Morgunblaðið - 22.07.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2000 43
UMRÆÐAN
Poppsand-
kassinn
MIKIÐ óskaplega
leiðist mér þegar full-
orðið fólk fer opinber-
lega í fýlu og í sand-
kassaleik eins og ég hef
orðið vitni að síðustu
vikur á síðum Morgun-
blaðsins þar sem
þrætuefnið hefur verið
gagnrýni á íslenska
dægurtónhst. Ég ætla
samt að setjast við
sandkassann augnablik
og rýna í það sem þar
hefur farið fram, bara
af því að mér leiðist og
ég er í fríi.
Steinar Berg, út-
gáfumógúll til margra ára, hóf leik-
inn á því að skrifa grein þar sem
hann húðskammar tónhstargagni'ýn-
anda Morgunblaðsins, Kristínu
Björgu Kristjánsdóttir, fyrir nei-
kvæða umfjöllun um tónleika Selmu
Björnsdóttur í Háskólabíói nýverið.
Kristín Björg svaraði, og á köflum
ágætlega, þessum reiðilestri Stein-
ars með langri grein og hélt ég að þar
með væri málið úr sögunni. Það
reyndist þó ekki vera svo því að í
laugardagsblaði Morgunblaðsins, út-
gefið þann 15. júlí sl., birtist grein
eftir umboðsmanninn Einar Bárðar-
son, sem mér þótti einkar leiðinleg
aflestrar en athyglisverð engu að síð-
ur. Umboðsmaðurinn Einar, sem af
einhverjum ástæðum sér ekki
ástæðu til þess að láta starfstitil sinn
fylgja greininni, heldur titlar sig sem
félagsmann í Félagi Tónskálda og
Textahöfunda, ákveður að blanda sér
ekki á beinan hátt í ritdeilu Steinars
og Kristínar heldur segist líta á grein
Steinars sem eitthvað mikilfenglegt
bréf sem hafi aðra og stærri þýðingu
en bara það að gagnrýna gagnrýni á
Selmu Bjömsdóttur. Einar segir
orðrétt um grein Steinars: „Loksins
reið einhver á vaðið og sagði það sem
segja þurfti. Allt of lengi hafa ís-
lenskir fjölmiðlar fjallað um íslenska
dægurtónlist á einstaklega neikvæð-
an hátt“. Og áfram heldur umboðs-
maðurinn: „Hvemig getur Árni
Matthíasson til dæmis haft eitthvað
um tónlist Greifanna, Lands og sona
eða Skítamórals að segja? Hann á
ekkert sameiginlegt með þessum
týpíska harðvinnandi íslendingi sem
vill skemmta sér með góðri tónlist og
kaupir plötu þessara hljómsveita í
bílförmum". Einar heldur því sem
sagt fram að Árni Matthíasson sé
fyrir það fyrsta ekki harðvinnandi ís-
lendingur og annað stað að hann vilji
ekki skemmta sér með góðri tónlist.
Árna Matthíasson hef ég þekkt
lengi og fáa þekki ég sem hafa sótt
jafn mikið af hljómleikum með ís-
lenskum tónlistarmönnum. Enn
færri þekki ég sem hlustað hafa jafn
mikið á íslenskar plötur og Árni.
Hann er líka harðvinnandi eftir því
sem ég best veit. Það er hins vegar
rétt að Árni á líklega ekki það sam-
eiginlegt með íslendingunum sem
Einar vísar til að kaupa plötur áður-
nefndra hliómsveita í bílförmum. En
gerir það Arna Matthíasson að óhæf-
um poppskríbent að vera ekki áhang-
andi þessara umræddu hljómsveita?
