Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 25

Morgunblaðið - 22.07.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 25 LISTIR BÓKASALA f júní Rðð Var Titttl/ Höfundur/ Útgafandi : 1 Kortabók/ / Mál og menning 2 Amazing lceland-Ýmis tungumál/ Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 3 Harry Potter og leyniklefinn/ Joanna Rowiing/ Bjartur 4 Þjóðsögur við þjóðveginn/ Jón R. Hjálmarsson/ Vaka-Helgafell 5 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós 6 íslenska vegahandbókin/ Steindór Steindórsson frá Hlöðum/ íslenska bókaútgáfan 7 Where nature shines/ Sigurgeir Sigurjónsson og Ari Trausti Guðmundsson/ Forlagið 8 Leiðsögn um íslenska byggingarlist/ / Arkitektafélag Isiands 9 Orð í tíma töluð/ Tryggvi Gíslason/ Mál og menning 10 íslenskur fuglavísir/ Jóhann Óli Hilmarsson/ Iðunn Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝPD SKÁLDVEBK 1 Uppvöxtur Litla Trés/ Forrest Carter/ Mál og menning 2 Under the glacier (Kristnihald undir jökli)/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 3 Fellur mjöll í sedrusskóg/ David Guterson/ Mál og menning 4 Sjálfstætt fólk/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 5 Englar alheimsins/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning 6 Snorra Edda-Ýmis tungumál/ / Guðrún 7 Óðfluga/ Þórarinn Eldjárn/ Forlagið 8 Góðir íslendingar/ Huldar Breiðfjörð/ Bjartur 9 Stefnumót - Smásögur listahátíðar/ / Vaka-Helgafell 10-11 Birtingur/ Voltaire/ Hið íslenska bókmenntafélag 10-11 Villtir svanir/ Jung Chang/ Mál og menning ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 Ljóð T ómasar Guðmundssonar/ / Mál og menning 2 Hávamál - Ýmis tungumál/ / Guðrún 3-4 Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar/ Róbert A. Ottósson valdi/ Skálholt 3-4 Öll fallegu orðin/ Linda Vilhjálmsdóttir/ Mál og menning 5 Ljóðasafn - Steinn Steinarr/ / Vaka-Helgafell 6 Úr landsuðri og fleiri kvæði/ Jón Helgason/ Mál og menning 7-8 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn 7-8 Stúlka-Ljóð eftir ísl. konur/ Helga Kress ritstýrði/ Bókmenntafræðist. H. I. 9 Gimsteinar: Ljóð 16 höfunda/ Ólafur Haukur Árnason valdi/ Hörpuútgáfan 10-11 Gullregn úr Ijóðum Þórarins Eldjárn/ / Forlagið 10-11 ísland er land þitt/ Páll Bjarnason tók saman/ Hörpuútgáfan ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 Harry Potter og leyniklefinn/ Joanna Rowling/ Bjartur 2 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason/ Mál og menning 3 Vísnabók Iðunnar/ Brian Pilkington myndskreytti/ Iðunn 4 Bangsímon hittir Kaninku/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell 5-6 Ástarsaga úr fjöllunum/ Guðrún Helgadóttir og Brian Pilkington/ Vaka-Helgafell 5-6 Tumi tígur og fjölskylduboðið/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell 7 Anna getur það/ Margo Lundell/ Björk 8 Karíus og Baktus/ Thorbjörn Egner/ Thorvaldsensfélagið 9 Láki/ Grete Janus Hertz/ Björk 10 Palli var einn í heiminum/ Jens Sigsgaard/ Björk ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 Kortabók/ / Mál og menning 2 Amazing lceland-Ýmis mál/ Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 3 Þjóðsögur við þjóðveginn/ Jón R. Hjálmarsson/ Vaka-Helgafell 4 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós 5 íslenska vegahandbókin/ Steindór Steindórsson frá Hlöðum/ íslenska bókaútgáfan 6 Where nature shines/ Sigurgeir Sigurjónsson og Ari Trausti Guðmundsson/ Forlagið 7 Leiðsögn um íslenska byggingarlist/ / Arkitektafélag fslands 8 Orð í tíma töluð/ Tryggvi Gíslason/ Mál og menning 9 íslenskur fuglavísir/ Jóhann Óli Hilmarsson/ Iðunn 10 ísland, landið hlýja í norðri/Torfi H.Tulinius og Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bókabúðin Hlemmi Bókabúðin Mjódd Bóksala stúdenta, Hringbraut Eymundsson, Kringlunni Penninn-Eymundsson, Austurstræti Penninn, Kringlunni Samantekt Fólagsvísindastofnunar á sölu bóka í júní 2000. Unnið fyrir Morgunblaöið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar meö þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur. Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókval, Akureyri Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum KÁ, Selfossi Fjallaheimar. Eitt af verkum Steinþórs á sýningunni í Stöðlakoti. I íjallaheinmm MYNDLIST Stöðlakot, Bókhlöðustfg 6 MÁLVERK STEINÞÓR MARINÓ GUNNARSSON Opið alla daga frá 15-18. Til 23. júlí. Aðgangur ókeypis. MÁLARINN Steinþór Marinó Gunnarsson hefur eftir frumraun sína í gömlu símastöðinni í Stykkis- hólmi 1970 verið virkur og athafna- samur á sýningarvettvangi. Virðist um þær mundir hafa tekið við af bræðrum sínum Benedikt og Vetur- liða, sem voru frekar að hægja á sér eftir mikla og eftirminnilega at- hafnasemi á sjötta og sjöunda ára- tugnum, þó enn vel virkir. Málarinn hefur haldið heilar 25 sýningar síð- an, þó helst af hófsamara taginu, en hins vegar hefur hann ekki að sama skapi verið félagslyndur á vettvang- inum, sé tekið mið af samsýningun- um, sem eru hálfu færri. Sitthvað sótti Steinþór eðlilega í smiðju hinna listlærðu bræðra sinna, en hann er ekki í sama mæli skólaður og verk þeirra helsta sjón- reynsla hans á vettvanginum. Hef- ur aldrei tekið myndlistina jafn föstum tökum og þeir, þótt upplagið hafi verið fyrir hendi. Fyrir honum er þetta meira leikur með liti, form og efni heldur en svipmikil átök, tekur það sem er hendi næst og vinnur úr því án yfirvegunar og yf- irlegu. Þótt þetta sé ekki stór sýn- ing og myndirnar ekki nema rúmir tveir tugir og þær margar litlar er sýningin frekar slitin og ósamstæð. Styrkur hennar er ótvírætt hinn gegnumgangandi og ljóðræni strengur, sem maður saknar að Steinþór skuli ekki einbeita sér að á markvissari hátt. Litirnir liggja fullmikið á yfiborðinu og auðsæ er tilhneiging gerandans til hins fagra og aðlaðandi við þá, og þótt slíkt beri ekki að lasta skortir hér eitt- hvað á tengsl við innri lífæðir, að höndla þær er vandinn mestur. Myndaröðin Úr landslagi (17-21) uppi á lofti er þannig mun litfegurri þótt ekki sé leitað á náðir fagurra eða hvellra litatóna. Hér er það samræmið sem gildir og má minna á þann framslátt að enginn litur telst öðrum fegurri í sjálfu sér, heldur sækir líf sitt í næstu liti við hliðina, eða innbyrðis mótvægi, sbr. and- stæðulitina. Að mínu viti birtist hér sterkasta hlið Steinþórs Marinós. Bragi Asgeirsson Myrkrahöfðinginn á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í S-Kóreu Sara Dögg valin besta leikkonan Sara Dögg Ásgeirsdóttir í hlutverki Þuríðar í kvikmyndinni Myrkra- höfðinginn. SARA Dögg Ásgeirsdóttir, sem leikur eitt aðalhlutverkið í kvik- myndinni Myrkahöfðingjanum var í gær valin besta leikkonan á kvik- myndahátíðinni Puchon Interna- tional Fantastic Film Festival. Há- tíðin var haldin í Puchon sem er nálægt höfuðborginni Seoul í Suður- Kóreu og lauk henni í gær. „Þetta kom mér verulega á óvart,“ sagði Sara Dögg stuttu eftir að hún veitti verðlaununum viðtöku. „Það er svo mikið af hæfileikaríku fólki hérna þannig að ég fór ekki út með því hugarfari að ég væri að fara að vinna til verðlauna. Þetta er því búin að vera mikil gleði.“ Á þriðja hundrað kvikmyndir víða úr heiminum voru sýndar á hátíð- inni. Af þeim voru tíu útnefndar til keppni, þar á meðal Myrkrahöfðing- inn. Þetta er í fyrsta skipti sem ís- lensk mynd er sýnd á hátíðinni og var Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri myndarinnar, að vonum ánægður með verðlaunin og þær góðu viðtök- ur sem myndin hlaut. „Sara Dögg er vel verðug þess að fá verðlaunin. Hennar leikur einkenndist af hugar- ró, hún lék aldrei á yfirborðinu held- ur sótti hverja tilfinningu djúpt inn í sig. Það er galdurinn við kvik- myndaleik." Sara Dögg er ekki leiklistarskóla- gengin og hafði litla reynslu af leik- list áður en hún lék í Myrkrahöfð- ingjanum. Hún var valin í hlutverk Þuríðar úr hópi 300 umsækjenda. „Verðlaunin eru vitaskuld mikil hvatning fyrir mig til að halda áfram á þessari braut. Mest um vert er samt að hafa trú á eigin hæfileik- um.“ Áhrif á dreifíngu myndarinnar Kórea mun vera orðið eitt aðal- dreifingarsvæði í Asíu fyrir kvik- myndir. „Viðtökurnar þýða að vænt- anlega mun myndin fá alvöru dreifingaraðila hér í Kóreu,“ segir Hrafn. Þorfinnur Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs, segir að mjög bráðlega komi í ljós hversu mikla sölu myndin fær. Hann segir að hátíðin sé önnur stærsta kvikmyndahátíð í Kóreu. „Þessi há- tíð hefur augun á myndum sem eru með mjög dramatískum senum og fjalla um eitthvað annað en blákald- an veruleikann," segir hann. Þetta er í annað sinn sem mynd eftir Hrafn fer í almenna dreifingu í Kóreu, en áður var það Hin helgu vé. Upplýsingar um hátíðina er að finna á http://www.pifan.com.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.