegna mótmæla íbúa í ná-
grenninu tafðist verkið.
Verkefnið er á vegum
Framkvæmdasýslu ríkisins,
en verktakafyrirtækið ÓG
Bygg sér um fyrsta verk-
áfangann sem fólginn er í
uppsteypun og frágangi að ut-
an. Aðalsteinn sagði að verk-
takinn gerði ráð fyrir því að
ljúka uppsteypun fyrir ára-
mót og að frágangi utan húss
næsta vor.
Aðalsteinn sagði að næsti
verkáfangi yrði boðinn út á
fyrri hluta næsta árs, en að
þar væri um að ræða innrétt-
ingar og fullnaðarfrágang
innanhúss.
Aðalsteinn sagði að nýi
bamaspítalinn, sem verður
staðsettur fyrir sunnan hús
kvennadeildar Landspítalans,
þ.e.milli þess og gamla Kenn-
araskólans, yrði um 6.600 fer-
metrar og að áætlaður heild-
arkostnaður vegna fram-
kvæmdanna væri um einn
milljarður króna, þar af færa
um 400 milljónir í fyrsta
áfangann sem verið væri að
vinna í núna.
Gestir láta vel að eimbaðinu í Vesturbæjarlauginni.
iviorgunuiaoio/tvnaLinn
Nýtt eimbað í Sundlaug Vesturbæjar
K
Morgunblaðið/Arnaldur
Stóru sirkustjaldi hefur verið komið fyrir í Laugardalnum.
Vesturbær
FYRIR rúmri viku var nýtt
eimbað opnað gestum
Sundlaugar Vesturbæjar.
Ólafur Gunnarsson, for-
stöðumaður Vesturbæjar-
laugar, segir gestum líka
breytingarnar vel. Einnig
var komið fyrir nýju úti-
skýli og sturtum á laugar-
bakkanum.
Ólafur segir þetta fyrsta
áfangann af mörgum.
Nauðsynlegt sé að halda
framkvæmdum áfram og
endurnýja fleira á svæðinu.
Fyrirhugað sé meðal ann-
ars að koma fyrir renni-
braut í lauginni. Ólafur
segir breytingarnar falla
vel að umhverfinu sem fyr-
ir er. Eimbaðið er hring-
laga og eru veggir þess úr
kúptu gleri. Snýr það út að
lauginni og varpar birtu
inn í sjálft eimbaðið. Hita-
kerfi eimbaðsins er þrepa-
stýrt, segir Ólafur, og held-
ur það hitanum mjög
stöðugum.
Ólafur segir einkar mik-
ilvægt að ljúka við frágang
utan veggja laugarinnar en
honum sé enn ábótavant.
Undirbúningur verksins
liófst árið 1998. Samanlagð-
ur kostnaður við verkið var
40 milljónir króna.
Laugardalur
SIRKUS Agora frá Noregi
er kominn til Reykjavíkur
en sirkustjaldið hefur verið
reist í Laugardalnum sunn-
an við húsdýragarðinn.
Fjölleikahúsið, sem er á
ferð hringinn í kringum
landið, verður í höfuðborg-
inni í eina viku og verða
sýningar haldnar klukkan
sjö öll kvöld en um helgina
Sirkus er
kominn í
borgina
eru einnig sýningar klukk-
an fimm.
Með fjölleikahúsinu, sem
kemur frá Bergen, koma
45 manns frá ýmsum lönd-
um. Á meðal atriða sem
húsið býður gestum sínum
upp á er línudans, loftfim-
leikar og kúnstir á vélhjóli
og svo fylgja náttúrulega
trúðar.
Á föstudaginn heldur
fjölleikahúsið hringferðinni
áfram og verður með sýn-
ingar á Selfossi, Höfn í
Hornafirði og Seyðisfirði
áður en hann heldur aftur
heim til Noregs.