Gerir það Kristínu Björgu óhæfa til
tónleikagagnrýni að vera ekki aðdá-
andi Selmu Bjömsdóttur? Sjálfur
hef ég verið hljómplötugagnrýnandi
Morgunblaðsins en ég hef einnig set-
ið við hinn enda borðsins sem höf-
undur, upptökustjóri, flytjandi og út-
gefandi á tónlist. Ég tel mig því
þekkja ágætlega til þessara ólíku
hlutverka og bendi á að þegar tónlist-
armaður gefur út hugverk sín, á eigin
vegum eða með aðstoð útgefenda
eins og Steinars, þá eru hugverkin
orðin opinber og leggjast sjálfvirkt
undir dóma mismunandi einstakl-
inga sem í daglegu tali kallast al-
menningur. í Morgunblaðið, sem og
önnur landsmálablöð, skrifa svo ein-
staklingar um þessi hugverk eftir að
hafa hlustað margoft á þau. Þeir Ein-
ar og Steinar, sem og fjöldi annarra
Orri Harðarson
einstaklinga, virðast
gleyma því að sá sem
skrifar gagnrýni um
plötu eða tónleika er
aðeins einstaklingur,
hann er ekki Guð al-
máttugur, hann er ekki
alvitur. Þess vegna á ég
svo erfitt með að skilja
þessa gremju og fýlu í
umboðsmönnunum þó
að þau Kristín Björg,
Árni Matt og öll hin
hafi ekki sama smekk á
tónlist og allir þeir sem
kaupa Selmu og Skíta-
móral í bílförmum.
Sýnir bflfarmadæm-
ið ekki einmitt að fólkið úti í bæ lætur
sig litlu skipta hvað einstaklingur á
Mogganum segir um einhverja
plötu? Umbarnir Steinar og Einar
rjúka hins vegar upp til handa og
fóta og væla eins og börn yfir skrif-
Tónlistargagnrýni
Ég dáist að þeim
gagnrýnendum sem
hafa kjark til að segja
rökstudda skoðun sína
umbúðalaust, segír
Orri Harðarson, þó að
það kosti væl og þras
úr umboðs- og útgef-
endageiranum.
um fólks eins og Kristínar og Áma.
Skoðanir þessa fólks virðast greini-
lega skipta þá meira máli en margur
hefði ætlað.
Þegar ég starfaði sem hljómplötu-
gagnrýnandi á Morgunblaðinu fékk
ég að kynnast því hvað það getur ver-
ið erfitt að skrifa um tónlist sem ým-
ist er illa gerð eða fellur ekki að
manns eigin smekk. Ég gætti þó
ávallt fyllsta hlutleysis og leitaðist
ávallt við að rökstyðja mál mitt vel ef
mér þótti eitthvað miður gott. Hins
vegar fékk ég stundum í hendur
geislaplötur sem mér þóttu svo illa úr
garði gerðar að ég endursendi þær
hreinlega því ég tók það svo inn á mig
hvað afurðin var léleg. Ég dáist því
að þeim skríbentum sem hafa kjark
til að segja rökstudda skoðun sína
umbúðalaust þó að það kosti væl og
þras úr umboðs-og útgefendageiran-
um. Það að skrifa neikvæða gagnrýni
er erfitt og það gera menn ekki að
gamni sínu þó til séu á því leiðinlegar
undantekningar eins og Gunnar Lár-
us Hjálmarsson hefur stundum sýnt.
Gunnar er mjög fær lagasmiður sem
hefur samið margt merkilegra en
Prumpulagið en sem hljómplötu-
gagnrýnandi misskildi hann kannski
hlutverk sitt. Dómamir hans, eink-
um er hann skrifaði í Pressuna, voru
fyrst og fremst skemmtiefni, en
húmorinn var því miður yfirleitt á
kostnað listamannanna. Gagnrýni
Gunnars var allt of sjaldan yfirveguð
og sanngjörn.
Ég verð að viðurkenna að slík
vinnubrögð gefa mönnum eins og
Einari Bárðarsyni og Steinari Berg
byr undir báða vængi í árásum sínum
á tónlistargagnrýnendur. Það er hins
vegar alveg út í hött að alhæfa á þann
hátt sem Einar gerir með því að tala
um að íslenskir fjölmiðlar fjalli á ein-
staklega neikvæðan hátt um íslenska
dægurtónlist!
Að lokum vil ég óska þeim Steinari
og Einari áframhaldandi velgengni í
starfi og vona að þeir græði fullt af
peningum. Þeir geta óhræddir sofið
rólegir þó að Morgunblaðið komi út
sex daga vikunnar, bflfarmarnir sýna
að fæstir taka mark á skoðun ein-
staklings sem skrifar gagnrýni.
Höfundur er tónlistarmaður.
Eyrarbakkakirkja
Morgunblaðið/Ómar
Guðspjall dagsins:
Jesús kennir af skipi.
(Lúk.5.)
ÁSKIRKJA: Sumarferð Safnaðarfé-
lags og Kirkjukórs Áskirkju á Kirkju-
bæjarklaustri. Farið frá Áskirkju kl.
