Morgunblaðið - 22.07.2000, Side 18
18 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
AMD eykur
markaðs-
stöðu sína
TVEIR helstu örgjörvafram-
leiðendur heimsins, Intel og Ad-
vanced Micro Devices (AMD),
birtu í vikunni tölur um rekstur
síðasta ársfjórðungs. Bæði sala
og hagnaður jukust meira en
spár gerðu ráð íyrir. Hjá Intel
jókst salan um 23% miðað við
sama ársfjórðung í fyrra en hjá
AMD tæplega tvöfaídaðist sal-
an. Erfiðleikar í framleiðslu hjá
Intel, auk þess sem fyrirtækið
var seint að átta sig á aukinni
eftirspum, gaf AMD tækifæri
tU að auka markaðsstöðu sína.
Vegna mikillar eftirspumar
hefur verð á örgjörvum verið
hátt. Auk þess er eftirspum eft-
ir hágæða örgjörvum að aukast
samhliða meiri kröfum um ör-
gjörva með skyndiminni og
leikjatölvum með sífelit flóknari
forritum.
Spuming um hvort verðstrið
sé væntanlogt
Bæði fyrirtækin veita hlut-
höfum sínum á næstunni tvö
bréf fyrir eitt (þ.e. svokallað
„stock split“) eftir miklar hækk-
anir á gengi þeirra undanfama
mánuði.
Már Wolfgang Mixa hjá Við-
skiptastofu SPH segir að þessar
tölur ættu ekki að koma á óvart.
,AMD voru t.d. búnir að selja
alla framleiðslu þessa ársfjórð-
ungs strax í byrjun aprílmánað-
ar. Eftirspum eftir örgjörvum
með skyndiminni hafi tvöfaldast
árlega sl. 5 ár og ekki er fyrir-
sjáanlegt að sú aukning eftir-
spumar eigi eftir að minnka.
Þriðji og fjórði ársfjórðungur
em sögulega séð betri fyrir ör-
gjörvaframleiðendur vegna
aukningar í tölvukaupum
tengdum námi oghátíðum.
Að mati Más er spumingin
frekar sú hvort verðstríð eigi
sér stað á næsta ári. Nýlega
varaði Jonathan Joseph hjá Sal-
omon Smith Bamey við hugsan-
legu offramboði. Rökin fyrir því
em góð, fyrirtæki í geiranum
hafa undanfarið fjárfest mikið
til að auka framleiðslugetu sína.
Ef eftirspum dregst saman
verður verðstríð óhjákvæmlegt.
Aftur á móti telur Már að fyrir-
tækin séu það lágt verðlögð,
sérstaklega AMD, að tímabund-
ið verðstríð sé nú þegar tekið
með í verði hlutabréfa þeirra.
GIRA Standard.
Gæði á
góðu verði.
s5L
S. GUÐJÓNSSON ehf.
Lýsinga- og rafbúnaöur
Auöbrekka 9-11 • Sími: 554 2433
Aukning í framboði og flutningum hjá Flugleiðum í júní
Farþegum í millilanda-
flugi fjölgar um 13,2%
FARÞEGUM í millilandaftugi Flug-
leiða fjölgaði um 13,2% í júní saman-
borið við júní 1999 og sætanýting
félagsins í millilandaflugi, mikil-
vægustu framleiðslugrein félagsins,
batnaði um 4,1% frá fyrra ári.
í júní fjölgaði farþegum til og frá
íslandi um liðlega 20,6%. Farþegum
á leið yfir Norður-Atlantshaf fjölgaði
um tæp 13%. Saga Class-farþegum
fjölgaði um liðlega 9% þegar undan
em skilin áhrif þess að félagið hætti
flugi milli Kaupmannahafnar og
Hamborgar.
í fréttatilkynningu frá Flugleiðum
kemur fram að fyrstu sex mánuði
ársins hefur félagið aukið framboð í
farþegaflugi milli landa um 11,8%,
sætanýting hefur batnað og veltan
hefur aukist.
