Morgunblaðið - 22.07.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 27
LISTIR
Sunnudagur á sumn
MYNDLIST
Listhúsið Fold
málverk
HARRY BILSON
Opið virka daga frá 10-18. Laugar-
daga frá 10-17. Sunnudaga frá 14-
18. Til 30. júlí. Aðgangur ókeypis.
ENN er Haraldur Bilson á ferð
með sýningu í listhúsinu Fold, en sýn-
ingar hans á staðnum eru nokkuð
reglulegur viðburður er hér er komið
sögu. Haraldur, eða Harry eins og
hann nefnir sig í útlandinu, er búsett-
ur í Bretlandi, en annars flakkar hann
um heiminn og málar. Ekki þó til að
verða fyrir staðbundnum áhrífum, því
þau eru lítt merkjanleg í málverkum
hans, öllu frekar mun það vera til að
kynna list sína, viðra sig við ókunnar
slóðir, jafnan auðgandi lifun að víkka
sjónhringinn og kynnast framandi
menningarheildum augliti til auglitis.
Og þó mun hann vera einfari sem
blandar lítt geði við aðra listamenn
nema er vera kynni í þröngum hópi,
virðist halda sig til hlés. Listamaður-
inn hefur löngu fundið sitt form og af-
markað svið í listinni og hættir sér
ekki út fyrir þann ramma frekar en
svo margir aðrir á sömu línu mark-
aðri næfí. Eins og ég hef áður greint
frá og skilgreint eru málarar af hans
sauðahúsi oftar en ekki nefndir
sunnudagsmálarar, en alls ekki í
neikvæðri merkingu heldur vegna
myndefnisins og að það er eins og
alltaf sé sparidagur í myndum þeirra.
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
í málverkinu, Vor, virðist Harry
Bilson nálgast uppruna sinn,
tefla kunnulegau landslagi við
heim trúða og temprari slóðir.
Á undangengnum áratugum hefur
einna mest borið á Júgóslövum í þeim
geira og hafa verið gefnar út margar
bækur um þá, bæði einstaka þeirra
og sem almenn úttekt, og hef ég blað-
að í þeim nokkrum auk þess sem ein
eða fleiri eru í safni mínu. Það er bjart
yfir myndum þessa fólks, lífsgleðin á
oddinum, allir að leika sér eins og
gerist á helgidögum, frídagur hjá
fólká, fjöllistamenn, undarlegt fólk og
trúðar á kreiki. Og þó er þetta allt
ímjmdað eða geymdar endurminn-
ingar sem þrengja sér fram úr undir-
vitundinni, en einnig sjónlestur úr
bókum og söfnum með gleðina og for-
tíðarþrána að leiðarljósi. Það er heil-
brigðasta mál í heimi að varpa frá sér
öllum áhyggjum og bregða á leik eins
og bamið sem við það þroskast og
endumærist, og er sömuleiðis ráð
fyrir fólk á öllum aldri til að endur-
lífga rafhlöðumar. Merkilegt að
læknar skuli ekki oftar ráðleggja fólki
að kasta af sér brynju hvunndagsins
og bregða á fjarstæðukenndan leik,
þetta gera, eða gerðu í öllu falli, ýmsir
nafnkunnir, jafnvel heimsþekktir
stjómmálamenn til að slaka á spenn-
unni, en þeirra ráð var (og er) að valsa
um á nektamýlendum!
Hið vanabundna líf, amstur dægr-
anna og fordómar gera heilasellumar
óvirkar og þá em sjúkdómamir
skammt undan, andlegir jafnt sem
líkamlegir.
Myndefnið sem Haraldur sækir í
er þannig meira en fullgilt, jafnt og
leikurinn og gleðin, en hins vegar
nálgast hann það á nokkuð vélrænan
og stásslegan hátt og undirstrikar
með voldugum umbúðum. Slíkar um-
búðir em í besta lagi er við á, en þeg-
ar þær era orðnar að ómissandi hluta
myndheims gerandans hefur færi-
bandið og hið vélræna tekið völdin,
orðið að hlutvaktri viðbót og í nokk-
urri andstöðu við huglægar mynd-
veraldimar innan þeirra. Hið merki-
lega er kannski, að þetta fer þeim
ekki illa, virðist þvert á móti við hæfi.
Maður þekkir þetta myndefni sem
er ekki ýkja frumlegt, en Haraldur
vinnur af mikilli natni og flinkheitum
þótt tæknin liggi hvorki djúpt né hafi
víðfeðman skala, en þetta má nú einn-
ig heimfæra upp á margan núlista-
manninn. Hins vegar sakna ég hins
hreina upprunalega, einhvers í áttina
að Henri Rousseau og Chagall, ein-
hvers sem birtist alveg óvænt og er
hvorki tillært né aðfengið heldur
brýst fram af ómótstæðilegri þörf.
Bragi Ásgeirsson
Skiptir ekki
máli hvaða miðill
er notaður
MYNDIRNAR á sýningu Tuma
Magnússonar sem verður opnuð í
galleríi Sævars Karls í dag laugardag
era tölvuunnar ljósmyndir af fjöl-
skyldu hans.
Sýningin ber heitið Fjölskyldu-
mynd og samanstendur af fjóram
ljósmyndum sem listamaðurinn hef-
ur prentað á sjátflímandi filmu og
fest á stóra fleti í galleríinu. Mynd-
irnar era af nefi listamannsins,
munni konu hans, eyra sonarins og
auga dótturinnar. Verkið má skoða
sem heildarinnsetningu eða hlutað
niður.