8:30. Nánari upplýsingar í dagbókum
blaðanna.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Org-
anisti Kjartan Siguijónsson. Félagar
úr Dómkórnum syngja. Prestur sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guösþjónusta
kl. 10:15. Organisti Sighvatur Jónas-
son. Sr. Hreinn S. Hákonarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syng-
ur. Organisti Kári Þormar. Sr. Ólafur
Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11:00. Sögustund fyrir bömin. Félag-
ar úr Mótettukór syngja. Organisti
Ágúst Ingi Ágústsson. Sr. Siguröur
Pálsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10:00.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11:00.
Guöríöur Valva Gísladóttir og Garðar
Thor Cortes syngja einsöng og leiöa
söng. Prestur Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi
eftirmessu.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumar-
leyfis starfsfólks Laugameskirkju er
bent á guösþjónustur í nágrannakirkj-
um.
NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11:00.
Organisti Reynir Jónasson. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund
kl. 11:00. Arna Grétarsdóttir leiöir
stundina. Verið öll hjartanlega velkom-
in.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Næsta guðs-
þjónusta verður sunnudaginn 13.
ágúst, aö loknu sumarleyfi.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Gunnar Jóhannesson
guðfræðinemi prédikar. Organleikari:
Pavel Smid. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kirkjan verður
lokuö vegna sumarleyfa starfsfólks og
framkvæmda við kirkjuna til ágúst-
loka. Bent er á guðsþjónustur í öörum
kirkjum prófastsdæmisins.
DIGRANESKIRKJA: Lokaö vegna
sumarleyfa I júlímánuði og fyrstu viku
ágústmánaöar. Næsta messa er
sunnudaginn 13. ágúst kl. 20.30.
Vegna prestsþjónustu er vfsað á sókn-
arprest Kársnessóknar.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjón
usta kl. 20.30. Prestur: Sr. Guömund-
ur Karl Ágústsson. Leikin veröurtaize-
tónlist. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti: Sigrún Þór-
steinsdóttir. Selló: Sofia Moberg.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónustur f
Hjallakirkju falla niður í júlímánuði.
Fólki er bent á helgihald í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins. Bæna- og
kyrrðarstundir verða áfram á þriðju-
dögum kl. 18.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Kópavogskirkju syngur. Org-
anisti: Guðmundur Sigurðsson. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta. Sr.
Ágúst Einarsson prédikar. Altaris-
ganga. Organisti er Gróa Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Sam-
koma kl. 20. Vitnisburðir, lofgjörð og
fyrirbænir. Samkoman veröur f um-
sjón heimahóps. Allir hjartanlega vel-
komnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Samkoma
kl. 20. Högni Valsson prédikar. Allir
hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Dalvegl 24: Vitnisburöarsam-
koma kl. 14 í umsjón Bjargar Pálsdótt-
ur. Allir hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Samkoma kl. 20.
Prédikun orðsins og mikil lofgjörð og
tilbeiösla. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
20. Vitnisburðir, ræðumaðurVörðurL.
Traustason. Lofgjörðarhópurinn syng-
ur. Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn sam-
koma í kvöld, sunnudag, kl. 20. Fann-
ey og Guömundur Guðjónsson stjórna
ogtala.
BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma kl.
11. Næstu laugardaga verða sam-
komumar með aðeins breyttu sniði.
Söngur og biblíufræösla en prédikun
sleppt. í dag sér Bjarni Sigurðsson um
biblfufræðsluna. Á laugardögum
starfa barna- og unglingadeildir. Allir
hjartanlega velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Kristskirkja: Sunnudag:
Kristnihátíð í Landakoti: messa kl.
10.30. (Biskup og gestir). Messa kl.
14.00. Kl. 18.00: messa á ensku:
Gestur. (Biskup). Virka daga og laug-
ardaga: messur kl. 18.00.
Reykjavík - Maríukirkja við Raufar-
sel: Sunnudag: messa kl. 11.00.
Virka daga: messa kl. 18.30. Laugar-
dag: messa kl. 18.30 á ensku.
Riftún, Ölfusi: Sunnudag: messa kl.
17.00.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnu-
dag: messa kl. 10.30. Miðvikud.:
messa kl. 18.30.
Karmelklaustur: Sunnudag: Messa
kl. 8.30. Laugardag og virka
daga: messa kl. 8.00.
