Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 21
ERLENT
Gíslum
sleppt á Fil-
ippseyjum
MÚSLÍMSKIR öfgamenn, sem
hafa verið með tugi manna í gísl-
ingu á Jolo-eyju á Filippseyjum,
slepptu sex í gær, tveimur Fil-
ippseyingum og fjórum Malas-
íumönnum. Þá slepptu þeir
einnig fyrir nokkrum dögum
þýskri konu. Var mannræningj-
unum greitt lausnargjald íyrir
gíslana og sagt er, að upp sé
kominn ágreiningur milli mann-
ræningjanna um hvernig skipta
skuli fénu með þeim.
Ráðherra í
hraðakstri
JACK Straw, innanríkisráð-
herra Bretlands, eða öllu heldur
bíllinn, sem flutti hann, var
stöðvaður íyrr í þessum mánuði
fyrir allt of hraðan akstur. Var
hann á 165 km hraða á klukku-
stund og á leið með Straw til
fundar við Tony Blair forsætis-
ráðherra. Þótt hann hafi ekki
sjálfur verið undir stýri er atvik-
ið heldur neyðarlegt því að hann
hefur sérstaklega hvatt lög-
regluna til að taka hart á hrað-
akstri.
Rólega lífið
hentast
ÞRJÁTÍU og þrír bæir á Ítalíu
ákváðu nú í vikunni að taka
höndum saman og vinna gegn
hamaganginum, sem einkennir
daglegt líf nú á dögum. Ætla
þeir að standa vörð um friðinn,
sem ríkt hefur í bæjunum og ná-
grenni þeirra, meðal annars
með því að úthýsa bílnum að
hluta, fjarlægja sjónvarpsgreið-
ur af húsþökum og rífa niður
ljótar nútímabyggingar. Þar
sem bflar verða leyfðir má alls
ekki þeyta lúðurinn. Talsmaður
hreyfingarinnar lagði á það
áherslu, að með þessu væri ekki
verið að segja nútímanum stríð
á hendur, heldur væri verið að
reyna að sætta gamlar hefðir og
tæknflegar nýjungar. „Nú á
dögum hefur fólk ekki tíma til
að hugsa sinn gang eða til að
njóta lífsins og þá á ég ekki síst
við það yndislegasta af öllu ynd-
islegu, góðs matar,“ sagði hann.
Nítján fórust
NÍTJÁN manns fórust er MI-8-
herþyrla hrapaði til jarðar á
herflugvelli í Pétursborg í
Rússlandi í gær. Hafði hún rétt
hafið sig á loft er slysið varð og
var í um 100 metra hæð yfir
jörðu. Þetta er tíunda slysið
með MI-8-þyrlur á síðustu
þremur árum en þær voru smíð-
aðarfyrstl965.
Talað um fyrir
Lúkashenko
JAVIER Solana, talsmaður
Evrópusambandsins í utanrflds-
málum, ræddi í gær í síma við
Alexander Lúkashenko, forseta
Hvíta Rússlands, og tjáði hon-
um áhyggjur ESB af væntan-
legum kosningum í landinu.
Hvatti hann Lúkashenko til að
tryggja, að þær færu heiðarlega
fram, en yfirvöld í Hvíta Rúss-
landi segjast ætla að bjóða er-
lendum eftirlitsmönnum að
fylgjast með þeim. í valdatíð
Lúkashenkos hafa blaðamenn
verið fangelsaðir, fundum
stjómarandstöðunnar hleypt
upp og nokkrir stjómarand-
stæðingar hafa horfið.
Snarpur skjálfti á austurströnd Japans og jarðhræringar víðar í heiminum
Kjarnorkuveri lokað
Tókýó, Mexíkó, Jakarta. AFP.
SNARPUR jarðskjálfti er mældist
6,1 stig á Richter fannst á austur-
strönd Japans aðfaranótt gærdags-
ins og varð af þeim sökum að loka
kjamorkuveri tímabundið og stöðva
lestarsamgöngur. Engin meiðsl
urðu á fólki og skemmdir vom smá-
vægilegar. Upptök skjálftans voru
um 100 km norðaustur af Tókýó.
Ekki var gefin út nein viðvömn
vegna yfirvofandi flóðbylgju og
ekki var búist við eftirskjálftum, að
sögn embættismanns.
Annar minni skjálfti, er mældist
5,5, fannst þó seinnipartinn í gær
og vom upptök hans austur af Tók-
ýó. Að sögn veðurstofunnar í Japan
vora engin tengsl milli skjálftanna.
Kjarnorkuveri, sem er um 200 km
norður af höfuðborginni, var lokað
af ótta við að jarðhræringamar
hefðu valdið skemmdum á stjórn-
tækjum er fylgjast með útblæstri
frá kjarnaofninum.
Ótti í Mexíkó
Skjálfti sem mældist 5,9 á Richt-
er skók Mexíkóborg aðfaranótt
gærdagsins og hljóp fólk út úr hús-
um sínum skelfingu lostið, en eng-
inn slasaðist og skemmdir vora litl-
ar.
Upptök skjálftans vora um 200
km suður af borginni. Mikill jarð-
skjálfti olli gífurlegri eyðileggingu í
Mexíkó 1985 og varð að minnsta
kosti 4.200 manns að bana.
Skjálfti í Jakarta
Skrifstofufólki í háhýsum í Jak-
arta, höfuðborg Indónesíu, var
bragðið í gærmorgun er jarðskjálfti
er mældist 5,5 á Richter skók húsin
skömmu eftir klukkan níu. Ekki
hafa borist fregnir af meiðslum eða
umtalsverðum skemmdum.
Skjálfti upp á 5,1 fannst í Jak-
arta fyrir viku og olli hann
skemmdum í þorpum á Vestur-
Jövu. „Það hljóp enginn út úr hús-
inu núna. Ég held að fólk sé farið
að venjast þessu,“ sagði skrifstofu-
maður í bankaháhýsi í miðborginni
í gær. „En okkur fannst þessi vera
alveg jafn öflugur og sá sem kom
síðast.“
i 20-50% afsláttur af öll
garðplöntum og
sumarblómum c|
-VERÐDÆMI- MéÉ
Petúníu
slk/kr.
Blátoppur
oq Yllir
3 Runnar
að eigin vali
Sumarblóm
stk/kr.
^HÓS
Upplýsingasími: 5800 500
verö áður lcf^éS
Hansarós ilöntur OFrjfaikið úrval á útsölu