Morgunblaðið - 22.07.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Merkingar á ávöxtum og grænmeti
Undantekning
ef upprunaland
kemur fram
I matvöruverslunum eru yfírleitt engar
merkingar á ávöxtum og grænmeti sem
segja til um upprunaland vörunnar,
næringargildi eða hvort hún hafí verið úðuð
með varnarefnum. Bryndís Sveinsdóttir
komst að því að margir kaupmenn ætla
að bæta um betur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Yfirleitt vantar upplýsingar til neytenda um upprunalönd og næringargildi ávaxta og grænmetis í verslunum.
Stundum kemur fram á sjálfri vörunni hver framleiðandi er.
Oft er engin leið að sjá hvaðan varan kemur.
„SAMI ávöxtur með mismunandi
upprunaland getur verið gerólíkur
að bragði og gæðum,“ segir Kol-
beinn Ágústsson hjá Sölufélagi
Garðyrkjumanna þegar hann er
spurður hvort upprunaland ávaxta
og grænmetis skipti máli. „Til dæm-
is er greipávöxtur frá
Flórída mun mýkri og
bragðbetri en greip-
ávöxtur frá Evrópu.
Sama má segja um
kartöflur, yfirleitt
kemur ekkert teg-
undarheiti fram á er-
lendum kartöflum en
það er gífurlegur munur á bæði inn-
kaupsverði og gæðum eftir tegund-
um.“ Hann segir að yfirleitt komi
greinilega fram ef grænmeti sé ís-
lenskt en stundum sé erlent græn-
meti í kössum merktu íslensku
grænmeti og öfugt. „Þetta finnst
mér að megi laga og líka að græn-
meti og ávextir verði almennt betur
merkt í búðunum. Menn hafa lýst
því yfir að þeir séu jákvæðir fyrir
því að breyta þessu. Það eru margar
góðar hugmyndir, það vantar bara
að koma þeim í framkvæmd."
Verslunin Nýkaup byrjaði að vera
með merkingar þar sem fram komu
upplýsingar um upprunaland og
næringargildi ávaxta og grænmetis
en að sögn Árna Ingvarssonar, inn-
kaupastjóra Nýkaups, var hætt með
þessar merkingar vegna þess að
erfitt var að halda ut-
an um upplýsingam-
ar. „Við erum oft að
kaupa sömu vöruteg-
undina frá jafnvel
þrem löndum á einni
viku. Við höfum ann-
ars verið að reyna að
merkja þær vörur
sem yfirleitt koma frá sama landinu
og síðan merkjum við hvaða vörur
við fáum beint frá bónda og beint
með flugi.“ Hann segir of mikinn
kostnað einnig hafa átt þátt í því að
hætt var með merkingamar. „Við
erum að vinna að því að leysa þetta
á ódýrari hátt og munum taka
merkingarnar upp aftur innan
nokkurra vikna.“
Lífrænu vörurnar sérmerktar
Árni segir að á merkingunum hafi
ekki komið fram hvort vömrnar hafi
verið úðaðar með varnarefnum en
að þeir hjá Nýkaupi fylgist með því
sjálfir og fái vottorð yfir þær vömr
sem þörf er á að fylgjast með. „Líf-
rænu vörarnar era svo sérmerktar
og með því að kaupa þær veit fólk
betur hvað það er að fá.“
I Fjarðarkaupum stendur til að
setja upp merkingar um upprana-
land ávaxta og grænmetis á næstu
dögum að sögn Sveins Sigurbergs-
sonar, framkvæmdastjóra Fjarðar-
kaupa. Hann segist hins vegar ekki
sjá fyrir sér að þeir ráði við að gefa
upp hvaða vörar eru úðaðar með
varnarefnum. „Lífræna varan hefur
auðvitað ekki verið úðuð og hún er
sérmerkt. Hún er líka mun dýrari
en selst samt sem áður mjög vel.
