Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI L AUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 1 3 Diddú og Björn Steinar í kirkjunni ÞRIÐJU tónleikar Sumartónleika í Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 23. júlí kl. 17. Þá mun hin ástsæla sópransöngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir og Björn Steinar Sól- bergsson orgelleikari flytja verk eftir m.a. Sigvalda Kaldalóns, Sigurð Þórðarson, Árna Thorsteinsson, Jón Leifs og erlendu tónskáldin J.S. Bach, Rachmaninoff, Fauré og Mozart. Tónleikamir standa í klukkustund. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Sigrún Hjálmtýsdóttir hóf söngfer- il sinn árið 1975 með Spilverki þjóð- anna. Hún lauk próíi í einsöng frá Guildhall School of Music and Drama í London árið 1985. Hún stundaði síð- an framhaldsnám á ítah'u. Sigrún hef- ur tekið þátt í fjölda uppfærslna og sungið inn á fjölmarga geisladiska. Hún hefur einnig hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1995 fyrir framlag sitt til sönglistar. Bjöm Steinar Sólbergsson lauk 8. stigi í orgelleik frá Tónskóla þjóð- kirkjunnar. Hann stundaði síðan framhaldsnám á Ítalíu og í Frakk- landi og útskrifaðist með einleikara- próf í orgelleik árið 1986. Hann hefur gegnt stöðu organista og kórstjóra við Akureyrarkirkju frá haustinu 1986. Bjöm Steinar hefur hljóðritað fjölda geisladiska og hefur einnig leikið fyrir útvarp og sjónvarp. Hann hlaut menningarverðlaun DV árið 1999. Afgreiðslutími Morgunblaðið/Kristján Skákmenn sitja einbeittir að tafli við Oddeyrarbryggju í gær i skjóli skemmtiferðaskipsins Seabourn Sun. Þetta er jafnframt stærsta og lengsta skip sem lagst hefur að bryggju á Akureyri en það er tæp 39.000 brúttótonn. veitingastaða takmarkaður á ný Skákað í skjóli skemmtiferðaskips BÆJARRÁÐ Akureyrarbæjar hef- ur fjallað um og samþykkt tillögur starfshóps um vímuvamir um af- greiðslutíma veitingahúsa. Af- greiðslutíminn hefur verið frjáls en breytingar á afgreiðslutíma koma til Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Messa kl 11 sunnudaginn 23. júlí, Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur einsöng. Prestur er sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Sama dag kl. 17 em sumar- tónleikar í kirkjunni. Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran og Björn Steinar Sólbergsson, orgelleikari. Aðgangur ókeyp- is. Morgunsöngur kl. 9 þriðju- daginn 25. júlí. Kyrrðarstund kl 12 fimmtu- daginn 27. júlí. GLERÁRKIRKJA: Kvöld- guðsþjónusta verður í kirkj- unni nk. sunnudag kl. 21. HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn samkoma sunnudag- inn 23. júlí kl 20. Allir vel- komnir. PÉTURSKIRKJA: Messa kl 11 sunnudag og kl. 18 laugar- dag í kaþólsku kirkjunni við Hrafnagilsstræti. SVALBARÐSKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta verður í kirkjunni sunnudaginn 23. júlí kl 21. framkvæmda frá og með 15. septem- ber næstkomandi. Veitingastöðum verður þar með heimilt að hafa opið frá kl. 7-4 að- faranótt laugardags, sunnudags og almenns frídags. Alla aðra daga verður heimilt að hafa opið frá 7 til 1. í öðmm tilfellum gilda þó þær tak- markanir sem felast í ákvæðum laga um helgidagafrið. RÚNAR Sigurpálsson bar sigur úr býtum á Hafnarmótinu i skák sem fram fór undir berum himni við Oddeyrarskála í gær. Um var að ræða hraðskákmót, svokallað Hafnarmót, sem Hafnasamlag Norðurlands stóð fyrir í fyrsta skipti í samvinnu við Skákfélag Akureyrar. Rúnar hlaut 9,5 vinninga af 10 mögulegum en alls mættu 11 skák- menn til leiks. Fyrir fram var reiknað með að einhverjir gestir af skemmtiferðaskipinu Seabourn Sun myndu vildu taka þátt í mót- inu en þeir létu sér nægja að fylgj- ast með fslensku keppendunum. „Þeir lærðu bara af okkur,“ sagði Gylfi Þórhallsson, skákfrömuður á Akureyri. Arnar Þorsteinsson