Sýningin er gerð með tækni sem
Tumi hefur áður notað og vakti með-
al annars athygli á samsýningu á
Kjarvalsstöðum í janúar og einnig í
galleríi Sævars Karls í desember.
Aðferðin felst í því að listamaðurinn
tekur nærmynd af hlut sem hann svo
skannar inn í tölvu og vinnur með.
„Ég geri hvern hlut fyrir sig ferkant-
að,“ útskýrir Tumi. „Það er ekkert
skorið af myndunum heldur þjappa
ég þeim saman og beygi til í tölvunni.
Myndirnar era stækkaðar upp og
prentaðar nákvæmlega í þeirri stærð
sem hentar hverjum fleti.“ Listamað-
urinn kveður myndimar á sýning-
unni vera hluta af ríminu í galleríinu
en hann staðsetur Ijósmyndaverkin á
veggjum, súlu og í rás í gólfinu. „Þeg-
ar ég er búinn að þenja út einn hlut
Kisi kallast þessi mynd sem
prýðir boðskortin á sýninguna.
Ljósmyndin er af heimiliskettin-
um og hana hefur listamaðurinn
teygt til og þjappað í
ferkantað form.
og fella inn í ákveðið rými þá er form-
ið á honum ekki lengur til staðar.
Hluturinn er orðinn að einheiju öðra
en hann uppranalega var.“
Tumi hefur lengst af fengist við
málaralist en undanfarið hefur hann
unnið við tölvur og gert myndir sem
hann getur látið passa nákvæmlega á
ákveðið svæði. „Mér finnst ekki
skipta máli hvaða miðill er notaður.
Málverk er bara miðill eins og aðrir
miðlar og ég nota þann sem mér
hentar best hverju sinni. Mér líkar
mjög vel að vinna með tölvur," segir
hann að lokum.
Sýningin Fjölskyldumynd opnar í
dag klukkan 14.00 í galleríi Sævars
Karls og stendur til 17. ágúst.
2&JM-2000
Laugardagur 22. júlí
SIGLUFJÖRÐUR
Þjóðlagahátíð
Dagskráin hefst að vanda með fyrir-
lestrum í safnaðarheimili Siglufjarð-
arkirkju kl. 9 og verður þemað að
þessu sinni Barnagælur og þulur-
Dans og danslög. Sagnadansar, viki-
vakakvæði, þjóðdansar. Rósa Þor-
steinsdóttir fjallar um íslenska
söngva við margvíslegar vísur, hús-
ganga, kvæði, vögguvísur og þulur.
Trygvi Samuelsen fjailar um fær-
eyska þjóðdansa. Sögu þeirra og
sérkenni. Þjóðdansaflokkur Norður-
Staumeyjar tekur þátt. Kl. 11 fjallar
Sigríður Valgeirsdóttir um dans á ís-
landi á fyrri öldum, vikivakaleiki og
gleðir fyrrá tímum. Dagskrá á Drafn-
arplani hefst kl. 13.30. Glímumenn
úrÁrmanni og Mývatnssveit sýna
glímu og forna leiki. Þjóðdansafélag-
ið Fiðrildin, Egilsstöðum, Nordur-
streymoyar Dansifelag, Þjóðdansafé-
lag Reykjavíkur, Línudansflokkur frá
Skagaströnd. Á Síldarminjasafninu
hefst dagskrá kl. 15. Götuleikhúsið
Morrinn, ísafírði, verður á stjái um
bæinn allan daginn. Hátíðardagskrá
hefst í íþróttahúsi Siglufjarðar kl. 20.
Efni flutt af námskeiðum þjóð-
lagahátíðar David Serkoak, Kanada,
Elen Inga Eira Sara og Ole Larsen
Gaino, Finnmörku, Kvæðamannafé-
lagið Iðunn, Harmónikkusveit Siglu-
fjarðar, Þjóðdansafélagið Fiðrildin,
Þjóðdansafélag Reykjavíkur, Nordur-
streymoyar Dansifelag, Færeyjum.
Hátíðln stendur tll 23. júlí.
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
Krakkar - pabbar - mömmur - afar - ömmur - og allir hinir
Nú opnum við miðbæinn
TRYGGVAGATA
AMÍM.St%
HALLV.ST. ð
--——
úansandi
vegfarendum
jt-uKj vuoui ixi v_ig ijör og margt
um að vera í bænum í dag.
Eitthvað fyriralla.
M getur farið í verslanir eða á söfnin og
litið á fuglalífið á Tjöminni. Þá er tilvalið
að setjast inn á veitingahús, slappa af og
spjalla við kunningjana.
Opið verður fyrir gangandi umferð
kl. 9-18 í dag í Austurstræti, Bankastræti
og á Laugavegi frá Klapparstíg.
Einnig Pósthússtræti við Austurvöll og
Skólavörðustíg neðan Bergstaðastrætis.
Á sama tíma verða þessar götur lokaðar
fyrir umferð bifreiða.
Opið verður fyrir akandi umferð um
Lækjargötu og Ingólfsstræti.
Ókeypis verður í bílastæðahúsin í dag.
Þau verða opin til kl. 18:30.
Önnur bflastæði eru gjaldskyld kl. 10-13.
G0RSGATA j
mmmmm
TSALA - DlSAlA - tlSAIA - QTSALA
Útsalan hefst mánudaginn 24. júlí
STORAR
STELPUR
tískuvöruverslun