Morgunblaðið - 22.07.2000, Side 20

Morgunblaðið - 22.07.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 URVERINU ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Rólegt á loðnu- og kolmunnamiðunum síðustu daga Skipulögð loðnuleit ÁGÆTIS loðnu- og kolmunnaveiði hefur verið það sem af er sumri. Loðnuveiðin er þó heldur farin að dragast saman og er nú skipulögð loðnuleit hafin. Mörg skip hafa hald- ið sig vestarlega en nú virðist sem veiði sé lokið á því svæði í bili og eru flest skip á austurleið nú. Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK, segir að heldur mikil upplausn ríki í veiðunum núna. „Við erum héma norður af Vestfjörðum og það er heldur mikið bakslag í veiðunum núna. Það er búið að skipuleggja leit hér austur eftir þannig að það verð- ur leitað vel í dag og á morgun.“ Við- ar segir að leitað verði á stóru svæði, farið sé langt norður eftir og síðan verði haldið austur. Viðar segir þó að veiðarnar hafi gengið ágætlega undanfarið og alltaf hafi komið dag- ur og dagur þar sem eitthvað hafi veiðst. „Það er nú ekkert óeðlilegt að eitthvað bakslag sé í þessu hjá mönnum þar sem þetta hefur oft gefist upp hjá okkur um þetta leiti. Það er minnkandi straumur og allt er þetta í verri áttina en maður von- ast til að það finnist eitthvað. Það þýðir ekkert að fara í eitthvað svartsýniskast fyrr en búið er að leita.“ Rólegt á kolmunnanum Þó nokkuð er af skipum á kol- munnaveiðum og segir Ingvar Gylfason, stýrimaður á Hólmaborg SU, að heldur rólegt sé á miðunum. „Við fengum 200 tonn í gærkvöldi en síðan hefur ekkert gerst. Sumir voru að fá ágætis veiði í gær en síðan hefur ekkert verið að sjá í nótt og lít- ið að sjá nú í morgunsárið. Annars hefur þetta verið ágætt síðustu daga og síðasti túr hjá okkur gekk ágæt- lega.“ Ingvar segir að skipin séu í Hval- bakshallinu en það eru um 10 íslensk skip á svæðinu og eitt færeyskt. Freysteinn Bjamason, útgerðar- stjóri síldarvinnslunnar á Neskaup- stað, segir að þokkalegt gengi hafi verið undanfarið bæði í loðnu og kol- munna. „Þetta svona nuddast. Það hefur verið ágætt í kolmunnanum. Beitir var hér í fyrradag og landaði 1.170 tonnum og Börkur landaði um 800 tonnum en hann kom inn þar sem hann var með snúið troll. í loðn- unni hefur hins vegar verið meiri tröppugangur. Flestir hafa undan- farið verið við veiðar á vestursvæð- FISKAFLI landsmanna síðastliðinn júnímánuð var 69.457 tonn, saman- borið við 70.229 tonn í júnímánuði ár- ið 1999. Botnfiskaflinn dróst lítillega saman, fór úr 47.483 tonnum í 47.247 tonn nú. Þar af veiddust um 16.462 tonn af þorski sem er um 200 tonnum meira en í fyrra. Ýsuaflinn jókst einnig um tæp 200 tonn og var 3.127 tonn. Ufsaaflinn dróst hins vegar saman um tæp 500 tonn en hann var 2.618 tonn í júní sl. Loðnuafiinn minnkaði um tæp 2.700 tonn, en kol- munnaaflinn jókst hins vegar um rúm 2.900 tonn. Skel- og krabba- dýraafli dróst saman, fór úr 3.011 tonnum í 2.245 tonn. Sem fyrr skýrist aukinn afli það sem af er árinu af auknum loðnu- og kolmunnaafla. Skel- og krabbadýra- afli hefur hins vegar dregist veru- lega saman, eða um rúm 4 þús. tonn frá 1999, rúm 18 þús. tonn frá 1998 og tæp 23 þús. tonn frá 1997. Botn- fiskafli hefur einnig dregist saman miðað við fyrri helming ársins 1999, inu en mér heyrist að það séu allir að færa sig yfir á eystra svæðið núna.“ Aðspurður segir Freysteinn að mjölframleiðslan gangi vel enda sé mikið af hráefni sem berist að landi. Hann segir hins vegar að þó það gangi vel að framleiða mætti alveg ganga betur að selja. „Framleiðslan kemst enn þá fyrir en mjölið er farið að seljast betur sem er auðvitað gott. Það er mikið framleitt af há- gæðamjöli þannig að samkeppnin er hörð.“ og munar þar mestu um tæplega 6.000 tonna samdrátt í þorskafla, 5.500 tonn í karfaaíla og 3.400 tonn í ýsuafla. Minni fískafli íjúnímánuði Morgunblaðið/Golli Kristinn Arnberg, Guðbjörn Jónsson og Sigurður Marinósson, stjórnarmenn í LÍF. Oskað eftir ógildingu / /»• 1 • >C«1 •• • a fiskveiðiloggjofínm GUÐBJÖRN Jónsson útgerðarmað- ur hefur óskað eftir útgáfu stefnu til ógildingar lögum nr. 57/1996, lög um umgengni nytjastofna sjávar, fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Guðbjöm óskar eftir ógildingu laganna á þeim grunni að þau brjóti gegn ákvæðum um aðskilnað rannsóknarvalds og úrskurðarvalds, ákvæðum stjórnar- skrár íslands, um sakleysi þar til sekt er sönnuð og friðhelgi eignar- réttarins og ákvæðum mannrétt- indadómstóls. Guðbjöm er stjómarmaður í LÍF, Landssambandi íslenskra