„Meginmarkmið í millilandafar-
þegaflugi, mikilvægustu rekstrar-
grein Flugleiða, eru tvíþætt. Annars
vegar að fjölga farþegum í ferðum
milli íslands og annarra landa og
draga úr hlutfallslegu vægi Norður-
Atlantshafsflugs. Þetta er að ganga
eftir. Vöxtur markaðarins til og frá
íslandi fyrstu sex mánuði ársins var
helmingi meiri en vöxturinn í flutn-
ingum yfir hafið. Hins vegar hefur
félagið sett sér markmið um vöxt í
sölu viðskiptamannafargjalda.
Fyrstu sex mánuði ársins hefur far-
þegum á viðskiptafargjöldum fjölgað
um liðlega 12% þegar undan eru skil-
in áhrif af því að hætta flugi milli
Kaupmannahafnar og Hamborgar.“
Verð á eldsneyti 63% hærra en
á sama tíma í fyrra
Samkvæmt fréttatilkynningu eru
þeir ytri rekstrarþættir sem mestu
skipta nú fyrir félagið, fyrir utan að-
stæður á alþjóðaferðamarkaði, ann-
ars vegar eldsneytisverð og hins veg-
ar svokallað krossgengi dollars og
Evrópumynta. Fyrirtækið ver sig
eftir fyrirframákveðinni stefnu gegn
sveiflum í gengi gjaldmiðla og verði
eldsneytis með framvirkum samn-
ingum og vilnunum. Gengi dollars
gagnvart evru er enn hátt, 11%
hærra en á sama tíma í fyrra. í nýrri
spá Reuters, sem byggð er á könnun
meðal sérfræðinga alþjóðafjármála-
stofnana, er gert ráð fyrir að gengi
evru styrkist gagnvart dollar á
næstu mánuðum. Verð á flugvéla-
eldsneyti hefur haldist mjög hátt það
sem af er þessu ári, er í dag um 63%
hærra en á sama tíma í fyrra, sam-
kvæmt upplýsingum frá Flugleiðum.
ABS
Alvöru flotefni
Efnifrá:
OPTIROC
ABS147
ABS154
ABS 316
Sm^iW>«51!iK -fí,- mi
■IÐ!R: Sa ítafranrafc •oðjnýtir ig og fiutningar
fc/ Júní Janúar - júní
icr 2000 1999 Breyting 2000 1999 Breyting
Farþegar til og frá fslandi 84.360 69.935 20,6% 330.607 279.606 18,2%
Farþegar yfir N-Atlantshaf 36.601 32.431 12,9% 161.371 147.776 9,2%
Annað (CPH/HAM) 0 4.501 0 25.466
SAMTALS 120.961 106.867 13,9% 491.978 452.848 8,6%
1
Samtals án CPH/HAM 120.961 102.366 18,2% 491.978 427.382 15,1%
1
Seldir sætiskílómetrar 421.866 367.690 14,7% 1.802.563 1.603.976 12,4%
Framboðnir sætiskílómetrar 509.918 467.411 9,1% 2.655.399 2.375.625 11,8%
Sætanýting 82,7% 78,7% 4,1 stig 67,9% 67,5% 0,4 stig
:::i
1 Innanlandsflug 39.501 29.572 33,6% 166.379 140.776 18,2%
Fraktflutningar (tonn) 2.587 1.703 51,9% 16.491 10.558 56,2%
Innflutningur 850 606 40,3% 4.603 3.302 39,4%
Útflutningur 1.087 1.042 4,3% 8.235 6.922 19,0%
í heild fjölgaði farþegum í millilanda-
flugi í júní um 13,2% milli ára, en
þegar undan eru skilin áhrif þess að
félagið hætti á fljúga milli Kaup-
mannahafnar og Hamborgar sl.
haust, fjölgaði farþegum á öðrum
leiðum um 18,2%.
Farþegum á leiðum til og frá
landinu fjölgaði um 20,6% en
farþegum á leið yfir Norður-
Atlantshaf um ísland fjölgaði um
12,9%. Farþegum á viðskipta-
mannafarrými í júní fjölgaði um 9,0%
ef undan eru skilin áhrif af því að
leggja niður flug á leiðinni Kaup-
mannahöfn/Hamborg síðastliðið
haust.
Á tímabilinu janúar-júní hefur far-
þegum á viðskiptafargjöldum fjölgað
um 12,4% ef frá eru skilin framan-
greind áhrif af því að hætta flugi á
leiðinni Kaupmannahöfn-Hamborg.