varð annar með 9 vinninga og Jón Björgvins- son þriðji með 8 vinninga. Rúnar Sigurpálsson hlaut að launum fyr- ir sigurinn farandbikar sem gef- inn er af Hafnasamlagi Norður- lands. Dagskrá Listasumars til 28. júlí Hundar styggja fé OPNUN myndlistarsamsýningar- innar „Rýmið í rýrninu" í Ketilhús- inu, 22. júlí kl. 16. Sýnendur eru: Arna Valsdóttir, Ásmundur Ás- mundsson, Elsa D. Gísladóttir, Hlynur Hallsson, Hólmfríður Harð- ardóttir, Joris Rademaker, Pétur Örn Friðriksson og Sólveig Þor- bergsdóttir. Sýningin stendur til 7. ágúst. Opið daglega milli 14 og 18, lokað þó á mánudögum. Aðgangur ókeypis. 22. júlí, kl. 16. Opnun mynd- listarsýningarinnar „Markmið" í „Listasumar Audiovisual Art Gall- ery“ í Deiglunni. Sýnendur eru Pét- ur Örn Friðriksson og Helgi Hjalta- lín Eyjólfsson. Sýningin stendur til 7. ágúst. Opið daglega kl. 14-18. Að- gangur ókeypis. Laugardaginn 22. júlí í Deiglunni verða tónleikar kl. 21 á vegum Lista- sumars á Akureyri. Björg Þórhalls- dóttir syngur við undirleik Daníels Þorsteinssonar. Aðgangur kr. 1.000. Sunnudaginn 23. júlí verða Sum- artónleikar í Akureyrarkirkju kl. 17. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur við orgelundirleik Björns Steinars Sól- bergssonar. Aðgangur ókeypis. Hinn 25. júlí í Deiglunni verða fagurtónleikar kl. 20 á vegum Lista- sumars á Akureyri. Guðbjörg R. Tryggvadóttir syngur við undirleik Iwona Jagla. Aðgangur kr. 1.000. 27. júlí kl. 21.30 í Deiglunni, Túborgjazz, Heitur fimmtudagur. Tríó Bjöms Thoroddsen ásamt kanadíska trompetleikaranum Richard Gill, Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni á bassa. Aðgangur er ókeypis. 28. júlí kl. 20.30 verður bók- menntavaka í Deiglunni. Upplestur skálda frá Sauðárkróki og Húsavík. Aðgangur er ókeypis. I Deiglunni stendur sýning Rögnu Hermannsdóttur. Sýningunni lýkur 7. ágúst. Opið daglega frá kl. 14-18. Aðgangur er ókeypis. I forstofu Deiglunnar, Kaup- vangsstræti 23, Akureyri, stendur sýning Tinnu Gunnarsdóttur, „Snagar“. Sýningin stendur allt sumarið. Opið daglega kl. 14-18. Að- gangur er ókeypis. í Ketilhúsinu stendur yfir sýning Josephs Kurhajecs „Á vegum“. Sýn- ingunni lýkur sunnudaginn 23. ágúst. Opið daglega kl. 14-18, lokað þó mánudaga. Aðgangur er ókeypis. í galleríinu Kompunni stendur yf- ir sýning Jóns Laxdals Halldórsson- ar. Opið daglega kl. 14-17, lokað þó á sunnudögum og mánudögum. Að- gangur er ókeypis. í Listasafninu á Akureyri er sýn- ingin „Dyggðirnar að fornu og nýju“. Opið daglega kl 14-18, og á föstudögum og laugardögum er opið til kl 22. Lokað á mánudögum. í Safnasafninu á Svalbarðsströnd stendur sýning Valgerðar Guðlaugs- dóttur til 28. júlí. Opnunartími kl 10- 18 alla daga. Aðgangseyrir 300 krón- ur. BÆNDUR í Grýtubakkahreppi hafa lengt haft grun um að féð á afréttinni styggist vegna umferðar um svæðið. Á dögunum var farin skyndiferð norður í Hvalvatnsfjörð og þar urðu bændur varir við að fólk sem var á göngu vestur í Þorgilsfjörð hafði hund meðferðis. Hundurinn fékk að hlaupa að því er virtist óáreittur um landið og styggðist féð á svæðinu verulega. Á skömmum tíma voru engin í Hvalvatnsfírði og brekkurnar gegnt þeim með öllu fjárlaus. Anna Bára Bergvinsdóttir er landvörður í Fjörðum í sumar og sagðist hún ekki verða vör við að ferðamenn væru með lausa hunda á afréttinni en að féð væri ótrúlega rólegt þrátt fyrir umferð bfla um svæðið. Hún hafði þó spurnir af því að hundar ferðamanna hefðu styggt fé í Fjörðum. Ekki er landvörður á svæðinu alla daga vikunnar. Eftir að umferð jókst í Fjörðum siðast- liðin ár hefur það færst í vöxt að féð úr afréttinni sæki til byggða löngu fyrir áætlaðan tíma ganga. GLEÐIBANKINN Starfsfólk óskast til afgreiðslustarfa í heilsdags-og hlutastörf frá 1. ágúst. Upplýsingar í síma 893-0040
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.