fiski- skipaeigenda, en hann ásamt Sigurði Marinóssyni og Kristni Amberg segir að einnig sé ætlunin að grípa til aðgerða vegna starfsemi Kvóta- þings. Þeir segja að ætlunin sé að fara fram á endurgreiðslu þeirra upphæða sem þeir hafa greitt fyrir veiðiheimildir á Kvótaþingi á þeim gmnni að Kvótaþing starfi ekki sam- kvæmt lögum sem um það var sett og ekki sé heimilt að leigja eða selja aðgang að auðlindum sjávar nema með sérstakri lagasetningu og því sé um ólögmæta gjaldtöku að ræða. „Þar sem ekki er lagastoð fyrir þessu gjaldi verður ríkið að greiða það til baka,“ segir Guðbjörn. „Það er verið að gefa þeim aðilum sem Kvótaþing á viðskipti við, það er eig- endum kvótans, þessa peninga og síðan þarf almenningur að endur- greiða þessa sömu upphæð.“ Guðþjörn segir að margt sé at- hugavert við starfsemi Kvótaþings og bendir á að starfsemi þess brjóti einnig í bága við bókhalds- og skattalög. Hann segir að öllum gögnum sé eytt um viðskipti sem eiga sér stað á Kvótaþingi þannig að ekki sé hægt að rekja greiðslur til aðila sem leigja eða selja aflaheim- ildir og það stangist á við lög um Kvótaþing. Reuters Damlað í Dhaka Mikil flóð eru víða í Bangladesh, til dæmis í höfuðborginni Dhaka þar sem þessi mynd var tekin. Þar er ekki fært um margar göt- ur nema á báti. Hefur rignt mikið að undanförnu og veðurfræðing- ar spá ekki neinni uppstyttu í bráð. Speight lofar lok lýðræðis á Fídiíeyjum Suva. AFP. Reuters Krossfarinn George Speight sötrar kaffi á Centra-hótelinu í Suva í gær. GEORGE Speight, leið- togi uppreisnarmanna á Fídjíeyjum, fullyrðir að stjórnarskrárbundið lýð- ræði sé liðið undir lok á eyjunum, og nýskipaður forseti, Josefa Iloilo, ber til baka sögusagnir um andlát sitt. Hafa þeir báð- ir rætt um hugmyndir sín- ar um framtíð Fídjí, þar sem stjórnarkreppa hefur ríkt síðan Speight og menn hans tóku þinghúsið á sitt vald og steyptu þá- verandi forsætisráðherra af stóli 19. maí. Speight sagði að í fram- tíðinni yrði ríkisstjórn eyj- anna „allt, allt öðru vísi en það stjórnarskrárbundna lýðræði í stíl samveldisins sem maður hefur átt að venjast undanfarin 30 ár. Það er út úr myndinni, það er liðið undir lok.“ Speight kveðst berjast fyrir réttindum frumbyggja á Fídjí og krafðist þess m.a. að eyja- skeggjum af indverskum uppruna verði meinað að taka þátt í stjórn landsins. Iloilo varaði við því að sífelldar deilur meðal frumbyggja í kjölfar uppreisnarinnar kæmu í veg fyrir að hægt væri að útnefna nýja ríkis- stjórn. í kjölfar sögusagna er kom- ust á kreik um andlát Iloilos flutti hann útvarpsávarp þar sem hann útskýrði hvers vegna hann hefði ekki mætt til innsetningarathafnar sl. miðvikudag þegar ný ríkisstjórn átti að sverja embættiseið. Yar eiðstökunni frestað um óákveðinn tíma. Kvaðst forsetinn ekki hafa verið vel hress á miðvikudaginn, en hann þjáist af parkinsonsveiki og lifrar- og hjartakvillum. Kvaðst hann enn- fremur hafa farið að velta betur fyrir sér ráðherralistanum. Sagði hann að mikill vandi væri kominn upp á Fídjí því að missætti ríkti milli ættbálkanna á eyjunum. „Kallið mig krossfara" Speight krefst þess nú að ekki sé skírskotað til hans sem hryðju- verkamanns eða uppreisnarleið- toga. „Kallið mig krossfara fyrir hagsmunum Fídjí og réttindum í heimalandi mínu,“ sagði hann. Fréttaskýrendur segja að það sé að koma í ljós, að helsta markmið Speights sé ef til vill ekki réttindi frumbyggja heldur einfaldlega völd. Allt frá því uppreisnin var gerð í maí hafa sumir haldið því fram, að Speight væri í rauninni leppur annarra stjórnmálamanna sem hygðu gott til glóðarinnar. Nú í vikunni setti Speight út trompið sem hann hafði á hendi, Adi Sam- anunu Cakobau, sem hann vill að verði forsætisráðherra. Rennir þetta stoðum undir þá kenningu að tilgangur uppreisnar Speights hafi verið að færa einum þekktasta ætt- bálkinum á Fídjí aftur völdin í hendur. Samanunu er sú sem á Fídjí kemst næst því að vera konungbor- in. Afi hennar var Ratu Seru Cak- obau, höfðingi Bau-ættbálksins, og var fyrrum talinn konungur Fídjí er samþykkti að eyjarnar yrðu breskt yfirráðasvæði 1874. Samanunu er vinsæl og hefur lif- að næstum öll sín fullorðinsár í Bretlandi, en eiginmaður hennar er breskur hermaður. Fyrir ári var hún útnefnd sendiherra Fídjí í Malasíu. Vika er síðan hún lýsti op- inberlega yfir stuðningi sínum við Speight og menn hans, en tilraunir hans til að koma henni í annað- hvort forseta- eða forsætisráð- herrastól hafa hingað til mistekist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.