Keflavík - Barbörukapella, Skólavegi
38: Sunnudag: Messa kl. 14.00.
Chapel of light, Keflavíkurflugvelli:
Sunnudag: Messa kl. 9.30. Laugar-
dag: Messa kl. 17.30.
Stykkishólmur - Austurgötu 7:
Sunnudag: messa kl. 10.00. Laugar-
dagogvirka daga: Messa kl. 18.30.
ísafjörður - Jóhannesarkapella, Bol-
ungarvík, Flateyrl, Suðureyri, Þing-
eyri: Engar messur - séra Marek
Zygadlo erí sumarleyfi til 27. ágúst.
Akureyri - Péturskirkja - Hrafnagils-
stræti 2: Sunnudaga: Messa kl.
11.00. Laugardaga: Messa kl. 18.00.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 15.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Messa kl. 11 með altarisgöngu. Síð-
asta almenna messan í Landakirkju
þar til 13. ágúst, en framundan er
vígsla stafkirkjunnar 30. júlí og helgi-
stund við setningu þjóðhátíðar 4.
ágúst. Mætum vel og njótum samfé-
lagsins í kirkjunni með kaffisopa á eft-
irí safnaöarheimilinu.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Ath. breyttan tíma. Kirkjukór
Lágafellssóknar. Organisti Jónas Þór-
ir. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl.
11 sunnudag. Sr. Gunnar Bjömsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Organ-
isti Öm Falkner. Félagar úr Kór Hafnar-
fjaröarkirkju leiða söng.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. *
11. Kór Víöistaöasóknar syngur. Org-
anisti Úlrik Ólason. Siguróur Helgi
Guömundsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 11. Morguntíð er sungin í kirkjunni
kl. 10 frá þriöjudegi til föstudags. For-
eldramorgnar eru í safnaðarheimili á
miðvikudögum kl. 11. Sóknarprestur
verður fjarverandi til næstu mánaða-
móta, á meóan þjónar Selfosssöfnuði
sr. Úlfar Guðmundsson á Eyrarbakka.
Sóknarprestur.
FITJAKIRKJA í Skorradal: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sumarbústaðafólk í
Skorradal hvatt til þátttöku. Ferming-
arbörn frá því fyrir 50 árum vitja
kirkjunnar sinnar. Sr. Flóki Kristins-
son.
BREIÐABÓLSTAÐARKIRKJA í Vestur-
hópi: Stutt helgistund kl. 11.15 og að
henni lokinni verður ganga í Borgar-
virki. Kl. 14 verður guðsþjónusta í
Borgarvirki. Prestur sr. Sigurður Grét-
ar Sigurðsson. Helgi Ólafsson leikur á
harmonikku undir almennan söng
sem söngfólk mun leiöa. Allir vel-
komnir. Sóknarþrestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
VALLANESKIRKJA: Messa kl. 14.
Ferming. Prestur sr. Vigfús Ingvar Ing-
varsson. Organisti Kristján Gissurar-
son. Fermd verður: Jóna Sigurbjörg
Þórhallsdóttir, Stekkjartröð llb, Eg-
ilsstöðum.
PRESTSBAKKAKIRKJA: Guðsþjón
usta sunnudag kl. 14. Safnaöarfélag
og kór Áskirkju I Reykjavík sækir
Prestsbakkasöfnuð heim og tekur
virkan þátt í guösþjónustunni. Kór
Áskirkju syngur og organisti er Krist-
ján Sigtryggsson. Sr. Ámi Bergur Sig-
urbjömsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti. Allir hjart-
anlega velkomnir. Sr. Bryndís Malla
Elídóttir.
ÁSPRESTAKALL: Þykkvabæjarklaust-
urskirkja. Guðsþjónusta veröur í
Þykkjabæjarklausturskirkju sunnudag
kl. 11. Prestur er sr. Baldur Gautur
Baldursson og organisti er KristóferF-
Sigurðsson. Almennur söngur. Allir
velkomnir. Sr. Bryndís Malla Elídóttir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA:
Hátíðarmessa verður sunnudag kl.
14.00 á Skálholtshátíð. Skálholtshá-
tíöarkórinn syngur. Organisti: Eyþór
Jónsson. Söngstjóri: Hilmar ðrn Ágn-
arsson. Sr. Egill Hallgrimsson, Skál-
holti.