Farþegar í innanlandsflugi Flug-
félags íslands í júní voru 39.501 og
fjölgaði um 33,6% frá fyrra ári.
Fyrstu sex mánuði ársins voru far-
þegar í innanlandsflugi 166.379 og
fjölgaði um 18,2%.
í júní fluttu Flugleiðir-Frakt,
dótturfélag Flugleiða, 2.582 tonn af
frakt, sem er tæplega 52% meira en í
sama mánuði í fyrra. Fyrstu sex
mánuði ársins jukust fraktflutningar
um liðlega 56% og urðu tæplega
16.500 tonn. Sem fyrr eykst innflutn-
ingur með fraktflugi hraðar en út-
flutningur. í júní var þessi aukning
liðlega 40% á sama tíma og útflutn-
ingur jókst um liðlega 4%. Einnig
varð mikil aukning í fraktflutningum
yfir Norður-Atlantshaf.
Flugleiðir gera ráð fyrir að birta
sex mánaða reikningsskil fyrir Flug-
leiðasamstæðuna í vikunni 14.-20.
ágúst.
Lokað hlutafjárútboð X-18 hjá Landsbankanum
Gífurleg- eftir-
spurn eftir bréfum
HLUTAFÉ í skófyrirtækinu X-18
að markaðsvirði 292,5 milljóna
króna seldist upp á innan við tíu
mínútum í lokuðu útboði hjá verð-
bréfadeild Landsbanka íslands í
gærmorgun og því ljóst að miklu
færri fengu bréf en vildu. Útboðs-
gengi var 9,75 og nafnvirði bréfanna
var 30 milljónir en það samsvarar
um 16% hlut í félaginu.
Að sögn Óskars Péturssonar,
framkvæmdastjóra X-18, voru við-
tökur við hlutafjárútboðinu mun
betri en hann hafði þorað að vona og
ljóst að fjárfestar hafi fulla tru á því
sem fyrirtækið er að gera. Óskar
segir að ákveðið hafi verið í október
síðastliðnum, þegar Ný-
sköpunarsjóður keypti hlut í félag-
inu, að fara út í lokað útboð. Þá hafi
og verið ákveðið að skrá fyrirtækið
á opna verðbréfamarkaðinn innan
þriggja ára en Óskar segist þó gera
ráð fyrir að það muni gerast heldur
fyrr en menn ætluðu. Fyrir hluta-
fjárútboðið voru eigendur X-18;
Sportvörur, Útgerðarfélagið Saga
og Nýsköpunarsjóður en starfs-
mönnum fyrirtækisins var einnig
boðið hlutafé til kaups við hagstæðu
gengi og nýttu allir starfsmenn sér
það og segir Óskar að þetta hafi
verið eins konar umbun til starfs-
manna fyrir vel unnin störf.
Um 90% selt á er-
lendum mörkuðum
X-18 var stofnað árið 1998 og hef-
ur starfsemi fyrirtækisins eflst
mjög síðan það var stofnað. Að sögn
Óskars var veltan um það bil 70 mil-
Skóverksmiðja í Kina sem framleiðir X-18 skó fyrir Fashion Group.
ljónir fyrsta árið, 125 milljónir í
fyrra og er gert ráð fyrir um 435
milljóna króna veltu í ár. X-18 gerði
tíu ára samning við bandarískt stór-
fyrirtæki á sviði dreifingar, New
York Transit, og er verðmæti samn-
ingsins um 100 milljónir dala en
reiknað í íslenskum krónum hefur
verðmæti hans hækkað verulega
vegna gengisbreytinga. Óskar seg-
ist ætla að um 90% af skófram-
leiðslu fyrirtækisins muni fara á
erlenda markaði á þessu ári en mik-
ilvægsutu markaðirnir eru auk
Bandaríkjanna, Bretland og
Skandinavía. Alls selur X-18 fram-
leiðslu sína í 34 löndum í fimm
heimsálfum. Aðspurður segir Óskar
að margt sé nú í bígerð hjá X-18 en
of snemmt að tala um ákveðin verk-
efni en menn séu ákaflega bjartsýn-
ir á framtíðina.