Fólk virðist því vera tilbúið að borga
fyrir að vita hvaðan varan kemur.“
Of lítið hugsað um gæði
Hjá Matbæ, sem rekur verslan-
irnar Nettó, Úrval og Strax, era
menn að þreifa fyrir sér í þessum
málum að sögn Friðriks Sigþórs-
sonar, deildarstjóra í Matbæ. Hann
segir fólk hafa spurt eftir þessu og
að þetta séu nýjar kröfur sem eigi
að mörgu leyti rétt á sér. „Við erum
eftirá í þessum málum hér á landi.
Hér er allt of mikið hugsað um verð
en of lítið um gæði. Þetta er svipað
Og með kjötið, áður fyrr hugsuðu
menn aðeins um verðið en nú eru
gæðin aðalmálið."
Jón Björnsson, framkvæmda-
stjóri Hagkaups, segir að til standi
að setja upp merkingar um upp-
runaland ávaxta og grænmetis í
verslunum Hagkaups. „Við munum
merkja vöramar með þjóðfána þess
lands sem þær koma frá. Merking-
arnar era í vinnslu hjá auglýsinga-
stofu en þetta verður komið upp eft-
ir tvær til þrjár vikur.“
Betri merkingar með haustinu
I 10-11 verslununum hafa verið
sett upp svokölluð áhersluskilti við
nokkrar vörategundir þar sem upp-
ranaland vörannar kemur fram en
að sögn Magnúsar Arnar Guðmars-
sonar, innkaupastjóra ferskvöra hjá
10-11 verslununum, má gera betur.
,Að mínu mati á viðskiptavinurinn
rétt á að fá bæði upplýsingar um
uppranaland og næringargildi. Við
höfum ekki verið að standa okkur
nógu vel í þessum málum en við er-
um að vinna í þessu og verðum
komnir með betri merkingar með
haustinu."
Að sögn Guðmundar Marteins-
sonar, framkvæmdastjóra í Bónus,
hefur ekki verið farið út í slíkar
merkingar hjá þeim af því að ekki
hafa neinar kröfur verið gerðar um
það. „Þegar íslenskt grænmeti er á
boðstólnum merkjum við það en það
stendur ekki til að fara út í frekari
merkingar í augnablikinu. En ef
menn fara að gera kröfur um það þá
í VIKUNNI lækkaði heildsöluverð
á morgunkorni frá bandaríska fyr-
irtækinu General Mills. Verðlækk-
un varð á Cheeriosi, Honey nut
Cheerios, Frosted Cheerios, Cocoa
Puffs og Lucky Charms. Að sögn
Þorsteins Gunnarssonar, markaðs-
stjóra Nathan & Olsen, sem hefur
umboð fyrir vörar frá General
munum við að sjálfsögðu bregðast
við því.“ Hjá Nóatúni hefur heldur
ekki verið farið út í neinar frekari
merkingar að sögn Matthíasar Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra Nóa-
túns. „Við höfum eingöngu farið eft-
ir þeim reglugerðum sem gilda um
verð og heiti. Þetta er hins vegar
góð ábending, hlutur sem gaman
væri að vinna betur í.“
Mills, er þessi lækkun komin til
vegna tollabreytinga sem tóku gildi
1. júlí. Mun hún að öllum líkindum
skila sér til neytenda á næstu dög-
um og vikum. Lækkunin nemur
u.þ.b. 4-4,5 prósentustigum. Morg-
unkorn frá þessum framleiðanda
hefur verið á íslenskum markaði í
um 40 ár.
Reykjavík v/Laugardal
Fös 21/7 kl. 19.00. Lau 22/7 kl. 17.00 og 19.00, Sun. 23/7 kl.
17.00 og 19.00. Mán. 24/7 kl. 19.00. Þri. 25/7 kl. 19.00. Mið.
26/7 kl. 19.00. Fim. 27/ kl. 19.00. Fös. 28/7 kl. 19.00.
Selfoss
lau 29/7 kl. 19 - sun 30/7 kl. 17
Höfn
mán 31/7 kl. 19 - þri 1/8 kl. 17
Seyðisfjörður mið 2/8 ki. 19
ii
Miðasala opin daglega frá klukkan 14.00
.
n
:
1
:
-•
llHWHlllHHimrt
Greipávöxtur frá
Flórída er mun
bragðbetri en
greipávöxtur
frá Evrópu
Verðlækkun á
morgunkorni
Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT